Morgunblaðið - 13.01.2001, Side 28
ERLENT
28 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TÉKKNESKA þingið kom saman til
bráðafundar í gær til að fjalla um deil-
urnar um yfirstjórn ríkissjónvarpsins
en umdeildur sjónvarpsstjóri, Jiri
Hodac, sagði af sér á fimmtudag eftir
nokkurra vikna þóf og bar við heilsu-
farsástæðum. Fréttamenn við stofn-
unina hafa mótmælt harkalega ráðn-
ingu Hodac og segja að hann hafi
fengið embættið á sínum tíma vegna
tengsla við stjórnmálaflokk Vaclavs
Klaus, fyrrverandi forsætisráðherra.
Klaus veitir núverandi ríkisstjórn
jafnaðarmanna hlutleysisstuðning.
Fjallað var um tillögu sem lögð var
fram um að breyta gildandi lögum um
stjórnun sjónvarpsins og draga úr
beinum afskiptum stjórnmálaflokk-
anna af stofnuninni. Þeir hafa skipað
eigin fulltrúa í sjónvarpsráðið er fer
með yfirstjórn stofnunarinnar. Ríkis-
stjórnin leggur til að fjölgað verði í
sjónvarpsráði úr níu í fjórtán. Jafn-
framt vill hún að liðsmenn ráðsins
verði skipaðir af frjálsum félagasam-
tökum og þingið leggi síðan blessun
sína yfir skipan þeirra. Til bráða-
birgða muni neðri deild þingsins
skipa nýjan sjónvarpsstjóra í stað
Hodac.
„Lagabreytingin ætti að gera kleift
að útrýma pólitískum afskiptum af
þeirri þjónustu sem ríkisfjölmiðlar
veita,“ sagði Pavel Dostai menningar-
málaráðherra á þingfundi í gær.
Klaus, sem nú er þingforseti, varaði á
hinn bóginn við umfangsmiklum og
skyndilegum lagabreytingum og
sagði reynsluna sýna að við slíkar að-
stæður tækju menn ávallt rangar
ákvarðanir og neyddust til að breyta
lögunum aftur.
Fréttamenn krefjast þess að
stjórnmálamenn reyni ekki að hafa
áhrif á störf þeirra og segja ekki nóg
að Hodac hætti. Þeir muni ekki hætta
mótmælaaðgerðum fyrr en aðrir
stjórnendur, sem einnig hafi verið
pólitískt skipaðir, verði látnir taka
pokann sinn.
Þingið samþykkti nýlega að fara
þess á leit við sjónvarpsráðið að það
ræki Hodac en það hefur ekki orðið
við þeim tilmælum og sögðu tveir liðs-
menn þess af sér af því tilefni á
fimmtudag.
Hodac hefur undanfarnar vikur
deilt við fréttamenn og reynt að fá þá
til að sætta sig við orðinn hlut. Frétta-
mennirnir lögðu að hluta undir sig
húsakynni sjónvarpsins og reyndu að
senda út eigin fréttir til mótvægis við
„opinberu“ fréttaútsendingarnar.
Tékkneska þingið ræðir breytta stjórn ríkisfjölmiðla
Frjáls félagasamtök
skipi í sjónvarpsráð
Prag. AP, The Daily Telegraph.
LUCIEN Bouchard hafði lengi full-
yrt að hann myndi boða til almennr-
ar atkvæðagreiðslu um sjálfstæði
Quebec í Kanada þegar „aðstæður til
sigurs“ væru fyrir hendi. Bouchard
sagði af sér formennsku í flokki að-
skilnaðarsinna, Parti Quebecois
(PQ), á fimmtudaginn, sannfærður
um að hann gæti ekki skapað þessar
aðstæður.
Í ræðu sem hann hélt, að mestu á
frönsku, sagði Bouchard að hann
hefði brugðist æðstu skyldu sinni
sem leiðtogi fylkisstjórnarinnar í
Quebec og flokks síns – að leiða
Quebec til sjálfstæðis. „Árangur
starfs míns er ekki mjög sannfær-
andi,“ sagði hann, og síðar bætti
hann við: „Mér þykir leitt að ég
skyldi ekki gera meira og betur.“
Meirihluti íbúa Quebec-fylkis er
frönskumælandi og hafa aðskilnað-
arsinnar löngum viljað að fylkið yrði
að sjálfstæðu ríki. Í almennri at-
kvæðagreiðslu um tillögu þess efnis,
er fram fór 1995, munaði innan við
einu prósenti atkvæða að aðskilnað-
ur yrði samþykktur.
