Morgunblaðið - 17.05.2001, Blaðsíða 1
110. TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 17. MAÍ 2001
ÍSRAELSSTJÓRN baðst í gær af-
sökunar á morðum fimm palest-
ínskra lögreglumanna á mánudag og
sagði þau hafa verið mistök.
Palestínsku lögreglumennirnir
voru myrtir á lögreglustöð nálægt
Ramallah á Vesturbakkanum
snemma á mánudagsmorgun. Fjórir
þeirra voru sofandi þegar ísraelskir
hermenn brutust inn á lögreglustöð-
ina og hófu skothríð. Yasser Arafat,
leiðtogi Palestínumanna, hafði for-
dæmt morðin harkalega.
Raanan Gissen, aðstoðarmaður
Ariels Sharons, forsætisráðherra
Ísraels, sagði í gær að rannsókn
hefði verið hafin á málinu um leið og í
ljós kom að gerð hefðu verið mistök.
Hann kvað hermennina hafa verið að
leita að meðlimum sérsveitar Palest-
ínumanna, sem hefðu gert árásir á
ísraelska borgara, og tekið hina
óbreyttu lögreglumenn í misgripum.
Shimon Peres, utanríkisráðherra
Ísraels, harmaði einnig atburðinn í
gær.
Palestínumenn krefjast þess að
ísraelsku hermennirnir verði dregn-
ir fyrir dóm.
Þyrluárásir á skotmörk á
Vesturbakkanum og Gaza
Ísraelskar árásarþyrlur skutu
flugskeytum að palestínskum lög-
reglustöðvum í borginni Jenin á
Vesturbakkanum og Jabaliya-flótta-
mannabúðunum í grennd við Gaza-
borg síðdegis í gær. Fjórtán manns
særðust í árásinni á flóttamannabúð-
irnar á Gaza-svæðinu, en ekki urðu
meiðsl á mönnum í Jenin. Talsmenn
ísraelska hersins sögðu aðgerðirnar
vera svar við árásum af hálfu Palest-
ínumanna.
Ísraelsher er einnig sagður hafa
farið fimm sinnum inn á svæði Pal-
estínumanna á Gaza í gær með lið
hermanna, skriðdreka og jarðýtur.
Ísraelar biðj-
ast afsökunar
á morðum
Reuters
Palestínskur lögreglumaður kannar skemmdir af völdum þyrluárásar
Ísraelshers á lögreglustöð í Jabaliya-flóttamannabúðunum á Gaza-
svæðinu í gær.
Jerúsalem. AFP, AP.
ALLIR farþegar og áhöfn
tyrkneskrar herflugvélar, 34
manns, fórust þegar vélin hrap-
aði til jarðar í gær í Malatya í
Austur-Tyrklandi.
„Vélin sundraðist er hún kom
til jarðar og lík fólksins og hlut-
ar úr þeim dreifðust um allt
með brakinu,“ sagði Bayram
Karaaslan, bæjarstjóri í Akc-
adag, litlum bæ skammt frá
slysstaðnum. Sagði hann að
mikill eldur hefði logað í vélinni
og því væru flest líkanna mjög
brunnin og óþekkjanleg.
Um var að ræða herflutn-
ingaflugvél sem var á leið frá
Diyarbakir til Ankara og voru
eingöngu hermenn, líklega sér-
sveitarmenn, um borð.
Fólk, sem var að vinna á akri
og varð vitni að slysinu, segir
að vélin hafi snúist í lofti og síð-
an hrapað logandi til jarðar.
34 fórust í flug-
slysi í Tyrklandi
Snerist og
hrapaði
logandi
Ankara. AFP.
FIDEL Castro Kúbuleiðtogi lauk í
gær heimsókn sinni til Sýrlands og
flaug til Líbýu, þar sem hann átti í
gærkvöld fund með leiðtoga lands-
ins, Moammar Gaddafi.
Castro hefur undanfarna daga
verið á ferðalagi um fimm olíu-
framleiðsluríki, Alsír, Íran, Malas-
íu, Katar og Sýrland. Heimsóknin
til Líbýu var ekki á upphaflegri
ferðaáætlun, en Castro var sagður
hafa fengið góðar móttökur þar,
enda hafa þjóðirnar stutt hvor aðra
gegn viðskiptaþvingunum af hálfu
Bandaríkjastjórnar og Sameinuðu
þjóðanna.
Á myndinni sést Castro færður
úr skónum fyrir heimsókn í Om-
ayyad-moskuna í Damaskus, höf-
uðborg Sýrlands, í gær.
Reuters
Castro í heimsreisu
Damaskus, Trípólí. AFP, AP.
