Morgunblaðið - 23.06.2001, Blaðsíða 1
140. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 23. JÚNÍ 2001
MÖRG hundruð rússneskra æsku-
manna gengu í gær um götur Jek-
aterínborgar með kyndil í hendi og
undir blaktandi fánum og borðum.
„Æskan gegn stríði“ var gangan
kölluð og hún var farin til að minn-
ast þess, að liðin eru 60 ár frá inn-
rás Þjóðverja í Sovétríkin.
Reuters
„Æskan
gegn stríði“
STJÓRNARHERINN í Makedóníu
réðst í gær á þorp, sem verið hefur í
höndum albanskra skæruliða, og
rauf með því vopnahlé, sem standa
átti í 11 daga. Með árásinni vill
stjórnarherinn ná frumkvæðinu í
átökunum, en skæruliðar höfðu hót-
að að halda uppi skothríð á höfuð-
borg landsins frá þorpinu.
Fallbyssuþyrlur gerðu árás á
þorpið Aracinovo í dögun í gær og
stóðu þá þegar nokkur hús í björtu
báli. Skriðdrekar og stórskotalið
héldu einnig uppi árásum á bæinn
en talsmaður makedónska varnar-
málaráðuneytisins sagði, að mark-
miðið væri að uppræta skæruliðana í
bænum. Þeir svöruðu fyrir sig með
vélbyssuskothríð og sýndu þess eng-
in merki, að þeir hygðust gefast upp.
Skæruliðar sögðu, að þrír óbreyttir
borgarar hefðu fallið í árásunum en
talsmenn hersins segja, að allir íbú-
ar bæjarins hafi flúið er skæruliðar
lögðu hann undir sig.
Haft var eftir ónefndum embætt-
ismanni, að tilgangurinn með árás-
inni væri ekki síst að fá fulltrúa al-
bönsku stjórnmálaflokkanna í
landinu aftur að samningaborði, en
viðræður þeirra við stjórnvöld
sigldu að mestu í strand fyrir
skömmu.
Solana enn vongóður
Ljóst þykir, að árásin í gær muni
ekki greiða fyrir tilraunum Javiers
Solana, sem fer með öryggis- og
varnarmál í Evrópusambandinu, til
að miðla málum milli slafneska
meirihlutans og albanska minnihlut-
ans í Makedóníu. Hann kveðst þó
enn vona, að viðræður milli þeirra
verði aftur hafnar í næstu viku.
Einn leiðtogi albönsku skærulið-
anna ítrekaði hótanir um að skjóta á
Skopje, höfuðborg Makedóníu, frá
Aracinovo en fjarlægðin þar á milli
er um 10 km. Talsmenn hersins gera
raunar lítið úr þessari hótun og
segja, að höfuðborgin sé langt utan
skotfæris skæruliðanna.
George Robertson, framkvæmda-
stjóri NATO, Bandaríkjastjórn og
ríkisstjórnir í Evrópu skoruðu í gær
á Makedóníustjórn að fara sér hægt
til að komast hjá algeru borgara-
stríði í landinu. Um 50.000 Albanir
hafa flúið þaðan yfir til Kosovo frá
því í febrúar.
Stjórnarherinn í Makedóníu rauf vopnahlé með stórárás á skæruliða
Varað við algerri borg-
arastyrjöld í landinu
Aracinovo. Reuters, AFP.
ROMANO Prodi, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, ESB, sagði í Cork á Írlandi í
gær, að samþykktu Írar ekki Nice-
sáttmálann, yrði ekkert af stækkun
sambandsins. Áður hafði hann sagt,
að unnt yrði að fjölga aðildarríkjun-
um án þess að samþykkja sáttmál-
ann og olli það miklum titringi á Ír-
landi og í höfuðstöðvum ESB í
Brussel.
„Án samþykkis Íra er Nice-sátt-
málinn úr sögunni,“ sagði Prodi er
hann kom til Cork, sem var fyrsti
áfanginn í fjögurra daga heimsókn
hans til Írlands. Sagði hann, að hugs-
anlega gæti ESB sjálfu sér um
kennt, að írskir kjósendur skyldu
hafa fellt sáttmálann í þjóðarat-
kvæðagreiðslu 7. júní sl. Stækkunin
hefði líklega ekki verið kynnt al-
menningi nógu vel og hann lofaði, að
á því yrði ráðin bragarbót.
Prodi sagði í blaðaviðtali fyrir
nokkrum dögum, að lagalega væri
unnt að stækka ESB þótt sáttmálinn
yrði ekki samþykktur og olli það
miklum titringi í Brussel og þá ekki
síður á Írlandi. Þar voru ummælin
túlkuð sem óvirðing við Íra og af-
stöðu þeirra.
