Morgunblaðið - 23.06.2001, Side 19
Borað eftir vatni
Í LANDI Eiðhúsa fannst 100 gráðu
heitt vatn, 7 sekúndulítrar af sjálf-
rennandi vatni. Þegar farið var að
bora í landi Eiðhúsa höfðu menn
miklar væntingar og var ráðgert að
leggja hitaveitu um Eyja- og Mikla-
holtshrepp því samkvæmt fyrstu
mælingum átti að vera nægjanlegt
vatn til þess. Urðu það því mikil
vonbirgði þegar vatnið var ekki
nægjanlegt. Nú er beðið eftir nið-
urstöðum úr rannsóknum á efna-
innihaldi vatnsins og í kjölfar þess
verður tekin ákvörðun um fram-
hald. Menn í nágrenni holunnar
binda miklar vonir við notkun þess
þar sem nokkur atvinnurekstur er í
nágrenninu. Reyndar er aðeins farið
að nota heita vatnið við þurrkun og
vinnslu á þorskhausum á Mið-
hrauni.
Við Kolviðarnes var borað í vor
og fékkst þar nóg af 70 gráðu heitu
vatni og er verið að vinna að hita-
veitu fyrir 7 bæi í nágrenninu.
Þá var borað eftir vatni við bæinn
Borg og var ætlunin að fá kalt vatn
því þar eins og svo víða annars stað-
ar á landinu voru vandræði með kalt
vatn í vetur. Á Borg var ætlunin að
tryggja sig fyrir því að lenda ekki í
sömu vandræðunum aftur og var
því boruð ein hola. Þar fékkst nægi-
legt vatn en það er dálítið volgara
en drykkjarvatn er yfirleitt en gott
fyrir skepnur. Sýnir þettar að víða
er hiti í jörðu ef leitað er að honum.
Þessa dagana er verið að bora
eftir vatni á Snorrastöðum í Kol-
beinsstaðahreppi en þar er rekin
umsvifamikil ferðaþjónusta. Heitt
vatn myndi styrkja ferðaþjónustuna
og auka. Þar er því beðið með mik-
illi eftirvæntingu.
Morgunblaðið/Daníel Hansen
Borað eftir vatni á Borg.
Eyja- og Miklaholtshreppur
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2001 19
SKILTI til minningar
um Björn H. Guðmunds-
son trésmíðameistara,
var afhjúpað á Bjössa-
róló nýlega. Bjössaróló
er leikvöllur í Borgar-
nesi og mörgum lands-
mönnum kunnur fyrir
sérstakt útlit og hönn-
un.
Björn hóf smíði leik-
vallarins árið 1979 og
hélt honum við, ásamt
því að vinna að end-
urbótum. Björn var
barnelskur og börn
hændust að honum.
Hann lagði áherslu á að
hafa leiktækin í nátt-
úrulegum litum og vildi
að börnin gengju vel um
og umgengjust náttúruna af virð-
ingu og gætni. Meðal annars beindi
hann þeim tilmælum til barna að
þau tíndu ekki blómin heldur leyfðu
þeim að vaxa. Á nokkrum stöðum
setti hann upp málshætti til þess að
börnin lærðu þá. Knattspyrnudeild
Skallagríms hefur í fjáröflunar-
skyni til eins árs tekið að sér um-
hirðu og viðhald á Bjössaróló og er
völlurinn nú þegar orðinn snyrti-
legur og tilbúinn fyrir börnin.
Skilti afhjúpað
um Bjössaróló
Á myndinni má sjá Guðrúnu Jónsdóttur, for-
seta bæjarstjórnar, afhjúpa skiltið, en á því
má sjá mynd af Birni H. Guðmundssyni og
Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta
Íslands, þar sem hún prófar rólu á Bjössaróló.
Borgarnes
Á ÞESSU ári eru 10 ár síðan Byggðasafn Snæfellinga
var formlega opnað í Norska húsinu í Stykkishólmi. Af
því tilefni hefur verið opnuð sýningin „Heldra heimili í
Stykkishólmi á 19. öld“ á miðhæð Norska hússins.
Undirbúningur sýningarinnar hefur staðið í mörg ár.
Mikill áhugi hefur verið að setja upp sýningu sem sýnir
heimili heldra fólks frá þeim tíma er Norska húsið var
kaupmannsheimili. Nú er sú sýning orðin að veruleika.
Hönnuður sýningarinnar og aðaldrifkraftur hefur verið
Steinþór Sigurðsson og hafa hann og Sigrún Ásta Jóns-
dóttir, fyrrum forstöðumanns Norska hússins, haft veg
og vanda af sýningunni. Miðhæð Norska hússins á að
sýna heimili Árna Thorlacius sem byggði Norska húsið
1832. Marga munanna sem eru á sýningunni hefur Þjóð-
minjasafnið lánað og svo hefur verið mikið keypt af göml-
um munum sem nú prýða heimilið. Þjóðminjavörður lán-
aði glæsilega stofuklukku, sem Árni Thorlacius átti og
hafði í stofu sinni. Klukkan er yfir 160 ára gömul. Fyrstu
100 árin var hún í Stykkishólmi, en hefur síðustu 60 ár
staðið fyrir framan skrifstofu Þjóðminjavarðar.