Bouchard sagði að tími væri kom-
inn fyrir flokkinn og fylkið að finna
sér betri leiðtoga í sjálfstæðisbarátt-
unni sem hann sagði áfram vera
„einu framtíðina“ fyrir Quebec.
Eftir afsögn Bouchards ríkir ring-
ulreið í flokknum, Parti Quebecois,
og með öllu óljóst hver geti tekið við
forystuhlutverkinu. Bouchard er
einhver vinsælasti stjórnmálamað-
urinn í Quebec og það er einnig
óljóst hvaða áhrif brottför hans muni
hafa á málstað aðskilnaðarsinna.
Fréttaskýrendur benda á að harð-
línusinnar í PQ geti túlkað afsögnina
sem sigur þeirrar stefnu að herða
beri róðurinn í sjálfstæðisátt og til
verndar franskri tungu í fylkinu.
Andstaða Bouchards við harðlínu-
sinna í flokknum jókst nýverið þegar
harðlínumennirnir fylktu sér að baki
framboðsefni flokksins sem lét falla
orð er virtust gera lítið úr þjáningum
gyðinga. Þessi orð kveiktu að nýju
viðkvæmt deilumál í Quebec, það er
að segja meint umburðarleysi að-
skilnaðarsinna gagnvart minnihluta-
hópum, sem flestir eru andvígir að-
skilnaði. „Eins og við er að búast,“
sagði Bouchard, „hafa svona yfirlýs-
ingar sett smánarblett á orðspor
Quebec erlendis.“
Óljóst hvaða áhrif óvænt afsögn leiðtoga aðskilnaðarsinna í Quebec mun hafa á málstað þeirra
ReutersBouchard þurrkar tár af hvörmum áður en hann tilkynnir afsögn sína og ástæður hennar.
Kveðst
hafa
brugðist
Quebec. AP.
NOKKRIR bandarískir sérfræð-
ingar um málefni Kína hafa lýst
því yfir að þeir séu sannfærðir um
sannleiksgildi Tiananmen-
skjalanna svokölluðu. Skoðanir eru
hins vegar skiptar um hvort birt-
ing skjalanna verði til þess að flýta
lýðræðisumbótum í Kína.
Skjölunum var smyglað til
Bandaríkjanna af kínverskum
embættismanni, sem gengur undir
dulnefninu Zhang Liang, en þau
fjalla um aðdraganda blóðsúthell-
inganna á Torgi hins himneska
friðar í Peking í júní 1989. Kín-
versk stjórnvöld halda því fram að
skjölin séu fölsuð, en Andrew
Nathan, sem vann að útgáfu þeirra
í Bandaríkjunum, vísaði því á bug í
samtali við AP-fréttastofuna á
fimmtudag. „Ég veit að skjölin eru
ekta. Það verður viðurkennt í fyll-
ingu tímans.“
Nathan, sem starfar hjá Public-
Affairs-útgáfunni í New York,
sagði að sannleiksgildi Tian-
anmen-skjalanna hefði verið metið
með rannsóknum á skjölunum
sjálfum, greiningu og staðfestingu
á efni þeirra, auk könnunar á bak-
grunni embættismannsins sem
smyglaði þeim. „Mikilvægasti þátt-
ur sannprófunarinnar varðar þann
sem safnaði skjölunum – persónu
hans, frásögn hans af því hvernig
hann fékk þau í hendur, hegðun
hans og ýmis atriði sem hann sagði
okkur um sjálfan sig ... jafnframt
var upplýsinga um hann aflað með
leynd,“ sagði Nathan.
Hætta á hertum aðgerðum
gegn umbótasinnum
Skjölin eru sögð innihalda óbirt
minnisblöð frá leynilegum fundum
hátt settra embættismanna,
skýrslur frá kínversku leyniþjón-
ustunni og skrár yfir einkasímtöl
Deng Xiaoping, þáverandi forseta
Kína.
