Morgunblaðið - 26.08.2001, Side 36
MINNINGAR
36 SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Björgvin Þór Jó-hannsson fæddist
í Reykjavík 22. janú-
ar 1951. Hann lést á
heimili sínu, Bræðra-
tungu 22 í Kópavogi,
18. ágúst síðastlið-
inn. Foreldrar hans
eru Jóhann Bessa-
son, f. 28. maí 1926,
og Arnheiður Björg-
vinsdóttir, f. 19. maí
1927. Systkini Björg-
vins eru: Ósk Sól-
veig, f. 30. október
1946, Bessí, f. 5.
febrúar 1948, Ásta, f.
3. febrúar 1950, og Bessi, f. 3.
desember 1959. Björgvin kvænt-
ist 23. des 1972 Marianne Sus-
anne, f. 21. september 1951. Börn
þeirra eru: 1) Gunnhildur, f. 28.
apríl 1973, sonur hennar er Ósk-
ar Örn, f. 12. október 1998; 2) Jó-
hann, f. 22. apríl 1977, unnusta
hans er Sigurjóna S. Sigurjóns-
dóttir, f. 26. septem-
ber 1978.
Björgvin var
sjúkraliði og
þroskaþjálfi að
mennt. Hann starf-
aði í 10 ár sem for-
stöðumaður Skála-
túnsheimilisins í
Mosfellsbæ, en
lengst af gegndi
hann starfi hjúkrun-
arfræðings við
Hrafnistu í Reykja-
vík. Björgvin notaði
öll tækifæri sem
gáfust til að sér-
mennta sig á sínu sviði, bæði hér-
lendis og erlendis. Hann sótti
m.a. nám við Michigan-háskóla í
Bandaríkjunum árið 1986 og fékk
til þess Fulbright-styrk.
Útför Björgvins fer fram frá
Fosssvogskirkju á morgun,
mánudaginn 27. ágúst, og hefst
athöfnin klukkan 15.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku besti pabbi minn, þakka þér
fyrir hve kærleiksríkur, örlátur og
hjálpsamur þú varst. Ávallt reiðubú-
inn að rétta hjálparhönd. Þín verður
mjög sárt saknað og aldrei verður
hægt að fylla það tómarúm sem þú
skilur eftir.
Ég trúi ekki hve lánsöm ég er að
hafa átt þig að.
Elska þig og sakna svo mikið.
Þín dóttir,
Gunnhildur.
Elsku Björgvin.
Þig, sem í fjarlægð fjöllin bak við dvelur
og fagrar vonir tengdir líf mitt við,
minn hugur þráir, hjartað ákaft saknar,
er horfnum stundum ljúfum dvel ég hjá.
Heyrirðu ei, hvern hjartað kallar á,
heyrirðu storminn kveðju mína ber?
Þú fagra minning eftir skildir eina,
sem aldrei gleymist, meðan lífs ég er.
(Valdimar Hólm Hallstað.)
Það er með miklum söknuði sem
ég kveð Björgvin Þór Jóhannsson
tengdaföður minn sem mig langar að
minnast með fáeinum orðum. Glað-
værð, greiðvikni, umhyggjusemi fyr-
ir öðrum eru orð sem koma fyrst upp
í hugann. Björgvin var einn af þeim
sem var sífellt að hjálpa öðrum og
gat ekki neitað neinum sem til hans
leituðu. Í staðinn vildi hann oft líka
gleyma sjálfum sér. Hann vissi alltaf
hvenær manni leið illa og það áður en
maður vissi það sjálfur. Björgvin
mat ég mikils og hafði hann mikil
áhrif á mig. Hann hjálpaði mér oft á
erfiðum tímum og var þá vanur að
segja, „Sigga mín, ástandið er aldrei
það slæmt að það gæti ekki verið
verra.“ Þessi orð munu ávallt fylgja
mér. Hann hafði þann einstaka hæfi-
leika að láta manni líða betur enda
sjaldan lognmolla þar sem hann var
á ferð. Hlátrasköll og gleði er það
sem einkenndi Björgvin og heyrðust
þau langar leiðir. Björgvin var allt í
öllu alls staðar. Ef hann var ekki að
vinna aukavaktir, ferðast út um allan
heim eða hjálpa vinum og kunningj-
um var hann að sinna fjölskyldunni,
þvo bílana á heimilinu, fara út með
hundana og svo mætti lengi telja.
Veit ekki hvort hann svaf nokkurn
tímann. En nú hefur þögnin yfirtekið
rödd hans og hlátur og þú, Björgvin,
ert farinn yfir móðuna miklu og veit
ég að þú ert í góðum höndum þar
sem vel verður tekið á móti þér. Við
Jói höfum einmitt verið að ræða það
okkar á milli að nú séu feður okkar
loksins búnir að hittast og sitja ef-
laust brosandi og vaka yfir okkur.
Elsku Björgvin, takk fyrir allt, ég
gleymi þér aldrei og nú þegar ég
kveð þig langar mig að biðja góðan
guð að styrkja og vaka yfir honum
Jóa mínum, Súsí, Gunnu, Óskari og
öðrum aðstandendum.
Þín tengdadóttir,
Sigurjóna.
Þínum anda fylgdi glens og gleði
gamansemin auðnu þinni réði
því skaltu halda áfram hinum megin
með himnaríkisglens við mjóa veginn.
Ég vona að þegar mínu lífi lýkur
ég líka verði engill gæfuríkur
þá skoðum skýjabreiður saman
og skemmtum okkur, já það verður
gaman.
