Morgunblaðið - 26.08.2001, Side 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐ hátíðlega athöfn í Höfða héldu
Davíð Oddsson forsætisráðherra og
utanríkisráðherrarnir fjórir, Halldór
Ásgrímsson og starfsbræður hans
Toomas Hendrik Ilves frá Eistlandi,
Indulis Berzins frá Lettlandi og
Antanas Valionis frá Litháen, ávörp
og undirrituðu þeir síðan sérstakt
minningarskjal við sama borð og
fyrirrennarar þeirra undirrituðu
fyrir réttum áratug samninga um
formlega upptöku stjórnmálasam-
bands Íslands við þessi lönd. Tveir
ráðherranna þáverandi, Jón Baldvin
Hannibalsson og Litháinn Algirdas
Saudargas, voru einnig viðstaddir
sem sérstakir boðsgestir í afmælis-
dagskránni.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði í ávarpi sínu í Höfða að er
Eystrasaltslöndin brutust til sjálf-
stæðis fyrir rúmum áratug hefðu
þau sýnt að „áratuga ok og kúgun
hafði ekki náð að kæfa frelsisneist-
ann sem falinn var djúpt í sálinni,
skýldur af ódrepandi ættjarðarást
og þjóðarvitund“. Vesturlönd hefðu
„de facto“ afskrifað þessi lönd „inn í
hinn sovézka efnahagsreikning“.
Baráttan og kjarkurinn sem þjóðirn-
ar sýndu hefði því komið flestum á
Vesturlöndum í opna skjöldu „er
þær gripu tækifærið sem gafst, þeg-
ar þær sáu glufu í kúgunarkerfinu
og ráku ofaní hana fleyga svo að hún
lokaðist ekki á ný, og hófu að víkka
hana af því ódrepandi afli sem frels-
isþráin ein gat knúið“. Sagði Davíð
að hann og aðrir sem sátu þá í ís-
lenzku ríkisstjórninni hefðu fylgzt
með af áhuga og eftirvæntingu „og
erum þakklátir fyrir að hafa mátt
leggja okkar litla lóð á vogarskálar
einstæðrar frelsisbaráttu“. Hann
minnstist þeirra stunda „sem ein-
hverra þeirra ánægjulegustu sem ég
hef komið að í íslenzku stjórnmála-
lífi“.
Framganga Jóns Baldvins
„aðdáunarverð“
„Ég minnist einnig ábendinga og
aðvörunarorða sem við fengum frá
ýmsum vina okkar bæði beint og
óbeint um að nú mætti ekkert gera
sem veikt gæti stöðu þeirra í
Moskvu sem vestrænir leiðtogar
hefðu sett traust sitt á. Allt var það
vel hugsað og meint, en samt svo
rangt,“ sagði Davíð. „Ég minnist
einnig sérstaklega framgöngu ís-
lenzka utanríkisráðherrans, Jóns
Baldvins Hannibalssonar, sem vakti
aðdáun mína fyrir festu, snerpu og
hugrekki, sem að verðleikum mun
halda nafni hans lengi á lofti,“ bætti
forsætisráðherra við og bað Jón
Baldvin, sem sat á fremsta bekk
meðal annarra boðsgesta, að standa
upp. Var honum klappað lof í lófa.
„Við Íslendingar erum stoltir og
afar þakklátir fyrir að hafa mátt
leika einn leikinn í þeirri æsispenn-
andi baráttuskák sem fólk og forysta
Eystrasaltsríkjanna háði fyrir tíu
árum rúmum, þar sem allt var lagt í
sölurnar,“ bætti Davíð við. „Þau 10
ár sem síðan eru liðin hafa vissulega
ekki verið samfelldur dans á rósum,
en þau hafa engu að síður verið mikil
sigurganga og vitnisburður um að
þeim þjóðum sem njóta frelsis eru
allir vegir færir, en hinum undirok-
uðu þjóðum eru öll sund lokuð.“
Lauk Davíð ávarpi sínu á að segja að
Eystrasaltslöndin væru komin
„heim í fjölskyldu þjóðanna sem
byggja á lýðræði, frelsi og sjálf-
stæði. Úr faðmi þeirrar fjölskyldu
verða þær aldrei aftur hrifsaðar“.
Halldór Ásgrímsson sagði í sínu
ávarpi meðal annars, að atburðir
ársins 1991 hefðu sýnt og sannað, að
lítil ríki geti haft áhrif í alþjóðasam-
félaginu.
