Morgunblaðið - 23.06.2001, Side 12
FRÉTTIR
12 LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
S
TJÓRN Suðurlands-
skóga sendi 12. júní sl.
bréf til forsvarsmanna
Kjötmjöls ehf. þar sem
fram kemur að hætt
hafi verið við tilraunir með notk-
un kjötmjöls sem áburð í skóg-
rækt eins og stefnt hafði verið að.
Í bréfinu segir orðrétt: „Niður-
staða stjórnarinnar var fengin
eftir viðræður við fagmenn á sviði
heilbrigðiseftirlits og sjúkdóma-
varna sem treystu sér ekki til að
útiloka kjötmjöl sem smitleið
sjúkdóma.“ Þykir skjóta skökku
við að á sama tíma og Suður-
landsskógar komast að þessari
niðurstöðu er kjötmjöl selt í versl-
unum sem áburður og að sögn
starfsstúlku í Blómavali í Reykja-
vík mikið notað undir túnþökur.
Guðmundur Tryggvi Ólafsson,
verkefnisstjóri Kjötmjöls ehf.,
segir kjötmjöl hafa verið notað til
uppgræðslu í mörg ár, bæði frá
þeim sjálfum og eins frá kjöt-
mjölsverksmiðju í Borgarnesi.
Heimildir blaðsins herma að
rekstur verksmiðju í Borgarnesi
hafi verið stöðvaður í júní í fyrra
eftir um 30 ára rekstur en enn sé
verið að selja gamlar birgðir af
kjötmjöli þaðan til áburðar og
uppgræðslu. Þar mun sláturúr-
gangur hafa verið urðaður síðan
rekstri verksmiðjunnar var hætt.
Hörð orð um sérfræðing
yfirdýralæknis
Þorvarður Hjaltason, stjórnar-
formaður Kjötmjöls ehf., segir
það ekki síst hafa verið fyrir orð
Sigurðar Sigurðarsonar, sérfræð-
ings yfirdýralæknisembættisins á
Keldum, að Suðurlandsskógar
hættu við notkun mjölsins. Þessi
orð staðfestir Björn B. Jónsson
framkvæmdastjóri Suðurlands-
skóga. Þorvarður segir niðurstöðu
Suðurlandsskóga mikil vonbrigði
og ekki byggða á sterkum fagleg-
um forsendum. Í framhaldi af því
nefnir hann að samkvæmt reglu-
gerð megi nota mjölið til upp-
græðslu. Það komi enda fram í
bréfi landbúnaðarráðuneytis til
Kjötmjöls ehf. frá því í lok maí að
ráðuneytið hafi skrifað bæði
Landgræðslu ríkisins og Suður-
landsskógum og minnt á ákvæði
reglugerðar um meðferð sláturúr-
gangs (nr. 660/2000) þess efnis að
„afurðir úr kjötmjölsverksmiðju
sem unnar eru úr hættulitlum úr-
gangi megi nota í áburð, þó ekki á
beitilönd.“
Þorvarður fer hörðum orðum
um Sigurð Sigurðarson: „Hann
virðist hafa leyfi til að segja hluti
sem, í okkar tilfelli, hafa stór-
skaðað okkar hagsmuni, þrátt fyr-
ir að öll þessi notkun sé heimil.
Ég hef komið á framfæri kvörtun
við ráðuneytið og yfirdýralækn-
isembættið sem hafa sýnt kvörtun
minni mikinn skilning og tekið
undir að yfirlýsingar hans í fjöl-
miðlum séu ekki viðeigandi. Ég er
mjög óánægður með framgöngu
Sigurðar Sigurðarsonar í þessu
máli [...] Meðan þetta er ekki
bannað viljum við hafa frið fyrir
embættismönnum ráðuneytisins,
að þeir séu ekki með yfirlýsingar
í andstöðu við gildandi reglu-
gerð,“ segir Þorvarður Hjaltason.
Hlýðir ekki hagsmunaaðilum
Sigurður Sigurðarson segir að
þótt reglur kveði á um að nota
megi kjötmjöl til uppgræðslu
bendi nýjar upplýsingar til að það
kunni að vera varhugavert því
riðusmit geti lifað lengi í jarðvegi.
„Við kærum okkur ekki um uppá-
komur eins og Englendingar hafa
orðið fyrir eða að verið sé að
reyna að hræða menn frá því að
hafa skoðanir á málinu. Ég hef
mínar skoðanir og meiningar út
frá því sem ég hef lesið mér til og
stríðir gegn samvisku minni að
láta orð hagsmunaaðila hafa þar
áhrif á,“ segir hann. Sigurður
segir minni umhverfishættu
fylgja vinnslu sláturúrgangs í
kjötmjöl en urðun þess. Sigurður
segir það enn fremur varhugavert
að kjötmjöl frá Suðurlandi skuli
vera til sölu í verslunum og ætlað
til uppgræðslu því riða hafi ný-
verið komið upp þar. Hann telur
nauðsynlegt að fjarlægja úr hrá-
efni verksmiðjunnar þá hluta sem
hættulegastir geta talist, t.a.m.
heila og mænu, og þá gæti verið
óhætt að nota kjötmjölið til upp-
græðslu og í loðdýrafóður en þó
ekki í fóður dýra sem ætluð eru
til manneldis.
