Morgunblaðið - 26.08.2001, Side 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 2001 39
✝ Sigurður FannarGuðnason fædd-
ist í Reykjavík 27.
júní 1949. Hann lést
á heimili sínu að-
faranótt þriðjudags-
ins 21. ágúst síðast-
liðins. Foreldrar
hans voru Þorbjörg
Sigurðardóttir og
Guðni Guðnason
sem eru bæði látin.
Sigurður átti einn
bróður Geir Guðna-
son, sem kvæntur er
Ásbjörgu H. Guðna-
son og eiga þau tvö
börn Gary og Lindu Guðnason.
Þau eru búsett í Bandaríkjunum.
Einnig átti Sigurður einn upp-
eldisbróður Gunnar Gunnarsson.
Hinn 24. febrúar 1968 kvæntist
Sigurður eftirlifandi eiginkonu
sinni Ólu Helgu Sigfinnsdóttur,
f. 25. september 1947. Hún er
dóttir hjónanna Val-
gerðar Ólafsdóttur
og Sigfinns Karls-
sonar. Börn Sigurð-
ar og Ólu eru: 1)
Vala Vigdís, f. 10.
september 1968, d.
15. júlí 1987. 2)
Guðný Björg, f. 15.
apríl 1976, sambýð-
ismaður Þorsteinn
Birkir Sigurðarson,
f. 5. janúar 1975, og
þeirra sonur er
Kormákur Daði, f.
16. maí 1997. Þau
eru bæði við nám í
Danmörku. 3) Sigfinnur Fannar,
f. 5. október 1978, er við nám í
Bandaríkjunum.
Útför Sigurðar Fannars fer
fram frá Aðventkirkjunni í
Reykjavík á morgun, mánudag-
inn 27. ágúst og hefst athöfnin
klukkan 15.
Elsku Siggi minn. Þrjátíu og
fjögur ár skilja eftir margar minn-
ingar, sem ég ætla ekki að rekja
hér en þóvil ég segja að mestu
hamingjudagarnir okkar voru án
efa þegar börnin okkar fæddust og
svartasti og versti dagurinn sem
við upplifðum var dagurinn sem
við gátum aldrei gleymt né sætt
okkur við þegar við misstum elsku
Völuna okkar í bílslysi.
Elsku vinur, ég vil kveðja þig
með þessu kvæði eftir Diddu vin-
konu okkar og þakka þér sam-
fylgdina.
Þegar æfi-röðull rennur
rökkva fyrir sjónum tekur,
sár í hjarta sorgin brennur
söknuð, harm og trega vekur.
Hart þú barðist huga djörfum
með hetjulund til síðsta dagsins
í öllu þínu stríði og störfum
sterkur varst til sólarlagsins.
Öllum stundum, vinur varstu
veittir kærleiks yl af hjarta.
Af þínum auði okkur gafstu
undurfagra minning bjarta.
(Aðalbjörg Magnúsdóttir.)
Hvíldu í friði.
Þín eiginkona
Óla Helga.
Elsku pabbi.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Guð geymi þig, elsku pabbi. Við
þökkum þér fyrir allt sem þú gafst
okkur og söknum þín sárt.
Þín börn
Guðný Björg og
Sigfinnur Fannar.
Kæri afi. Þú hefur verið fastur
punktur í allri tilveru minni. Ég
man brosandi augu þín, hönd þína
sem leiðbeindi mér, arm sem forð-
aði mér frá vá og ruggaði mér í
svefn. Þú ert hluti af lífi mínu.
Hluti af mér. Um eilífð.
Þinn afastrákur
Kormákur Daði.
