Morgunblaðið - 13.01.2001, Qupperneq 25
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 25
Reykjavík:
Árbæjarapótek, Hraunbær 102 b, s.567 4200
Glæsibær snyrtivöruverslun, Álfheimum 74, s. 568 5170
Gullbrá, Nóatúni 17, s. 562 4217
Hygea, Kringlunni, s. 533 4533
Hygea, Laugavegi 23, s. 511 4533
Lyf og heilsa, Austurstræti 12, s. 562 9020
Lyf og heilsa Mjódd, Álfabakka 12, s. 557 3390
Lyf og heilsa Austurveri, Háaleitisbraut 68, s. 581 2101
Lyf og heilsa, Melhaga 20-22, s. 552 2190
Mist snyrtistofa/verslun, Spönginni 23, s. 577 1577
Sara, Bankastræti 8, 551 3140
Sigurboginn, Laugavegi 80, s. 561 1330
Snyrtimiðstöðin, Lancome snyrtistofa, Kringlunni 7,
s. 588 1990
Andorra, Strandgötu 32, Hafnarfirði, s. 555 2615
Bylgjan, Hamraborg, Kópavogi, s. 5642 011
Fína, Háholti 14, Mosfellsbæ, s. 568 8000
Nesapótek, Eiðistorgi 17, Seltjarnarnesi, s. 562 8900
LANDIÐ:
Hjá Maríu Amaro, Akureyri, s. 462 1730
Hjá Maríu, Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1733
Apótek Ólafsvíkur, Ólafsvík, s. 436 1261
Egilsstaða Apótek, Egilsstöðum, s. 471 1273
Lyf og heilsa, Hellu, s. 487 5030
Lyf og heilsa, Hvolsvelli, s. 487 8630
Lyf og heilsa, Kjarnanum, Selfossi, s. 482 1177
Miðbær Vestmannaeyjum, s. 481 1505
Sauðárkróksapótek Sauðárkróki, s. 453 5336
Siglufjarðarapótek Siglufirði, s. 467 2222
Verslunin Perla Akranesi, s. 431 1504
LANCÔME UM LAND ALLT
LANCÔME lítur nýja öld björtum og ekki síst fögrum augum!
Voru aldamótin kannski erfið? - Það leynir sér ekki á augnsvæðinu.
En þú getur tekið gleði þína á ný.
Lancôme býður upp á frábærar vörur sem dekra við augnsvæðið og það sem
meira er í kaupbæti er fjölnota kælimaski* sem dregur úr þreytu og þrota.
* Fylgir með ef keyptar eru tvær vörur sem fegra augnsvæðið.
Opnaðu augun fyrir litum
COLOR FOCUS
ÖRUGGLEGA FLOTTUSTU AUGNSKUGGARNIR
TRÚÐU Á FEGURÐ www.lancome.com
GREININGARDEILD Kaupþings
hefur birt skýrslu um þróun og
horfur á skulda- og hlutabréfa-
markaði. Þar segir m.a. að vænta
megi betri tíðar á hlutabréfamark-
aði, að gera megi ráð fyrir lækkun
stýrivaxta Seðlabankans á öðrum
ársfjórðungi þessa árs og að þess
megi vænta að verðbólgan verði 4%
á árinu.
„Þjóðhagsstofnun spáir 5,8%
verðbólgu sem er heldur hátt að
mati Kaupþings, sem telur að kaup-
menn geti ekki velt hækkunum af
völdum veikingar krónunnar út í
verðlagið vegna mikillar samkeppni
á markaði og að það muni tempra
þensluáhrif lækkunar krónunnar.
Að auki eru þegar skýr merki í
hagkerfinu um að dregið hafi úr
þenslu, s.s. minnkandi útgáfa hús-
bréfa og velta í smásöluverslun“,
segir í skýrslunni.
Merki um að
hagkerfið sé að kólna
Kaupþing spáir vaxtalækkun á
öðrum ársfjórðungi þessa árs en í
skýrslunni er tekið fram að réttast
væri að sú lækkun yrði gerð fyrr
enda hafi vaxtalækkun í Bandaríkj-
unum enn aukið á vaxtamun Ís-
lands við viðskiptalöndin og sé í
raun jafngildi vaxtahækkunar hér á
landi. „Merki eru um að hagkerfið
sé að kólna og lítur út fyrir að lang-
tímavaxtamunur sé að aukast. Þjóð-
hagsstofnun spáir 1,6% hagvexti á
þessu ári og ytri skilyrði eru ekki
góð sem ætti að hvetja enn frekar
til vaxtalækkunar.“ Þá segir: „Við
teljum að nú þegar séu merki á lofti
um að vaxtahækkanir hafi haft til-
ætluð áhrif og í ljósi þess að það
tekur vaxtabreytingar 9–12 mánuði
að hafa full áhrif, sé ekki ástæða til
að bíða frekari kennimerkja.“
Kaupþing segist telja hættu á því
að hávaxtastefna grafi undan sjálfri
sér og telur að Seðlabankinn þurfi
að gæta þess „að kæfa ekki alla
vaxtarbrodda hér á landi þar sem
slíkt myndi grafa undan trúverð-
ugleika hagkerfisins og þar með
krónunnar.“
Ávöxtunarkrafa skuldabréfa lækkar
Lækki Seðlabankinn vexti, jafn-
vel lítillega, væri hann, að mati
Kaupþings, með því að senda merki
um að aðgerðir hans væru að bera
árangur og þar með auka trú fjár-
festa á krónuna.
