Morgunblaðið - 13.01.2001, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 43
Landlæknisembættið, Heil-brigðisstofnun Þingey-inga, heilbrigðis- ogtryggingaráðuneytið og
tóbaksvarnanefnd skrifuðu undir
samning á Húsavík á fimmtudag
um ráðgjöf í reykbindindi. Í samn-
ingnum felst að Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga rekur símaþjónustu á
landsvísu sem ber heitið „Ráðgjöf í
reykbindindi – grænt númer.“
Tóbaksvarnarnefnd stendur
straum af kostnaði við þessa þjón-
ustu, allt að 250 þúsund krónur á
mánuði, eða 3 milljónir króna á ári,
en frá þeirri upphæð dragast styrk-
ir sem Heilbrigðisstofnun Þingey-
inga leggur sig fram við að afla fyrir
verkefnið. Samningurinn gildir allt
þetta ár og endurnýjast sjálfkrafa
ef samningsaðilar gera ekki athuga-
semdir við samninginn í lok árs. Öll
stuðningsmeðferð og stuðningsefni
er ókeypis fyrir skjólstæðinga þjón-
ustunnar.
Friðfinnur Hermannsson fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar
Þingeyinga lýsti yfir ánægju með
samninginn og sagði að þar á bæ
ætluðu menn sér að standa sig vel
við þetta verkefni. Hann sagði
stefnt að því að byggja upp þekk-
ingu innan stofnunarinnar til að
nýta til framtíðar og að jafnvel yrði
horft til þess að koma upp sérstöku
heilsuhæli í sýslunni vegna þessa.
Reykingar faraldur
hér á landi
Sigurður Guðmundsson land-
læknir sagði framtakið gott og það
sýndi hvað hægt væri að gera með
framsæknu fólki. Hann sagði að
reykingar væru faraldur hér á landi
en árlega deyja rúmlega 400 manns
úr sjúkdómum sem tengjast tóbaki.
Landlæknir sagði mestu máli
skipta að forða fólki frá reykingum
en að einnig væri nauðsynlegt að
hjálpa að hætta að reykja.
Ráðgjafaþjónustan hefur á að
skipa hjúkrunarfræðingum með
sérþekkingu á tókbaksvörnum en
einnig tengjast þjónustunni læknar,
sálfræðingur og næringarfræðing-
ur. Auk þess hefur starfsfólk ráð-
gjafaþjónustunnar almenna þekk-
ingu á sálfræðilegum og
félagslegum stuðningi við fólk sem
vill hætta tóbaksnotkun.
Starfsfólk hringir í skjólstæðing
sinn 4 sinnum með jöfnu millibili
eftir fyrirfram ákveðnu kerfi sem
miðast við aðstæður. Sjálfur getur
skjólstæðingurinn hringt eins oft
og hann hefur þörf fyrir. Miðað er
við að símaþjónustan verði opin frá
kl. 17-19 virka daga en þeir sem
hringja á öðrum tíma geta lagt inn
skilaboð á símsvara. Græna núm-
erið er 800-6030.
Starfið farið vel af stað
Ásgeir Helgason, sem er sálfræð-
ingur og með doktorspróf í lækna-
vísindum, hefur komið á fót svipaðri
aðstöðu í Svíþjóð þar sem hann
starfar. Heilbrigðisstofnun Þingey-
inga hóf þetta starf til prufu í jan-
úar á síðasta ári og hefur það geng-
ið vel að sögn Dagbjartar Bjarna-
dóttur hjúkrunarfræðings í Mý-
vatnssveit. Á þessum tíma hefur
Ásgeir aðstoðað Þingeyinga við
uppbyggingu þjónustunnar og hann
var viðstaddur undirskrift samn-
ingsins.
Ásgeir sagði að víða væri pottur
brotinn en að heilsugæslulæknar á
Norðurlöndunum hafi rætt um leið-
ir fyrir fólk sem vill hætta að nota
tóbak en að minna hafi orðið úr
verki en þeir sjálfir hafi viljað.
Hann sagði að samkvæmt rannsókn
sem gerð var á Norðurlöndunum
hafi komið fram að Ísland skæri sig
úr varðandi aðkomu lækna að því að
koma fólki á námskeið, þ.e. að hlut-
fallið væri mun hærra hér en í Sví-
þjóð, Noregi og Finnlandi. Einnig
kom fram að ástæðan fyrir því að
læknar sinntu þessum þætti ekki
betur væri tímaskortur en 5-6 klst.
þyrfti að eyða í hvern sjúkling og að
læknar ættu ekki möguleika á því.
