Morgunblaðið - 06.07.2001, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.07.2001, Blaðsíða 1
151. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 6. JÚLÍ 2001 HANNELORE Kohl, eiginkona Helmuts Kohls, fyrrverandi kanzl- ara Þýzkalands, fannst látin á heimili þeirra hjóna í Oggersheim, ná- lægt Ludwigshaf- en, í gær. Yfirvöld staðfestu að hún hefði stytt sér aldur til að binda enda á þjáningar sínar vegna ólæknandi ljósof- næmis, sem olli því að heilsu hennar fór síhrakandi. Hún var 68 ára að aldri er hún lézt, en hún giftist eiginmanni sínum, sem var kanzlari á tímabilinu 1982-1998, árið 1960. Ekklinum bárust ótal samúðarskeyti í gær, ekki sízt frá stjórnmálaleið- togum, þýzkum sem erlendum. APLögreglubifreiðar fyrir utan hús Kohl-hjónanna í Oggersheim við Ludwigshafen í gær. Hannelore Kohl Hanne- lore Kohl látin  Slegnir yfir/23 VOPNAHLÉ gekk í gildi í Make- dóníu á miðnætti að staðartíma í gærkvöld, eftir milligöngu Evrópu- sambandsins og Atlantshafsbanda- lagsins. Vekur það vonir um að binda megi enda á átök stjórnarhersins og albanskra skæruliða, sem staðið hafa í rúma fjóra mánuði. Síðan átökin hófust í febrúar hefur nokkrum sinnum verið lýst yfir vopnahléi. Vonir eru þó bundnar við að samkomulagið nú sé haldbetra, þar sem fulltrúar ESB og NATO hafi haft milligöngu. Foringi alb- önsku skæruliðanna staðfesti þetta í samtali við AP-fréttastofuna í gær og sagði grundvöll hafa verið lagðan að pólitískum viðræðum stjórnvalda og skæruliða. Stjórnvöld í Makedóníu tóku í sama streng. „Þetta er stórt skref fram á við. Vandinn er vitanlega ekki leystur, en nú hafa verið sköpuð skil- yrði fyrir viðræðum,“ hafði AP í gær eftir öryggisráðgjafa forsetans, Bor- isar Trajkovskís. NATO hefur lýst sig reiðubúið að senda friðargæslulið til Makedóníu til að hafa umsjón með afvopnun skæruliða, en þó ekki fyrr en vopna- hlé hafi komist á. Fréttavefur BBC hafði í gær eftir Rudolf Scharping, varnarmálaráðherra Þýskalands, að mögulegt væri að fyrstu NATO- sveitirnar yrðu sendar á vettvang fljótlega eftir 15. júlí, en það ylti á því að vopnhléið héldist og deiluaðildar settust að samningaborðinu. Barist við Tetovo Til átaka kom á nokkrum stöðum í norðurhluta Makedóníu í gær, þar á meðal við Tetovo, eftir að tilkynnt hafði verið um væntanlegt vopnahlé. Bæði stjórnarherinn og skæru- liðar sökuðu hvorir aðra um að reyna að bæta vígstöðu sína áður en vopna- hléið gengi í gildi. Vopnahlé vekur vonir í Makedóníu Skopje. AP. GERHARD Schröder, kanslari Þýskalands, sagðist á fundi sínum með Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, í gær vilja sjá meiri sveigj- anleika í stefnu Ísraela hvað varðar landnemabyggðir gyðinga á sjálf- stjórnarsvæðum Palestínumanna. Tveggja daga Evrópuheimsókn Sharons hófst í Berlín í gær en hann hélt til Parísar í gærkvöldi. Þetta er fyrsta opinbera heimsókn hans til álfunnar frá því hann tók við emb- ætti forsætisráðherra í mars sl. en tilgangur ferðarinnar er að leita stuðnings Evrópuríkja við stefnu ríkisstjórnar hans gagnvart Palest- ínumönnum. Að auki fundaði Ariel Sharon með Louis Michel, utanríkisráðherra Ariel Sharon leitar eftir stuðningi í ferð til Evrópu Schröder hvetur Ísr- aela til sveigjanleika Berlín, AFP. AP. Belgíu, í Berlín. Því hefur verið hald- ið fram að forsætisráðherrann hafi hætt við ferð sína til Belgíu vegna rannsóknar þar í landi á meintum stríðsglæpum er ísraelski herinn hleypti sveitum kristinna Líbana og andstæðingum Palestínumanna inn í flóttamannabúðirnar í Sabra og Chatila árið 1982, þar sem hundruð manna létu lífið. Michel tók þó sér- staklega fram á fundinum að hann væri ekki hlynntur því að Sharon yrði ákærður fyrir stríðsglæpi í tengslum við fyrrnefnt atvik. Sharon sagði að loknum fundum sínum í Berlín í gær að Ísraelar væru tilbúnir að færa fórnir til að binda enda á ofbeldi og ótta. „Það er þó háð því að algert vopnahlé komist á.