Morgunblaðið - 23.06.2001, Qupperneq 52
FÓLK Í FRÉTTUM
52 LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIN 101 Reykjavík
vakti verðskuldaða athygli bíó-
gesta á liðnu ári og óneitanlega
vekur það nokkra furðu að tónlist-
in úr kvikmyndinni sé fyrst útgef-
in nú, vorið 2001. Hefðin er að
geisladiskar sem innihalda tónlist
úr kvikmyndum séu gefnir út á
undan myndinni, eða í það minnsta
í kringum frumsýningartíma.
Athyglisverðara við útgáfu
þessa er þó hverjir höfundar tón-
listar eru. Hinn Íslandselskandi
Damon Albarn, forsprakki Blur,
og rokkgoðsögnin Einar Örn
Benediktsson, hafa verið þekktir
fyrir flest annað en kvikmynda-
tónlist og í fyrstu virðast þeir
fremur einkennilegt teymi, tónlist-
arlega séð. Damon syngur í dæmi-
gerðri popphljómsveit en Einar
hefur sjaldnast farið troðnar slóðir
við tónlistarsköpun; kannski helst í
Sykurmolunum sálugu. Þeir Einar
og Damon eiga þó sameiginlegt
ýmiskonar bransabrölt á Englandi
og hafa löngum verið nafntogaðir í
fjölmiðlum þar ytra.
101 Reykjavík er um
margt einkennileg
plata. Stefin einkennast
mörg hver af forrituðu
hryni og hljómborðslín-
um ýmiskonar, og í
fyrstu hljómar sumt
heldur klúðurslega. Na-
ívismi er sennilega fal-
legra orð en barnaskap-
ur, þrátt fyrir að
merkingin sé hin sama,
strangt til tekið. Þetta
er þó það orð sem mér
datt fyrst í hug eftir að
hafa hlýtt á gripinn. Við
sjöttu hlustun fór ég að
kunna afar illa við hug-
takið vegna þess hversu
heillandi hljóðstefin
raunverulega eru. Þau
er vissulega einföld og
auðmeltingin er slík að
hún snýst upp í and-
hverfu sína. Stefin urðu
mér tormelt því ég var lengi að
samþykkja einfaldleikann. Það
sem hljómaði í fyrstu fyrir mér á
stundum sem barnalegt fikt með
tónlistarforrit, er í raun heillandi
tón- og hrynsköpun. Ég þurfti
hreinlega að sitja og bíða/hlýða
af mér fordómana!
30 tóndæmi prýða geislaplöt-
una og eru flest þeirra eftir þá
Einar og Damon. Þeirra best
þykir mér „Morning Beer“;
gullfalleg píanóstemma,
einkar þynnkulega leikin.
Gus Gus eiga lagið „Reykja-
vík2k“ og gamli Kinks-slag-
arinn, „Lola“, hljómar í mis-
munandi útgáfum þeirra Einars og
Damons. Heldur þykir mér nú
„Lólan“ þreytuleg og útfærslurnar
á henni of margar.
Það sem er hvað skemmtilegast
á 101 Reykjavík eru útfærslur ým-
issa listamanna á tónlist Einars og
Damons. Til að
mynda eiga Mínus afbragðs-
vinnu á laginu „Bar Fight“ og út-
færsla Hilmars Arnar á „Suitcase“
er stórkostleg. „Suitcase“ og lagið
þar á undan, „Shooting Gallery“,
eru reyndar nokkuð dæmigerð
fyrir evrópska kvikmyndatón-
list og sverja sig sumpart í ætt
við það besta frá hinum mis-
tæka, en um margt frábæra Eric
Serra.
„Teapot“, sem reyndar er út-
færsla af „Lólu“, er aftur víðs-
fjarri Serra og hreinlega klónað
trommuhryn frá lagi Pink Floyd,
„Learning To Fly“. Sennilega ekki
óalgeng tilviljun á þessum miklu
forritunar- og hryntímum.
Ekki hef ég rými til að fara ofan
í saumana á öllum tóndæmum
plötunnar en flest þeirra eru fyr-
irtak og fátt stingur í eyru. Þegar
ég sá kvikmyndina á sínum tíma,
þá tók ég ekkert eftir tónlistinni
og það veit yfirleitt á gott.