SIGURÐUR FANNAR
GUÐNASON
Legsteinar
Vönduð íslensk framleiðsla
Fáið sendan myndalista
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986
MOSAIK
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít
við Nýbýlaveg, Kópavogi
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 551 3485 • Fax 568 1129
Áratuga reynsla
í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Vaktsími allan sólarhringinn
896 8284
✝ Sigríður Ingi-björg Jónsdóttir
fæddist á Ísafirði 9.
október 1947. Hún
lést á Landspítalan-
um í Fossvogi 13.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar Sigríðar
Ingibjargar voru
Jón Helgason mat-
sveinn, f. á Ísafirði
27. september 1909,
d. 26. október 1981,
og Fanney Þorgerð-
ur Gestsdóttir, hús-
móðir og klæðskeri,
f. í Reykjavík 15.
febrúar 1924, d. 9.1. 2000. Fann-
ey Þorgerður var alin upp á
Hamri á Langadalsströnd við Ísa-
fjarðardjúp, en fósturmóðir
hennar, sem var einnig ömmu-
systir hennar, var Sigríður Guð-
mundsdóttir, gift Hávarði Guð-
mundssyni. Faðir Fanneyjar
Þorgerðar var Gestur, sonur Sig-
fúsar Bjarnasonar frá Eyjum í
Strandasýslu og konu hans Sal-
ome Þorbjörnsdóttur, en móðir
hennar var Guðný, dóttir Þorgils
Þorgilssonar frá Skálavík í Ísa-
fjarðardjúpi og konu hans Guð-
rúnar Guðmundsdóttur. Jón
Helgason var sonur Helga á Hall-
bjarnareyri Elíassonar og Guð-
mundu Sturlínu Maríasdóttur á
Ísafirði Benónýssonar, Gunnars-
sonar. Móðir Guðmundínu var
Guðrún Sturludóttir, hreppstjóra
í Görðum í Aðalvík, Bárðarsonar,
bónda á Hóli í Bolungarvík
Sturlusonar bónda í Þjóðólf-
stungu, Sturlusonar. Móðir Bárð-
ar var Ingibjörg Bárðardóttir,
ættföður Arnardalsættarinnar,
Illugasonar. Móðir Guðrúnar var
dóttur húsmóður, f. í Eyrarhús-
um í Tálknafirði 3.10. 1919, d.
13.6. 1995. Börn Sigríðar og Ás-
geirs eru: 1) Fanney Elín, hús-
móðir og starfsmaður á leikskóla,
f. 23.11. 1967, gift Þorsteini Hall-
dórssyni heildsala og eru börn
þeirra Helgi Pétur, f. 20.8. 1987,
Ágúst Ólafur, f. 16.9. 1980, Krist-
jana Ragnheiður, f. 20.3. 1992, og
Steinunn Ingibjörg, f. 1.2. 1998.
2) Ingibjörg, húsmóðir og starfs-
maður á gæsluvellli, f. 14.8. 1971,
sambýlismaður Árni Þór Hall-
grímsson badmintonþjálfari og
eru börn þeirra Jóhann Páll, f.
24.5. 1990, María, f. 25.10. 1993,
og Sigríður, f. 23.5. 1996. 3) Sig-
urður lagermaður, f. 30.4. 1973,
og eru börn hans Ída María, f.
12.2. 1997, og Halldór Þór, f. 2.4.
2000, sambýliskona Stefanía Hall-
dórsdóttir, húsmóðir og land-
fræðingur.
Sigríður Ingibjörg ólst upp hjá
foreldrum sínum á Ísafirði. Til
Reykjavíkur fluttist hún síðan til
að stunda nám við Húsmæðra-
skólann í Reykjavík og lauk það-
an prófi 1965. Vann Sigríður
Ingibjörg að því loknu í Hattabúð
Soffíu Pálma 1965–68 og stund-
aði síðan húsmóðurstörf eftir að
hún gifti sig. Hún starfaði síðan í
verslun KRON við Snorrabraut
1977–82. Þaðan réðst hún til
starfa í eldhúsinu á Droplaug-
arstöðum við Snorrabraut frá
árinu 1982. Þá starfaði hún
óhemjumikið innan Starfsmanna-
félagsins Sóknar og sat meðal
annars í stjórn Sóknar frá árinu
1989 allt þar til félagið samein-
aðist öðrum félögum í Eflingu.
Þar sat hún í stjórn þar til hún
varð frá að hverfa vegna veik-
inda.
Útför Sigríðar Ingibjargar
verður gerð frá Grafarvogskirkju
á morgun, mánudaginn 27. ágúst,
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Judit Bjarnadóttir,
bónda í Görðum,
Halldórssonar,
hreppstjóra á Látr-
um, Bjarnasonar.
