Morgunblaðið - 23.06.2001, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
FYLGJENDUR kvótakerfisins eiga
undir högg að sækja um þessar
mundir og virðist
sem röksemda-
færsla þeirra sé
orðin örvænting-
arfull. Augu sífellt
fleiri landsmanna
eru að opnast fyr-
ir því að kvóta-
kerfið er óskapn-
aður. Bitur
reynslan hefur
einfaldlega sýnt
að kerfið er vont,
en mun færri þorskar berast á land en
fyrir daga kvótakerfisins auk þess
sem kerfið hefur leitt til: brottkasts,
skuldasetningar útvegsins og
byggðaröskunar. Nú er svo komið að
forseti lýðveldisins sér ástæðu til að
fjalla um óréttlæti kvótakerfisins á
sjómannadaginn á Ísafirði.
Nýlega birtist grein í Morgun-
blaðinu þar sem fjórir hagfræðingar
lögðust á eitt til þess að leiðrétta 10
staðleysur um kvótakerfið. Gera
verður alvarlegar athugasemdir við
flestar 10 svokallaðar leiðréttingar
fjórmenninganna, en ég ætla hér að
gera að umtalsefni þegar fjórmenn-
ingarnir eru að leiðrétta að kvótakerf-
ið ýti undir brottkast á fiski.
Fjórmenningarnir byrja á að búa
brottkastið í fínan fræðilegan búning
þ.e. 5 % brottkast heitir eftir að búið
er að búa verðmætasónunina í fræði-
legan búning, að nýtingarstuðullinn í
bolfiskveiðunum sé 95%. Fjórmenn-
ingarnir lýsa þeirri skoðun sinni að
þetta sé lítill hluti aflans og að afföll
verði í allri framleiðslu s.s. við ræktun
grænmetis og mjólkurframleiðslu.
Ennfremur telja þeir að fiskur sem er
hent sé yfirleitt verðlaus vegna t.d.
sjúkdóma, holdarfars og stærðar. Við
lestur greinarinnar má helst ráða að
brottkastið sé liður í víðtæku gæða-
starfi um borð í fiskiskipum með háan
„nýtingarstuðul“. Þetta kalla ég að
hafa endaskipti á hlutunum og dæmi
um hæpna örvæntingarfulla rök-
semdafærslu. Leiðrétting og stað-
reynd fjórmenninganna um brott-
kastið eru eins og hver önnur vitleysa
og má til sanns vegar færa að ekki sé
öll vitleysan eins.
Staðreyndin er sú að með kvóta-
setningu verður brottkast. Það segir
sig sjálft að menn hirða frekar stærri
fisk sem menn fá hærra verð fyrir og
henda smærri fiski sem færri krónur
fást fyrir en dregst jafnt frá úthlut-
uðum kvóta. Við hækkandi leiguverð
á kvóta eykst brottkastið enn frekar
samanber hækkun á leiguverði á
kvóta á ýsu á síðustu misserum en við
hækkunina minnkaði afli á smárri
ýsu.
SIGURJÓN ÞÓRÐARSON,
líffræðingur.
Ekki er öll fjórmenn-
ingavitleysan eins
Frá Sigurjóni Þórðarsyni:
Sigurjón
Þórðarson
VINSTRI grænir eru að eyðileggja
fyrstu tilraunina frá stofnun lýðveld-
isins til að hægt sé að mynda raun-
hæfa meirihlutastjórn eða minni-
hlutastjórn sem ekki tengdist beint
eða óbeint fjórum flokkum sem ráðið
hafa stjórnarmyndunum á Íslandi frá
1944. Vinstri grænir hafa orðið afvelta
í íslenskum stjórnmálum og lifa nú á
loforðum sem allir vita að eru lýð-
skrum eitt. Öll brot úr lýðveldisflokk-
unum hafa byrjað vel í skoðanakönn-
unun en ekkert þeirra lifað af. Fyrir
utan flóttafólk úr ýmsum áttum, sem
er að mótmæla, er meginþorri af fylgi
Vinstri grænna upplýst fólk og það
fólk ætti að lesa ræður Vinstri
grænna á síðasta þingi. Flestir sæju
blekkinguna strax. Ég veit að margt
af því fólki sem tók tilfinningalega af-
stöðu með Vinstri grænum í síðustu
kosningum og þeim, sem ekki vildu
hlíta úrslitum, sjá nú það einstæða
tækfæri sem er í augsýn. Ég veit líka
að það er sárt að þurfa að viðurkenna
mistök. En það þarf líka hugrekki til
að lifa. Og það þarf visst áræði og
gagnrýna hugsun til að gera daglegan
veruleika að heillandi viðfangsefni.
Allt frá því að íslenska lýðveldið var
stofnað og Íslendingar fengu endan-
lega fullt sjálfstæði hefur landinu ver-
ið stjórnað af fjórum stjórnmálaflokk-
um. Ef hér væri verið að rekja
nákvæma stjórnmálasögu mætti að
vísu tíunda tilraunir til að kvarna úr
öllum þessum flokkum. Vinstri græn-
ir eru síðasta dæmið en þar er loksins
verið að sameina tvo gamla lýðveld-
isflokka.
Einn stór flokkur, Sjálfstæðisflokk-
urinn, og þrír minni flokkar, Alþýðu-
flokkurinn, Framsóknarflokkurinn og
flokkurinn, sem Ólafur Thors kallaði
flokkinn með langa nafninu, Samein-
ingarflokkur alþýðu Sósíalistaflokk-
urinn. Sá flokkur einn hefur skipt um
nafn eftir 1944. Allt lýðveldistímabilið
hafa þessir fjórflokkar stjórnað land-
inu, Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki
einungis verið stærstur allan þennan
tíma, heldur líka yfirleitt haft góðan
þjálfara og oft lesið leikinn af miklu
raunsæi eins og sagt er í boltanum.
Saga stjórnarmyndana frá 1944 sýnir
að meirihlutastjórnir, án þátttöku
Sjálfstæðisflokksins, hafa ekki gengið
vel og „vinstri stjórn“ hefur til dæmis
aldrei klárað heilt kjörtímabil.
Það sem Vinstri grænir eru að gera
núna er að færa Sjálfstæðisflokknum
áframhaldandi fríkort inn í hvaða rík-
isstjórn sem þeir vilja. Að gefa Sjálf-
stæðisflokknum frálst og einhliða vald
til að velja sér samstarfsflokk úr hin-
um þremur þingflokkunum. Með því
að fækka þingflokkunum í þrjá er
þetta vald Sjálfstæðisflokknum skert
og úrslit kosninga gefa kost á fleiri
áherslum í ríkisstjórn.
Nú þegar undirbúningur sveitar-
stjórnakosninganna er að hefjast og
allt verður gert til að splundra vil ég í
einlægni benda fólki á að setjast niður
og hugleiða hinn pólitíska veruleika.
Það eru engir grænir hagar framund-
an þar sem allir fá allt. Stjórnmál eru
eins og lífið sjálft. Þau kalla á ábyrga
hugsun og stundum á óþægilegar
ákvarðanir, en líka möguleika á for-
gangsröðun. Með þremur flokkum á
Alþingi eftir næstu kosningar hefði
lýðræðið skipt um ham og klætt sig í
skikkju nýrrar aldar.
HRAFN SÆMUNDSSON,
fyrrv. atvinnumálafulltrúi,
Gullsmára 9, Kópavogi.
Það þarf visst áræði
og gagnrýna hugsun
Frá Hrafni Sæmundssyni: