Morgunblaðið - 13.01.2001, Blaðsíða 71
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 71
Er svart hvítt?
● ●
! "
# $
● % & ' ()
● *
+ %
( ,) ( * ! "
DÓMSTÓLARÁÐ hefur sent frá
sér eftirfarandi athugasemd:
„Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum
að undanförnu um brot á reglum
um hámark ökuhraða í Reykjavík
vill dómstólaráð taka eftirfarandi
fram. Ástæðan er fyrst og fremst
sú að umfjöllun þessi hefur stund-
um verið á þann veg að halda
mætti að ökumenn slyppu iðulega
við refsingar þótt þeir brjóti regl-
ur um hámarkshraða en það er
fjarri öllum raunveruleika.
1. Þeir sem brjóta reglur um há-
markshraða sæta refsingum sam-
kvæmt 100. grein umferðarlaga,
en þar segir að brot gegn umferð-
arlögunum og reglum settum sam-
kvæmt þeim varði sektum eða
fangelsi allt að tveimur árum.
2. Nú er í gildi reglugerð, frá 14.
maí 1998, um sektir og önnur við-
urlög vegna brota á umferðarlög-
um og reglum settum samkvæmt
þeim. Þar er kveðið á um það
hverjum sektum það sæti að aka
hraðar en leyfilegur hámarkshraði
segir til um. Ákvæðin eru sett
fram í tiltölulega einfaldri töflu.
3. Að því er sektir og sekta-
fjárhæðir varðar eru ákvæði reglu-
gerðarinnar lögð til grundvallar
hjá lögreglu og í dómi. Lögreglu-
stjóra ber hins vegar að veita hin-
um brotlega 25% afslátt af sekt-
arfjárhæð greiði hinn brotlegi
sektina að fullu innan 30 daga frá
því að hún er ákvörðuð. Þessi af-
sláttur tíðkast ekki þegar sekt er
ákveðin í dómi. Sektarreglugerðin
tryggir að öðru leyti samræmi í
álagningu sekta hvar sem á land-
inu brotið er framið og hvort held-
ur málið er afgreitt hjá lögreglu
eða í dómi.
4. Í 101. gr. umferðarlaganna er
kveðið á um sviptingu ökuleyfis.
Þar segir að svipta skuli mann
ökuleyfi gerist hann sekur um
mjög vítaverðan akstur. Þetta
ákvæði hefur verið efnislega
óbreytt í lögum frá því að bifreiða-
lög voru sett árið 1941. Komi um-
ferðarlagabrot fyrir dómstóla ber
dómara að meta hvort um mjög
vítaverðan akstur hafi verið að
ræða eða ekki. Af lagaákvæðinu
leiðir að dómari getur ekki afgreitt
málið á þann einfalda hátt að fletta
upp í töflu sektareglugerðarinnar.
Dómari verður að leggja mat á
hvert einstakt tilvik í samræmi við
lagaákvæðið en lög ganga framar
reglugerðum. Mat þetta byggist á
áralangri dómvenju, sem of langt
mál væri að gera hér grein fyrir.
Það er rétt sem komið hefur fram
í umfjöllun fjölmiðla að hinn brot-
legi er ekki í öllum tilvikum svipt-
ur ökuleyfi í dómi, enda þótt lög-
regla hafi boðið upp á að afgreiða
brot með sekt og ökuleyfissvipt-
ingu, þótt oftar en ekki sé það svo.
Hér kemur til matið á því hvað
telst vera mjög vítaverður akstur.
Inn í það mat geta komið fjölmörg
fleiri atriði en hraði svo sem akst-
ursskilyrði, hvort um mikla um-
ferð manna og bíla hafi verið að
ræða, eða hvort ekið hafi verið
nærri íbúðarhúsum, skólum, leik-
skólum eða annars staðar sem
börn geta verið að leik. Hraða-
merkingar hafa einnig komið við
sögu í dómum. Af dómsúrlausnum
þar sem ekki hefur verið fallist á
kröfu um ökuleyfissviptingu má
hins vegar ekki draga þá ályktun
að dómarar telji að hámarkshraði
ætti að vera annar en hann er
ákveðinn í reglugerð.
