Morgunblaðið - 23.06.2001, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TÆPLEGA fjörutíu nánir vinir
myndlistarmannsins Errós eru
komnir hingað til lands til að verða
viðstaddir opnun Errósafns í Lista-
safni Reykjavíkur – Hafnarhúsinu í
kvöld. Í gær hélt hópurinn í dags-
ferð vestur á Snæfellsnes, með við-
komu í Bjarnarhöfn og á veitinga-
húsinu Sjávarpakkhúsinu í
Stykkishólmi. Hápunktur ferð-
arinnar var vafalaust eyjasigling á
Breiðafirði, þar sem gestirnir
gæddu sér á nýveiddum skelfiski
um borð og kunnu Frakkarnir í
hópnum ekki síst að meta það. Hóp-
urinn kom til landsins á fimmtudag
og hefur skoðað Hafnarhúsið, mós-
aíkverk Errós í Kringlunni og notið
góðra kvöldverða. Fyrir opnunina í
dag verður haldið suður á land að
skoða Þingvelli, Gullfoss og Geysi.
Ferðina skipulagði Erró sjálfur
af kostgæfni en gestirnir eru hing-
að komnir á eigin vegum. Segist
Erró hafa langað til að standa fyrir
svona ferð lengi og nú hafi hann
loks látið verða af því að skipu-
leggja hana í tilefni af opnun Erró-
safnsins í Reykjavík. „Þetta eru allt
mjög nánir vinir mínir, suma hef ég
þekkt í tugi ára. Ferðin hefur verið
alveg yndisleg hingað til, það eru
allir svo kátir og glaðir, enda er
þetta allt einstaklega lifandi fólk.
En svona gerir maður bara einu
sinni og af góðu tilefni,“ segir
Erró. Hópurinn mun halda af landi
brott að opnuninni í Hafnarhúsinu
lokinni á sunnudagsmorgun.
Erró á ferð með vinum
Morgunblaðið/Heiða Jóhannsdóttir
Á FUNDI borgarstjórnar í fyrra-
kvöld, sem var síðasti borgar-
stjórnarfundur fyrir sumarfrí, var
endurkjörið í borgarráð og emb-
ætti forseta borgarstjórnar til eins
árs. Sú breyting varð á borgarráði
að Sigrún Magnúsdóttir lét af
störfum og tók Helgi Hjörvar við
hennar sæti. Helgi var einnig end-
urkjörinn forseti borgarstjórnar. Á
fundinum var sömuleiðis ákveðið
að fundir borgarstjórnar hefjist frá
og með næsta hausti klukkan 14 í
stað 17. Einnig var ákveðið að
stytta ræðutíma sem hingað til hef-
ur verið ótakmarkaður.
Í borgarráði sitja eftir breyting-
arnar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri, Helgi Hjörvar,
Hrannar Björn Arnarsson og
Steinunn Valdís Óskarsdóttir fyrir
Reykjavíkurlista og Inga Jóna
Þórðardóttir, Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson og Júlíus Vífill Ingvars-
son fyrir Sjálfstæðisflokk. Til vara
voru Sigrún Magnúsdóttir, Helgi
Pétursson, Alfreð Þorsteinsson og
Anna Geirsdóttir kjörin fyrir R-
lista og Jóna Gróa Sigurðardóttir,
Ólafur F. Magnússon og Guðlaugur
Þór Þórðarson fyrir Sjálfstæðis-
flokk.
Helgi Hjörvar var endurkjörinn
forseti borgarstjórnar, eins og fyrr
segir. Helgi Pétursson var kjörinn
fyrsti varaforseti og Steinunn
Valdís annar varaforseti.
Ræðutími framsögumanns
verður 30 mínútur
Á fundinum voru einnig sam-
þykktar breytingar á fundarsköp-
um borgarstjórnar. Fundir borg-
arstjórnar munu hér eftir hefjast
klukkan 14 í stað 17 fyrsta og
þriðja fimmtudag hvers mánaðar.
Þessi breyting var gerð til að fund-
ir þurfi síður að standa langt fram
eftir kvöldi, eins og raunin hefur
oft verið.
