Morgunblaðið - 23.06.2001, Síða 24
ERLENT
24 LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
YFIRMAÐUR Evrópuráðsins
gagnrýnir beitingu dauðarefsinga í
Bandaríkjunum og segir þær gagns-
lausar í baráttunni við glæpi og sið-
ferðilega rangar. Hefðu þær leitt til
þess að saklaust fólk væri tekið af
lífi.
Framkvæmdastjóri ráðsins, Walt-
er Schwimmer, lét þessi orð falla við
upphaf fyrsta heimsþingsins gegn
dauðarefsingum, er sett var í Strass-
borg í fyrradag. „Vitið þið hversu
margt fólk er á dauðadeildum í
Bandaríkjunum?“ spurði Schwimm-
er. „Ekki færri en 3.700. Hvernig
getur nokkur maður trúað því að
dauðarefsingar séu nothæf tæki til
að berjast gegn glæpum. Ef svo væri
myndu engir glæpir vera framdir í
Bandaríkjunum og þar væri ekkert
ofbeldi.“
Þingið stendur í þrjá daga og er
haldið í kjölfar tveggja aftaka í
Bandaríkjunum. Í síðustu viku var
Timothy McVeigh tekinn af lífi fyrir
sprengjutilræði í Oklahoma er varð
198 manns að bana og sl. þriðjudag
var tekinn af lífi Juan Raul Garza,
sem var fundinn sekur um morð og
fíkniefnasmygl.
Bandaríski lögmaðurinn Richard
Burr, sem varði McVeigh, segist
skilja hvers vegna McVeigh hafi ver-
ið tekinn af lífi fyrir sprengjutilræðið
í Oklahoma, en kveðst ekki sjá hvaða
réttlæti hafi verið fólgið í aftökunni á
Garza. Burr, heldur því fram, líkt og
lögmenn Garzas og margir andstæð-
ingar dauðarefsingar hafa gert, að
þeir glæpir, sem Garza hafi verið
dæmdur fyrir, hafi ekki réttlætt
dauðadóm fyrir alríkisdómstóli.
Burr og fleiri halda því ennfremur
fram að hefði Garza verið hvítur á
hörund og framið glæpina einhvers
staðar annars staðar en í Texas sé
ekki víst að hann hefði verið tekinn
af lífi.
Garza var Bandaríkjamaður af
mexíkósku bergi brotinn. Hann var
tekinn af lífi sl. þriðjudag í sama
fangelsi og McVeigh var deyddur í
síðustu viku. Þessar aftökur voru
þær fyrstu sem fram fara í 38 ár til
fullnægingar á dauðadómum sem
kveðnir hafa verið upp af bandarísk-
um alríkisdómstólum.
Burr sagðist ekki telja að nokkurn
tíma ætti að taka mann af lífi fyrir
glæpi sem hann hafi framið. En í
ljósi þess hve alvarlegur glæpur
McVeighs hafi verið hefði mátt búast
við því að farið yrði fram á dauða-
refsingu.
Garza var dæmdur fyrir að hafa
myrt eða hafa fyrirskipað morð á
þremur mönnum í tengslum við
maríjúana-smyglhring sem hann
stjórnaði frá heimabæ sínum í
Brownsville í Texas. Hann var enn-
fremur grunaður um nokkur önnur
morð, m.a. á tengdasyni sínum og
konu sem hann taldi gefa lögreglu
upplýsingar.
Í áfrýjunum á dóminum tilgreindu
lögmenn Garzas yfir 20 mál þar sem
um svipaða glæpi var að ræða en
ekki var farið fram á dauðarefsingu.
Segja þeir að þessi mál sýni fram á
ósamræmi í uppkvaðningu banda-
rískra alríkisdómstóla á dauðadóm-
um.
Í niðurstöðum rannsóknar er unn-
in var af bandaríska dómsmálaráðu-
neytinu í fyrra kemur fram að vís-
bendingar séu um hlutdrægni vegna
kynþáttar og búsetu í uppkvaðningu
dauðadóma í alríkisdómskerfinu. Til
dæmis hafi sex af þeim átján mönn-
um, sem hafi verið dæmdir til dauða
af alríkisdómstólum, verið dæmdir í
Texas og sextán þeirra tilheyri
minnihlutahópum.
