Morgunblaðið - 26.08.2001, Page 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 2001 47
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669
Búðardalur Víðir Kári Kristjánsson 434 1148
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Ingibjörg Ólafsdóttir 478 8962
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Björn Ingólfsson 463 3131 463 3118
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Jón Ragnar Gunnarsson 451 3333
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 892 3392 894 8469
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913
Laugarvatn Ólöf Þórhallsdóttir 486 1136 862 1924
Mos./ Teigahv. Jóna M. Guðmundsdóttir 566 6400
Neskaupstaður Sigrún Júlía Geirsdóttir 477 1812 477 1234
Neskaupstaður Ægir Guðjón Þórarinsson 477 1372
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962
Neskaupstaður Bjartur Sæmundsson 477 1489
Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Stefanía Jónsdóttir 465 1179
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/868 0920/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey Jónsdóttir 452 2879 868 2815
Stokkseyri Halldór Ásgeirsson 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Gunnhildur Eik Svavarsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Gunnar Már Sigurgeirsson 456 2672
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Sumarhús
Til sölu nýtt sumarhús,
58 fm með svefnlofti
og verönd.
Húsið selst tilbúið til
innréttinga og flutnings.
Uppl. í s. 897 6224.
www.ismennt.is/not/eddakjar/sth_hus.htm
Innilega þakka ég fjölskyldu minni, ættingjum,
venslafólki og vinum, sem heiðruðu mig með
gjöfum, blómum og árnaðaróskum í tilefni átt-
ræðisafmælis míns 22. ágúst síðastliðins og
gerðu mér afmælið ógleymanlegt.
Andrés Ólafsson,
Árskógum 6,
Reykjavík.
KRISTNITAKAN á Alþingi árið
1000 er merkasti atburður – og
farsælasta löggjöf – í sögu þings
og þjóðar. Fræðimenn hafa leitt
fram ýmsar tilgátur um leynd-
ardóminn að baki ákvörðunar Þor-
geirs Ljósvetningagoða, er fór fyr-
ir heiðnum mönnum á Alþingi,
þegar hann sagði upp lög um krist-
inn sið. Leyndardóminn að baki
þess að goðar allir og þingheimur
féllust einróma á hinn nýja sið.
Sennilega verður sannleikurinn
allur seint sagður um þann for-
vitnilega aðdraganda. Um hitt er
ekki deilt að í meginhlutverkum
þessa sögulega viðburðar vóru
tveir einstaklingar, tveir örlaga-
valdar: 1) Síðu-Hallur Þor-
steinsson, Böðvarssonar hvíta,
landnámsmanns Þorleifssonar.
Móðir hans var Þórdís Özurardótt-
ir keiliselgs, Hrollaugssonar land-
námsmanns, Rögnvaldssonar jarls
á Mæri. 2) Þorgeir Ljósvetn-
ingagoði Þorkelsson, Grímssonar
af Roglandi, „er nam um Ljós-
vatnsskarð“. Hann hafði lögsögu á
Alþingi í 17 ár, 985 til 1002.
Hvað segja fornar heimildir um
þessa tvo merku örlagavalda í
sögu þjóðarinnar? Það er að hluta
til rakið í merkri bók Jóns Hnefils
Aðalsteinssonar, prófessors,
„Kristnitakan á Íslandi“ (Háskóla-
útgáfan 1999). Jón Hnefill setur í
bók sinni fram forvitnilega kenn-
ingu um mannblót heiðinna manna
í aðdraganda ákvörðunar þing-
heims árið 1000. Sú kenning er
ekki umfjöllunarefni í þessum
pistli. Fróðleiksfúsum er hins veg-
ar ráðlagt að kynna sér þessa for-
vitnilegu bók. Hér verður aðeins
staldrað við mannlýsingar á Síðu-
Halli og Þorgeiri Ljósvetn-
ingagoða. Jón Hnefill segir.