„Við vaxtalækkun skapast ávallt
sú hætta að gengi krónunnar falli.
Eins og aðstæður efnahagsmála eru
í dag er slíkt þó ekki sjálfgefið.
Vaxtalækkun í dag mun án efa
auka bjartsýni á markaði og gæti
krónan jafnvel styrkst í kjölfarið.“
Af framangreindum ástæðum,
meðal annarra, spáir Kaupþing
lækkun á ávöxtunarkröfu skulda-
bréfa almennt á næstu vikum og
misserum.
Aukinn áhugi spákaupmanna
á skuldabréfum
Jafnframt er búist við auknum
áhuga innlendra og erlendra fjár-
festa á skuldabréfum og að færast
muni í vöxt að spákaupmenn skuld-
setji sig í erlendri mynt til að fjár-
magna kaup á skuldabréfum.
„Ástæða þess að við væntum aukins
áhuga spákaupmanna á skuldabréf-
um er sú að vaxtamunur sex mán-
aða peningamarkaðsvaxta í íslensk-
um krónum og mynt gengiskörfu
íslensku krónunnar er nú 6,7%,
gengisvísitala krónunnar er nú
rúmlega 121 en efri vikmörk geng-
isvísitölunnar eru 125,36 og er því
einungis um 3,5% frá vikmörkun-
um.“ Kaupþing telur ákaflega ólík-
legt að krónan fari út fyrir vik-
mörkin þar sem Seðlabankinn ætli
sér að verja gengið og telur að tak-
markið náist.
Um húsbréf segir að forsenda
lækkunar ávöxtunarkröfu húsbréfa,
þ.e. verðhækkun þeirra, sé jafnvægi
framboðs og eftirspurnar. Þróunin
undanfarin tvö ár hafi einkennst af
offramboði, en nú séu allar líkur
á að of lítið framboð muni setja
mark sitt á markaðinn.
Ávöxtun var mjög mismunandi á
hlutabréfamarkaði
Íslenski hlutabréfamarkaðurinn
er sagður hafa skilað óvenju slakri
ávöxtun á síðastliðnu ári. Úrvals-
vísitalan hafi lækkað um 20% frá
upphafi til loka árs og það sé slak-
asta ávöxtun í sögu vísitölunnar. Í
skýrslunni segir að heildarvísitala
Aðallista hafi lækkað um tæp 14%
þó ávöxtun einstakra greina hafi
verið mjög mismunandi. Lyfjaiðn-
aður hafi t.a.m. hækkað um 65% á
árinu, vísitala byggingar- og verk-
takastarfsemi hækkaði um 28% og
vísitala upplýsingatækni um 27%.
„Vísitala verslunar og þjónustu
hækkaði um 18%, olíudreifing um
rúm 6% og vísitala iðnaðar og fram-
leiðslu um rúm 4%. Sjávarútvegur,
samgöngugeiri og fjármála- og
tryggingageiri lækkuðu frá upphafi
til loka ársins. Vísitala samgangna
lækkaði mest eða um rúm 44%,
vísitala sjávarútvegs lækkaði um
31% og vísitala fjármála og trygg-
inga lækkaði um 14% þrátt fyrir
miklar hræringar á þeim markaði á
liðnu ári.“
Horfurnar betri fyrir árið 2001
Kaupþing telur að nokkuð betur
horfi við flestum atvinnugreinum
árið 2001 en síðastliðið ár. Teikn
séu á lofti um lækkandi olíuverð og
minnkandi þenslu á húsnæðismark-
aði og gangi það eftir megi gera ráð
fyrir að verðbólguþrýstingur
minnki á árinu.
Lyfjageirinn er sagður sá at-
vinnuvegur sem kom best út á síð-
asta ári en áætlaður vöxtur á inn-
lendum lyfjamarkaði er áætlaður
10–12% á næstu þremur árum. Þá
er samgöngufyrirtækjum spáð
betra gengi þar sem útlit sé fyrir
að verð á olíu verði mun stöðugra á
árinu.