Aðalfundur
Kjötmjöls ehf. boðaður
Á vef Verðbréfaþings Íslands
kom í síðustu viku afkomuviðvör-
un frá Sláturfélagi Suðurlands
sem er sögð að hluta til stafa af
niðurfærslu á hlutafé í Kjötmjöli
ehf. Hjalti Hjaltason, fjármála-
stjóri Sláturfélagsins, segir mik-
ilvægt að fram komi að ekki sé
um afskrift hlutafjár að ræða
heldur einungis niðurfærslu og
ekki beri að taka því sem van-
traustsyfirlýsingu á Kjötmjöl ehf.
„Þessar tölur má alltaf færa upp
aftur ef rekstrarhorfur verksmiðj-
unnar batna. Vandinn sem að
steðjar er fyrst og fremst óvissa
út af sölumálum og ekki alveg út-
séð með hvernig þau mál leysast.
Niðurfærslan er bara eðlileg var-
kárni í reikningshaldi og ber ekki
að skilja annan hátt,“ segir hann.
Að sögn Þorvarðar Hjaltasonar
hefur verið boðað til aðalfundar
hjá Kjötmjöli ehf. í næstu viku
þar sem tekin verður ákvörðun
um framtíð verksmiðjunnar. Á
fundinum segist hann ætla að
leggja fram eigin tillögur um
framtíð verksmiðjunnar og segist
telja möguleika á að halda rekstr-
inum áfram en kjarninn í því sé
töluverð hækkun vinnslugjalda
verksmiðjunnar. Í framhaldi af
fundinum segir hann að tekin
verði ákvörðun hjá Sorpstöð Suð-
urlands um hvort verði af aukn-
ingu hlutafjár í fyrirtækinu en
Þorvarður er framkvæmdastjóri
Sorpstöðvarinnar. Í bréfi land-
búnaðarráðuneytis til fyrirtækis-
ins frá því í lok maí segir að ráðu-
neytið sé að kanna hvort unnt
væri að setja reglugerð um förg-
unargjöld sem rennt gætu styrk-
ari stoðum undir rekstur kjöt-
mjölsverksmiðja í landinu en að
þeirri vinnu væri ólokið. „Í því
sambandi er sá möguleiki ekki
útilokaður að verksmiðju Kjöt-
mjöls ehf. verði breytt og hún
gerð að eyðingarverksmiðju,“
segir í bréfinu. Þá segir að ráðu-
neytið voni að viðunandi lausn
finnist á vanda verksmiðjunnar
svo áfram verði unnt að fara með
og nýta slátur- og dýraúrgang
hérlendis með hætti sem sam-
ræmist umhverfiskröfum nú-
tímans.
Vonlaus rekstur frá upphafi
Guðsteinn Einarsson, kaup-
félagsstjóri Kaupfélags Borgfirð-
inga, segir að það ætti ekki að
hafa komið mönnum á óvart að
rekstur kjötmjölsverksmiðju á
Suðurlandi yrði erfiður því vitað
hafi verið að markaðir væru
hrundir löngu áður en hún tók til
starfa, bæði vegna kúariðuum-
ræðu og enn fyrr vegna díox-
ínmengunar í belgísku kjötmjöli.
Hann segir að fullu ári áður en
Kjötmjöl ehf. tók til starfa hafi
átt sér stað í Borgarnesi viðræður
við sveitarfélagið um framtíð
rekstursins þar og niðurstaðan
verið að hann væri ekki vænlegur
nema sem hluti af sorpurðun og
eyðingu. „Síðan fórum við fram á
það við aðilana sem við vorum að
vinna fyrir, Sorpu í Reykjavík,
sláturleyfishafa og sveitarfélögin
hér á Vesturlandi, að fá að hækka
gjaldið úr þremur krónum upp í
sjö til tíu krónur en því var hafn-
að m.a. vegna þess að fram væri
að koma verksmiðja á Suðurlandi
sem gæti gert þetta ódýrt,“ sagði
Guðsteinn. Einnig kom fram að
hann teldi eina ástæðu þess að
minna hafi verið um hvers kyns
matarsýkingar og mengun á Vest-
urlandi en annars staðar hafa ver-
ið að þar hafi sláturúrgangur ekki
verið urðaður í sama mæli og
annars staðar.
