Morgunblaðið - 23.06.2001, Blaðsíða 14
FRÉTTIR
14 LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MAGNÚS Þorsteins-
son, barnalæknir, lést í
gærmorgun sjötíu og
fimm ára að aldri.
Magnús var fæddur
10. mars 1926 í
Reykjavík, sonur
hjónanna Þorsteins
Jónssonar, verslunar-
fulltrúa í Reykjavík,
og konu hans Katrínar
Jóhannsdóttur, hús-
freyju.
Magnús lauk stúd-
entsprófi frá M.R. árið
1946 og læknaprófi frá
Háskóla Íslands árið
1955. Hann fékk almennt lækninga-
leyfi árið 1960 og sérfræðingsleyfi í
barnasjúkdómum sama ár. Jafn-
framt lauk hann námi í heilsuvernd,
með sérstöku tilliti til barna í Sví-
þjóð, árið 1967 með styrk frá Evr-
ópuráðinu.
Magnús gegndi margvíslegum
störfum, hann var m.a. aðstoðar-
læknir á Lillhagens sjukhus í
Lillhagen í Svíþjóð árið 1957, á
Barnsjukhuset í Gautaborg árið
1958. Hann var aðstoð-
arlæknir hjá héraðs-
lækninum í Bakka-
gerðishéraði í október
árið 1959 og hér-
aðslæknir þar frá nóv-
ember sama ár til
mars 1960. Starfandi
læknir í Reykjavík frá
apríl 1960. Sérfræðing-
ur við barnadeild
Heilsuverndarstöðvar
Hafnarfjarðar frá
stofnun hennar í maí
árið 1960 til september
1963 og jafnframt á
barnadeild Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur frá
júní 1960 til maí 1965. Deildarlækn-
ir þar frá júní árið 1965 til ársloka
1997.
Auk þessa var hann formaður
Félags íslenskra barnalækna 1968
til 1969 og formaður læknaráðs
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur
árið 1992 til 1996.
Eftirlifandi eiginkona Magnúsar
er Guðrún Salóme Guðmundsdóttir
og eignuðust þau fjögur börn.
Andlát
MAGNÚS
ÞORSTEINSSON
GÚSTAV Sigurðsson útskrifast með
B.S.-gráðu í hagfræði frá Háskóla
Íslands í dag með hæstu aðal-
einkunn sem gefin hefur verið í hag-
fræðiskor til þessa, 9,17.
Gústav segir að áhuginn á hag-
fræði hafi vaknað í stjórnmála-
fræðiáfanga í MH. „Það sem heillar
mig við hagfræðina eru formleg efn-
istök hennar - stærðfræðilíkön eru
til dæmis mikið notuð - en einnig eru
spurningarnar sem hún leitast við
að svara mjög mikilvægar. Hvernig
stendur til dæmis á því að sum lönd
sitja eftir í örbirgð á meðan lífskjör
nágranna þeirra batna hröðum
skrefum? Hvers vegna er stundum
erfitt og stundum auðvelt að fá
vinnu? Af hverju virðast stöðugt
skiptast á hagvöxtur og samdráttur?
Fjárfesting er einn þeirra þátta sem
skipta gríðarlega miklu máli fyrir
hagvöxt til lengri tíma litið. Eitt
áhugasviða minna er skilvirkni fjár-
málamarkaða, hversu vel þeim tekst
að beina sparnaði til hagkvæmustu
fjárfestinga. Verðlagning hluta-
bréfa getur til dæmis ráðið miklu
um í hvaða greinum atvinnulífsins
er fjárfest. Því skiptir máli að verð
hlutabréfa endurspegli raunveru-
legt verðmæti hlutafélaganna en
ýmislegt bendir til þess að svo sé
ekki nærri því alltaf. Dæmi um þetta
eru tæknifyrirtæki sem af mörgum
eru talin hafa verið ofmetin á síðasta
ári en hafa nú lækkað í verði.