Börn þeirra Fanneyj-
ar Þorgerðar og Jóns
eru auk 1) Sigríðar
Ingibjargar, sem var
þeirra elst: 2) Háv-
arður Jónas, fisk-
verkamaður í Sand-
gerði, f. 17.8. 1949,
kvæntur Huldu Jó-
hannsdóttur, húsmóð-
ur og fiskverkakonu,
á fjögur börn. 3) Jens
Sturla, matsveinn Ísafirði, f. 28.9.
1950, kvæntur Jórunni Sigurðar-
dóttur sjúkraliða, og eiga þau
þrjú börn, þau skildu. 4) Garðar
Gunnar sjómaður, f. 28.9. 1950,
fórst á sjó 29.11. 1974, kvæntur
Sesselju Ingólfsdóttur, húsmóður,
hjúkrunarfræðingi og ljósmóður
og eiga þau tvö börn. 5) Þorfinn-
ur Helgi, f. 4.5. 1957, lést í frum-
bernsku.
Sigríður Ingibjörg kvæntist Ás-
geiri Hreindal Sigurðssyni 13.4.
1968. Ásgeir er sonur Sigurðar
Kristjánssonar, húsgagnasmíða-
meistara og listmálara frá Mið-
húsum í Garði, f. 14.2. 1897, og
konu hans Kristjönu Bjarnadótt-
ur, húsmóður frá Hraunsmúla í
Staðarsveit, f. 3.9. 1910. Sigríður
og Ásgeir skildu. Sigríður Ingi-
björg giftist Þóri Þórissyni, yf-
irdeildarstjóra hjá Landssíma-
num, 11.10. 1997. Þór er sonur
Þóris Valdemarssonar, þúsund-
þjalasmiðs við Kristneshælið, f. á
Stóra-Hamri í Eyjafjarðarsýslu
30.10. 1906, d. 28.2. 1988, og
konu hans Guðrúnar Kristjáns-
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum
lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur.)
Með söknuði kveðjum við Siggu
mágkonu mína og minnumst þeirra
góðu stunda sem við áttum með
henni. Við biðjum góðan Guð að
vernda og styrkja Dadda, Fanneyju,
Ingibjörgu, Sigga, maka þeirra og
börn, einnig bræður hennar og fjöl-
skyldur þeirra. Blessuð sé minning
þín Sigga mín og Guð geymi þig.
Sigrún og börn.
Skjótt hefur sól brugðið sumri.
Skuggi sorgar byrgði skyndilega
fyrir skin síðsumarssólarinnar þeg-
ar Sigga mágkona og frænka okkar
varð að lúta í lægra haldi eftir hetju-
lega baráttu við illvígan sjúkdóm.
Það er komið að kveðjustund og
minningarnar streyma fram. Þegar
við hugsum um samferð okkar í þá
rúmu þrjá áratugi sem leiðir okkar
lágu saman koma einungis upp í
hugan bjartar og hlýjar minningar.
Sigga ólst upp á Ísafirði með for-
eldrum sínum og systkinum í
Mjallagötunni. Þegar hún hafði slit-
ið barnsskónum flutti hún suður og
stofnaði sitt eigið heimili sem alla tíð
bar vott um dugnað og myndarskap.
Mín fyrstu kynni af Siggu voru
þegar hún kom vestur í heimsókn á
æskustöðvarnar og var undirrituð
þá farin að venja komur sínar í
Mjallagötuna. Þá komu vel í ljós
mannkostir Siggu, hún bankaði á
dyrnar hjá bróður sínum, opnaði
dyrnar og sagði: „Ætlarðu ekki að
koma niður og sýna hana.“ Já, þann-
ig var Siggu rétt lýst, hún var heil
og óskipt í öllu er hún tók sér fyrir
hendur. Hún var jafnan glaðsinna
og græskulaus gamanyrði lágu
henni létt á tungu enda dró hún að
sér marga góða og trausta vini sem
studdu þétt við bakið á henni í veik-
indum hennar. Það þarf ekki að orð-
lengja það að frá upphafi urðum við
bestu vinkonur, því í návist Siggu
var svo þægilegt og sjálfsagt að
vera. Hógværð hennar og umhyggja
gerði hana að kjölfestu í lífi margra
og ekki síst okkar mæðgnanna þeg-
ar dró ský fyrir sólu í lífi okkar.
