Morgunblaðið - 13.01.2001, Side 72
DAGBÓK
72 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Rano-
sen kemur í dag, Faxi
RE fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Svanur, Kópur og Is-
berg komu væntanlega í
gær. Skandia og Hvilv-
tenni fóru væntanlega í
gær. Great Majest fer
væntanlega í dag.
Fréttir
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ, Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjudag kl. 17.30.
Mannamót
Aflagrandi 40. Þorra-
blót verður haldið á
bóndadaginn 19. janúar.
Húsið opnað kl. 18:15.
Þorrahlaðborð. Minni
karla og kvenna flytja
sr. Anna Sigríður Páls-
dóttir og sr. Sigurður
Arnarson, prestar í
Grafarvogi. Konur úr
Vox Feminae syngja
undir stjórn Margrétar
Pálmadóttur. Hljóm-
sveit Ragnars Leví og
félaga leikur fyrir dansi.
Skráning og upplýs-
ingar í afgreiðslu sími
562-2571. Enska byrjar
á þriðjudaginn kl. 10 og
kl. 11. Bankaþjónusta
verður á þriðjudag kl.
10.15.
Bólstaðarhlíð 43. Þorra-
blót verður haldið föstu-
daginn 26. janúar kl. 17.
Þóra Ágústsdóttir og
Bjarni Aðalsteinsson
kveðast á. Bragi Þór
Valsson syngur við und-
irleik Þóru Fríðu Sæ-
mundsdóttur. Kvenna-
kór Félagsþjónustunnar
syngur undir stjórn
Guðbjargar Tryggva-
dóttur. Ragnar Leví og
félagar leika fyrir dansi.
Salurinn opnaður kl.
16.30. Skráning í síma
568-5052 fyrir föstudag-
inn 26. janúar.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Á
mánudag verður félags-
vist kl. 13:30. Púttæfing
í Bæjarútgerðinni
mánudag kl. 10–12,
tréútskurður í Flens-
borg kl. 13. Á þriðjudag
verður bridge og saum-
ar. Línudans á miðviku-
dag kl. 11. Byrjendur
velkomnir. Á miðviku-
dag og föstudag verður
myndmennt. Getum
bætt við örfáum í mynd-
mennt á miðvikudögum.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeg-
inu. Hana-nú gönguhóp-
ur Félags eldri borgara í
Kópavogi mætir í Ás-
garð Glæsibæ í boði
Göngu-Hrólfa í dag
laugardag 13. janúar kl.
10 hóparnir ætla að eiga
notalega og skemmti-
lega samverustund og
eru allir velkomnir.
Mánudagur: Brids kl.
13. Þriðjudagur: Skák
kl. 13.30, og alkort spil-
að kl. 13.30. Baldvin
Tryggvason verður til
viðtals um fjármál og
leiðbeiningar um þau
mál á skrifstofu FEB
fimmtudaginn 18. jan-
úar kl. 11–12. Panta þarf
tíma. Silfurlínan opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10–12.
Ath. Skrifstofa FEB er
opin frá kl. 10–16. Upp-
lýsingar í síma 588-2111.
Félag eldri borgara,
Kirkjuhvoli, Garðabæ.
Boccia mánudaga og
fimmtudaga kl. 10.30
brids þriðjudaga kl. 13.
Félagsfundur verður
föstudaginn 19. janúar
kl. 16 í Kirkjuhvoli.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund og leikfimiæfingar
í Breiðholtslaug á mánu-
dögum kl. 9.25 og
fimmtudögum kl. 9.30.
Umsjón Edda Bald-
ursdóttir íþróttakenn-
ari. Á þriðjudag kl. 13
boccia.
Gjábakki, Fannborg 8.
Skráning á námskeið
stendur yfir, nokkur
pláss laus t.d. í bókband,
klippimyndir, silki-
málun, tréskurð og
ensku. Gjábakki, FEBK
og Hananú. Þorrablót
verður í Gjábakka laug-
ardaginn 20. janúar.