Mikilvægasta afleiðing þess er
ekki endilega gróði eða tap ein-
stakra hluthafa, heldur að vinnuafli
og fjármunum hafi hugsanlega verið
sóað í slík fyrirtæki á meðan önnur
arðbærari fjárfesting hafi setið á
hakanum.“
Aðspurður um lykilinn að góðu
gengi í hagfræðináminu svarar
Gústav því til að mikill áhugi á fag-
inu og góðir kennarar hafi skipt
máli en vitaskuld hafi hann einnig
þurft að leggja á sig mikla vinnu.
„Annars lá leiðin ekki beint í hag-
fræðina. Ég er stúdent af tónlist-
arbraut og lauk síðan einleik-
araprófi á klarinett frá Tónlistar-
skólanum í Reykja vík og stundaði
svo framhaldsnám í tvö ár í Þýska-
landi í kjölfarið áður en ég hóf nám í
hagfræði.
Undanfarin tvö ár hef ég starfað
hjá Hagfræðistofnun Háskóla Ís-
lands samhliða náminu og það hefur
verið mér ómetanleg reynsla. Sam-
skipti við reyndari fræðimenn eru
dýrmæt þegar maður er að stíga
fyrstu skrefin í að spyrja sinna eigin
spurninga og leita svara við þeim.“
Gústav segir að nú sé stefnan tekin á
fimm ára doktorsnám í hagfræði við
Princeton-háskóla í Bandaríkjunum:
„Það var mikil samkeppni um að
komast inn. Ég fékk einnig tilboð frá
nokkrum öðrum góðum háskólum
en Princeton varð fyrir valinu, ekki
síst vegna þess að námsframboð þar
fellur vel að áhugasviðum mínum en
þau eru fjármálafræði, alþjóða hag-
fræði og hagrannsóknir.“
Aðspurður segir Gústav að hann
hafi síður en svo misst áhugann á
tónlist, hann sé enn mikill.
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Einkunnamet í
hagfræðiskor
FORMAÐUR Þjórsárveranefndar
og fulltrúi Náttúruverndar ríkisins
gera ekki athugasemdir við niður-
stöður álitsgerðar Páls Hreinssonar
lagaprófessors um fyrirmæli laga
um náttúruvernd. Eins og fram kom
í Morgunblaðinu í gær kom Páll á
fund Þjórsárveranefndar sl. mið-
vikudag og skýrði þar álit sitt en í
kjölfarið ákvað nefndin að aðhafast
ekkert frekar í málefnum Þjórsár-
vera fyrr en formlegt erindi kæmi
um afgreiðslu frá þar til bærum að-
ilum. Í framhaldi af því hefur Lands-
virkjun ákveðið að setja fram-
kvæmdir við Norðlingaöldulón í mat
á umhverfisáhrifum og er búist við
því að niðurstöður úr slíku mati geti
legið fyrir um áramótin.
Gísli Már Gíslason, prófessor og
formaður Þjórsárveranefndar, seg-
ist í sjálfu sér ekki vera ósammála
áliti Páls Hreinssonar og nefndar-
menn hafi afráðið að aðhafast ekkert
frekar að sinni til að gera sig ekki
vanhæfa á síðari stigum.
Hann á hins vegar von á því að
formlegt erindi teljist vera komið frá
Landsvirkjun strax og nefndin verði
beðin að gerast umsagnaraðili vegna
matsáætlunar framkvæmda við
Norðlingaöldu.
„Þá mun nefndin væntanlega taka
slíka áætlun til meðferðar, því í
henni koma fram upplýsingar um
hvernig staðið verður að fram-
kvæmdinni og okkar hlutverk verður
þá meðal annars að óska eftir til-
teknum upplýsingum og segja til um
hvaða niðurstöður þurfa að liggja
fyrir áður en matið sjálft verður
framkvæmt,“ segir hann. Gísli Már
leggur áherslu á að með umfjöllun
um matsáætlunina yrði ekki um
beina afgreiðslu nefndarinnar um
framkvæmdir í Þjórsárverum að
ræða.