Aðgengi að
sérfræðingum aukið
Þá kom fram að margir læknar
töldu þetta ekki erfiðisins virði þar
sem árangurinn væri ekki nægilega
góður og enn aðrir töldu sig ekki
hafa nægjanlega þekkingu. Ásgeir
sagði að á Íslandi teldu yfir 90%
heilsugæslulækna nauðsynlegt að
geta vísað fólki á sérfræðinga í
reykbindindi. Með símaþjónustu
væri einmitt verið að reyna að auka
aðgengi fólks að sérfræðingum
burtséð frá því hvar það býr.
Reynslan í Svíþjóð hafi verið það
góð að ákveðið hafi verið að festa
starfsemina þar í sessi.
„Það er beint samband milli auk-
innar meðferðar og árangurs,“
sagði Ásgeir og taldi að þar sem
m.a. væri líka hringt í sjúklinga ætti
að vera hægt að ná 35-40% árangri.
Hann taldi jafnframt mögulegt að
ná betri árangri á Íslandi en í Sví-
þjóð þar sem Íslendingar reyktu
meira en Svíar.
Dagbjört sagði að ákveðin þróun
hafi átt sér stað í þessu starfi á
fyrsta árinu en að ekki væri hægt
að fara út í tölulegar staðreyndir að
svo stöddu. Hún sagði að sjö hjúkr-
unarfræðingar kæmu að þessu
verkefni sem auðveldaði persónu-
lega eftirfylgni. Hún sagði ólíkt að
vinna þetta starf í síma en að vissu-
lega væri gaman að heyra í ánægð-
um skjólstæðingum.
Samið um „Ráðgjöf í reykbindindi – grænt númer“
Morgunblaðið/Kristján
Þorgrímur Þráinsson, framkvæmdastjóri Tóbaksvarnanefndar, Friðfinnur Hermannsson, framkvæmda-
stjóri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, og Sigurður Guðmundsson landlæknir undirrita samninginn á
Húsavík í gær. Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, átti ekki heimangengt en
ráðuneyti hennar á einnig aðild að samningnum.
Símaþjónusta fyrir
fólk sem vill hætta
tóbaksnotkun
Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga rekur síma-
þjónustu á landsvísu
fyrir fólk sem vill hætta
að reykja. Tóbaks-
varnanefnd stendur
straum af kostnaðinum
sem er um þrjár millj-
ónir króna á ári.
Morgunblaðið/Kristján
Ásgeir Helgason sem starfar í
Svíþjóð hefur verið Þingeying-
um til aðstoðar við undirbúning
verkefnisins.
eimur um
u þó ein-
g eitthvað
rfðist. Við
tæmdum sjó úr húsinu með vatns-
sugu sem við fengum hjá slökkvilið-
inu og bíðum síðan eftir flóðinu í
kvöld og sjáum hvað gerist þá,“
sagði Heimir í gærmorgun. Ekkert
varð úr frekara flóði um kvöldið,
enda var sjávarstaða lægri og minni
vindur.
Á Flateyri fuku fjögur tóm fiski-
kör fiskvinnslunnar Kamba í sjóinn
í fyrrinótt. Þau stóðu upp við verk-
smiðjuhúsið og fuku yfir höfnina og
út í sjóinn. Þá lagðist gámur á hlið-
ina undan rokinu. Flateyringar
bundu báta sína kirfilega í skjóli við
syðri hafnarbakkann þegar storm-
urinn gerði vart við sig í fyrrakvöld.
Mjög hvasst og úrhellisrigning
var í gærmorgun í Ólafsvík og var
skólahaldi aflýst vegna veðurs.
Þakplötur fuku af bílskúr í bænum
um morguninn og aðstoðuðu björg-
unarsveitarmenn við að festa þær
aftur. Að sögn lögreglunnar var
ekki mikill sjógangur við höfnina,
enda landátt.
Lögreglan í Bolungarvík fékk
nokkur útköll í gærmorgun. Sól-
skýli losnaði frá húsi, rúða brotnaði
í öðru húsi og þak fauk af því þriðja.
Á Sauðárkróki fuku þakplötur af
húsum og voru björgunarsveitar-
menn kallaðir út til að festa þær
niður aftur. Ekkert tjón varð af
þessum sökum, að sögn lögreglu.
sunnanvert landið í gærmorgun
ús á Ísafirði
sflugi aflýst
Morgunblaðið/RAX
Víða var hvasst við vestanvert landið og suðurströndina, en sjór gekk
ekki á land þar sem myndin var tekin í Grindavíkurhöfn í gærmorgun.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
upstað á Ísafirði. Að sögn Heimis Hanssonar safnvarðar, til hægri á myndinni, urðu
sjór hafi verið í ökklahæð í húsunum tveimur um tíma.
veinbjörns
Ísafirði
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
ð lauslegt fauk til í rokinu á Ísafirði í gær.