Morgunblaðið - 06.07.2001, Side 39

Morgunblaðið - 06.07.2001, Side 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2001 39 ✝ Guðrún Árna-dóttir Hjartar fæddist í Reykjavík 5. júlí 1901. Hún and- aðist að hjúkrunar- heimilinu Holtsbúð í Garðabæ 28. júní síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Árni Árnason verka- maður, f. 2. septem- ber 1863 í Breiðholti við Reykjavík, d. 1. febrúar 1959, og Kristín Ólafsdóttir húsmóðir, f. 8. des- ember 1868 á Vatns- enda við Elliðavatn, d. 22. júní 1946 í Reykjavík. Börn Kristínar og Árna voru alls tólf en tíu náðu fullorðinsaldri. Systkini Guðrúnar eru: 1) Ólafía Guðlaug, f. 1890, d. 1981, maki Herbert M. Sigmunds- son prentsmiðjustjóri, f. 1883, d. 1931. 2) Valdemar verkstjóri, f. 1893, d. 1962, maki Guðlaug Ingi- björg Sigurðardóttir, f. 1894, d. 1956. 3) Laufey, f. 1895, d. 1971, maki Árni Kristjánsson vélstjóri, f. 1885, d. 1958. 4) Stefanía, f. 1898, dáin sama ár. 5) Guðrún, f. 1899, d. 1900. 6) Kristinn vélgæslumaður, f. 1903, d. 1982, ógiftur og barn- laus. 7) Stefanía, f. 1906, d. 1992, maki Sigurþór Jónsson úrsmiður, f. 1890, d. 1959. 8) Margrét, f. 1908, d. 1997, maki Emil Björn Magnússon féhirðir, f. 1906, d. 1952. 9) Áslaug Björg, f. 1909. MI. Sigtryggur Árnason verslunar- maður, f. 1902, d. 1933, MII. Stein- grímur Magnús Guðmundsson bif- reiðarstjóri, f. 1907, d. 1992. 10) Gunnhildur, f. 1910, d. 1961, MI. Diljá Einarsdóttir kaupmaður, f. 21. maí 1960, þau slitu samvistir, börn þeirra eru Stefán Sindri, f. 16. janúar 1989, og Hera Rún, 19. apríl 1992. Sambýliskona Ragnars er Sólveig Björk Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 16. sept- ember 1967. 2) Dóra, fasteignasali í Kaliforníu, f. 30. maí 1937, MI. Eysteinn G. Þórðarson, f. 3. mars 1934, þau slitu samvistir, synir þeirra eru Gunnar Þór, fram- kvæmdastjóri í Kaliforníu, f. 3. júní 1958 í Reykjavík, maki Heat- her húsmóðir, f. 27. júní 1958 í Seattle, Washington, börn þeirra eru Stefán Þór, f. 12. júlí 1989, og Elise Dóra, f. 11. mars 1992; Leifur Egill markaðsstjóri í Kaliforníu, f. 11. ágúst 1965 í Reykjavík, MII. Ólafur Hersir Pálsson, flugvél- stjóri, f. 20. júní 1936, d. 26. febrú- ar 1997. 3) Kristín ritari, f. 12. des- ember 1941, MI. Skúli G. Guðnason lögg. endurskoðandi, f. 21. júlí 1939, þau slitu samvistir, sonur þeirra er Magnús Árni hag- fræðingur, f. 31. janúar 1969, sam- býliskona hans er Nína Magnús- dóttir myndlistakona, f. 20. október 1969, sonur þeirra er Jón- atan Sólon, f. 7. mars 1996, MII. Þorfinnur Egilsson lögfræðingur, f. 26. ágúst 1940 á Ísafirði, d. 14. október 1998, þau slitu samvistir. Guðrún starfaði í 12 ár í Lauga- vegsapóteki áður en hún gekk í hjónaband en eftir það helgaði hún sig húsmóðurhlutverkinu. Guðrún og Loftur byrjuðu sín fyrstu hjú- skaparár í Vesturbænum en árið 1946 flutti fjölskyldan í Barmahlíð 11. Árið 1990 flutti Guðrún 89 ára að aldri í þjónustuíbúð að Sléttu- vegi 11 en síðustu mánuði dvaldist hún að hjúkrunarheimilinu Holts- búð í Garðabæ. Útför Guðrúnar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Þórður Jóhann Ingi- mundarson, f. 1905, d. 1965, MII. Sigurjón Helgi Ingimundarson sjómaður, f. 1912, d. 1938. MIII. Jóhannes L. Jóhannesson prent- ari, f. 1912, d. 1947. 