„Síðu-Halls er víða getið í Njáls
sögu. Þegar Flosi Þórðarson,
tengdasonur hans, bjó sig til að
hefna á Njálssonum vígs Hösk-
ulds, leitaði hann á fund margra
höfðingja, en: „Flosi vildi ekki
finna Hall, mág sinn, því að hann
þóttisk vita að hann myndi letja
allra sórvirkja.““ Þess er enn getið
er Ljótur, sonur Síðu-Halls, fellur í
bardaga. Hallur leitar ekki hefnda,
sem títt var, heldur bíður fram
sættir: „En ek vil vinna þat til
sætta að leggja son minn ógildan
ok ganga þó til að veita þeim bæði
tryggðir ok grið, er mínir mót-
stöðumenn eru …“. Þetta var fátíð
breytni á þeirri tíð. Síðu-Hallur
var friðarins maður en ekki heiftar
og hefnda. Jón Hnefill vitnar og til
fornra rita um Þorgeir Ljósvetn-
ingagoða og segir síðan: „Þær
ályktanir, sem af þessum heim-
ildum verða dregnar um Þorgeir
Ljósvetningagoða eru þær, að
hann hafi verið voldugur höfðingi
og goðorðsmaður, vel látinn og
friðsamur. Löng lögsaga ber vott
um hæfileika og almennt traust
…“ Í stuttu máli; maður friðar og
sátta.
Síðu-Hallur, sem fór fyrir
kristnum mönnum árið 1000, og
Þorgeir Ljósvetningagoði, sem
leiddi hina heiðnu fylkingu, fá báð-
ir þann dóm, að þeir hafi verið frið-
flytjendur. Síðu-Hallur selur Þor-
geiri Ljósvetningagoða í hendur að
segja upp hin nýju lög, sem reynd-
ust kristin lög. Og það undarlega
skeður: Goðar allir og þingheimur
meðtaka mótmælalaust. Þessi
þjóðsáttarlög fela í sér, „að allir
menn skuli kristnir vera og skírn
taka, þeir er áður vóru óskírðir á
landi hér“. Kristnir menn fallast á
móti á óbreytta stjórnskipan. Lög-
boðin afskipti goðanna af trú-
málum falla um sjálf sig, en þeir
halda veraldlegum völdum. Emb-
ætti þeirra verða veraldleg emb-
ætti.
Einar Laxnes segir í Íslands-
sögu sinni: „Auðveldan sigur
kristni má vafalaust þakka því
m.a., að heiðni stóð ekki djúpum
rótum, er hér var komið sögu;
menn vildu varðveita frið og góð
samskipti við aðar þjóðir …“ Árið
1000 hafði kristinn siður fest rætur
í flestum ríkjum, sem Íslendingar
höfðu samskipti við. Kristni hafði
og verið til staðar í landinu frá
fyrstu mannvist, þótt heiðnir menn
hafi ráðið stjórnskipan á land-
námsöld. Mestu máli skipti þó, að í
röðum beggja fylkinga, sem stóðu
gráar fyrir járnum á Alþingi, vóru
friðflytjendur, framsýnir menn,
Síðu-Hallur og Þorgeir Ljósvetn-
ingagoði, sem vildu miðla málum
og stuðla að sátt og samlyndi í
landinu.
Hallur og Þorgeir vóru friðflytj-
endur. Kristinn boðskapur er og
friðarboðskapur. Hann býður okk-
ar að elska náungann eins og sjálfa
okkur. Að breyta gagnvart öðrum
eins og við viljum að þeir breyti
gagnvart okkur. Að gjalda keis-
aranum, það er hinu veraldlega
valdi, það sem hans er, – og Guði
það sem Guðs er. Páll postuli
sagði: „Látið frið Krists ríkja í
hjörtum yðar, því að til friðar vór-
uð þér kallaðir sem limir á einum
líkama …“ Megi sá friður ríkja
með þjóðum heims. Með okkur öll-
um og sérhverjum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Kirkjan á þjóðhelgum Þingvöllum.
