Morgunblaðið - 23.06.2001, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2001 51
DAGBÓK
Fágun –
fagmennska
Gullsmiðir
Kr. 7.900
Ný sending
af höttum.
Regnkápur
Vínilkápur
Sumarúlpur
Stuttar og síðar
glæsilegar
kápur
Mörkinni 6, sími 588 5518
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú stendur óvenjuföstum
fótum í fortíð þinni og átt því
erfitt með að ákveða nokkuð
í skyndi.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú mátt ekki láta tilfinning-
arnar hlaupa með þig í gönur,
þegar starfið er annars veg-
ar. Þar á rökhugsunin betur
heima og staðreyndirnar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að varast að setja
þig á of háan hest gagnvart
samstarfsmönnum þínum.
Það kallar bara á óánægju og
stirfni, sem þú getur vel verið
án.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú þarft að nýta gáfur þínar
til hins ýtrasta, annars áttu á
hættu að dragast aftur úr í
starfi og þá er stutt í að allt
fari úr böndunum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Magn er ekki sama og gæði,
en samt þarftu að gæta þess
að fara ekki niður fyrir lág-
mörk í iðni og afköstum.
Sýndu samstarfsmönnum
skilning.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú hefur heilbrigðan metnað
til að komast áfram og átt að
leyfa honum að leiða þig.
Haltu þínu striki og láttu úr-
tölur sem vind um eyru þjóta.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er allt á ferð og flugi í
kring um þig og þú átt erfitt
með að fóta þig í öllum hama-
ganginum. Bíddu af þér
storminn og þá kemur til
þinna kasta.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er mikil ásókn í þig, svo
mikil að þér er nauðugur einn
kostur að verja þig. Lærðu
þær aðferðir sem gagnast vel
án of mikilla átaka.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Láttu vera að ryðjast fram
með hugmyndir þínar núna.
Bíddu rólegur meðan hinir
láta gamminn geisa. Þá kem-
ur að þér og þú átt sviðið
aleinn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Mundu að sýna þeim örlæti
sem lögðu þér lið, þegar þú
þurftir á því að halda. Það er
bæði sjálfsagt og tryggir þér
liðveislu þeirra áfram.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er best að koma til dyr-
anna eins og maður er klædd-
ur. Að reyna að kasta ryki í
augu fólks hefnir sín alltaf
svo þú skalt láta það ógert.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú verður að leita samkomu-
lags við samstarfsmann þinn,
öðru vísi verður ekkert af því
að þú fáir að vinna að því
verkefni, sem þig hefur
dreymt um.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú þarft að einbeita þér betur
að því sem þú ert að gera.
Taktu þér tak og hristu upp í
hlutunum, annars áttu á
hættu að missa af strætis-
vagninum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
VILAMOURA í Portúgal
1995. Þar hófst sigur-
ganga Ítala á nýjan leik en
þeir hafa unnið þrjú síð-
ustu Evrópumót. Ísland
varð í 8. sæti af 31 þjóð og
var liðið þannig skipað:
Jón Baldursson, Sævar
Þorbjörnsson, Guðm. P.
Arnarson, Þorlákur Jóns-
son, Matthías Þorvalds-
son og Jakob Kristinsson.
Fyrirliði var Karl Sigur-
hjartarson. Þorlákur fann
fallega vörn í eftirfarandi
spili gegn Pólverjum:
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ 87543
♥ 103
♦ 10743
♣ Á8
Vestur Austur
♠ ÁG962 ♠ D10
♥ G ♥ 976
♦ KD65 ♦ ÁG82
♣753 ♣KG106
Suður
♠ K
♥ ÁKD8542
♦ 9
♣D942
Vestur Norður Austur Suður
GuðmundurRomanski Þorlákur Kowalski
-- Pass Pass 4 hjörtu
Dobl Pass Pass Pass
Á hinu borðinu vakti
Sævar líka á fjórum hjört-
um og þar lauk sögnum.