Fjölbreytt dagskrá,
Árni Tryggvason leikari
flytur gamanmál, söng-
ur, dans og fleira.
Skráning hafin, miðar
verða afhentir fimmtu-
daginn 18. janúar og
föstudaginn 19. janúar.
Upplýsingar í síma 554-
3400.
Kirkjustarf aldraðra
Digraneskirkju. Opið
hús þriðjudag frá kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fræðsla. Verið
velkomin.
Félagsstarf SÁÁ.
Bridge á sunnudags-
kvöldum í Hreyfilshús-
inu (3. hæð) kl. 19.30.
Vesturgata 7. Fyr-
irbænastund verður
fimmtudaginn 18. jan-
úar kl. 10. 30 í umsjón
séra Jakobs Ágústs
Hjálmarssonar, dóm-
kirkjuprests. Allir vel-
komnir. Þorrablót verð-
ur haldið fimmtudaginn
1. febrúar, húsið opnað
kl. 17.30. Þorrahlaðborð,
kaffi og konfekt. Pavel
Manasek við flygilinn,
veislustjóri Árni John-
sen, Edda Björgvins-
dóttir leikkona kemur í
heimsókn, Fjölda-
söngur, minni karla flyt-
ur Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir og minni
kvenna flytur Einar Örn
Stefánsson. KKK
syngja undir stjórn
Pavels. Hljómsveit
Hjördísar Geirs leikur
fyrir dansi. Upplýsingar
og skráning í síma 562-
7077.
Breiðfirðingafélagið.
Félagsvist spiluð á
sunnudögum kl. 14 í
Breiðfirðingabúð, Faxa-
feni 14. Fyrsti dagur í
fjögurra daga keppni.
Bandalag kvenna í
Reykjavík. For-
mannaráðsfundur verð-
ur haldinn mánudaginn
15. janúar kl. 20 að Hall-
veigarstöðum Túngötu
14.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur
verður í kvöld kl. 21 í
Konnakoti, Hverfisgötu
105, Nýir félagar vel-
komnir. Munið gönguna
mánudag og fimmtudag.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Suðurlandi: Í
Vestmannaeyjum: hjá
Axel Ó. Láruss. skó-
verslun, Vest-
mannabraut 23, s. 481-
1826. Á Hellu: Mosfelli,
Þrúðvangi 6, sími 487-
5828. Á Flúðum: hjá Sól-
veigu Ólafsdóttur, Versl.
Grund sími 486-6633. Á
Selfossi: í versluninni
Íris, Austurvegi 4, sími
482-1468 og á Sjúkra-
húsi Suðurlands og
heilsugæslustöð, Árvegi,
sími 482-1300. Í Þor-
lákshöfn: hjá Huldu I.
Guðmundsdóttur, Odda-
braut 20, sími 483-3633.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga, fást á eftirtöldum
stöðum á Reykjanesi. Í
Grindavík: í Bókabúð
Grindavíkur, Vík-
urbraut 62, s. 426-8787.
Í Garði: Íslandspósti,
Garðabraut 69, s. 422-
7000. Í Keflavík: í Bóka-
búð Keflavíkur Penn-
anum, Sólvallagötu 2, s.
421-1102 og hjá Íslands-
pósti, Hafnargötu 89, s.
421-5000. Í Vogum: hjá
Íslandspósti b/t Ásu
Árnadóttur, Tjarn-
argötu 26, s. 424-6500, í
Hafnarfirði: í Bókabúð
Böðvars, Reykjavík-
urvegi 64, s. 565-1630 og
hjá Pennanum-
Eymundsson, Strand-
götu 31, s. 555-0045.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Vesturlandi: Á
Akranesi: í Bóka-
skemmunni, Stillholti
18, sími 431-2840, Dal-
brún ehf., Brákarhrauni
3, Borgarnesi og hjá El-
ínu Frímannsd., Höfða-
grund 18, sími 431-4081.