(Lýður Ægisson.)
Elsku besti afi minn, ég sakna þín
svo mikið, mig langar að róla með
þér á leikvellinum, kubba hús og
moka sand.
Þú varst svo góður við mig. Ég
ætla að biðja guð um að passa þig og
vernda þar til við hittumst næst. Ég
sendi þér marga fingurkossa, hlýju
og faðmlög, elsku afi minn. Elska þig
svo mikið.
Þinn prins,
Óskar Örn.
Mánudaginn 27. ágúst verður til
moldar borinn Björgvin Þór Jó-
hannsson er varð bráðkvaddur á
heimili sínu laugardaginn 18. ágúst
sl. Ég kynntist honum og hans góðu
konu, Marianne Jóhannsson, og
börnunum þeirra er dóttir þeirra
Gunnhildur og sonur minn Hjörtur
Scheving fóru að draga sig saman
vorið 1993 en þau gengu í hjónaband
árið 1996.
Í Spámanninum segir: „Og hvað
er að hætta að draga andann annað
en að frelsa hann frá friðlausum öld-
um lífins, svo að hann geti risið upp í
mætti sínum og ófjötraður leitað á
fund guðs síns? Aðeins sá, sem
drekkur af vatni þagnarinnar, mun
þekkja hinn volduga söng.
Og þegar þú hefur náð ævitind-
inum, þá fyrst munt þú hefja fjall-
gönguna.
Og þegar jörðin krefst líkama
þíns, muntu dansa í fyrsta sinn.“
Björgvin kom mér fyrir sjónir sem
kærleiksríkur maður, glaðsinna í við-
móti og hjálpsamur í garð annars
fólks og hallaði þá ekki á Marianne í
þeim efnum. Þau voru að mínu mati
samstiga um tilgang og leiðir á lífsins
göngu. Sá vegur er ekki alltaf beinn
og breiður því á honum eru ýmsar
hindranir er við mennirnir glímum
við og reynum að vinna bug á. Á ann-
an veg var Björgvin hlédrægur ein-
fari og varð að komast frá fánýti
hversdagsins og vera einn með sjálf-
um sér.
Það urðu okkur mikil vonbrigði er
börn okkar slitu samvistir á sl. ári.
Þá reyndi mikið á ykkur hjónin sem
og mig er rita þessar línur. Á heimili
ykkar á Bræðratungu 20 í Kópavogi
voru haldnir margir fundir, þá sá ég
best hvern mann þú hafðir að geyma
sem og Marianne. Tók þetta mikla
orku frá okkur öllum, enda málið
flókið og jafnframt viðkvæmt á
stundum. Síðan hef ég komið alloft á
heimili ykkar og alltaf verið tekið
með opnum örmum og kærleik í
hjarta.
Ég átti góða stund með þér og fjöl-
skyldu þinni laugardaginn 18. ágúst
sl. en að kvöldi þess dags sofnaðir þú
frá þessu lífi. Við ræddum saman yfir
kaffibolla um lífsgátuna, mismun-
andi örlög manna á þessari jörð.
Ég vissi það, Björgvin minn, að þú
hefðir að leiðarljósi trú, von og kær-
leika og sá á góða heimkomu vísa.
Marianne, Gunnhildi, barnabarni
mínu Óskari, Jóhanni og öllum hans
ástvinum sendi ég mínar dýpstu
samúðarkveðjur.
Ljósgeisli augna þinna er slokkn-
aður og þú hverfur frá þessari jörð,
frá þeirri mold sem allir eru sprottn-
ir frá.
Dauðinn er blanda tíma og eilífðar.
Þegar góður maður deyr eygjum við
eilífðina gegnum tímann.
(Goethe.)
Blessuð sé minning þín.
Eyjólfur Magnússon Scheving.
BJÖRGVIN ÞÓR
JÓHANNSSON
Fleiri minningargreinar um
Björgvin Þór Jóhannsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
! " #
$% &
'()*++
,)(!(+ #
! "
! ! " #$
% !
& % %'
!""
#$
%
%
&
'
& &
(''
) *
!"
#$% &'"
#"$"!" ()" &""
#"$")
#" "
#"$") *)"+,#" -$ ()" ).
!"#
! "##$
$#$%& &'()*&&$
&'() #+$,**"
$$- #+$,$&&$ +, )$ +, **"
&'() **" ! *.$*&&$
#!$ &'()**" /*+# 0$&1*&&$
/*& &'()*&&$ 2$#$ 2 3$#!**"
'$& $4 &'()**" 0'#
4 +$*&&$
"# ( 3*.5+$4
! "#$% & '(
! "
#$
$#%#&
" (
) *+" ,-. , // % (
' ( *0"
! !. (! ! !
!
!
!" #$ %&''
MIKIL áhersla er lögð á, að hand-
rit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er
æskilegt, að disklingur fylgi út-
prentuninni. Það eykur öryggi í
textameðferð og kemur í veg fyrir
tvíverknað. Þá er enn fremur unnt
að senda greinarnar í símbréfi
(569 1115) og í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að
símanúmer höfundar/sendanda
fylgi. Um hvern látinn einstakling
birtist formáli, ein uppistöðugrein
af hæfilegri lengd, en aðrar grein-
ar um sama einstakling takmark-
ast við eina örk, A-4, miðað við
meðallínubil og hæfilega línu-
lengd, - eða 2.200 slög (um 25
dálksentimetra í blaðinu). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmarkast
við eitt til þrjú erindi. Greinarhöf-
undar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Frágangur afmælis-
og minningargreina