Í annarri rannsókn dómsmála-
ráðuneytisins, sem greint var frá í
þessum mánuði, eru niðurstöður
fyrri rannsóknarinnar bornar til
baka. Dómsmálaráðherrann, John
Ashcroft, sagði í byrjun vikunnar að
engar vísbendingar hefðu verið um
kynþáttahlutdrægni í máli Garzas.
„Sá dagur mun koma að þessari
villimennsku verður hætt, en ekki í
dag,“ sagði Gregory Wiercioch, lög-
maður Garzas, eftir að aftakan hafði
farið fram á þriðjudaginn var.
Mánuðir eða ár kunna að líða áður
en aftur verður tekinn af lífi fangi í
Terre Haute-alríkisfangelsinu í Ind-
iana-ríki, en það er eina alríkis-
dauðadeildin í Bandaríkjunum. Eng-
ar dagsetningar hafa verið settar
fyrir aftökur þeirra átján dauða-
dæmdu fanga sem dvelja þar nú.
Hart deilt um réttmæti dauðarefsinga í Bandaríkjunum á ráðstefnu
Segja ósamræmi
í uppkvaðningu
dauðadóma
Terre Haute í Bandaríkjunum. AP.
SADDAM Hussein, forseti Íraks,
varaði nýlega íraskar konur við
„léttúðarfullu“ búðarápi á sama
tíma og alþjóð-
legar refsiað-
gerðir beindust
gegn landinu.
Sagði hann, að
með slíku fram-
ferði væru þær
byrði á eigin-
mönnum sínum.
Þrátt fyrir
efnahagsþreng-
ingar hjá al-
menningi hefur Saddam byggt
hverja forsetahöllina á fætur ann-
arri en írösku blöðin sögðu í gær,
að hann hefði skammað konurnar
fyrir að sólunda sparifé fjölskyld-
unnar.
„Margar íraskar konur fara í
verslanir án þess að vita til hvers
og án þess að þurfa þess. Aðrar
arabískar konur og konur yfir-
leitt fara hins vegar bara í búð-
ina þegar heimilið vantar eitt-
hvað,“ sagði Saddam á fundi með
listamönnum og verkfræðingum,
sem kynntu honum líkan af
„minnismerki píslarvottanna“ en
það á að reisa í bæjum og borg-
um vítt og breitt um landið. Ekki
kom fram hvað það á að kosta en
Saddam var með hugann við kon-
urnar. Sagði hann, að þær ættu
að vera mönnum sínum stoð og
stytta „en ekki byrði með kröfu-
hörku sinni“.
Varað við
eyðslusemi
kvenna
London. Daily Telegraph.
Saddam
Hussein
UPPLAUSN er yfirvofandi í Alsír og
berjast ráðamenn við að hafa hemil á
útbreiðslu uppreisnar gegn yfirvöld-
um. Hafa fjöldagöngur verið bannað-
ar í höfuðborginni, Algeirsborg, en
ástandið er mikið áhyggjuefni fyrir
fámennisstjórnina sem fer með völdin
í landinu.
Óeirðirnar hófust fyrst fyrir tveim
mánuðum í Kabýla-héraði, sem er
heimaland berba-þjóðarinnar, eftir að
19 ára piltur lést í vörslu lögreglu.
Síðan þá hafa orðið uppþot næstum
daglega og öryggissveitir fellt að
minnsta kosti áttatíu manns.
Reiði í garð yfirvalda, sem eiga í
höggi við uppreisnarmenn úr röðum
múslíma, er tekin að breiðast út fyrir
heimahérað berba og skjóta rótum
annars staðar í landinu. Ali Benflis,
forsætisráðherra landsins, kom fram
í sjónvarpi sl. mánudag og bað fólk að
halda ró sinni, en þá um daginn höfðu
sjö fallið og um 120 særst í átökum
mótmælenda og lögreglu.