Í Grundarfirði: í Hrann-
arbúðinni, Hrannarstíg
5, sími 438-6725. Í Ólafs-
vík hjá Ingibjörgu Pét-
ursd., Hjarðartúni 1,
sími 436-1177.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Vestfjörðum:
Á Suðureyri: hjá Gesti
Kristinssyni, Hlíðavegi
4, sími 456-6143. Á Ísa-
firði: hjá Jóni Jóhanni
Jónss., Hlíf II, sími 456-
3380, hjá Jónínu Hög-
nad., Esso-versluninni,
sími 456-3990 og hjá Jó-
hanni Káras., Engjavegi
8, sími 456-3538. Í Bol-
ungarvík: hjá Kristínu
Karvelsd., Miðstræti 14,
sími 456-7358.
Í dag er laugardagur 13. janúar,
13. dagur ársins 2001. Geisladagur.
Orð dagsins: Þú skalt ekki framar
hafa sólina til að lýsa þér um daga,
og tunglið skal ekki skína til að
gefa þér birtu, heldur skal Drott-
inn vera þér eilíft ljós og Guð þinn
vera þér geislandi röðull.
(Jes. 60, 19.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
ÉG bý í blokk. Um kl. 23.30
á gamlárskvöld safnaðist
fólk saman úti á bílaplani til
þess að skjóta upp flugeld-
um. Stóð það fram á miðja
nótt. Hávaðinn var það mik-
ill að ekki var hægt að
hlusta á sjónvarp. Það eru
lög um það að ekki megi
valda fólki ónæði eftir á
miðnætti. Hvers vegna
gilda ekki sömu lög á nýárs-
nótt? Börn og heilsuveilt
fólk þarf að fá að sofa í friði
fyrir hávaða. Það á að banna
að vera með sprengingar og
hávaða við íbúðarhús.
Guðbjörg.
Málefni öryrkja
og staða þeirra í
byrjun 21. aldar
ÉG undirritaður var einn af
þeim er fóru í Trygginga-
stofnun ríkisins 2. janúar sl.
Eftir þónokkra bið kom for-
stjóri Tryggingastofnunar-
innar, Karl Steinar Guðna-
son, ákaflega kurteis og
ljúfur maður, og tjáði okkur
að málið væri í höndum rík-
isstjórnarinnar. Hann sagði
að öryrkjar væru ekki of-
haldnir af þeim bótum sem
þeir fengju og hann hefði
gjarnan vilja greiða meira
fé en stofnuninni er
skammtað af ríkisstjórn-
inni. Tryggingastofnun til-
heyrir trygginga-
málaráðherra en flestir sem
þarna voru inni sögðu að
heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra réði senni-
lega engu, það væri í hönd-
um forsætisráðherra. Sá
kafli í öllu þessu máli er
hneisa út af fyrir sig og allri
ríkisstjórninni til skammar.
Þegar dómur féll í hæsta-
rétti, hefði átt að leiðrétta
strax það sem var búið að
taka ófrjálsri hendi af ör-
yrkjum, síðan gátu svo
menn rætt framhaldið.
Mér þykir ákaflega sárt
að heyra því haldið á lofti í
fjölmiðlum að Garðar
Sverrisson og Helgi Seljan
séu að þrýsta á stjórnvöld
eingöngu af pólitískum
hvötum. Það er bara alls
ekki rétt, báðir tveir hafa
verið að berjast við stjórn-
völd fyrst og fremst fyrir
öryrkja. Sjálfsstæðisflokk-
urinn sat við völd þegar
þessar skerðingar komust á
fyrst með Alþýðuflokknum
og síðan með Framsóknar-
flokknum. Því hljóta núver-
andi stjórnvöld að bera
ábyrgð. Þeim ber því skil-
yrðislaust að hlíta dómi
hæstaréttar og skipa
Tryggingastofnun að gera
upp við öryrkja samkvæmt
hæstaréttardómi. Hvað
varðar framtíðina er svo allt
annað mál, sem svo Alþingi
getur afgreitt þegar það
kemur saman. Það þýðir
ekki að gera líðið úr æðsta
dómstól þjóðarinnar, þó svo
að dómar þaðan séu ekki
forsætisráðherra að skapi.