Blikur á lofti í rekstri Kjötmjöls ehf. á Suðurlandi
Framtíð-
in ráðin á
fundi eft-
ir helgi
Óvissa ríkir um rekstur kjötmjölsverk-
smiðju Kjötmjöls ehf. á Suðurlandi vegna
þess hve illa gengur að selja afurðirnar.
Einnig hættu Suðurlandsskógar nýlega
við tilraunir með notkun mjölsins í skóg-
rækt að fengnum ráðleggingum sérfræð-
inga. Engu að síður er kjötmjöl selt sem
áburður í verslunum á höfuðborgarsvæð-
inu og á Suðurlandi.
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Stjórn Suðurlandsskóga vill ekki gera tilraunir með notkun kjötmjöls í
trjárækt en það er þó í almennri sölu og töluvert notað til uppgræðslu.
ÓÁNÆGJU hefur gætt meðal leið-
sögumanna um nýjan kjarasamning
sem gerður var milli Félags íslenskra
leiðsögumanna og Samtaka atvinnu-
lífsins. Samningurinn tók gildi þann
14. júní en hann var naumlega sam-
þykktur með 58 atkvæðum gegn 52.
Að sögn Ástu Sigurðardóttur, einnar
í hópi leiðsögumanna sem tjáð hafa
óánægju sína, eru félagsmenn
óánægðir með nýja launakerfið og
finnst það ekki nógu vel útfært.
Einnig vekur Ásta athygli á því að
yfir 400 manns eru í félagi leiðsögu-
manna en aðeins 215 á kjörskrá. Af
þeim greiddu aðeins um 116 atkvæði
og því ljóst að það sé lítill hópur sem
ræður miklu. Einnig gætti óánægju
með það að næturvinna er ekki
greidd fyrr en eftir 12 tíma vinnu í
stað átta tíma eins og vanalegt er.
Ásta segir félagsmenn þó ekki
óánægða með allt í samningnum. Al-
menn ánægja sé um tryggingamál og
ýmislegt annað. Félagsmenn voru
ekki sáttir við það að Borgþór
Kjærnested, formaður Félags leið-
sögumanna, skyldi hafa látið hafa það
eftir sér að hann hefði ekki orðið var
við óánægju á meðal félagsmanna.
Ásta segir að þegar svona lítill
munur sé á atkvæðafjölda þegar kos-
ið er um samninginn þá segi það sig
sjálft að fólk er ekki fullkomlega
ánægt.
Telja launa-
kerfið ekki
nógu vel útfært
Óánægja meðal leið-
sögumanna með nýjan
kjarasamning
PRESTASTEFNA samþykkti í
fyrradag ályktun þar sem tilmælum
er beint til presta, héraðsfunda,
sóknarnefnda og annarra leikmanna
innan kirkjunnar að vinna markvisst
að jafnara kynjahlutfalli á kirkju-
þingi. Í ályktuninni er jafnframt
skorað á kirkjuþing að endurskoða á
komandi hausti reglur um kjör til
kirkjuþings í því skyni að jafna stöðu
kynjanna í kirkjuþingskosningum.
Sr. Halldór Reynisson lagði fram
ályktunina í lok dags og gerði grein
fyrir henni. Bent var á að kirkjuþing
hafi samkvæmt lögum æðsta vald í
málefnum kirkjunnar. Þegar litið
væri til fulltrúa á núverandi kirkju-
þingi kæmi í ljós að jafnri stöðu
kynjanna væri þar fráleitt fyrir að
fara. Þar ættu sæti 21 fulltrúi, bæði
prestar og leikmenn, þar af 20 karlar
og ein kona.
Kosningafyrirkomulag hamlar
því að kynjahlutfall verði jafnt
Á næsta ári fer fram kosning til
kirkjuþings sem skal lokið 20. maí og
felst í ályktuninni, sem samþykkt
var í gær, tillaga um að reglur um
kjör kirkjuþingsfulltrúa verði endur-
skoðuð. Sagði Halldór að núverandi
kosningafyrirkomulag hamlaði því
að kynjahlutfall á kirkjuþingi yrði
jafnt. Ein hugmynd væri að stækka
kjördæmin landfræðilega, þannig að
fleiri en einn fulltrúi leikra og lærðra
yrði kjörinn úr hverju kjördæmi en
slíkt gæfi möguleika á fjölbreyttara
vali en núverandi einmenningsfyrir-
komulag. Þá væri einnig möguleiki
að breyta fyrstu grein starfsreglna
um kirkjuþing, þar sem rætt er um
tilnefningu héraðsfundar á fimm
kjörgengum mönnum til kjörs á
kirkjuþingi, til samræmis við jafn-
réttisáætlun kirkjunnar. Þá yrðu þar
minnst tvær konur.
Unnið verði
að jafnara
kynja-
hlutfalli
Ályktun prestastefnu
um hlutfall kynja á
kirkjuþingi
♦ ♦ ♦