Morgunblaðið - 11.03.2001, Síða 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MARS 2001 49
RAÐGREIÐSLUR
Sölusýning
á nýjum og gömlum, handhnýttum, austurlenskum
gæðateppum á Grand Hótel í Sigtúni
í dag, sunnudag,
frá kl. 13 - 19
10% staðgreiðslu-
afsláttur
Ný sending
Glæsilegt úrval - gott verð
sími 861 4883
Kolbrún Halldórsdóttir
er fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs í menntamálanefnd og
umhverfisnefnd Alþingis. Kolbrún verður
til viðtals á skrifstofu flokksins
í Hafnarstræti 20, 3. hæð, kl. 16 – 18
þriðjudaginn 13. mars.
Allir velkomnir.
Kolbrún
Halldórsdóttir
Áskorun hugljómunar
(Enlightenment Intensive)
í Bláfjöllum 17. til 20. maí.
Hver ert þú?
Markmiðið er hugljómun,
bein upplifun á sannleikanum.
Nánari uppl. og skráning hjá Rögnu Norðdahl
í símum 564 3118 og 863 3960 og
Lindu Konráðsdóttur í síma 861 1278.
Ný tískuvöruverslun í
Grafarvogi
Full búð af nýjum vörum
Fermingarföt á fermingarbarnið og
mömmuna — Frábært verð!
Verið velkomin
MARGA rak í rogastans þegar um-
hverfisráðherra hélt því fram á Al-
þingi fyrir skömmu að skógrækt væri
helsta ógnun við vöxt og viðgang ís-
lenska rjúpnastofnsins, og spurðu
eðlilega: Hvaðan í ósköpunum er
þessi fluga komin í munn ráðherra?
Þess svars þarf ekki langt að leita.
Sigmar B. Hauksson er maður nefnd-
ur og hefur komið víða við, en er nú
m.a. formaður Skotveiðifélags Ís-
lands og fór fram á þess vegum ný-
lega með kröfu um að fá að murka líf-
ið úr hrossagaukum. Hann greindi
einnig frá því hér í eldhúsinu hjá mér
fyrir tveimur haustum að hann væri
einn helsti foringi framsóknarmanna í
umhverfismálum og handgenginn
Siv.
Í Degi frá 11. janúar sl. er viðtal við
Sigmar þar sem kveður við alveg
sama tón varðandi vaxandi skógrækt
og fram kemur í svari umhverfisráð-
herra á Alþingi, rjúpnastofninum
stafi hætta af þeirri breytingu. Og nú
hefur Ólafur K. Níelsen hjá Náttúru-
fræðistofnun tekið í sama streng.
Þetta er að mínu mati þvílík firra að
ekki er hægt að sitja þegjandi hjá.
Ég er uppalinn og hef dvalist mest-
an minn aldur á rjúpnaslóðum mjög
víða vöxnum vöxtulegu birkikjarri
sem vel má kalla skóg og sem veiði-
maður og náttúruskoðandi tel ég mig
gjörþekkja hætti og atferli rjúpunnar
við slíkar aðstæður. Hún verpir mjög
gjarnan í skógarkjarrinu og helst er
að það hlífi og bjargi ungunum þegar
gerir kalsarigningar eða slydduhret
sem stráfellir þá á bersvæði.
Rjúpan sækir í kjarrið í snjóleysi á
haustin og á veiðitímanum til að dylj-
ast fyrir fálkanum, svo og tvífættum
og ferfættum vargi. Hún sækir þang-
að lífsbjörg þegar jarðbönn eru.
Skógurinn veitir sem sagt skjól, fæðu
og vernd allan ársins hring og ég
þekki engan neikvæðan þátt sem snýr
að rjúpum hvað hann varðar.
Hóflaus veiði
Engum blöðum er um það að fletta
að rjúpnastofninn er í grafalvarlegri
stöðu og varla að menn með óskerta
dómgreind geti verið þekktir fyrir að
laska mannorð sitt við slíkar veiðar
lengur. Aragrúi hríðskotabyssukappa
sem böðlast á torfærutækjum um allt,
særa og drepa miklu meira en þeir ná
og sem hvergi kemur fram á
skýrslum eru að verða með ljótari
blettum á þessu þjóðfélagi, svo ekki
sé minnst á landspjöll þeirra og blý-
mengun. Minkur er laundrjúg
veiðikló og refurinn er samkvæmt
orðum veiðistjóranefnunnar á Akur-
eyri í hámarki um allt land. Rjúpan á
einfaldlega bágt.
Tillögur
Nú er ég ekki með rétt flokks-
skírteini eins og Sigmar eða inni á
gafli í umhverfisráðuneytinu. En það
sem ég legg til að gert verði til að
rétta rjúpnastofninn við aftur er þetta:
Alfriða rjúpuna í 3–5 ár og þegar
banni lýkur verði veiðitíminn frá 1.
nóv. til 15. des. Aðeins megi nota tví-
hleypur eða einhleypur og til að fara
betur með stofninn verði veiðimenn
hvattir til að skjóta fuglinn sem mest
sitjandi.
Stórauka sókn í ref og mink og taka
hershöfðingjatignina af veiðistjóra.
Auka skógrækt allt hvað af tekur.
Svo vona ég að umhverfisráðherra
beri í framtíðinni gæfu til að vanda
betur val sitt á ráðgjöfum í þessum
efnum.
INDRIÐI AÐALSTEINSSON,
bóndi og skotveiðimaður,
Skjaldfönn v/Djúp.
Skógurinn og rjúpan
Frá Indriða Aðalsteinssyni:
Skólavörðustíg ● 21sími 551 4050 ● Reikjavík
Sængurverasett
úr
egypskri bómull m
eð
satínáferð
Póstsendum