Lasoki í vestur kom út
með tígulkóng og fékk
kall frá makker sínum,
Gawrys. Áfram kom tígull
sem Sævar trompaði og
spilaði laufás og laufi að
drottningu. Þar með var
spilið unnið því Sævar gat
stungið eitt lauf í borði.
Þorlákur var vakandi
fyrir þessari hættu og yf-
irdrap því tígulkónginn í
fyrsta slagi og trompaði
út! Kowalski drap, spilaði
laufi á ás og meira laufi.
En Þorlákur tók á kóng-
inn og spilaði aftur hjarta.
Þar með varð Kowalski að
gefa fjórða slaginn á lauf í
lokastöðunni. Einn niður
og 11 IMPar til Íslands.
Það er hins vegar at-
hyglisvert hvað það gefur
góða raun að melda fjóra
spaða yfir fjórum hjörtum
á spil vesturs. Í þessu til-
felli á norður fimmlit í
spaða en samt vinnast
fjórir spaðar með því að
hitta í laufið. Margir halda
því fram að alltaf eigi að
melda fjóra spaða yfir
fjórum hjörtum með
fimmlit og þetta spil er
vatn á myllu þeirrar kenn-
ingar.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
LJÓÐABROT
STÖKUR
Sunna háa höfin á
hvítum stráir dreglum.
Veröld má sinn vænleik sjá
í vatna bláum speglum.
Sólin klár á hveli heiða
hvarma gljár við baugunum.
Á sér hár hún er að greiða
upp úr bárulaugunum.
Dagsins runnu djásnin góð,
dýr um hallir vinda.
Morgunsunnu blessað blóð
blæddi um fjallatinda.
Dýrin víða vakna fá,
varpa hýði nætur.
Grænar hlíðar glóir á,
grösin skríða á fætur.
Hreiðrum ganga fuglar frá,
flökta um dranga bjarga,
sólar vanga syngja hjá
sálma langa og marga.
Sigurður Breiðfjörð.
STAÐAN kom upp á helg-
armótinu á Akureyri er lauk
fyrir skömmu. Hvítt hafði
Hrannar B. Arnarsson
(1895) gegn Ágústi Braga
Björnssyni (1470). 31.Hxd6!
Dg1+ Ekki gekk upp að
leika 31...Hxd6 þar sem eftir
32.Re7+ tapar svartur
drottningunni. 32.Kc2 Hxd6
33.Re7+ Kh8 34.Dxh5
Dg4 35.Dxf5 Dxf5
36.Bxf5 og hvítur vann
um síðir. Þriðja mótið í
helgarskákmótasyrp-
unni verður haldið í
húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur, Faxafeni
12. Tefldar verða 9 um-
ferðir með atskáksniði
og hefst taflið kl. 13.00 í
dag, 23. júní. Einnig
verður teflt á morgun á
sama tíma og stað.
Fyrstu tvö mótin voru
vel heppnuð. Það fyrra var
haldið í Mosfellsbæ og var
myndarlega styrkt af Holta-
kjúklingum. Það síðara var
haldið á Akureyri og mynd-
aðist þar skemmtileg
stemmning enda um hvíta-
sunnuhelgi að ræða. Ástæða
er til að hvetja skákmenn að
mæta á mótin þar sem mörg
flokkaverðlaun eru í boði en
ekki síður til þess að njóta
þess sérstaka andrúmslofts
sem jafnan er á helgarmót-
um.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 17. júní sl. í Akureyr-
arkirkju af sr. Pálma Matth-
íassyni þau Ásta Laufey Eg-
ilsdóttir og Sigurður Hall-
mann Egilsson. Heimili
þeirra er að Helgamagra-
stræti 53 á Akureyri.
Ljósmynd/Myndrún ehf.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Þessir duglegu krakkar úr 3-BÓ í Hofsstaðaskóla, Garðabæ
söfnuðu kr. 4.000 til styrktar Styrktarfélagi krabbameins-
sjúkra barna. Þau heita Alexander, Arnar, Helgi og Valdís.
Á myndina vantar Sverri, Kristínu, Hjördísi og Unu.