Ef svo ætti að vera, þá bú-
um við ekki lengur í landi
sem hefur lýðræði. Hvað er
orðið af frelsi einstaklings-
ins? Það virðist nefnilega
ekki alltaf vera í gildi hug-
takið „Allt fyrir frelsið“. Ör-
yrkjar bíða núna eftir því að
þessi mál komist á hreint.
Uppstokkun hjá almanna-
tryggingakerfinu þarf að
eiga sér stað svo leiðrétta
megi allt það misrétti sem
þar er að finna.
Gunnar G. Bjartmarsson,
Hátúni 10.
Seinn jólapóstur
ANNA hafði samband við
Velvakanda og vildi
kvarta undan þjónustu hjá
Íslandspósti varðandi
flutning á jólapósti. Hún
fékk jólakort sem var 18
daga á leiðinni frá Þýska-
landi. Jólakort, sem var
póstlagt sex dögum fyrir
jól, komst til skila 8. jan-
úar sl. Finnst fólki eitt-
hvað athugavert við
þetta?
Tapað/fundið
Skrautsund á vegum
KR árið 1945
ÁGÚSTA hafði samband
við Velvakanda og langaði
að vita hvort einhver ætti
myndir frá skrautsundi á
vegum KR í Sundhöll
Reykjavíkur árið 1945. Ef
svo væri, vinsamlegast
hafið samband við hana í
síma 564-5025.
Dýrahald
Kettlinga vantar
heimili
LITLA átta vikna kett-
linga vantar góð heimili.
Kassavanir. Upplýsingar í
síma 564-2954.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hávaði á
nýársnótt
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur áhyggjur afframtíð íslenskrar tungu. Mál-
far ungs fólks á Íslandi í upphafi nýrr-
ar aldar gefur heldur ekki ástæðu til
mikillar bjartsýni í þeim efnum. Vík-
verja blöskrar stundum þegar hann
heyrir á tal unga fólksins og það sem
verra er, unglingarnir virðast beinlín-
is gangast upp í því að klæmast á
móðurmálinu og sletta ensku í tíma
og ótíma. Þeim finnst líklega „kúl“ að
„dissa“ miðaldra „dúdda“ eins og Vík-
verja með svona tali.
Það sem gerir björgunaraðgerðir
gagnvart íslenskri tungu erfiðari nú
en á tímum Fjölnismanna, þegar Jón-
as og félagar skáru upp herör gegn
áhrifum dönskunnar og höfðu sigur,
er að enskumælandi ljósvakafjölmiðl-
ar og hin nýja upplýsingatækni ver-
aldarvefjarins eða „Internetsins“ á
greiðan og óhindraðan aðgang inn á
heimilin. Talið er að um áttatíu af
hundraði alls efnis á Netinu séu á
ensku og stór hluti ungs fólks notfær-
ir sér þessa upplýsingatækni, sem í
sjálfu sér er af hinu góða, ef ekki
kæmu til þessi neikvæðu áhrif á tung-
una.
Ekki bætir svo úr skák að stjórn-
endur íslenskra sjónvarpsþátta, sem
ætlaðir eru ungu fólki, virðast gang-
ast upp í að sletta ensku hvar sem því
verður við komið og viðmælendurnir,
sem oft eru ungt fólk sem er að fást
við eitthvað áhugavert (er að „meik-
a’ða“ eins og það er orðað á nútíma-
íslensku), lætur auðvitað ekki sitt eft-
ir liggja við að niðurlægja
móðurmálið ef þess er nokkur kostur.
x x x
RAUNAR finnst Víkverja oft þess-ar íslensku „sjónvarpsstjörnur“
brjóstumkennanlegar, þar sem þær
aka sér í herðum í sjálfsánægju sinni
og drýldni, með nefið upp í loftið og
telja sig eiga heiminn, en hafa þó lítið
annað til brunns að bera en útlitið.