Berbar eru taldir vera frum-
byggjaþjóð Norður-Afríku, og hafa
lengi barist fyrir viðurkenningu móð-
urmáls síns og auknum réttindum.
Frammámenn í Kabýla-héraði, sem
hafa hvatt til óeirðanna, sökuðu hóp-
inn sem fer með völdin í Alsír, um að
hafa espað fólk upp og þannig valdið
ólátunum. Stjórnin hefur verið gagn-
rýnd harðlega fyrir spillingu, vald-
níðslu og vanhæfni.
Í óeirðunum undanfarið hefur mátt
sjá merki um að óánægð ungmenni
kunni að fara að láta til sín taka. Múg-
ur unglinga gekk berserksgang í
hafnarbænum Annaba, braut rúður
og rændi verslanir sem unglingarnir
sögðu að tilheyrðu félögum í stjórn-
arhópnum.
Fólk sem hvorki hefur vinnu né von
hrópar að öryggissveitamönnum:
„Þið getið ekki drepið okkur því að við
erum þegar dauð!“ Yfir þriðjungur
landsmanna er atvinnulaus og
þrengsli og skortur eru landlæg.
Óeirðirnar bárust til Algeirsborgar í
síðustu viku er hundruð þúsunda
manna komu frá Kabýla og efndu
ásamt heimamönnum til mótmæla-
fundar sem endaði með hörðum átök-
um við öryggissveitir.
Yfirvöld hafa brugðist við með því
að gefa í skyn að viðræður verði
haldnar en um leið hefur verið gripið
til kúgunaraðgerða í Kabýla. Hafa lög
um ærumeiðingar verið hert til að
koma böndum á fjölmiðla sem eru
andvígir stjórninni. Segja fréttamenn
þessara miðla að bönkum og pósthús-
um í Kabýla hafi verið lokað í því
augnamiði að draga úr styrk stjórn-
arandstæðinga með efnahagslegum
hætti.
Óeirðirnar hafa vakið á ný sögu-
sagnir um að herforingjar í ríkis-
stjórninn muni neyða Abdul Aziz
Bouteflika forseta til að segja af sér.
Hann var kjörinn fyrir tveim árum og
lofaði þá félags- og efnahagslegum
framförum og að endi yrði bundinn á
níu ára borgarastríð sem kostað hefur
um hundrað þúsund manns lífið.
En stjórnrerindrekar og frétta-
skýrendur efast. „Hvern gætu þeir
fundið til að koma í staðinn fyrir
[Bouteflika]?“ sagði einn fréttaskýr-
andi. „Og hvern svo sem þeir fengju í
staðinn þá yrði allt við það sama.“
Stjórnarhópurinn berst nú á
þrennum vígstöðvum. Samskiptin við
berba fara versnandi dag frá degi.
Svo virðist sem hópurinn sé að missa
stuðning arabíska meirihlutans, og
ekki eru neinar horfur á að átökunum
við múslíma fari að linna. Síðastliðinn
sunnudag voru 20 hermenn felldir í
fyrirsát í Chelf-héraði og er það til
marks um að styrjöldin geisar enn.
Hætta talin á upplausn
The Daily Telegraph.
AP
Alsírsk ungmenni mótmæla sérréttindum embættismanna og hershöfðingja í Algeirsborg í gær.
Stjórnvöld í Alsír eiga erfitt með að hefta uppreisn berba
MICHAEL Ancram hefur sagt af sér
sem formaður breska Íhaldsflokksins
til að geta gefið kost á sér í leiðtoga-
kjöri flokksins síðar í sumar. Margir
telja að Ancram verði helsti keppi-
nautur Michaels Portillos, talsmanns
flokksins í ríkisfjármálum, í leiðtoga-
kjörinu.
Ancram er 54 ára skoskur aðals-
maður og vinsæll miðjumaður. Marg-
ir telja hann best til þess fallinn að
sameina fylkingarnar sem hafa tekist
á innan Íhaldsflokksins.