Þá var ræðutími takmarkaður,
þannig að ræðutími framsögu-
manns eða borgarfulltrúa megi
vera allt að 30 mínútur í fyrri ræðu
en 10 mínútur í síðari ræðu. Borg-
arstjóri hefur áfram óbundið mál-
frelsi. Forseta borgarstjórnar er
heimilt að rýmka ræðutíma og skal
ákvörðun um það liggja fyrir áður
en umræða hefst. Borgarfulltrúar
mega eftir breytingarnar einungis
veita andsvar einu sinni undir
hverjum dagskrárlið, í stað tvisvar.
Næsti fundur borgarstjórnar
verður að loknu sumarfríi, fimmtu-
daginn 6. september klukkan 14,
og verður þá starfað eftir nýjum
fundarsköpum.
Fundir hefjast fyrr og
ræðutími takmarkaður
Forseti borgarstjórnar endurkjörinn á síðasta fundi fyrir sumarfrí
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur sýknað ríkið af skaðabótakröfu
manns sem sat í gæsluvarðhaldi í 26
daga haustið 1998, þar af 16 daga í
einangrunarvist.
Ástæðan fyrir handtöku mannsins
voru átök í Austurstræti aðfaranótt
27. september 1998. Í átökunum hlaut
maður alvarlega höfuðáverka sem
höfðu í för með sér heilablæðingu og
framheilaskaða. Tveir menn voru
handteknir í kjölfarið og úrskurðaðir í
gæsluvarðhald. Þeir voru síðar sýkn-
aðir af ákæru um að hafa framið lík-
amsárásina.
Við rannsókn málsins var fjöldi
vitna yfirheyrður. Tvö þeirra fullyrtu
að þau hefðu séð manninn, sem
stefndi ríkinu, sparka í höfuð manns
sem lá á götunni í Austurstræti. Tvö
önnur vitni báru að þau hefðu séð
mann í buxum svipuðum þeim og
hann klæddist um nóttina sparka í
höfuð hins liggjandi manns. Á mynd-
bandsupptöku sást maðurinn gera sig
líklegan til að sparka í höfuð manns
sem lá í götunni. Fætur hans fóru þá
út fyrir myndrammann og því sást
ekki hvort af því varð.
Maðurinn höfðaði mál á hendur
ríkinu og byggði m.a. á því að hann
hefði verið sýknaður af ákæru. Ekki
hefðu verið lögmæt skilyrði fyrir
gæsluvarðhaldsvistinni og hún hefði
verið óþarflega harkaleg miðað við
umfang málsins. Jafnvel þótt maður-
inn hefði verið dæmdur fyrir líkams-
árásina hefði hann ekki fengið jafn
harkalega refsingu og hann þurfti að
þola með gæsluvarðhaldsvistinni.
Héraðsdómur taldi að maðurinn
hefði verið undir rökstuddum grun
um afbrotið og því hefði gæsluvarð-
haldið ekki verið ólögmætt.
Dómurinn sem féll í vikunni var
síðari dómur héraðsdóms í málinu. Sá
fyrri hafði verið ómerktur í Hæsta-
rétti og því þurfti að fara fram ný
málsmeðferð. Manninum voru dæmd-
ar rúmlega 60.000 krónur í bætur þar
sem hann þurfti að leggja út fyrir ferð
til landsins vegna hinnar nýju máls-
meðferðar.
Helgi I. Jónsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
Gæslu-
varðhaldið
ekki talið
of langt
Ríkið sýknað af
skaðabótakröfu
MÆLST er til þess að nýnemar
Menntaskólans í Kópavogi verði
búnir að festa kaup á fartölvu þeg-
ar þeir setjast á skólabekk í haust
en bréf frá skólanum þar sem farið
er fram á þetta var nýlega sent öll-
um nýnemum.
Margrét Friðriksdóttir, skóla-
meistari Menntaskólans í Kópa-
vogi, segir að þeim sem sóttu um
skólavist í MK hafi verið greint frá
því, þegar þeir sóttu um, að mælst
yrði til þess að nemendur eignuð-
ust fartölvu. Enn fremur segir hún
að nemendum sé ekki skylt að
eignast tölvu en hins vegar sé það
afar æskilegt.
„Eins og nemendum var kynnt
þegar þeir sóttu hér um skólann
verður miðað við að nemendur hafi
aðgang að ferðavélum en þetta er
kennslutæki sem verður mikið not-
að í kennslu okkar. Þannig verður
kennslan fartölvumiðuð og er mið-
að við að nemendur séu með tölvur
í skólanum,“ segir Margrét.
