Morgunblaðið - 23.06.2001, Page 36
UMRÆÐAN
36 LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
01
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 588 8477
Opi›: Mán. - fös kl. 10-18 & Laugardaga kl. 11-15
Loka› á laugardögum frá 8. júní til 10. ágúst.
15-30% afsláttur
af svefnsófum
15-25% afsláttur
af hægindastólum
Sprin
g air
Ame
rísk
heils
ud‡n
a
Stilla
nleg
rúm
10-50% afsláttur
af teppasettum
10-25% afsláttur
af svefnherbergishúsgögnum
ÉG SEM þessar
línur skrifa á þess
ekki kost að sjá Skjá
einn og af þeirri
ástæðu fer fram hjá
mér margt gullkornið
sem mannvitsbrekkur
þær, sem mestar eru
á voru landi um þess-
ar mundir, senda frá
sér. Mörður og Hann-
es í Seðlabankanum
fara fyrir ofan garð
og neðan og Egill
Helgason, sem hefur
margra manna vit, er
mér sem lokuð bók.
Ég ætla að gera
einn þessara frægu
manna að umtalsefni
eða reyndar frábæra
hugmynd sem hann
fékk og setti fram.
Mörður Árnason flutti
pistil á Skjá einum
hinn 13. júní sl. og
birti hann á Netinu og
þar gaf á að líta. Þar
tekur hann Lands-
virkjun í nefið og sax-
ar smátt og svo vitnar
hann í Þorstein Sig-
laugs. Þorsteinn er í miklum met-
um hjá mér en það er ekki fyrir
reiknikunnáttu heldur vegna þess
að hann þýddi bók sem heitir á ís-
lensku Uppruninn og er ein af
mínum uppáhaldsbókum. Ég hefði
svo gjarnan viljað að Þorsteinn
hefði haldið sig við þýðingar. Mér
falla ekki rök þar sem forsend-
unum er breytt frá degi til dags
eins og gerst hefur í rökræðum
hans og Guðmundar Ólafssonar um
arðsemi Kárahnjúkavirkjunar og
álvers við Reyðarfjörð. Þess vegna
varð mér umhverfisverndarsinnan-
um illt í hjartanu, þegar þar var
komið í pistlinum að Mörður vitn-
aði í Þorstein og ekki síður þegar
Þórólfur Matthíasson var leiddur
fram. Það var haft eftir Þórólfi á
dögunum að álver við Reyðarfjörð
myndi fækka störfum á Austur-
landi vegna þess, og takið þið nú
eftir, að laun myndu hækka á
svæðinu langt umfram landsmeð-
altal, 10 til 20%. Ég hef varið
stærstum hluta starfsævinnar við
að vinna að kjaramálum láglauna-
fólks á Austurlandi. Draumur minn
og félaga minna í verkalýðshreyf-
ingunni hér eystra er að austfirskt
launafólk standi jafnfætis eða skör
hærra launalega en gerist og geng-
ur. En hver er dómur hinna vísu
manna, ef Austurland á ekki að
eyðast af fólki þá á það að vera
láglaunasvæði til frambúðar.
Ég er umhverfisverndarsinni og
geri kröfu til þess að þau sjón-
armið ráði sem setja eðlilegt sam-
býli manns og náttúru í öndvegi.
Fyrir þeim sjónarmiðum er ég
tilbúinn að berjast og leggja mikið
undir, en ég vil eiga heima á Aust-
urlandi og vil þess vegna að þar
þrífist fólk auk annara dýrateg-
unda. Ég gerði kröfu til þess að
Fljótsdalsvirkjun yrði metin sam-
kvæmt þeim almennu leikreglum
sem þá giltu. Stjórnvöld létu und-
an þeirri kröfu og nú er verið
vinna að mati á Kárahnjúkavirkjun
og álveri við Reyðarfjörð eftir
þessum almennu leikreglum. Í sið-
uðu samfélagi er farið að leik-
reglum og það ætla ég að gera. Ég
sé margar blikur á lofti varðandi
fyrirhugaðar framkvæmdir en ég
veit líka að mitt álit er ekki algilt
og ég treysti því að niðurstaðan
hvort sem mér líkar hún betur eða
verr verði til hagsbóta öllum Ís-
lendingum og þá undanskil ég ekki
Austfirðinga.
Það var kosið um flugvöllinn í
Vatnsmýrinni í vetur, nokkuð sem
okkur sveitavarginum, sem þó not-
um vallarskrattann og eigum ým-
islegt undir því að hann sé þar sem
hann er, kom ekki við. Ekki fékk
ég að greiða atkvæði um tilvist
hans þótt ég fari um hann fimmtán
til tuttugu sinnum á ári. Hann er
innan borgarmarka Reykjavíkur
og Reykvíkingar og þeir einir áttu
rétt á að greiða atkvæði um stað-
setningu hans.
Og þá kem ég loks að snilld-
arhugmynd Marðar. Það á að fara
fram þjóðaratkvæðagreiðsla um
Kárahnjúkavirkjun. Af hverju
þjóðaratkvæði? Því svarar hann og
vísar til skattgreiðenda og lífeyr-
iseigenda. Þau rök voru reynd
varðandi Reykjavíkurflugvöll, þ.e.
með skattgreiðendur. En því mið-
ur. Völlurinn er í landi Reykjavík-
ur og Reykvíkingar einir eiga að
ráða örlögum hans.
Ég tek undir með Merði Árna-
syni ég krefst atkvæðagreiðslu um
Kárahnjúkavirkjun og álver í
Reyðarfirði, en ekki þjóðarat-
kvæðagreiðslu, að sjálfsögðu ekki.
Það eru íbúar á Norður-Héraði og
í Fljótsdalshreppi sem eiga einir
rétt á að segja álit sitt á virkj-
uninni því þar er hún staðsett. Það
er að vísu hægt að sættast á að
íbúar á Austur-Héraði og í Fella-
hreppi fái að taka þátt, út á skólpið
úr Jökulsá á Dal og leirfokið úr
lónstæðinu.
Þeir í Fjarðabyggð og þeir einir
eiga að greiða atkvæði um álver
við Reyðarfjörð. Þar verður það
reist ef til kemur og rétt eins og
flugvöllurinn er einkamál íbúa
Reykjavíkur hlýtur álver í Reyð-
arfirði að vera einkamál Reyðfirð-
inga. Eða eins og sagt var á Al-
þingi fyrir margt löngu, við skulum
hafa einn sið í landi hér.
Atkvæðagreiðslu um Kárahnjúka-
virkjun og álver við Reyðarfjörð
Hrafnkell A.
Jónsson
Virkjanir
Íbúar á Norður-Héraði
og í Fljótsdalshreppi
eiga einir rétt á að segja
álit sitt á virkjuninni,
segir Hrafnkell A.
Jónsson, því þar er
hún staðsett.
Höfundur er héraðsskjalavörður,
Fellabæ.
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is