Að sögn Gísla hefur nefndin á sl.
árum fengið 34 rannsóknaskýrslur
til umfjöllunar frá Landsvirkjun,
m.a. til þess að meta mismunandi
lónshæðir. Auk þess hafi í minnis-
blaði Landsvirkjunar frá 1980 verið
farið fram á umsögn um fram-
kvæmdir við uppistöðulón í tiltekinni
hæð. Ekki sé því undarlegt þótt ein-
hverjir túlki beiðnir Landsvirkjunar
um umfjöllun sem formleg erindi og
eftir vandlega yfirlegu nefndarinnar
á öllum fyrirliggjandi gögnum sé
ekki óeðlilegt þótt nefndarmenn telji
sig reiðubúna að fjalla um áhrif uppi-
stöðulóns á stærð við Mývatn á nátt-
úruverndargildi Þjórsárvera. Að því
leyti telur hann líklegt að flestir
nefndarmenn séu þegar búnir að
gera upp sinn hug í þessu máli. End-
anlegri afgreiðslu málsins hafi hins
vegar verið frestað þar sem nefnd-
armenn hafi ekki viljað gera sig van-
hæfa til að fjalla um málið á síðari
stigum.
Öðrum möguleikum hafnað
Þjórsárveranefnd hafði áður hafn-
að afdráttarlaust áformum Lands-
virkjunar um 6. áfanga Kvíslaveitu
með miðlunarlóni í Þjórsárverum.
Sömuleiðis var hafnað öllum hug-
myndum um uppistöðulón í Norð-
lingaöldu sem yrði hærra en 575 m
yfir sjávarmáli. Á hinn bóginn hafði
nefndin frestað ákvörðun um lón í
þeirri hæð og kom ekki til ákvörð-
unar á fundi hennar sl. miðvikudag,
m.a. vegna álitsgerðar Páls Hreins-
sonar. Samkvæmt henni leikur vafi á
því hvort formlegt erindi um fram-
kvæmdir í Þjórsárverum hafi borist
til nefndarinnar frá Landsvirkjun og
því óvíst hvort nefndin hafi rétt til
þess að fjalla um slíkar framkvæmd-
ir að eigin frumkvæði.
„Forsenda þess að hægt sé að
fjalla um slíkt erindi á málefnalegan
hátt lögum samkvæmt er að fyrir
liggi endanleg afstaða Landsvirkj-
unar til þess hvernig þau mannvirki
eiga að vera úr garði gerð, sem ætl-
unin er að reisa o.fl. Fyrr en frá-
gengnar tillögur Landsvirkjunar
liggja fyrir er ekki að fullu hægt að
rannsaka og meta áhrif þeirra á um-
hverfið í Þjórsárverum. Af þessum
sökum er ljóst að ráðgjafanefndin
[Þjórsárveranefnd] getur ekki tekið
endanlega og málefnalega afstöðu til
þessa máls fyrr en formleg umsókn
liggur fyrir og gerðar hafa verið all-
ar nauðsynlegar rannsóknir til að
leggja mat á umhverfisáhrif mann-
virkjanna,“ segir m.a. um þessi efni í
niðurstöðukafla álitsgerðarinnar og
ennfremur að ótímabærar yfirlýs-
ingar ráðgjafanefndar um niður-
stöðu máls og opinber barátta ein-
stakra nefndarmanna með eða gegn
ákveðinni niðurstöðu geti valdið van-
hæfi þeirra til meðferðar máls, þegar
formlegt erindi berist.
Gísli Már Gíslason, prófessor og formaður Þjórsárveranefndar
Umsagnarbeiðni um mats-
áætlun yrði formlegt erindi
VEGNA umræðu um mat á um-
hverfisáhrifum Norðlingaölduveitu
vill Trausti Baldursson, sviðsstjóri
hjá Náttúruvernd ríkisins, að eftir-
farandi komi fram:
„Náttúruvernd ríkisins er hlynnt
því að allar framkvæmdir eins og
lýst er í lögum um mat á umhverfis-
áhrifum fari í mat og er það mikil
bót frá því sem áður var. En það má
líka spyrja sig hvort ekki séu til
framkvæmdir á ákveðnum stöðum
sem alls ekki á að fara með í mat á
umhverfisáhrifum t.d. efnistöku í
Almannagjá.
Það virðist vera útbreiddur mis-
skilningur að mat á umhverfisáhrif-
um jafngildi leyfisveitingu. Úr-
skurður í mati á umhverfisáhrifum
ákveðinnar framkvæmdar segir að-
eins til um hvort Skipulagsstofnun
álíti framkvæmdina ásættanlega eða
ekki út frá ýmsum sjónarhornum.
Leyfisveitingar eru í höndum ann-
arra aðila heldur en þeirra sem
framkvæmda matið, þ.e.a.s. ef fram-
kvæmdaleyfisveitandi hefur ekki
sjálfur látið fara fram mat.
Það má ekki gleymast að það er
framkvæmdaraðilinn sem fram-
kvæmir matið og er matið því ekki
hlutlægt. Úrskurður í mati á um-
hverfisáhrifum þarf ekki endilega að
vera í samræmi við vilja leyfisveit-
anda. Þjórsárver eru friðland og um
það gilda sérstakar reglur. Ef
byggja á lón í Þjórsárverum eða
önnur mannvirki verður að afla
framkvæmdaleyfis hjá sveitarstjórn
og leyfis hjá Náttúruvernd ríkisins
samkvæmt friðlýsingu og lögum um
náttúruvernd nr. 44/1999 38.gr.
Þjórsárveranefnd er stofnuninni
til ráðgjafar. Lög um mat á um-
hverfisáhrifum gerir önnur lög síst
af öllu óþörf. Enda kemur fram í
friðlýsingu Þjórsárvera að það er
mat á því hvort náttúruverndargildi
Þjórsárvera rýrni óhæfilega sem
ákvarðar hvort leyfa á Norðlinga-
öldulón eða ekki. Ekki aðrir hags-
munir sem fjallað er um í mati á um-
hverfisáhrifum.
Það er hlutverk Náttúruverndar
ríkisins að meta náttúruverndargildi
veranna ekki Skipulagsstofnunar
eða Landsvirkjunar. Það má ekki
gleymast í þessu sambandi að það
er verið að fjalla um landsvæði sem
er friðland og Ramsarsvæði og hef-
ur mjög hátt náttúruverndargildi.
Það er því fyrst og fremst nátt-
úruverndargildi Þjórsárvera sem
skiptir máli.
Það er í hæsta máta óeðlilegt al-
mennt séð ef fyrirtæki fara með
framkvæmdir í mat á umhverfis-
áhrifum ef þau vita fyrirfram að t.d.
viðkomandi sveitarfélag eða aðrir
leyfisveitendur eru andvígir því að
hafa tiltekinn rekstur eða mannvirki
innan sveitarfélagsins.“
Athugasemd frá Náttúruvernd ríkisins
Útbreiddur misskilningur
að mat á umhverfisáhrifum
jafngildi leyfisveitingu
VARNARÆFINGU Atlantshafs-
bandalagsins, Norðurvíkingur
2001, lýkur á morgun og í gær var
meðal annars æfð árás á hús á
Reykjanesi og í fyrradag tóku
starfsmenn Landhelgisgæslunnar
þátt í æfingu á Faxaflóa. Þar var
æfð taka skips og tók áhöfn varð-
skipsins Ægis þátt í æfingunni
ásamt þyrluáhöfn. Í heildina taka
um 3.000 manns þátt í æfingunni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Æfðu töku
skips á
Faxaflóa