Michael Portillo er þó enn talinn
sigurstranglegasti frambjóðandinn í
leiðtogakjörinu. Tveir þingmenn úr
hægri armi flokksins, Iain Duncan
Smith og David Davis, hafa einnig
gefið kost á sér.
Clarke tilkynnir
ákvörðun sína á mánudag
Allir frambjóðendurnir fjórir eru
andvígir því að Bretar taki upp evr-
una og leggi niður pundið. Kenneth
Clarke, fyrrverandi fjármálaráð-
herra, sem er hlynntur evrunni, sagði
í gær að hann hygðist skýra frá því á
mánudaginn kemur hvort hann gæfi
kost á sér í leiðtogakjörinu. Framboð
Ancrams er talið áfall fyrir Clarke, en
þeir sækja fylgi sitt til sama hóps
þingmanna.Stuðningsmenn Clarkes
vilja að hann gefi kost á sér en töfin á
því að hann tilkynni framboð hefur
orðið til þess að margir þingmenn
Íhaldsflokksins og flestir þeirra sem
eru í skuggaráðuneyti flokksins hafa
þegar lýst yfir stuðningi við aðra.
Þegar Ancram tilkynnti framboð
sitt í fyrradag kom hann fram sem
það leiðtogaefni sem gæti sameinað
flokkinn. Hann hét því að knýja ekki
fram róttækar breytingar á stefnu
flokksins þrátt fyrir ósigra hans í
tvennum þingkosningum í röð. Hann
sagði að í leiðtogakjörinu þyrftu
íhaldsmenn að velja á milli þess að
„fylgja breytilegum vindum pólitískr-
ar tísku“ eða standa fast á grundvall-
arsjónarmiðum sínum.
Talið er að með þessum ummælum
hafi Ancram viljað sneiða að Portillo
sem var áður eldheitur Thatcheristi
en leitast nú við að höfða meira til
miðjunnar.
Portillo kvaðst ætla að beita sér
fyrir mestu umræðu um stefnu
flokksins frá því Margaret Thatcher
varð leiðtogi hans árið 1975.
Talið áfall
fyrir
Clarke
London. AFP, The Daily Telegraph.
Ancram vill leiða
Íhaldsflokkinn
VLADIMÍR Pútín, Rúss-
landsforseti og fyrrverandi
ofursti í sovésku leyniþjón-
ustunni, hefur gagnrýnt
starfsemi njósnara í Rúss-
landi og Bandaríkjunum fyrir
„lélega frammistöðu“. Segir
hann njósnastarfsemina
skaða hagsmuni þeirra landa
sem hún þykist þjóna.
Pútín gagnrýndi leyniþjón-
ustur landanna fyrir að
„flækjast fyrir“ og vera fyrst
og fremst uppteknar af inn-
anbúðarsamkeppni fremur en
að reyna að vinna gegn þeim
raunverulegu hættum sem
steðji að löndunum.
Pútín var í 15 ár starfs-
maður sovésku leyniþjónust-
unnar, KGB, og hrósaði hann
fyrrverandi vinnuveitanda
sínum fyrir að hafa eflt „föð-
urlandsást“. Sagði hann
njósnaþjálfun sína hafa verið
mjög góðan undirbúning fyrir
vinnu með öðru fólki.
Skökk
heimsmynd
Álit Pútíns á leyniþjónust-
um Rússlands og Bandaríkj-
anna kom fram í samtali hans
við bandaríska blaðamenn í
vikunni. „Frammistaða
beggja er léleg,“ sagði Pútín.
„Þær gera ekkert sem skiptir
máli. Þær bara flækjast fyr-
ir.“ Kenndi Pútín um heims-
mynd sem væri skökk vegna
kalda stríðsins og skorti á til-
finningu fyrir sameiginlegri
hættu, s.s. vegna hryðju-
verkastarfsemi og útbreiðslu
kjarnavopna.
Hefur
lítið álit
á njósn-
urum
Moskvu. The Daily Telegraph.