Almenn vanþekking
Í öllum öðrum aðildarríkjum ESB
en Írlandi verður Nice-sáttmálinn
borinn undir þjóðþingið en búist er
við, að Írar muni kjósa um hann aft-
ur á næsta ári. Er vonast til, að kjör-
sóknin verði þá betri en 7. júní sl.
þegar aðeins 34% kjósenda kusu.
Innan ESB hefur stuðningur við að-
ild hvergi verið meiri en á Írlandi
enda er aðildinni þakkaður sá mikli
efnahagsuppgangur, sem verið hefur
í landinu. Írskir embættismenn og
embættismenn hjá ESB segja, að
meginástæðan fyrir niðurstöðunni 7.
júní hafi verið almenn vanþekking á
málefnum sambandsins.
Romano Prodi, forseti framkvæmdastjórnar ESB
Stækkun ESB mun
ráðast af afstöðu Íra
Dyflinni. AFP, Reuters.
BRESK náðunarnefnd ákvað í gær,
að tveimur 18 ára gömlum ungling-
um, sem myrtu James Bulger,
tveggja ára dreng, þegar þeir voru
aðeins 10 ára, skyldi sleppt lausum.
Drengirnir, Jon Venables og Ro-
bert Thompson, voru fundnir sekir
um að hafa myrt Bulger 1993 og hafa
fá glæpamál í Bretlandi vakið aðra
eins athygli og óhugnað. Rændu þeir
Bulger í verslunarmiðstöð í Liver-
pool, pyntuðu hann skelfilega og
börðu til dauða.
David Blunkett innanríkisráðherra
sagði í gær, að náðunarnefndin hefði
komist að þeirri niðurstöðu, að sam-
félaginu stafaði ekki lengur nein
hætta af drengjunum.
Ekki er vitað hvar þeim verður
komið fyrir en til að draga úr líkum á,
að þeir verði ofsóttir, verður þeim
fengið nýtt nafn og kennitala. Blunk-
ett sagði, að sá varnagli hefði verið
sleginn, að þá Thompson og Venables
mætti handtaka hvenær sem væri á
lífsleiðinni, væru þeir taldir hættuleg-
ir öðrum mönnum. Móðir Bulgers
hefur barist gegn því, að drengjunum
yrði sleppt og segist hún ekki trúa
því, að þeir iðrist glæpsins.
Reuters
Þessi mynd sýnir þá Thompson
og Venables leiða James Bulger
út úr verslunarmiðstöðinni.
Bana-
mönnum
Bulgers
sleppt
London. Reuters, AFP.
ÞETTA skilti blasir við þeim, sem
aka þjóðveg 101 í San Jose í
Kaliforníu, og á því segir, að
væntanlegur vinningur í lottóinu
sé kominn í 125 millj. dollara, um
13 milljarða ísl. kr. Það ríkir því
sannkallað lottóæði í Bandaríkj-
unum enda er vinningsfjárhæðin
sú mesta, sem um getur í þessu
landi stóru talnanna.
Lottóæði
AP
Aðgerðir gegn
peningaþvætti
Rússum
hótað
refsiað-
gerðum
Washington, París. AP, AFP.
BANDARÍKIN og önnur helstu iðn-
ríki heims hafa gefið Rússlandi, Fil-
ippseyjum og Kyrrahafseyríkinu
Nauru frest til 30. september nk. til
að koma böndum á peningaþvætti
eða sæta nýjum, hertum refsiað-
gerðum ella.
Alþjóðlegur efnahagsátakshópur,
sem í eru 26 ríki, m.a. Bretland, Jap-
an og fleiri iðnríki, birti í gær skýrslu
þar sem sérstaklega var tekið fram,
að ofangreind þrjú ríki hefðu ekki
náð neinum árangri í baráttu gegn
peningaþvætti á undanförnu ári.
Voru þessi ríki á nýjum, „svörtum
lista“ ásamt tólf öðrum löndum og
svæðum. Sex ríki eru ný á þessum
lista, Egyptaland, Gvatemala, Ung-
verjaland, Indónesía, Myanmar
(Búrma) og Nígería. Fjögur lönd
voru tekin af listanum, Bahamaeyj-
ar, Caymaneyjar, Liechtenstein og
Panama.
Hertar refsiaðgerðir gegn Rúss-
landi, Filippseyjum og Nauru gætu
falið í sér að bankar yrðu að afla ná-
kvæmra upplýsinga áður en stofnað
væri til viðskipta við fyrirtæki eða
einstaklinga frá ríkjunum þrem eða
þeir vöruðu alþjóðleg fyrirtæki við
þessum ríkjum.
♦ ♦ ♦