Morgunblaðið - 23.06.2001, Page 54

Morgunblaðið - 23.06.2001, Page 54
FÓLK Í FRÉTTUM 54 LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í DAG leggur Bylgjulestin upp í ár- lega ferð sína um landið. Bylgju- lestin verður á ferðinni á hverjum laugardegi í sumar og er fyrsti við- komustaður Selfoss. Dagskráin í dag hefst við Fjöl- brautaskóla Suðurlands að loknum hádegisfréttum Bylgjunnar. Fram koma Bylgja Býfluga, Eyvi Eitís, Jóhanna Guðrún, Helga Möller, María Björk, Eiríkur Fjalar og Pét- ur Pókus að ógleymdri hljómsveit- inni Á móti sól sem leiða mun Bylgjulestina í sumar. Að sögn Jóhanns Arnar Ólafs- sonar, hjá kynningardeild útvarps- sviðs Norðurljósa, verður boðið upp á fjöldan allan af leiktækjum auk skemmtiatriðanna. Hoppukastalar, „paintball“ og tölvuleikir er meðal þess sem í boði verður fyrir alla fjölskylduna. Auk þess verður Sól- arstúlka Séð og heyrt og Bylgj- unnar kynnt. Jóhann segir hugmyndina með Bylgjulestinni vera að skemmta hlustendum Bylgjunnar um land allt. Margir viðkomustaðir „Við sóttumst eftir því að fá að spila með Bylgjulestinni og eftir samningaviðræður urðum við fyrir valinu. Við erum auðvitað hæst- ánægðir með það,“ sagði Heimir Eyvindarson hljómborðsleikari Á móti sól. „Auk þess að spila með Bylgju- lestinni í sumar verðum við á fulllu að spila á öðrum stöðum og erum auk þess að fara gefa út plötu seinna í sumar.“ Lestin kemur víða við í sumar, meðal annars í Hafnarfirði, Ak- ureyri, Akranesi, Mosfellsbæ, Grundarfirði og Blönduósi. Ferð- inni lýkur svo í Reykjavík þann 18. ágúst. „Þetta er í fjórða sinn sem Bylgjulestin ferðast um landið,“ upplýsir Jóhann Örn. „Árið 1998 voru það Greifarnir sem fóru fyrir lestinni, árið 1999 voru það Skíta- mórall og í fyrra Sálin hans Jóns míns og Írafár. Nú er svo komið að Á móti sól að leiða lestina.“ Bylgjulestin leggur af stað Eyvi Eitís íklæddur klassískum Don Cano-galla.Hljómsveitin Á móti sól leiðir Bylgjulestina í sumar. MÉR ER gjörsamlegaómögulegt að hlusta á tón-list hljómsveitarinnar Weezer án þess að brosa mínu breið- asta. Tónar þeirra eru hrein og bein ávísun á gleðskap. Nú er komin út þriðja breiðskífa hljómsveitarinnar, eitthvað sem ég og aðrir aðdáendur sveitarinnar höf- um þurft að bíða eftir í 5 ár. Hljóm- sveitin skaust upp á stjörnuhimininn strax á fyrstu plötu, skotheldir slag- arar á borð við „Buddy Holly“ og „Say It Ain’t So“ sáu til þess. Einfalt gítarrokk, undir sterkum áhrifum frá sjöunda áratugnum, þá kannski sér- staklega popplögum The Beach Boys. Önnur plata sveitarinnar, Pinker- ton, var talið markaðslegt „flopp“ sem er hin mesta synd því þar var á ferð ein af betri plötum sem ég hef heyrt um ævina. Þótt sú plata hafi fallið í grýttan jarðveg markaðslega séð þá kunnu hörðustu aðdáendur sveitarinnar að meta hana betur en þá fyrri. Ég er þeirrar skoðunar að orðspor þeirrar plötu, og langur tími á milli útgáfnanna hafi myndað þenn- an gífurlega spenning sem ríkt hefur fyrir útkomu „Grænu plötunnar“. Það er þegar orðin staðreynd að þessi nýja plata Weezer er þeirra söluhæsta frá upphafi, sem þarf þó ekkert að þýða að hún sé sú besta, en því nær hún ekki. Lagahöfundur Weezer, Rivers Cuomo, tekur engar áhættur að þessu sinni. Kveðið er við sama tón, lögin öll létt og melódíurnar