SILVIO Berlusconi, sigurvegari
kosninganna á Ítalíu, átti tveggja
klukkustunda fund með forsetanum
Carlo Azeglio Ciampi í Róm í gær.
Þeir ræddu saman um væntanlega
stjórnarmyndun en hvorugur vildi
tjá sig við fréttamenn eftir fundinn.
Gert er ráð fyrir að Ciampi veiti
Berlusconi umboð til stjórnarmynd-
unar á næstu dögum, en fyrst verð-
ur forsetinn að ræða við forystu-
menn allra flokka á þinginu og vera
kann að ný ríkisstjórn taki ekki við
völdum fyrr en eftir nokkrar vikur.
Þingið kemur saman 30. maí.
Forstjóri Ferrari ekki í stjórn
Þrátt fyrir að formlegar viðræður
um stjórnarmyndun séu enn ekki
hafnar hafa nokkrir þjóðþekktir
menn þegar hafnað hugsanlegu boði
um sæti í ríkisstjórn Berlusconis,
sem hét því í kosningabaráttunni að
koma saman „draumaliði“ til að fara
með stjórn landsins.
Forstjóri Ferrari-bílafyrirtækis-
ins, Luca di Montezemolo, hefur
lýst því yfir að hann muni ekki taka
sæti í stjórninni, en hann hafði verið
orðaður við embætti íþrótta- eða ut-
anríkisviðskiptaráðherra. Kvaðst
Montezemolo vera of önnum kafinn
til að skipta sér af stjórnmálum. Þá
herma fregnir að Mario Monti, sem
fer með samkeppnismál í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins,
og Renato Ruggiero, fyrrverandi
yfirmaður Heimsviðskiptastofnun-
arinnar, hafi hafnað boði um ráð-
herraembætti.
Talsmaður Berlusconis sagði að
hann hefði rætt við George W. Bush
Bandaríkjaforseta í síma í gær og
átt tuttugu mínútna samtal við
Jacques Chirac, forseta Frakk-
lands, á þriðjudag.
Berlusconi ræð-
ir við forsetann
Róm. AFP, AP.
ALBANSKIR skæruliðar réðust
gegn stjórnarhermönnum við tvö
þorp í norðurhluta Makedóníu í gær-
morgun og stóðu átökin fram eftir
morgni. Makedóníustjórn hefur gef-
ið skæruliðum frest til hádegis í dag
til að leggja niður vopn eða hverfa
aftur til Kosovo.
Árás skæruliðanna þykir benda til
að þeir hyggist ekki verða við úr-
slitakostum stjórnarinnar í Skopje.
Hafði stjórnarherinn fengið fyrir-
skipun um að halda að sér höndum
og beita ekki vopnum nema á hann
yrði ráðist. Segir stjórnin, að virði
skæruliðar ekki þennan lokafrest,
verði þeir „upprættir“.
Sendinefnd frá Evrópusamband-
inu kom til Skopje í gær til viðræðna
við nýja þjóðstjórn í landinu, en
brýnasta verkefni hennar er að brúa
það bil, sem er á milli þjóðarbrot-
anna, slavneska meirihlutans og alb-
anska minnihlutans.
Barist í Suður-Serbíu
Ninoslav Krstic, yfirmaður serb-
neskrar hersveitar, sem náði í fyrra-
dag bænum Oraovica í Suður-Serbíu
á sitt vald, sagði, að 14 albanskir
skæruliðar hefðu fallið, einn særst
og 80 hefðu gefist upp eftir harða
bardaga. Albönsku skæruliðarnir
hafa gert árásir á S-Serbíu, þar sem
fólk af albönskum ættum er fjöl-
mennt, frá hlutlausa svæðinu á
landamærum Serbíu og Kosovo.
Ólíklegt
að skæru-
liðar virði
lokafrest
Skopje. AP, AFP.
Bardagar í Suður-
Serbíu og Makedóníu
BANDARÍKJAMENN og Bretar
staðfestu í gær að þeir myndu leggja
til við öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna að hömlum á innflutning vara
til Íraks verði aflétt. Enn yrði þó
bannað að flytja vopn og önnur her-
gögn til landsins.
Tillagan verður lögð fram á fundi
öryggisráðsins í New York í næstu
viku, en hún markar verulega
stefnubreytingu gagnvart Írak.
Richard Boucher, talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins, sagði í
gær að tillögurnar væru enn í mótun,
en að þeim væri ætlað að aflétta
hömlum á innflutningi almenns
varnings, en styrkja bannið við sölu
hergagna til Íraks.
Viðskiptaþvinganir Sameinuðu
þjóðanna gegn Írak hafa verið í gildi
í áratug.
Viðskiptahömlum
á Írak verði aflétt
Sameinuðu þjóðunum. AFP, AP.