Kenneth G. Lieberthal, prófess-
or í stjórnmálafræði við Michigan-
háskóla og fyrrverandi yfirmaður
Asíumála í bandaríska þjóðarör-
yggisráðinu, segir að það sé nær
óumdeilanlegt að skjölin séu ekta.
Eina spurningin sé sú hvort Zhang
Liang hafi valið úr skjöl sem
renndu stoðum undir það sem hann
vildi koma á framfæri, en sleppt
öðrum gögnum, sem gæfu aðra
mynd af atburðum. Lieberthal seg-
ir að svo virðist sem Zhang gæti
sanngirni í vali skjalanna, en bend-
ir á að sjaldgæft sé að þeir sem leki
skjölum leggi mikið á sig til að all-
ar hliðar málsins komi fram.
Lieberthal dregur í efa að birt-
ing skjalanna muni flýta lýðræð-
isumbótum í Kína, og bendir á að
hún gæti jafnvel leitt til hertra að-
gerða stjórnvalda gegn umbóta-
sinnum.
Gæti haft áhrif á þróun
kínverskra stjórnmála
James Lilley, sem var sendi-
herra Bandaríkjanna í Kína þegar
blóðbaðið á Torgi hins himneska
friðar átti sér stað, segir hins veg-
ar að uppljóstranirnar kunni að
hafa áhrif á þróun kínverskra
stjórnmála, jafnvel þótt margir
þeirra sem minnst er á í skjölunum
séu látnir eða sestir í helgan stein.
Zhang Liang er ekki búsettur í
Kína um þessar mundir, en hann
segist ekki vilja gefa upp nafn sitt,
þar sem hann hafi hug á að snúa
aftur til heimalands síns. Hann
virðist vera umbótasinnaður
kommúnisti, og lét í ljós þá von að
birting skjalanna myndi „vera
stórt framlag til lýðræðisumbóta í
Kína.“ Efni skjalanna rennir stoð-
um undir þá kenningu að harð-
línumenn hafi þrýst á Deng Xia-
oping að beita valdi til að kveða
niður mótmæli lýðræðissinna á
Torgi hins himneska friðar af ótta
við að veldi kommúnistastjórn-
arinnar væri í hættu, en að um-
bótasinnar innan stjórnarinnar
hafi hvatt til friðsamlegri lausna.
Bandarískir sérfræðingar um málefni Kína
Segja Tiananmen-skjölin ófölsuð
New York. AP.
ÞÝSKA stjórnin bjó sig undir
það í gær að taka í sínar hendur
baráttuna gegn kúariðunni en
bændur segja skjótra úrræða
þörf eigi að bjarga landbúnaðin-
um frá alvarlegum áföllum.
Haft var eftir ónefndum emb-
ættismönnum, að kæmi kúariðu-
tilfelli upp á bæ, yrði öllum naut-
gripum þar slátrað en hingað til
hefur sambandslöndunum verið
heimilt að bregðast við hvert
með sínum hætti. Edmund Stoi-
ber, forsætisráðherra Bæjara-
lands, tilkynnt til dæmis í vik-
unni, að þar yrði beitt
svissnesku aðferðinni en hún
felst í því að slátra gripum sem
eru jafngamlir eða eldri en sýkti
gripurinn, auk þess að setja við-
komandi býli í sóttkví. Í Þýska-
landi hafa fundist 12 nautgripir
með kúariðu og flestir í Bæjara-
landi.
Bændur hafa efnt til mótmæla
víða um Þýskaland síðustu daga
og meðal annars í Westerheim í
Bæjaralandi í gær þegar flytja
átti burt 143 gripi af einu býlinu.
Hafði bóndinn þó samþykkt, að
þeir skyldu skornir.
Evrópusambandið samþykkti í
síðasta mánuði að grípa til mik-
ils niðurskurðar á nautgripum
sem komnir eru á ákveðinn ald-
ur og samkvæmt því verður allt
að 400.000 gripum slátrað í
Þýskalandi. Verður byrjað á
slátruninni í næsta mánuði og á
hún að standa út júní. Áður hafði
þýska stjórnin ákveðið, að allir
sláturgripir eldri en tveggja ára
yrðu kannaðir með kúariðusmit í
huga.
Kúariðan í Þýskalandi
400.000 grip-
um slátrað
Berlín. AFP.