Miðbæjarmúsík
TÓNLIST
G e i s l a p l a t a
101 Reykjavík, geisladiskur með
tónlist úr samnefndri kvikmynd.
Tónlistina sömdu og fluttu þeir
Damon Albarn og Einar Örn
Benediktsson. Þeim til aðstoðar
voru Tom Girling og Jason Cox.
Einnig samdi Gus Gus hópurinn og
lék lagið Reykjavík2k. Ray Davies
samdi lykillagið, Lola. Ýmsir tón-
listarmenn koma að endur-
hljóðblöndunum, s.s. Emiliana
Torrini, Hilmar Örn Hilmarsson,
Curver og fleiri.
EMI, 2001.
101 REYKJAVÍK
Orri Harðarson
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Einkennilegt teymi: Einar Örn og Damon Albarn.
EGILL Helgason, fjölmiðlamaður,
situr fyrir svörum að þessu sinni.
Hann er trúlega flestum kunnugur
fyrir að stjórna þættinum vinsæla
Silfur Egils á Skjá Einum. Egill hefur
nú umsjón með nýjum þætti á
sömu sjónvarpsstöð ásamt Birnu
Önnu Björnsdóttur sem nefnist
Boðorðin tíu. Egill stjórnar þættin-
um þar sem hann fjallar um boð-
orðin tíu frá sjónarhóli nútímans
með hjálp góðra gesta.
Hvernig hefur þú það í dag?
Ég er eiginlega ekki að gera neitt,
sem er ákveðin tilbreyting. Þannig
að ég hef það ágætt.
Hvað ertu með í vösunum í augna-
blikinu?
270 krónur í klinki, lykla og stein
sem ég fékk í fyrra í steinasafni
Petru á Stöðvarfirði og hef ekki
ennþá týnt.
Ef þú værir ekki fjölmiðlamaður
hvað myndir þú vilja starfa við?
Ég væri alveg til í að vera tónlist-
armaður.
Bítlarnir eða Rolling Stones?
Bítlarnir, alveg frá því ég var fimm
ára.
Hverjir voru fyrstu tónleikarnir
sem þú fórst á?
Fyrstu rokktónleikarnir voru Led
Zeppelin í Laugardalshöll 1970. Ég
var ekki nema tíu ára en fékk að
fara með vini mínum og stóra bróð-
ur hans sem nú er einn af mátt-
arstólpum samfélagsins.
Hvaða hlut myndir þú fyrst bjarga
úr eldsvoða?
Ég á ekki neitt sem skiptir mig sér-
staklega miklu máli. Líklega tölv-
unni minni, en bara
vegna þess sem hún
inniheldur.
Hver er þinn helsti
veikleiki?
Óþolinmæðin.
Hefurðu tárast í
bíó?
Það er langt síðan, ég
er því miður ekki jafn
hrifnæmur og einu
sinni. Mig minnir að
myndin hafi verið
Rauður eftir Kiesl-
owski - eða var það
Hvítur?
Finndu fimm orð
sem lýsa persónu-
leika þínum vel.
Forvitinn, glaðlynd-
ur, áhyggjufullur,
ólaghentur, óþolinmóður.
Hvaða lag kveikir blossann?
Kannski eitthvað með Van Morri-
son.
Hvert er þitt mesta prakk-
arastrik?
Ég var í bekk með Illuga Jökulssyni í
Hagaskóla. Sumt af því sem við
töldum afrek í þá tíð hljómar
kannski ekki svo fagurlega í minn-
ingunni. Ég skammast mín ennþá
gagnvart sumum kennurunum.
Hver er furðulegasti matur sem þú
hefur bragðað?
Ég hef ekki borðað neitt furðulegra
en froskalappir sem ég fæ mér
stundum í Frakklandi.
Nema ef vera skyldi
saltað hrossakjöt
sem var ægilega
vont.
Hvaða plötu
keyptirðu
síðast?
Það var
plata með
náunga
sem heitir
David Gray
- hann er
algjör
snilli.
Hvaða
leikari fer
mest í
taugarnar
á þér?
Bruce Will-
is, sérdeil-
is ömurleg
týpa.
Hverju sérðu mest eftir í lífinu?
