Morgunblaðið - 13.01.2001, Blaðsíða 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
MEÐALFJÖLSKYLDUTEKJUR
þeirra örorkulífeyrisþega í hjú-
skap, sem fá auknar tekjutrygg-
ingagreiðslur með þeirri breytingu
sem kveðið er á um í frumvarpi rík-
isstjórnarinnar vegna dóms Hæsta-
réttar, voru 338 þúsund krónur á
mánuði eða alls fjórar milljónir
króna í tekjur á árinu 1999. Þetta
kemur fram í útreikningum Þjóð-
hagsstofnunar sem gerðir voru
vegna undirbúnings frumvarpsins.
Um er að ræða samanlagðar
tekjur lífeyrisþeganna og maka
þeirra að meðtöldum greiðslum
sem öryrkinn nýtur frá Trygginga-
stofnun á árinu 1999, samkvæmt
skattframtölum ársins 2000.
Til samanburðar voru meðal-
tekjur allra hjóna á landinu á aldr-
inum 25-65 ára um 400 þúsund
krónur á mánuði samkvæmt skatt-
framtölum síðasta árs og meðal-
tekjur einhleypra öryrkja voru um
85 þúsund kr. á mánuði.
Öryrkjar á landinu eru um 8.700
talsins og eru 35% þeirra í hjóna-
bandi eða sambúð. Samkvæmt mati
Þjóðhagsstofnunar fá um 19% ör-
yrkja í hjúskap, eða tæplega 700
alls, auknar tekjutrygginga-
greiðslur 1. febrúar nk. vegna
breytingarinnar sem gera á í kjöl-
far dóms Hæstaréttar um að
óheimilt sé að skerða tekjutrygg-
ingu örorkulífeyrisþega í hjúskap.
Útreikningar Þjóðhagsstofnunar
taka hins vegar ekki til allra bóta-
þega sem eiga rétt á leiðréttingu
fjögur ár aftur í tímann.
Meirihluti öryrkja með litlar
eða engar tekjur auk bóta
Mikill meirihluti öryrkjanna er
með litlar sem engar tekjur aðrar
en bótagreiðslur Tryggingastofn-
unar. Yfir 98% alls hópsins hafa
minna en 50 þúsund krónur í eigin
tekjur á mánuði eða fá eingöngu
greiðslur frá Tryggingastofnun.
Ef litið er hins vegar á sam-
anlagðar tekjur lífeyrisþeganna og
maka þeirra kemur í ljós að 1,5%
alls hópsins voru með minna en 200
þús. kr. í samanlagðar fjölskyldu-
tekjur á mánuði en rúm 23% voru
með yfir 400 þús. kr. í mánaðarleg-
ar heimilistekjur vegna tekna
maka skv. yfirliti Þjóðhagsstofnun-
ar.
8,5% með meira en 500
þúsund króna heimilistekjur
Fram kemur í yfirliti Þjóðhags-
stofnunar um dreifingu fjölskyldu-
tekna hópsins að 48% öryrkjanna
eru í hjónabandi eða sambúð þar
sem maki aflar 200-300 þús. kr. á
mánuði og að 38% öryrkjanna eru í
hjúskap þar sem maki aflar yfir
300 þúsund króna á mánuði.
Samkvæmt yfirliti yfir dreifingu
samanlagðra tekna öryrkjanna og
maka þeirra, að meðtöldum bóta-
greiðslum Tryggingastofnunar,
kemur í ljós að 1,5% öryrkjanna
bjuggu við 100-200 þús. kr. fjöl-
skyldutekjur á mánuði (196 þús. að
meðaltali). Fjölmennasti hópurinn
eða 45,4% var með fjölskyldutekjur
á bilinu 200-300 þús. kr. á mánuði
(254 þús. að meðaltali), 29,6% voru
með fjölskyldutekjur á bilinu 300-
400 þús. kr. (339 þús. kr. að með-
altali), 15% voru með 400-500 þús.
kr. á mánuði (442 þús. að meðaltali)
og 8,5% öryrkjanna voru með
meira en 500 þús. kr. samanlagðar
fjölskyldutekjur á mánuði. Meðal-
tekjur þess hóps námu 628 þúsund
kr. á mánuði samkvæmt yfirlitinu.