Mjög vel hefur tekist til með sýninguna. Hún sýnir allt
aðra mynd af heimilisháttum á Íslandi á 19. öld en önnur
byggðasöfn gera. Þarna hafa húsbændur haft næga pen-
inga á milli handanna og verið algjör andstæða fátæku
sveitaheimilanna. Almenningur sem kom í Norska húsið
til að heimsækja kaupmanninn Árna Thorlacius hefur
örugglega fundist hann vera kominn inn í aðra veröld.
Stórt íbúðarhús úr timbri og glæsileg húsgögn, svona
dýrð hafði almenningur ekki séð fyrri. Árni Thorlacius
bjó í Norska húsinu í tæp 60 ár. Hann beitti sér fyrir
ýmsum framfaramálum og öflugur í sjálfstæðisbarátt-
unni. Hann er þó þekktastur fyrir veðurathuganir sínar
sem hann stundaði í um hálfa öld.
Mikill metnaður og fagmennska hefur verið lögð í sýn-
inguna og hafa margir aðilir lagt fram vinnu.
Sýningin var formlega opnuð 15. júní og það gerði
Margrét Hermannsdóttir, þjóðminjavörður. Sýningar-
skrá liggur frammi þar sem gerð er góð grein fyrir
Norska húsinu og þeirri starfsemi sem þar hefur farið
fram á þeim 170 árum frá því að húsið var byggt.
Norska húsið er opið daglega milli kl. 11 og 17.
Sýning í Norska húsinu í Stykkishólmi
Heldra heimili í
Stykkishólmi á 19. öld
Stykkishólmur
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Aldís Sigurðardóttir, forstöðumaður Norska húss-
ins, Gunnar Kristjánsson, formaður safnanefndar,
og Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður fyrir
framan stofuklukku Árna Thorlacius, en Þjóðminja-
safnið lánaði klukkuna á sýninguna.
25 FYRIRTÆKI á Selfossi
bjóða íbúum Árborgar og öðrum
til morgunverðar í tjaldi á plan-
inu við Hótel Selfoss á Jónsmess-
unni, laugardagsmorguninn 23.
júní á milli kl. 09:00 og11:00. Um
er að ræða lið í verkefninu „Sum-
ar á Selfossi“. Þau fyrirtæki sem
leggja til matvæli í morgunverð-
inn eru; KÁ-verslanir, Hornið,
Mjólkurbú Flóamanna, Krás,
Guðnabakarí og Kökugerðin en
önnur fyrirtæki styrkja verkefn-
ið á annan hátt.
Meðan á morgunverðinum
stendur mun Sverrir Andrés-
son, fyrrverandi bílasali á Sel-
fossi, sýna eftirlíkingu af fyrsta
bílnum sem kom til landsins
1904 og ljúf harmonikutónlist
verður í tjaldinu. Eftir hádegi
verður Bylgjulestin á ferðinni á
Selfossi með fjölbreyttum
skemmtiatriðum og síðan verð-
ur mikið fjör á Eyrarbakka sem
hefst kl. 14:00 með handverks-
markaði á Stað. Kl. 20:00 hefst
síðan gönguferð um Eyrar-
bakka en lagt verður af stað frá
Húsinu. Þá verður Byggðasafn-
ið í Húsinu og Sjóminjasafnið
opið þetta kvöld.
Hápunktur kvöldsins hefst kl.
22:00 með Jónsmessubrennu,
söng, dansi og leikjum í fjörunni
vestan við þorpið á Eyrarbakka.
„Íbúar í Árborg eru hvattir til að
taka þátt í þessum uppákomum
og taka virkan þátt í því sem
verður í boði og sjá þannig til
þess að öll fjölskyldan eigi
ánægjulegan dag,“ segir m.a. í
fréttatilkynningu um málið.
Boðið til
morgun-
verðar á
Selfossi
Selfossi. Morgunblaðið.
GRUNNSKÓLABÖRN á Rauf-
arhöfn gerðu sér glaðan dag á
nyrsta tanga Íslands, Hraun-
hafnartanga, á dögunum. Farið
var í ratleik um tangann og
endaði hann við dys Þorgeirs
Hávarssonar en sagan segir að
mikill bardagi hafi verið háður
í Hraunhöfn við Þorgeir og
menn hans og að Þorgeir hafi
orðið 14 manna bani áður en að
hann féll sjálfur. Talið er að
hausinn af Þorgeiri sé grafinn í
Eyjafirði. Einnig var farið í sjó-
ferð yfir norðurheimskauts-
baug á harðbotna báti sem
björgunarskipið Gunnbjörg á
og er staðsettur á Raufarhöfn,
og fengu börnin staðfest skjal
sem staðfestingu um að hafa
farið yfir hann. Öllum var boðið
á hestbak og endaði svo dag-
urinn með grillveislu sem for-
eldrafélagið Velvakandi á
Raufarhöfn sá um.
Morgunblaðið/Júlíus Helgason
Grillað við
norðurheim-
skautsbaug
Morgunblaðið/Júlíus Helgason
Raufarhöfn