„Til friðar voruð
þér kallaðir“
Síðu-Hallur Þorsteinsson og Þorgeir
Ljósvetningagoði Þorkelsson vóru frið-
flytjendur og lykilmenn við kristnitöku á
Alþingi árið 1000. Stefán Friðbjarn-
arson staldrar við þessa örlagavalda í
sögu þjóðarinnar.
HUGVEKJA
ÞEIR Andrés Þór Gunnlaug-
son gítarleikari og Árni Heiðar
Karlsson píanóleikari eru að
fara utan til náms í haust og
munu halda kveðjutónleika í
Húsi Málarans annað kvöld,
mánudagskvöld, kl. 21.
Meðleikarar þeirra á tónleik-
unum eru þeir Tómas R. Ein-
arsson kontrabassaleikari og
Erik Qvick trommuleikari.
Ranghermt var í blaðinu í
gær að tónleikarnir færu fram
á sunnudagskvöld. Beðist er
velvirðingar á því.
Djass í Húsi
málarans
ÓSKAR Halldórsson Holm flytur
meistaraprófsfyrirlestur við eðlis-
fræðiskor raunvísindadeildar Há-
skóla Íslands þriðjudaginn 28. ágúst
2001 kl. 16:15 í stofu 158 í húsi VR-II
við Hjarðarhaga. Fjallar hann um
varmaeiginleika segulmagnaðra
nifteindastjarna.
Í fyrirlestrinum er gerð nánari
grein fyrir meistaraverkefninu þar
sem varmaeiginleikarnir eru kann-
aðir í smáatriðum. Sýnt er með
dæmum í fyrirlestrinum hvaða áhrif
sterkt segulsvið hefur á varmaeig-
inleika efnisins í kápunni. Að lokum
eru niðurstöður settar fram og þær
bornar saman við niðurstöður úr
öðrum sambærilegum rannsóknum.
Í umsjónarnefnd eru Einar H.
Guðmundsson prófessor sem er að-
alleiðbeinandi og Gunnlaugur
Björnsson vísindamaður. Prófdóm-
ari er Viðar Guðmundsson prófess-
or. Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Fyrirlestur
um nift-
einda-
stjörnur
SUNNUDAGINN 26. ágúst verður
hin árlega lokabrenna og flugelda-
sýning haldin í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum í Laugardal.
Þá um kvöldið verður frítt inn frá
kl. 21 en garðinum verður lokað um
kl. 22.30, eða þegar flugeldasýning-
unni lýkur.
Matthías Kormáksson harmon-
ikkuleikari mætir og mun hann
ásamt söngtríóinu Skrokkskjóðum
halda uppi fjörinu við brennuna.
Þess má geta að eftir sunnudaginn
26. ágúst verða rafmagnstæki, tor-
færubílar o.fl. tekin inn fyrir haustið.
Fjölskyldugarðurinn verður eftir
sem áður opinn sem útivistarsvæði
og Húsdýragarðurinn verður opinn
frá klukkan 10.00 til 17.00 alla daga.
Flugeldasýning
í Fjölskyldu-
og húsdýra-
garðinum
JÓN Ingi Sigurmundsson sýnir 20
olíu-, pastel- og vatnslitamyndir
íveitingastofunni Þrastarlundi í
Grímsnesi. Sýningin stendur út
ágústmánuð.
Sýnir í
Þrastarlundi
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Þyngd Boeing 747
Rangar upplýsingar komu fram í
fréttaskeyti AP-fréttastofunnar um
óhapp á flugvellinum í Kúala Lúmp-
úr í fyrradag og greint var frá í
myndatexta á forsíðu Morgunblaðs-
ins í gær. Þar sagði að þyngd Boeing
747-400 þotu væri um 800 tonn. Sam-
kvæmt upplýsingum á vefsetri
Boeing-verksmiðjanna er hámarks
flugtaksþyngd 747-400 þotunnar
tæp 400 tonn.
LEIÐRÉTT
ATVINNA mbl.is