Þetta lið getur ekki einu sinni talað
skammlausa íslensku. Samt gapa
ungir áhorfendur upp á þessa
„plebba“ (sletta úr latínu, Víkverji
biðst forláts) og éta upp eftir þeim
„slúberta-húmorinn“ eða hvað svo
sem menn vilja kalla þessar umræð-
ur, sem oft snúast ekki um annað en
kynlíf og fyllerí. (Víkverji biðst afsök-
unar á þessum slettum, en honum
finnst þær hæfa tilefninu enda hafðar
innan „gæsalappa“. Auðvitað væri
hægt að nota góð og gild íslensk orð
yfir þetta eins og „aulafyndni“ eða
„fábjánaháttur“.)
Að dómi Víkverja er nú þörf rót-
tækra aðgerða í anda Fjölnismanna. Í
rauninni er það kraftaverk að við
skulum enn tala tungu forfeðranna og
það þarf að brýna fyrir ungu fólki
hversu mikilvægt það er. Ef við glöt-
um tungunni glötum við um leið ís-
lensku þjóðerni.
x x x
MORGUNBLAÐIÐ fjallaði um ís-lenska tungu í leiðara um síð-
ustu helgi. Þar er vitnað í viðtal við
Kristján Árnason, prófessor og for-
mann Íslenskrar málstöðvar, þar sem
hann lýsir áhyggjum sínum af stöðu
íslenskunnar og íslenskra mállýskna.
Í leiðaranum segir meðal annars:
„En hvað er til ráða? Því hefur ver-
ið haldið fram áður hér að lítt stoði að
reyna einungis að halda úti þeirri
verndarstefnu gagnvart erlendum og
þá einkum enskum áhrifum á tung-
una sem fylgt hefur verið. Með nýrri
fjölmiðlatækni hafa allir múrar milli
landa og þjóða og málsvæða fallið. Nú
er til dæmis hægt að nálgast það sjón-
varpsefni sem hugurinn stendur til
hvar sem er í heiminum eða því sem
næst. Árangursríkast virðist því að
hefja gagngera sókn inn á umráða-
svæði enskunnar, það er að segja fjöl-
miðlana og tölvuheimana./ Það þarf
að styrkja tunguna í sessi í þessu nýja
umhverfi með því að efla framleiðslu á
íslensku sjónvarps-, útvarps-, net- og
tölvuefni. Á sama tíma þyrfti að efla
íslenskukennslu í grunn- og fram-
haldsskólum.“
Víkverji tekur heils hugar undir
þessi sjónarmið.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 atyrtir, 8 fimur, 9 blíðu-
hót, 10 ílát, 11 sníkja, 13
sárum, 15 blýkúlu, 18
slagi, 21 glöð, 22 hanga,
23 svarar, 24 tónverkið.
LÓÐRÉTT:
2 rykkja, 3 mæta, 4
hryggja, 5 reiðum, 6
ókjör, 7 ergileg, 12 skaut,
14 dveljast, 15 ógna, 16
ljóður, 17 þrjót, 18 fram-
endi, 19 næða, 20 sjá eft-
ir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 skáld, 4 fávís, 7 gömul, 8 látið, 9 les, 11 sund, 13
erta, 14 ólgan, 15 þarm, 17 nekt, 20 krá, 22 kuldi, 23 sæl-
ar, 24 innan, 25 renni.
Lóðrétt: 1 seggs, 2 álman, 3 dall, 4 fals, 5 vitur, 6 síðla,
10 elgur, 12 dóm, 13 enn, 15 þokki, 16 rolan, 18 eklan, 19
tarfi, 20 kinn, 21 ásar.
K r o s s g á t a