Ljósmynd/Myndrún ehf.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 16. júní sl. í Stærri-
Árskógskirkju af sr. Huldu
Hrönn þau Þórunn Andrés-
dóttir og Rúnar Þór Ingv-
arsson. Heimili þeirra er að
Aðalbraut 6 á Dalvík.
Hlutavelta
M. Sarath óskar eftir ís-
lenskum pennavini og skrif-
ar á ensku. Áhugamál eru
söfnun frímerkja.
M. Sarathy K.
Munasinghe,
6/5 Welimada Road,
Bandarawela,
Sri Lanka.
Surya, sem er mjög hrifin
af Íslandi, óskar eftir ís-
lenskum pennavini.
Surya Jandhyala,
1111 Arlington
Boulevard, Apt. 338,
Arlington, VA. 22209,
U.S.A.
Jacopo, sem er 15 ára
ítalskur piltur, óskar eftir ís-
lenskum pennavini. Hann
skrifar á ensku. Áhugamál
hans eru m.a. íþróttir og
tónlist.
Jacopo Barbarito,
Via Umberto Moricca 40,
00167 Roma,
Italy.
Pennavinir
FRÉTTIR
ÁRLEGUR Esjudagur fjölskyld-
unnar var haldinn laugardaginn 9.
júní í boði SPRON. „Samstarfsaðilar
SPRON voru Ferðafélags Íslands,
Flugbjörgunarsveitin og Nanoq.
Þátttaka var mjög góð, en um 800
manns mættu á staðinn. Óhætt er að
segja að allir í fjölskyldunni hafi get-
að fundið eitthvað við sitt hæfi því
boðið var upp á þrjár gönguleiðir
með leiðsögumönnum frá Ferða-
félagi Íslands og Skógrækt ríkisins.
Fjölbreyttar gönguleiðir
Á sjöunda tug manna lagði upp í
lengstu gönguna klukkan 9 á laug-
ardagsmorgninum, þar sem gengið
var upp Esjuna að sunnanverðu og
niður að norðanverðu. Önnur göngu-
leið var hefðbundin Esjuganga á
Þverfellshorn og að venju lagði stór
hópur göngugarpa upp í hana. Skóg-
urinn og blómin var síðan heiti á
léttri og skemmtilegri göngu fyrir
yngstu þátttakendurna.
Vel heppnaður dagur
Allir þátttakendur sem gengu á
Þverfellshorn fengu viðurkenningar-
skjal. Leppin, Emmessís og Nói-
Síríus sáu til þess að allir þátttak-
endur hefðu næga orku fyrir göngu-
leiðirnar. Auk þess voru allir þátttak-
endur sjálfkrafa með í happdrætti
þar sem á meðal vinninga voru ferða-
vinningar frá Ferðafélagi Íslands,
útivistarvörur frá Nanoq og fleira.
Það voru þreyttir en afskaplega
ánægðir göngugarpar sem héldu
heim á leið að loknum vel heppnuð-
um Esjudegi fjölskyldunnar,“ segir í
fréttatilkynningu frá SPRON.
Esjudagur
fjölskyldunnar
KIRKJUBÆJARKIRKJA í Hró-
arstungu í Norður-Múlasýslu verð-
ur 150 ára á þessu ári. Ákveðið
hefur verið að halda upp á afmælið
með hátíðarguðþjónustu sunnu-
daginn 5. ágúst nk.
Árið 1980 hófust viðgerðir á
Kirkjubæjarkirkju á vegum Hús-
friðunarnefndar og lauk þeim að
fullu sl. haust. Kirkjan hefur nú
verið færð í sína upprunalegu
mynd að útliti sem innviðum.
Margt gamalla muna er í kirkj-
unni, s.s. predikunarstóll frá 16.
öld, söngtafla frá 1805, altaristafla
og ljósahjálmar frá lokum 19. ald-
ar.
Verið er að safna fyrir messu-
klæðum í tilefni afmælisins og er
velunnurum Kirkjubæjarkirkju
bent á sparisjóðsbók nr. 83868 í
Búnaðarbankanum á Egilsstöðum.
150 ára afmæli
Kirkjubæjarkirkju