Viðbrögð hafa verið
bæði jákvæð og neikvæð
Hún segir að nemendum verði að
sjálfsögðu kleift að stunda námið
þó að þeir eigi ekki fartölvur.
Tölvuver séu í skólanum og segir
hún að miðað sé við að þeir nem-
endur sem alls ekki geti útvegað
sér vélar noti tölvur skólans.
Margrét segir að viðbrögð við
þessari nýjung hafi verið á báða
bóga.
„Við höfum fengið bæði jákvæð
og neikvæð viðbrögð við þessu,
fólki finnst þetta dýrt og þetta er
dýrt. En við megum ekki gleyma
því að það eru mörg önnur for-
dæmi úr menntakerfinu, gömul og
ný, í þessa veru. Nemendur hafa í
gegnum tíðina þurft að kaupa sér
dýr kennslutæki, til dæmis öflugar
reiknivélar og ritvélar,“ segir
Margrét.
Hún bendir á að skólinn hafi leit-
að eftir tilboðum á tölvum fyrir
nemendur og er þeim boðið að
greiða fyrir tölvur sínar með mán-
aðarlegum afborgunum.
„Þetta er bara krafa tímans og
sú kennslutækni sem skólastarf
stefnir að. Menntamálayfirvöld
hafa verið að móta uppýsinga-
tæknistefnur fyrir skóla þar sem
lögð er áhersla á að þessi nýja
tækni verði tekin í notkun í vax-
andi mæli í skólastarfi,“ segir
Margrét.
Nemendur
kaupi sér
fartölvur
Tilmæli til nýnema
í Menntaskólanum
í Kópavogi
FORSÆTISRÁÐHERRA Ír-
lands, Bertie Ahern, kemur
ásamt fylgdarliði í opinbera
heimsókn til landsins 24. júní
næstkomandi. Ahern kemur til
landsins með einkaflugvél en
Þorsteinn Pálsson, sendiherra
Íslands í Bretlandi, mun verða
viðstaddur komu hans til lands-
ins ásamt föruneyti.
Dagskrá Aherns á mánudag
byrjar á morgunverðarfundi í
boði Verslunarráðs Íslands á
Grand hótel. Hann mun funda
með Davíð Oddssyni forsætis-
ráðherra í ráðherrabústaðnum
og blaðamannafundur fylgir
strax í kjölfarið. Ahern sækir
síðan forseta Íslands, Ólaf
Ragnar Grímsson, heim á
Bessastaði. Ahern fer í skoðun-
arferð á Þingvelli en er síðan
boðið í hádegismat í sumarhús
Davíðs Oddssonar. Hann flýg-
ur þá með þyrlu Landhelgis-
gæslunnar á Gullfoss, Geysi og
Bláa Lónið. Liggur þá leið
Aherns út á flugvöll eftir stutta
dvöl á Íslandi.
Opinber
heimsókn
forsætisráð-
herra Írlands
YFIRDÝRALÆKNIR telur að
óhætt sé orðið að veita meðmæli til
að heimila innflutning á gæludýrum
frá öðrum Evrópulöndum en Bret-
landi vegna minnkandi hættu á að
gin- og klaufaveiki berist til lands-
ins. Jafnframt á að hætta sérstöku
sóttvarnareftirliti með komufarþeg-
um frá öðrum löndum en Bretlandi.
Að sögn Halldórs Runólfssonar yfir-
dýralæknis er gin- og klaufaveiki nú
eingöngu bundin við Bretland, þ.e.
England, Skotland og Wales, og því
er kominn grundvöllur til að breyta
varnaraðgerðum í samræmi við það.
Halldór hefur því lagt til við land-
búnaðarráðuneyti og tollayfirvold að
sóttvarnaraðgerðir miðist nú ein-
vörðungu við Bretland og er búist
við að breytingin komi til fram-
kvæmda hjá tollyfirvöldum í næstu
viku.
Í Leifsstöð hefur verið sótt-
hreinsieftirlit með farþegum frá öll-
um Evrópulöndum þar sem vart
varð gin- og klaufaveiki, en nú verð-
ur sú breyting á, að aðgerðir miðast
einvörðungu við farþega frá Bret-
landi.
Engin breyting verður á eftirliti
með Norrænu en ökutæki með öðr-
um flutningaskipum verða aðeins
sótthreinsuð komi þau frá Bretlandi.
Sóttvarnaraðgerðir miðist
eingöngu við Bretland