Elsku Sigga, á kveðjustund er
okkur efst í huga þakklæti fyrir
samfylgdina við þig, allt það sem þú
miðlaðir af trausti og vináttu og
deildir með okkur í gleði og sorg.
Megi blíðar og góðar minningar um
traustan vin færa fjölskyldu þinni
birtu og yl um ókomna tíð.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Sesselja, Helga og Gerður.
Nú þegar dimma fer á kvöldin og
myrkrið minnir okkur á að haustið
sé í nánd með hnignun alls gróðurs,
er komið að annarri kveðjustund.
Hún Sigga vinkona mín er dáin,
eftir langvinn og erfið veikindi, hef-
ur hún kvatt okkur öll, sem nú
syrgjum við brottför hennar.
Leiðir okkar Siggu lágu saman á
vinnustað fyrir rúmum 13 árum, og
með okkur tókst fljótlega góð vin-
átta, sem aldrei hefur fallið skuggi
á, enda var hún ein besta og elsku-
legasta manneskja sem ég hef hitt,
án þess að ég hafi umgengist svo
mikið af vondu fólki um dagana.
Hún Sigga mín var hjartahlý og
hreinskiptin, og naut trausts bæði
vinnuveitanda og samstarfsfólks,
hún var trúnaðarmaður á vinnustað
og sat í stjórn Starfsmannafélagsins
Sóknar í mörg ár. Auk þess sá hún
um veitingar fyrir félagið við nám-
skeiðsslit og var ein aðalmanneskj-
an í veitingaliðinu á 1. maí og á spila-
kvöldum Sóknar og Framsóknar,
það var verulega gott að vinna með
henni á slíkum stundum því hún var
vel verki farin og skipulögð til
verka, dugleg og ósérhlífin. Þá má
ekki gleyma Sóknarferðunum, því
hún Sigga var góður og skemmti-
legur ferðafélagi, ég minnist ferða í
Herðubreiðarlindir, Öskju og um
hluta af Þingeyjarþingi. Vestfjarða-
ferð, ferð í Þjórsárdal og síðustu
ferðina okkar sem við fórum fyrir
tæpu ári að Kirkjubæjarklaustri og
niður um Meðalland. Í þessum ferð-
um tíndi Sigga steina í steinasafnið
sitt, óð berfætt í lækjum og grunn-
um bergvatnsám, á kvöldin var farið
í gönguferð með vasapela, eða kíkt á
bar ef hann var til staðar.
Ég minnist líka haust-, vetrar- og
vorkvölda þegar farið var út að
borða eða kíkt á ball, jafnvel að
hvort tveggja væri gert, þó var einn
skemmtistaður sem við áttum eftir
að heimsækja, en það bíður þar til
við hittumst síðar.
Stóra happið hennar Siggu var að
kynnast honum Þór, þau áttu saman
nokkur góð ár, þó þau væru alltof fá.
Það var svo mikil gleði og hamingja
sem einkenndi afmælis- og brúð-
kaupsveisluna fyrir tæpum fjórum
árum, engum datt í hug að svo
skammur tími væri eftir.
Það var líka mikil gleði yfir
yngsta barnabarninu, honum litla
Þór, sem amman talaði mikið um,
því þó henni þætti vænt um öll
ömmubörnin sín þá var auðheyrt að
hann var í mestu dálæti hjá henni.
Nú að leiðarlokum, þegar svo
margs er að minnast, leitar hugur
minn líka til fjölskyldunnar sem svo
mikið hefur misst.
Kæri Þór, Sigurður, Ingibjörg,
Fanney og fjölskyldur, ég sendi
ykkur mínar innilegustu samúðar-
kveðjur, megi almættið styrkja ykk-
ur á þessum erfiðu sorgartímum.
Sveinn.
SIGRÍÐUR INGI-
BJÖRG JÓNSDÓTTIR
Fleiri minningargreinar um Sig-
ríði Ingibjörgu Jónsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.