Vinur í neyð er vinur í raun
Fyrir athöfnina í Höfða höfðu ut-
anríkisráðherrarnir átt samráðs-
fund í utanríkisráðuneytinu og sagði
Halldór Ásgrímsson á blaðamanna-
fundi að umræðuefnin hefðu í meg-
indráttum verið þrjú: Þróun tvíhliða
samskipta Íslands við ríkin þrjú,
bæði að því er varðar viðskipti og
menningarmál; síðan hefðu öryggis-
málin verið rædd, sérstaklega með
tilliti til inngöngu Eystrasaltsríkj-
anna í Atlantshafsbandalagið. „Fyr-
ir hönd Íslands höfum við ítrekað af-
dráttarlausan stuðning okkar við
aðild þessara landa að bandalaginu
og við höfum einnig vakið athygli á
því að þau hafa staðið sig vel í und-
irbúningi fyrir hana,“ sagði Halldór,
og bætti við: „Þetta er mjög mik-
ilvægt, því aðildarhæfni hvers lands
[sem nú sækist eftir inngöngu í
NATO] verður metið á eigin for-
sendum og því erum við bjartsýnir á
að hægt verði að hafa Eystrasalts-
ríkin með í næstu stækkunarlotu
bandalagsins.“
Í þriðja lagi hefðu þeir ráðherr-
arnir rætt um Evrópusambandið
(ESB). Öllum Eystrasaltsríkjunum
er það mikið kappsmál að fá aðild að
því og sagði Halldór íslenzkstjórn-
völd fagna því og hinni væntanlegu
stækkun ESB til austurs, þar sem
löndin verði þar með jafnframt að-
ilar að Evrópska efnahagssvæðinu
„og upp frá þeim degi mun opnast
fyrir frjálst flæði fólks, vöru, þjón-
ustu og fjármagns milli landa okkar
og það mun verða til þess að þétta
tengsl okkar enn frekar.“
Toomas Heldrik Ilves vísaði í sínu
ávarpi til máltækisins um að „vinur í
neyð sé vinur í raun“. Þetta eigi ein-
mitt við um það skref sem Ísland tók
árið 1991. „Hefði Ísland ekki gerzt
brautryðjandi meðal hinna vestrænu
þjóða [og orðið fyrst til að viður-
kenna sjálfstæði Eistlands] hefðu
þær allar kosið að bíða, og hefðu þær
beðið – hver veit hvað þá hefði
gerzt?“ sagði Ilves, með tilvísun til
þess mikla óvissuástands sem ríkti í
Sovétríkjunum á þessum tíma. Þess
vegna viti hvert einasta mannsbarn í
Eistlandi hvaða þjóð það var sem
varð fyrst til að viðurkenna sjálf-
stæði landsins. Af þessari ástæðu
hafi líka verið ákveðið að skíra torgið
sem eistneska utanríkisráðuneytið
stendur við í Tallinn eftir Íslandi,
„því við höfum miklar mætur á vin-
um okkar,“ sagði ráðherrann.
Berzins og Valionis tóku fyrir
hönd sinna landa heils hugar undir
þessi orð hins eistneska starfsbróð-
ur síns. Það hefði skipt gríðarmiklu
máli að Ísland varð fyrst NATO-
ríkja til að viðurkenna sjálfstæði
landanna sem hefðu gegn eigin vilja
verið föst í helzi Sovétríkjanna í
nærri hálfa öld. „Staðreyndin er sú,
að á þessum tíma bar annars enginn
[á Vesturlöndum] okkur saman við
lönd eins og Pólland, Ungverjaland
eða Tékkland. Nú erum við jafningj-
ar þessara landa í aðildarviðræðum
við Evrópusambandið og eigum
einnig eftir að ganga í NATO – við
verðum í sama félagsskap og Ís-
land,“ sagði Berzins.
Myndlistarsýning opnuð
Eftir athöfnina í Höfða héldu ráð-
herrarnir og aðrir þátttakendur í af-
mælisdagskránni til Þingvalla, þar
sem þeir snæddu hádegisverð í boði
íslenzku utanríkisráðherrahjónanna.
Og síðdegis var að viðstöddum ráð-
herrunum opnuð myndlistarsýning-
inn Ars Baltica í Gerðarsafni í Kópa-
vogi, en á henni gefur að líta
nútímamyndlist frá löndunum þrem-
ur. Í Gerðarsafni var jafnframt opn-
að málþing um ferþaþjónustu í
Eystrasaltslöndunum.
Frjálsum
þjóðum eru
allir vegir
færir
Í tilefni af því að um þessar mundir eru
tíu ár liðin frá því Ísland varð fyrst ríkja
til þess að taka upp formlegt stjórnmála-
samband við Eystrasaltsríkin þrjú eftir
að þau endurheimtu sjálfstæði komu utan-
ríkisráðherrar landanna og fleiri saman í
Reykjavík í gær til að minnast atburða árs-
ins 1991. Auðunn Arnórsson fylgdist með.
Morgunblaðið/Billi
Þátttakendur í afmælisdagskránni stilltu sér upp á tröppum Höfða. Fremst standa (f.v.) Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri, Davíð Oddsson forsætisráðherra og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra. Fyrir aftan þau
eru Toomas Hendrik Ilves, utanríkisráðherra Eistlands, Indulis Berzins, utanríkisráðherra Lettlands, Antanas
Valionis, utanríkisráðherra Litháens, Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra og fv. utanríkisráðherra, Stein-
grímur Hermannsson, fv. forsætisráðherra, og Algirdas Saudargas, fv. utanríkisráðherra Litháens.
Morgunblaðið/Billi
Davíð Oddsson forsætisráðherra og (f.h.) utanríkisráðherrar Íslands, Eistlands, Lettlands og Litháens, und-
irrita skjal til minningar um 10 ára afmæli formlegs stjórnmálasambands landanna.
Afmælisdagskrá til minningar um tíu ára stjórnmálasamband Íslands og Eystrasaltslandanna
auar@mbl.is