Morgunblaðið - 17.05.2001, Page 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 35
2.000
drapp og bleikt
st. 36-41
SUMARTÍSKAN
Ótrúlegt verð!
3.000
svart
st. 36-41
3.000
drapp
st. 36-41
3.000
svart og drapp
st. 36-41
KRINGLAN
sími 568 6062
Ath. nýtt kortatím
abil
ENGLAR alheimsins eftir Einar
Má Guðmundsson er vinsælasta ís-
lenska bókin miðað við útlán bóka-
safna árið 2000. Sagan af bláa hnett-
inum eftir Andra Snæ Magnason er
í öðru sæti og Einar Benediktsson,
ævisaga eftir Guðjón Friðriksson í
því þriðja. Þetta kom fram við út-
hlutun úr Bókasafnssjóði höfunda í
vikunni.
Úr sjóðnum er úthlutað til höf-
unda, þýðenda og myndhöfunda
vegna afnota bóka í almennings-
bókasöfnum, Landsbókasafni-Há-
skólabókasafni, skólasöfnum og
bókasöfnum í stofnunum. Sérstaka
heiðursviðurkenningu, að upphæð
550 þúsund krónur, vegna framlags
síns til íslenskra bókmennta hlutu
að þessu sinni höfundarnir Aðalgeir
Kristjánsson, Svava Jakobsdóttir og
Jón Baldur Hlíðberg myndlistar-
maður.
Aðrar bækur sem náðu inn á lista
yfir tíu vinælustu bækurnar eru Hí-
býli vindanna eftir Böðvar Guð-
mundsson, Benjamín dúfa eftir
Friðrik Erlingsson, Kular af degi
eftir Kristínu Marju Baldursdóttur,
Talnapúkinn eftir Bergljótu Arn-
alds, Jón Oddur og Jón Bjarni eftir
Guðrúnu Helgadóttur, Tóta og tím-
inn eftir Bergljótu Arnalds og
Mávahlátur eftir Kristínu Marju
Baldursdóttur.
Úthlutunarfé Bókasafnssjóðs höf-
unda er skipt í tvo hluta. Annars
vegar er úthlutað miðað við fjölda
útlána bóka og hins vegar eru veitt-
ir styrkir í viðurkenningarskyni fyr-
ir ritstörf og önnur framlög til bóka.
Vegna útlána á árinu 2000 voru til
úthlutunar 8 milljónir króna sem út-
hlutað var til um 430 höfunda. Í ár
voru veittir styrkir í viðurkenning-
arskyni til 28 höfunda, samtals 8,5
milljónir króna.
Eftirtaldir 25 höfundar hlutu við-
urkenningar að upphæð kr. 275.000
hver úr sjóðnum: Ágúst H. Bjarna-
son, Erla Sigurðardóttir, Friðrik G.
Olgeirsson, Friðrik Rafnsson, Fríð-
ur Ólafsdóttir, Guðjón Ketilsson,
Gunnhildur Hrólfsdóttir, Halla Sól-
veig Þorgeirsdóttir, Hallgrímur
Helgason, Helgi Guðmundsson,
Hjörtur Pálsson, Jean Posocco, Jó-
hann Árelíuz, Jóhannes Helgi, Jón
Hjaltason, Kristján Kristjánsson,
Margrét Lóa Jónsdóttir, Ólafur
Pétursson, Ragnheiður Gestsdóttir,
Stefán Aðalsteinsson, Stefán Máni,
Vigdís Grímsdóttir, Þorgerður Ein-
arsdóttir, Þórður Tómasson og Þór-
unn Valdimarsdóttir. Stjórn Bóka-
safnssjóðs höfunda skipa: Birgir
Ísleifur Gunnarsson, formaður, Að-
alsteinn Ásberg Sigurðsson, Einar
Ólafsson, Knútur Bruun og Magnús
Guðmundsson.
Englar alheimsins
vinsælasta bókin
Morgunblaðið/Þorkell
Aðalgeir Kristjánsson, Jón Baldur Hlíðberg og Svava Jakobsdóttir
ásamt Birgi Ísleifi Gunnarssyni, formanni stjórnar Bókasafnssjóðs.
Úthlutun úr Bókasafnssjóði
höfunda fyrir árið 2000
NÍU íslenskir myndlistarmenn taka
þátt í alþjóðlegri myndlistarsýningu
sem verður opnuð í Mílanó næst-
komandi laugardag. Sýningin er
fyrsti viðburður sem nýtt samtíma-
listasafn borgarinnar, Museo del
Presente, stendur fyrir, en það
verður formlega opnað á næsta ári.
Listamenn frá 20 Evrópuþjóðum
taka þátt í sýningunni sem ætlað er
að varpa ljósi á stöðu myndlistar í
Evrópu við aldamót.
Í hópi íslensku myndlistarmann-
anna eru Anna Líndal, sem er með
myndbandsinnsetninguna „Bord-
ers“; Birgir Andrésson, sem sýnir
24 ljósmyndir af húsum á Íslandi
sem heita nöfnum borga og landa í
Evrópu; Halldór Ásgeirsson verður
með skúlptúrverk og gjörning þar
sem hann bræðir saman hraunmola
frá eldfjöllunum Vesúvíus og Heklu;
Hrafnkell Sigurðson, sem sýnir ljós-
myndir sínar af tjöldum á fjöllum og
hæðum á Íslandi; og Þorvaldur Þor-
steinsson sem verður með mynd-
band þar sem hópar fólks í Mílanó
leika fyrir framan tökuvél að þau
séu skotin niður með hríðskota-
byssu. Þá mun Gjörningaklúbb-
urinn, sem er skipaður þeim Sig-
rúnu Hrólfsdóttur, Jóní Jónsdóttur,
Dóru Ísleifsdóttur og Eirúnu Sig-
urðardóttur, sýna innsetningarnar
„Hotel Paradise“ og „Diskló“.
Sýningin er haldin á tveimur
stöðum í Mílanó, Padiglione d’Arte
Contemporanea og Pallazzo della
Triennale. Sýningarstjóri og
umsjónarmaður fyrir Íslands hönd
er Þorgeir Ólafsson, sérfræðingur í
menntamálaráðuneytinu. Að sögn
Þorgeirs stóð til að sýningin yrði
opnunarsýning samtímalistasafns-
ins, en þegar ljóst varð að tími ynn-
ist ekki til að ljúka framkvæmdum
fyrir þann tíma, var ákveðið að
halda nokkurs konar inngangssýn-
ingu að væntanlegri starfsemi
safnsins. Museo del Presente er í
Bovoisa, gömlu iðnaðarhverfi
skammt frá miðborginni og er safn-
ið byggt á tveimur gríðarstórum
gastönkum.
Níu íslenskir
myndlistarmenn
sýna í Mílanó
Ljósmynd/Gjörningaklúbburinn
Gjörningaklúbburinn verður meðal þeirra listamanna sem leggja fram verk á sýningunni í Mílanó.