Útreikningar Þjóðhagsstofnunar á fjölskyldutekjum öryrkja sem fá tekjutryggingu hækkaða
Heimilistekjur að meðaltali
um 338 þús. kr. á mánuði
! "#$#%"
"
& '(
&'( )
! !
)
+
),
-
!
"#$#%"
&
'
$
),
./
+
),
$
"#$#%"
&
'
$
),
..0 1
222
Morgunblaðið/RAX
VERÐBÓLGA síðasta árs var undir
þeim spádómum sem settir voru
fram í desember og byrjun janúar.
Spár fyrirtækja á fjármálamarkaði
höfðu gert ráð fyrir að verðbólga síð-
ustu 12 mánaða yrði á bilinu 3,7%-
4,5%, en samkvæmt nýjum mæling-
um Hagstofunnar var verðbólgan
3,5%.
Síðustu þrjá mánuði hækkaði vísi-
tala neysluverðs um 0,4%. Sé þessi
tala umreiknuð yfir í verðbólgu á ári
fæst út að hún var 1,8%.
Á milli desember og janúar hækk-
aði vísitala neysluverðs um 0,1%.
Mest áhrif höfðu lækkun fatnaðar og
eldsneytis, sem samanlagt hafa áhrif
til 0,45% lækkunar vísitölunnar.
Matvörur og fjölmiðlar höfðu mest
áhrif til hækkunar, eða 0,36% sam-
anlagt.
Fyrirtækið sem komst næst því að
spá rétt um verðbólguna var Ráðgjöf
og efnahagsspár.
Verðbólgan lægri
en spár ráðgerðu
Verðbólgan/24
SLYSADEILD Landspítalans–
háskólasjúkrahúss í Fossvogi
tók á móti þremur ungum pilt-
um, sem allir voru með nokkuð
alvarlegan augnskaða af völd-
um skotelda, síðdegis í gær og í
gærkvöldi. Einn piltanna er á
unglingsaldri en hinir eru 10 og
12 ára. Þeir höfðu verið að fikta
með skotelda með þessum af-
leiðingum. Enginn þeirra var
með öryggisgleraugu. Hrafn-
kell Óskarsson, sérfræðingur á
slysadeild segir of snemmt að
segja til um hvort piltarnir
hljóti varanlegan skaða.
Foreldrar piltanna komu
með þá á slysadeild með um
tveggja stunda millibili. „Það er
eiginlega verra að þeir komu
ekki saman, því þetta hlýtur að
þýða að það sé mikið fikt í
gangi,“ segir Hrafnkell. „Við
héldum að við hefðum sloppið
vel í gegnum áramótin og þrett-
ándann að þessu sinni.“ Þó seg-
ir hann hafa verið talsvert al-
gengt að börn hafi komið á
slysadeild eftir að hafa fengið
púður úr flugeldum í andlitið.
Öryggisgleraugun hafi hinsveg-
ar komið í veg fyrir að börnin
hlytu augnskaða.
Hrafnkell segir að foreldrar
verði að gera sér grein fyrir því
að hættan á flugeldaslysum sé
greinilega ekki liðin hjá þó
nokkuð sé liðið frá áramótum.
Börn séu að fikta við skotelda
en slíkt sé stórhættulegt.
Þrír piltar
urðu fyrir
augnskaða
MIKIÐ hvassviðri setti svip sinn á
vestan- og sunnanvert landið í gær-
morgun. Víða fór vindhraði yfir 20
m/sek og á Þverfjalli mældist með-
alvindhraði 33 m/sek í hádeginu í
gær. Hvassviðrið olli víða usla og lá
allt innanlandsflug niðri þar sem
rok var um allt land. Á Ísafirði
flæddi sjór inn í hús og skólahald
féll niður í Ólafsvík.
Sunnanáttin gekk niður eftir því
sem leið á daginn og er svipuðu
veðri spáð í dag, en í kvöld og nótt
gæti vindur aukist á nýjan leik þó
ekki sé búist við jafn hvössu veðri,
en úrkoma gæti orðið meiri. Á
myndinni sést særok við Borgarnes
í gær, en þar urðu engin spjöll
vegna veðurs og lítil röskun á sam-
göngum á landi þrátt fyrir hvassa
vindstrengi undir Hafnarfjalli.
Hvassviðri á
vestanverðu
landinu
Sjór flæddi/42