Morgunblaðið - 23.06.2001, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2001 9
SÍÐUSTU áratugi hef-
ur viðhald húsanna
verið í algjöru lág-
marki og endurbætur á
skólahúsinu eru rétt að
hefjast. Í ræðu sinni
við skólaslitin sagði
Ragnheiður að sig
hefði tekið sárt að
fylgjast með því hvern-
ig tíminn hefði fengið
að leika húsin og ætti
þetta sérstaklega við
um skólahúsið sem
geymir ekki aðeins
sögu Lærða skólans og
Menntaskólans, heldur
einnig sögu sjálfstæð-
isbaráttu Íslendinga,
þar sem það hýsti
endurreist Alþingi
sumurin 1845–79 og þjóðfundinn
1851.
„Menntaskólinn er einstakur að
því leyti að hann hefur starfað á
sama stað frá haustinu 1846. Skóla-
húsið var stærsta hús á landinu og
það er mjög vandað og vel byggt.“
Skólahúsunum fjölgaði og fyrir
1850 var byggð skemma, sem nú er
kölluð Fjósið, Bókhlaðan Íþaka var
reist 1867 og Íþróttahús 1898. Með
tímanum fóru húsin að láta á sjá og
strjálar endurbætur hafa verið börn
síns tíma.
Breytingar gerðar samkvæmt
tísku hverju sinni
„Hvað skólahúsið sjálft varðar
hefur ekki verið tekið tillit til þess
hvað það er merkilegt og gamalt,“
segir Ragnheiður og bendir á dökkt
krossviðarþil sem þekur ganga
skólans og kennslustofur. „Kross-
viðurinn hér er frá ráðherratíð Jón-
asar frá Hriflu og var negldur yfir
gifspússningu sem var orðin léleg.
Krossviðarþiljur voru í tísku á þess-
um tíma en þær eru í hrópandi
ósamræmi við gamla brjóstþilið á
veggjunum neðanverðum. Auk þess
er krossviðurinn allt of dökkur, svo
að gangarnir verða dimmir og
drungalegir. Þar við bætist að lakk-
aður krossviður er mjög eldfimur.“
Ekki þarf að taka fram að krossvið-
urinn er farinn að láta mikið á sjá
eftir rúm 70 ár.
Þegar komið er upp á rishæð
Menntaskólans má glöggt greina
anda 8. áratugarins. Að sögn Ragn-
heiðar voru lengi þrjár stórar
kennslustofur í risinu en bannað
var að kenna þar vegna hættu-
ástands sem yrði ef eldur brytist út.
Þá var skrifstofa skólans flutt upp í
risið og innréttuð voru vinnuher-
bergi fyrir kennara. Breytingarnar
voru gerðar eftir tísku þess áratug-
ar, t.d. eru tveir vegg-
ir skrifstofu rektors,
konrektors og skólans
með gömlu brjóstþili
en hinir tveir með
strigaveggfóðri.
Í anddyri skólans
sést glögglega að ekki
hefur verið staðið
skipulega að endur-
bótum. Þar má m.a.
sjá mætast þrenns
konar gólfdúk frá mis-
munandi tímum 20.
aldar.
Í fyrrasumar var
arkitektunum Þor-
steini Gunnarssyni,
Stefáni Erni Stefáns-
syni og Grétari Mark-
ússyni falið að semja
forsögn að viðgerðum á skólahús-
inu. Lagt er til að koma bygging-
unni í eins upprunalegt horf og
hægt er en Ragnheiður bendir á að
auðvitað þurfi um leið að taka tillit
til nútímaskólahalds. „Við sjáum nú
vísi að endurbyggingu. Í fyrrasum-
ar var krossviður rifinn af veggjum
í forstofu við aðaldyr skólans. Vegg-
irnir hafa nú fengið sinn fyrri svip
og það er mikill munur.“
Þegar önnur eldri hús skólans
eru skoðuð kemur í ljós mikil þörf á
viðhaldi. Gamla timburklæðningin á
Fjósinu er fúin og bárujárnið á
Íþróttahúsinu ryðgað. Árið 1995
átti að gera við Íþöku og mála hús-
ið. Gamla málningin var hreinsuð
burtog þá komu í ljós múrskemmd-
ir, sem þurfti að gera við, en við-
haldsféð var á þrotum. Gengið var á
fjárveitingu næsta árs til að gera
við veggina en viðgerð á húsinu er
enn hvergi nærri lokið.