gríp- andi, skotheldar slagarasmíðar eins og Cuomo er einum lagið. Það sem er hinsvegar að er að hin óbeislaða, hráa og kæruleysislega spilagleði sem gerði síðustu plötu svo sérstaka er látin víkja fyrir fágaðri og aðgengi- legri hljómi, afar líkum þeim sem var á fyrri plötunni. Maður fær það eig- inlega á tilfinninguna að Geffen, út- gáfufyrirtæki þeirra Weezer-pilta, hafi horft stöðugt yfir axlir þeirra á framleiðslustiginu. Svona miðað við plötusöluna hingað til má nú kannski færa rök fyrir því að þeir hafi þá vitað nákvæmlega hvað þeir voru að gera. Þetta gerir reyndar að verkum að hljómsveitin Weezer hljómar mun líkari Green Day en hún hefur gert áður, sem er að mínu mati ókostur. Það kemur einnig á óvart hversu miklu innihaldsrýrari textasmíðar Cuomos eru en áður. Hér vantar nán- ast allan þann hnyttna og beitta húm- or sem hefur einkennt hljómsveitina fram til þessa, það er helst kannski í laginu frábæra „Hash Pipe“ sem glittir í þessa snilldargáfu piltsins. Þar gerir hann grín afðinnhverfum og ómannblendnum dagreykingar- mönnum kannabisefna. Flestir aðrir textar plötunnar eru fremur þunnar ástarvellur þar sem megináherslan er lögð á að orðin fylli upp söngmel- ódíuna og rími. Cuomo hefur hinsvegar ekki misst næmt skynbragð sitt á góðar og tímalausar söngmelódíur. Fyrstu 4 lögin („Don’t Let Go“, „Photograph“, „Hash Pipe“ og „Island In The Sun“) eru afbragð, og hafa allt til að bera sem gerir góð Weezer lög. Eftir það missir platan svolítið flugið, við erum alls ekki að tala um einhverja brot- lendingu hérna, lögin eru fín, bara alls ekki stórkostleg og heldur keim- lík. Á seinni hlutanum standa lögin „Smile“ og lokalagið „O’ Girlfriend“ upp úr. Semsagt, í stuttu máli, engar áhættur, engin þróun en samt engin vonbrigði. Bara eitt lítið vandað en varkárt skref áfram. Niðurstaðan er þó sísta Weezer platan, ekki vegna þess að hún sé svo slæm, heldur út af því að hinar eru betri. Svo einfalt er það nú. ERLENDAR P L Ö T U R Birgir Örn Steinarsson, gítarleikari og söngvari Maus, fjallar um grænu plötu Weezer.  Rennur vel niður Weezer – mikið „green“, mikið gaman. Í dimmum skógi (Promenons-nous dans les bois – Deep In The Woods) H r o l l v e k j a Leikstjórn Lionel Delplanque. Aðalhlutverk Clotilde Courau, Clement Sibony. (84 mín.) Frakk- land 2000. Góðar stundir. Bönnuð innan 16 ára. FRAKKAR hafa nú ekki gert mikið af því að taka þátt í þessu ung- lingahrollvekjuæði sem ríkt hefur síð- ustu misseri en það má alveg flokka hana þessa sem slíka. Hún fjallar um fimm unga og föngulega leikara sem fengnir eru til þess að setja á svið ævintýrið um Rauðhettu og úlf- inn fyrir son dularfulls baróns sem býr á afskektu óðalssetri í dimmum skógi. Eins og í öllum sönnum hrollvekj- um sem gerast í draugalegu húsi þá týna aðalpersónurnar tölunni hver af annarri og enginn veit hver morðing- inn er en hann hylur andlit sitt bak- við úlfsgrímu. Þetta er alveg þokkalegur hrellir hjá þeim Frökkum.Ekkert svaka- lega krassandi en alveg í meðallagi þó. Eins og þeim er von og vísa velta þeir sér meira uppúr dulúðinni og gotneskum pælingum en vinir þeirra vestan hafs, sem eykur nokkuð á vigtina og gerir gæfumuninn. Skarphéðinn Guðmundsson MYNDBÖND Úlfurinn í skóginum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.