Þegar maður er kominn á þennan
aldur á maður svo mörg glötuð
tækifæri að það þýðir ekki að
hugsa um það. Ég hefði til dæmis
átt að læra betur á hljóðfæri.
Trúir þú á líf eftir dauðann?
Ég á voða erfitt með að trúa á líf eft-
ir dauðann. Því miður.
Ágætis tilbreyting að
gera ekkert
SOS
SPURT & SVARAÐ
Egill Helgason
Of mikið hold
(Too Much Flesh)
D r a m a
Leikstjórn og handrit Jean-Marc
Barr og Pascal Arnold. Aðal-
hlutverk Rosanna Arquette, Jean-
Marc Barr, Elodie Bouchez. 109
mín. Frakkland 2000. Góðar stund-
ir. Bönnuð innan 16 ára.
HÉR fer önnur
mynd þeirra Barr
og Arnold og líkt
og í þeirri fyrstu
Lovers (1999)
halda þeir sig við
dogma-formið upp
að vissu marki. Það
verður að segja
sem er að því miður
virðist þeim lítið
hafa farið fram og enn þá dauðlangar
þá til að ná þeirri einlægni sem Dan-
irnir náðu að skapa í sínum dogma-
myndum. En hún er víðsfjarri og
kemst hvergi að fyrir hinni allt of al-
gengu frönsku tilgerð.
Hér dregur hinn fransk-banda-
ríski Barr (sem fæddist í Þýska-
landi) frönsku félaga sína vestur um
haf og reynir að sprengja á graft-
arkýli smábæjarsamfélagsins,
þröngsýni og bældum hvötum dreif-
býlisfólks. Sá held ég að þurfi að öðl-
ast frekari virðingu fyrir samlöndum
sínum, Bandaríkjamönnum, því for-
dómarnir eru hreint vaðandi.
Franska stúlkan (Bouchez) mætir á
staðinn, losar um hömlur eina
mannsins í bænum (heldur að hann
sé með of stóran lim) sem virðist með
öllum mjalla (Barr) en hann er giftur
konu (Arquette) sem getur ekki not-
ið annars manns en látins ástvinar
og allir tryllast yfir lauslætinu. Sem
sagt – of mörg vandamál.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Of mörg
vanda-
mál
Til að auglýsa á þessari síðu hafðu
samband við okkur í
síma 569 1111 eða sendu okkur
tölvupóst á augl@mbl.is
mbl.is
VIÐSKIPTI
HEDWIG KL. 20.30
Forsýning mið 4/7 UPPSELT
Frumsýning fim 5/7 UPPSELT
Lau 7/7 A,B,C,D,E,F,G,H&I kort gilda
örfá sæti laus
Fös 13/7
Lau 14/7
Hádegisleikhús KL. 12
RÚM FYRIR EINN
fim 28/6 nokkur sæti laus
FEÐGAR Á FERÐ KL. 20
sun 24/6 nokkur sæti laus,síðasta sýning
Allar sýningar hefjast kl. 20.
Miðasalan er opin frá kl 10-14 alla virka daga og
frá kl 17-20 á sýningarkvöldum. Hópasala er í
síma 530 3042 og skrifstofusími er 530 3032 eða
530 3037.
midasala@leik.is — www.leik.is
Miðasölusími er 530 3030
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
; % <=>
6=>
&=>
% =>
! "#$$ % " $ !
&'( )) * +,
&$
-$% #! ./0
1 "#$$ % " $ !
!
-2! $$$3
-2!
" $$$ 4-!56 #7-$$ $$ 8$$!
&#$$$
4!9: ! -! 5;15< #!1! -! 5;9.6!
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM
e. Ray Cooney
Í KVÖLD Lau 23. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fim 28. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fös 29. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 30. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fös 6. júlí kl. 20 - LAUS SÆTI
Lau 14. júlí kl. 20 - LAUS SÆTI
WAKE ME UP e. Hallgrím Helgason
Þri 3. júlí kl. 20 – Forsýning,
miðaverð kr. 1.200
Mið 4. júlí kl. 20 – Frumsýning
Lau 7. júlí kl. 20
Sun 8. júlí kl. 20
Söngleikur fluttur af nemendum
Verslunarskóla Íslands
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Stóra svið