Uppbygging á mennta-
skólareitnum
Þegar ákveðið var að Mennta-
skólinn í Reykjavík yrði ekki fluttur
af sínum sögufræga stað í hjarta
borgarinnar átti að byggja yfir
hann tvö hús. Annað þeirra, Casa
Nova, var reist og tekið í notkun
1965, hitt er enn óbyggt en það átti
m.a. að vera íþróttahús og sam-
komusalur skólans. Frá 1965 fram
undir aldamót var byggt yfir aðra
framhaldsskóla víða um land. Nú er
hins vegar unnið samkv. áætlun frá
1997 um uppbyggingu á mennta-
skólareitnum. Að sögn Ragnheiðar
er brýnt að reisa á miðjum reitnum
hús, sem hönnuð eru fyrir skólahald
21. aldar, en síðustu áratugina hef-
ur skólinn „skriðið inn í“ nærliggj-
andi hús sem var aldrei ætlað að
verða skólahús. Uppbyggingunni
hefur miðað skammt því að staðið
hefur á Reykjavíkurborg að taka
þátt í kostnaði við hana. „Nýlega
hefur orðið samkomulag milli ríkis
og borgar um að standa sameig-
inlega að uppbyggingu menntaskól-
anna í Reykjavík. Ég treysti því að
Reykjavíkurborg sé ljóst hvaða
skóli hefur beðið lengst eftir ný-
byggingum og hvaða hús hefur
gnæft lengst yfir hjarta Reykjavík-
ur og sameinað borgarbúa á lóð
sinni við hátíðleg tækifæri. Ég eygi
betri tíð í húsnæðismálum Mennta-
skólans.“
Húsnæðismál Menntaskólans í Reykjavík
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Enn er viðgerðum á Íþöku hvergi nærri lokið.
Viðhaldið hefur
verið í lágmarki
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Hér má glöggt sjá hversu ryðgað bárujárnið á Íþróttahúsinu er.
Ragnheiður
Torfadóttir
Menntaskólinn í Reykjavík starfar nú í sjö
húsum, það elsta var tekið í notkun 1846 en
það nýjasta 1999. Viðhald og endurbygging
elstu húsanna varð Ragnheiði Torfadóttur
rektor að umtalsefni við skólaslit 7. júní sl.
Sumarfatnaður á góðu verði
Opið kl. 10—14
á laugardögum í sumar
Neðst við Dunhaga
sími 562 2230
Frístundafatnaður
ELENA - MIRO - SPORT
Opið frá kl. 10-14
STÓRAR STÆRÐIR
Kringlukast
undirfataverslun, 1. hæð Kringlunni,
sími 553 7355.
Allur
undirfatnaður með
25% afslætti
Spennandi leynitilboð
Póstsendum
Rússlandsferð 12. september
Hinum vinsælu ferðum ferðaskrifstofunnar Bjarmalands til Rússlands verður fram haldið undir
stjórn Hauks Haukssonar. Síðsumars verður 15 daga ferð til Moskvu og Pétursborgar 12. - 26.
september. Mögnuð og oft harmþrungin saga Rússaveldis og Sovétríkjanna endurspeglast í þess-
um merku borgum og menningin er á heimsmælikvarða.
Búið verður í miðborg Moskvu, á besta stað rétt við Rauðatorgið. Í fararstjórn er áhersla er lögð á
sögu og menningu landsins og vandað er til dagskrárinnar. M.a. verða bestu listasöfn landsins
heimsótt, Hermitage, Tretjakov o.fl., farið í Bolshoi leikhúsið, siglt á Moskvuánni, farið í hin fræga
Moskvusirkus, á prúttmarkað, upp í næststærstu byggingu heims - sjónvarpsturninn Ostankino
sem verið hefur í viðgerð (ekki fyrir lofthrædda).
Farið verður í sveitaferð og sandbaðstrendur borgarinnar við Moskvuána heimsóttar. Sumarið
stendur út september og meðalhiti er um 18°C í þeim mánuði.
Allar nánari uppl. gefur Haukur Hauksson í símum 007 095 254 22 65 og 007 902 125 12 90.
Sendið fyrirspurnir á bjarmaland@strik.is og skoðið www.austur.com