“ AP Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, og Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels. INNRÁSINNI í Normandí 1944 var stefnt í hættu af skapstyggum gagnnjósnara sem vildi hefna fyrir dauða hunds, að því er kemur fram í skjölum bresku leyniþjónustunnar MI5, sem gefin voru út í gær. Natalie Sergueiew, sem gekk undir leyninafninu „Fjársjóður“, var frönsk kona sem vann fyrir leyniþjónustu þýska hersins (Ab- wehr) en gekk til liðs við banda- menn þegar líða tók á stríðið. Við flutninginn frá Frakklandi til Bret- lands varð hundurinn hennar, Fris- son, eftir í Gíbraltar. Yfirmaður Sergueiews varaði við því að hún tæki hundshvarfinu illa og að það gæti komið niður á starfi hennar. Vildi hefna fyrir dauða hundsins Þrátt fyrir viðvaranirnar var Sergueiew komið fyrir í Portúgal og hún notuð til að koma röngum upplýsingum um innrásina í Frakk- land til Þjóðverja. Þegar Serg- ueiew frétti að Frisson væri dauð hótaði hún að segja Þjóðverjum allt af létta og þar með fletta hulunni af innrásaráætluninni. Vildi hún hefna fyrir dauða Frisson, sem hún kenndi MI5 um. Yfirmanni Serg- ueiews tókst að tala um fyrir henni og var hún flutt aftur til Bretlands og tók ekki frekari þátt í njósnaað- gerðum MI5. Blekkingar bandamanna ollu því að Þjóðverjar bjuggust við innrás- inni við Calais, nokkru norðar en hún átti sér stað. Bandamenn gengu á land í Normandí 6. júní 1944 og mættu minni mótspyrnu en ella vegna blekkingaraðgerðanna. Hundslát ógnaði áætlunum London. AP. Skjöl um innrásina í Normandí EVRÓPSKI seðlabankinn (ECB) breytti ekki vöxtum á fundi sínum í gær en margir höfðu vonað að það yrði gert til að ýta undir vöxt í efnahagslíf- inu. Bankinn leggur hins vegar meiri áherslu á að koma í veg fyrir þenslu og verðbólgu. Wim Duisenberg seðla- bankastjóri gaf fyrr í vikunni í skyn að vextir yrðu ekki lækk- aðir þar sem þeir væru nú á réttu róli með tilliti til verð- bólgunnar sem hefur farið vax- andi. Verðbólguhraðinn er nú um 3,4% á evrusvæðinu, mun meiri en markmið bankans sem er 2%. Flestir sérfræðingar gera þó ráð fyrir að hlutfallið lækki er dregur fram á árið. Sagði Duisenberg á þriðjudag að engar tölulegar upplýsingar væri hægt að leggja til grund- vallar vaxtalækkun að þessu sinni. Síðast lækkaði bankinn vexti um fjórðung úr prósentu- stigi í 4,5% í maí. 12 af 15 aðildarríkjum Evr- ópusambandsins eiga aðild að evrusvæðinu og seðlabankan- um, sem er í Frankfurt í Þýska- landi. Tölur sem birtar voru í gær gefa til kynna að vænting- ar neytenda og atvinnurekenda í ríkjunum á evrusvæðinu um viðgang efnahagslífsins minnk- uðu í júní. Ernst Welteke, seðlabanka- stjóri Þýskalands, dró enn úr vonum manna um bata í efna- hagslífi Vesturlanda er hann sagði fyrir skömmu að vaxta- lækkanir bandaríska seðla- bankans myndu við núverandi aðstæður ekki duga til að efla hagvöxt. Vextir ekki lækkaðir Frankfurt. AP.  Milli vonar/30 Seðlabanki Evrópu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.