Gert er ráð fyrir að vöxtur iðn-
aðar- og framleiðslufyrirtækja verði
talsverður og búast megi við enn
meiri útrás fyrirtækjanna. „Árið
2001 horfir betur við iðnaðar- og
framleiðslufyrirtækjum þar sem
búast má við að gengisþróun krón-
unnar árið 2000 gæti skilað útflutn-
ingsfyrirtækjum auknum tekjum nú
í ár. Einnig er líklegt að verðbólgu-
þrýstingur minnki og minni þensla
verði á vinnumarkaði en þó er óvíst
um framvindu kjarasamninga.“
Fjarskiptafyrirtæki
munu vaxa hraðar
Vöxtur í upplýsingatæknigeiran-
um verður 10–15%, að mati Kaup-
þings. „Þetta á við sölu vél- og hug-
búnaðar sem og vöxt þekkingar-
fyrirtækja. Þó má búast við
breytingu í þróun vaxtar og er ekki
ólíklegt að dragi úr vexti netfyr-
irtækja en að þau fyrirtæki sem
tengjast fjarskiptum á einn eða
annan hátt muni vaxa hraðar.“
Um fjármálastofnanir segir:
„Viðskiptabankarnir þrír eru allir
farnir að taka þátt í þeirri útrás
fjármálastofnana sem hefur riðið
yfir í heiminum en þó í mismiklum
mæli og er það yfirlýst stefna
þeirra allra að vaxtarmöguleikar
þeirra séu fyrst og fremst erlendis.
Áherslur á aðrar tekjur en vaxta-
tekjur eru einnig að aukast hjá við-
skiptabönkunum en hins vegar eru
Kaupþing og Frjálsi fjárfestinga-
bankinn með mun stærri hluta
tekna sinna frá fjárfestingarbanka-
starfsemi.“ Jafnframt segir að bú-
ast megi við að árið 2001 verði
betra en árið 2000 m.a. vegna þess
að væntingar séu um að bæði hluta-
bréfa- og skuldabréfamarkaður
verði hagstæðari.
Betri tíðar og samruna að
vænta í sjávarútvegi
Í skýrslunni segir að horfur séu á
betri tíð í rekstri sjávarútvegfyr-
irtækja og jafnvel megi vænta ein-
hverra samruna í greininni á næstu
misserum enda þurfi stórar og öfl-
ugar einingar til að eiga auðveldara
með að mæta sveiflum í rekstr-
arumhverfinu og innan greinarinn-
ar sjálfrar.
„OPEC-ríkin hafa lýst yfir vilja
sínum til að halda olíuverði stöðugu
og þróun undanfarnar vikur bendir
frekar til þess að við eigum ekki
von á miklum hækkunum frá því
sem nú er. Verðbólguvæntingar eru
einnig mun lægri fyrir næsta ár en
voru á því síðasta. Þróun á liðnu ári
kann þó að þrýsta á kröfur launa-
fólks í komandi kjarasamningum.
Fram kom í frétt á mbl.is í árs-
byrjun að eins og er horfir ekki vel
fyrir að samningar náist á milli
LÍU og viðsemjenda þeirra á næstu
vikum.
Verkfall gæti því hugsanlega
skollið á síðari hluta marsmánaðar.
Ef af verður er ljóst að afkoma út-
gerða getur orðið fyrir verulegu
tjóni af völdum þessa á árinu. Enn
er þó of snemmt að útiloka að úr
rætist,“ segir í skýrslunni.
Þegar á heildina er litið telur
Kaupþing að tilefni sé til bjartsýni.
Þó sé ekki að vænta mikilla breyt-
inga á hlutabréfaverði fyrr en líða
tekur á vorið, enda sé tími afkomu-
birtinga framundan.
Kaupþing um þróun og horfur á skulda- og hlutabréfamarkaði 2001
Spá lækkun stýrivaxta á
öðrum ársfjórðungi SOCO Corp. og Íslandssímihafa nýverið undirritað sam-komulag um þróunarsamvinnu,sem felur í sér að SOCO mun
þróa hugbúnaðarlausnir fyrir
GPRS-farsímakerfi Íslands-
síma en stefnt er að því að taka
kerfið í notkun í febrúar árið
2001. SOCO mun meðal annars
þróa lausnir vegna textaskila-
boða (SMS) af Netinu í farsíma,
hringitóna og myndlausnir. Í
samningnum er kveðið á um að
SOCO eigi sölurétt á öllum
lausnum og afurðum utan Ís-
lands en fyrirtækið stefnir að
því að markaðssetja afurðirnar
og lausnir á alþjóðavísu síðar.
SOCO rekur skrifstofur í
Seattle og Washington í Banda-
ríkjunum og á Íslandi. Fyrir-
tækið hefur vaxið hratt að und-
anförnu en það hefur einkum
einbeitt sér að hugbúnaðar-
lausnum og rekstri hugbúnaðar
á farsímasviðinu með sérstaka
áherslu á hugbúnað fyrir næstu
kynslóð farsíma þar sem Netið
og farsíminn renna saman.
Samvinna
Íslandssíma
og SOCO