11) Ólafur prentari, f. 1911, d. 1943, ókvænt- ur, átti eina dóttur. Guðrún giftist 15. nóv- ember 1930 Lofti Guðna Hjartar húsa- smið, f. 8. febrúar 1898 að Gerðhömrum við Dýrafjörð, d. 8. október 1980 í Reykjavík. Foreldr- ar hans voru hjónin Steinunn Guð- laugsdóttir húsmóðir, f. 3. október 1859 á Ytri- Kárastöðum á Vatns- nesi, d. 5. september 1943 á Þing- eyri, og Hjörtur Bjarnason hús- maður, f. 30. september 1860 að Hamarlandi á Reykjanesi, d. 22. apríl 1915 á Þingeyri. Dætur Guð- rúnar og Lofts eru þrjár: 1) Stein- unn húsmóðir, f. 26. júní 1931, maki Stefán B. Stefánsson, fyrrv. aðalféhirðir, f. 4. janúar 1928 á Akureyri, börn þeirra eru Stefán Loftur, byggingatæknifræðingur hjá Kópavogsbæ, f. 29. september 1953, maki Bjarnfríður Bjarna- dóttir, f. 22. mars 1954, meina- tæknir, dóttir þeirra Úlfhildur, f. 6. maí 1977; Arnór framkvæmdar- stjóri, f. 9. janúar 1960, maki Anna Ingvarsdóttir skrifstofumaður, f. 24. júlí 1959, börn þeirra eru Steinunn, f. 12. nóvember 1982, Pétur, f. 2. ágúst 1985, og Ingi Steinn, f. 26. ágúst 1991. 3) Ragnar kaupmaður, f. 19. ágúst 1961, MI. Guðrún Árnadóttir Hjartar – amma mín – var lífsglöð og gæfurík kona sem var alla tíð mér mjög náin. Samskipti okkar voru ávallt á jafn- ræðisgrundvelli þrátt fyrir sjö ára- tuga aldursmun. Guðrún andaðist viku fyrir aldarafmæli sitt, 28. júní sl. Þær minningar og það veganesti sem hún innrætti mér mun ég alltaf virða og geyma innra með mér. Ég vona að ég eigi gæfu til að koma hennar lífsskoðunum áleiðis. Lífshlaup Guðrúnar var langt og hamingjuríkt. Hún var fædd í Reykjavík 5. júlí 1901 og auðnaðist að lifa alla tuttugustu öldina – öld pólitískra umbrota og styrjalda, en einnig stórkostlegra framfara í tækni og vísindum. Á Íslandi upplifði hún þau snöggu umskipti sem iðn- væðing landsins hafði á efnahag og samfélag. Guðrún, sem var fædd inn í stóra fjölskyldu, fór ekki varhluta af fyrrgreindum samfélagsbreyting- um en faðir hennar, Árni Árnason, tók virkan þátt í réttindabaráttu verkafólks og var einn af stofnend- um verkalýðsfélagsins Dagsbrúnar árið 1906. Á unglingsárum tók Guð- rún fullan þátt í atvinnulífi og starf- aði m.a. um tólf ára skeið sem versl- unarmaður í Laugavegsapóteki eða til ársins 1930. Margt er mér á huldu um fyrr- greint æviskeið Guðrúnar, þó veit ég að hún studdi við bakið á fjölskyldu sinni. Hvað varðar hennar eigin langanir tjáði hún mér eitt sinn að hún hefði getað hugsað sér að leggja stund á lyfjafræði en aðstæður leyfðu ekki. Guðrún var ávallt mjög fáguð og snyrtileg – og lagði mikið upp úr því að vera vel til höfð. Á hátíðarstund- um klæddist hún iðulega íslenskum peysufötum sem hún bar mjög vel og í því samhengi er mér minnisstætt póstkort með mynd af henni og nokkrum öðrum stúlkum í íslenskum þjóðbúningum. Með tíð og tíma tók nútímalegri klæðaburður við, enda breyttust tímarnir hratt á þessum árum. Hið sama ár og hún lét af störfum í Laugavegsapóteki gekk hún í hjóna- band með afa mínum – Lofti Guðna Hjartar, trésmiði. Það voru ávallt miklir kærleikar á milli þeirra og er mér minnisstæð mynd af þeim sem tekin var á Alþingishátíðinni 1930, þar situr Guðrún í faðmlögum við Loft og sjaldan hef ég séð mynd af ástfangnara pari. Þau hófu sambúð á Sólvallagötu 13 í Reykjavík en bjuggu lengst af í Hlíðunum. Ávöxtur hjónabands þeirra voru þrjár dætur, Steinunn f. 1931, Dóra f. 1937 og Kristín móðir mín f. 1941. Þær nutu kristilegs upp- eldis og var samband systranna við móður sína alltaf náið og voru heið- arleg tjáskipti alltaf höfð að leiðar- ljósi. Félaglíf Guðrúnar og Lofts var gott og einn var sá félagsskapur sem afi minn naut betur en annars – Karlakór Reykjavíkur, en sveitungi hans Sigurður Þórðarson var fyrsti söngstjóri kórsins. Eitt eftirminni- legasta ferðalag Guðrúnar var ein- mitt söngferð kórsins og eigin- kvenna til Miðjarðarhafslanda á miðjum