5. Það er höfuðatriði að öku-
menn átti sig á því að brot á
reglum um hámarkshraða sæta
nær undantekningarlaust refsing-
um, oftast sektum en beita má þó
fangelsisrefsingu. Sé um mjög
vítaverðan akstur að ræða eru
menn sviptir ökuleyfi, að lágmarki
í einn mánuð en að hámarki ævi-
langt.“
Nær undantekningarlaust
refsað fyrir umferðarbrot
NÝLEGA hefur Jimmy Routley,
sem er einkaþjálfari og kennari í
bardagalistum, og Bryndís Sigurð-
ardóttir, unnusta hans, opnað
heilsuræktarstöðina Pumping Iron.
Pumping Iron er í Dugguvogi 12,
Reykjavík. Boðið er upp á tækjasal,
einkaþjálfun, kick-box, thai-kick,
kung-fu. muay-thai, breikdans,
sjálfsvörn, vopn, fitumælingar og
fæðubótarefni.
Opnunartímar eru frá kl. 6.30-22
á virkum dögum og frá kl. 9-17 um
helgar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bryndís Sigurðardóttir og Jimmy Routley í nýju stöðinni.
Ný heilsuræktarstöð
í Dugguvogi
FERÐAFÉLAG Íslands efnir til
ferðar í Herdísarvík sunnudaginn
14. janúar. Eins og kunnugt er bjó
Einar Benediktsson skáld þar síð-
ustu ár ævi sinnar og í ferðinni ætlar
Páll Sigurðsson prófessor að rifja
upp sögur og sagnir af búsetu Einars
og annarra í Herdísarvík.
Þar er að finna ýmsar minjar um
mannvist, sem verða skoðaðar, bæði
innanhúss og utan.
Lagt verður af stað frá BSÍ á
sunnudagsmorgni kl. 11 og komið við
í Mörkinni 6. Þátttökugjald er 1.800
krónur og allir eru velkomnir.
Boðið upp á
ferð í Her-
dísarvík
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
EFLING – stéttarfélag samþykkti
eftirfarandi ályktun einróma á
stjórnarfundi sínum 11. janúar sl.:
„Efling – stéttarfélag mótmælir
harðlega þeim vaxtahækkunum á
húsnæðislánum sem ríkisstjórnin
hefur ákveðið. Þessar vaxtahækkan-
ir munu leiða til hækkandi greiðslu-
byrði og hríðversnandi stöðu lág-
tekjufólks.
Þetta mun leiða til stöðvunar á
uppbyggingu leiguíbúða, enn hækk-
andi leiguverðs og auka á það neyð-
arástand sem ríkir í húsnæðismálum
lágtekjufólks á höfuðborgarsvæð-
inu.“
Mótmæla vaxtahækkunum
á húsnæðislánum
Í LJÓÐI sem ég hef þýtt og vitnað
er til í Morgunblaðinu á 46. blað-
síðu í gær er slæm og óskiljanleg
villa. Þar stendur: Æskufjör og
heimsins hold en á að vera æsku-
fjör og feyskið fjör.
Helgi Hálfdanarson.
LEIÐRÉTT
Í BÍÓSAL MÍR, Vatnsstíg 10, verða
næstu tvo sunnudaga sýndar tvær
ólíkar gerðir kvikmyndar þeirrar
sem rússneski leikstjórinn Sergei
Eisenstein tók í Mexíkó á árunum
1930–32 en lauk aldrei við. Önnur út-
gáfa myndarinnar, rússnesk frá sjö-
unda áratugnum, verður sýnd sunnu-
daginn 14. janúar kl. 15, hin útgáfan
er bandarísk frá árinu 1939 og sýnd
viku síðar.
Eisenstein fór á árinu 1930 til
Mexíkó til að safna efni í kvikmynd
sem átti að vera í fjórum köflum, með
formála og eftirmála, mynd sem lýsti
lífsháttum og menningu indíána í
Mexíkó og hvernig landnám Spán-
verja og kristniboð lék samfélag
frumbyggjanna þar. Nánustu sam-
starfsmenn Eisensteins í þessari ferð
voru kvikmyndatökumaðurinn Ed-
ward K. Tisse og aðstoðarleikstjórinn
Grígorí V. Alexandrov. Bandarískir
aðilar fjármögnuðu ferðina og var rit-
höfundurinn Upton Sinclair skráður
framleiðandi kvikmyndarinnar.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Lifi Mexíkó
sýnd í bíósal
MÍR