sjötta áratugnum en þar söng kórinn m.a. fyrir Pius páfa XII. Örlögin höguðu því þannig að ferðalög til meginlands Evrópu lögð- ust af en þess í stað varð Ameríka fyrir valinu, en árið 1960 flutti Dóra dóttir þeirra búferlum til Kaliforníu. Á árabilinu 1967–1990 fór Guðrún alls níu sinnum til Bandaríkjanna og rúmlega tvo þriðju ferðanna í fylgd með Lofti eiginmanni sínum. Þó að minnstu hafi munað að Steinunn og Kristín hefðu flutt í kjölfar Dóru varð ekki af því. Guðrúnu og Lofti tókst með ferðum sínum að rækta barnabörn sín beggja vegna Atlants- hafsins og þar með brúa og halda við fjölskyldutengslum sem hafa verið okkur í fjölskyldunni ómetanleg. Það var auðnuspor fyrir mig að fá að umgangast þau hjón og fá að bergja á viskubrunni þeirra beggja, en þau voru komin á áttræðisaldur þegar ég kom inn í líf þeirra. Margar æskuminningar vakna hjá mér, enda alltaf nóg að sýsla í Barmahlíðinni, annaðhvort við smíðar eða matar- gerð. Gleði og einhugur ríkti á milli þeirra – sérstaklega er mér minn- isstætt hve oft þau tóku sporið tvö ein inni í stofu á síðkvöldum yfir danslögum Ríkisútvarpsins. Eftir andlát Lofts, 8. október 1980, bjó Guðrún ein í Barmahlíðinni í áratug en flutti síðan að Sléttuvegi 11 þar sem hún bjó fram á gaml- ársdag 1999. Í apríl 2000 fluttist hún á hjúkrunarheimilið Holtsbúð í Garðabæ, þar fékk hún góða að- hlynningu og andaðist hún þar 28. júní sl. Fjölskyldan vill þakka starfs- fólki þar fyrir þann hlýhug sem það bar til Guðrúnar. Mér auðnaðist að fá að kveðja ömmu mína meðan ég var hér á landi, einungis viku fyrir andlát hennar, það var mér mikils virði að fá að styðja hana þessi síðustu spor. Guð geymi þig. Magnús Árni Skúlason. Drottinn vakir, Drottinn vakir daga, og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og bezta móðir Ber hann þig í faðmi sér. Þegar æviröðull rennur, rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi, hel er fortjald, hinum megin birtan er. Höndin, sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga’ og nætur yfir þér. (S. Kr. Pétursson.) Elsku Guðrún þakka þér fyrir allt. Guð geymi þig. Elín Minntu mig á, Drottinn minn, að þó ég hafi mikið misst felur lífið og höfundur þess, þú, mér enn verk að vinna. Mig langar að minnast langömmu minnar Ég man alla tíð hve gott var að koma til þín. Þú áttir alltaf eitt- hvað gott að gefa mér. Mér þótti strax frá okkar fyrstu kynnum vænt um þig en þú tókst mér svo vel þegar mamma og pabbi tóku mig að sér en þá var ég lítil stúlka. Ég veit að þú fylgist með mér áfram og lætur þér annt um mig. Guð geymi þig, elsku langamma, ég mun minnast þín oft og hugsa til þín með þakklæti fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Far þú í friði. Úlfhildur Stefánsdóttir. GUÐRÚN ÁRNA- DÓTTIR HJARTAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. , " -   & &"      &2 344 ( 5  !/   $ "  .  !   %     "  01  &    % /  &   1    22      "! &   ) "+)) $ % /.  ! % /   " 6   $(    +   1        +   ! 7     /  *1 .  '7 8      01 " Útfararþjónustan ehf. Stofnuð 1990 Rúnar Geirmundsson útfararstjóri Traust persónuleg alhliða útfararþjónusta. Áratuga reynsla. Símar 567 9110 & 893 8638 utfarir.is "  "  &       ! ""        "  "   " -    & "  &       ,9 9"  &  8 ! 6/  6   *+  $ -:!  ;! ( < !/*" #$ "  "  -   "   *&3* '*4' * ( "    ,- +   ' ,-   ,-  ! 01 0 01  0 0 01 " , " -  &"    =  &&2> 3 344  0  %%5 !/* $ "     5   "      $   #+;+      " #/ "   7:  2 344 $/ "(*' *+  !   ( ? $ "  !  !   #        5   " 0*1  ;+ (  :! (    "

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.