Morgunblaðið - 08.11.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.11.2001, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ STEFNT er að því að átta manna vinnuhópur um varð- veislu og frágang fornminj- anna við Aðalstræti skili loka- niðurstöðu fyrir sumarbyrjun 2002. Erindisbréf vinnuhóps- ins var lagt fram í borgarráði á þriðjudag. Hlutverk hans er að gera áætlanir og tillögur um varðveislu og frágang fornminja við Aðalstræti, með það í huga að þær verði aðgengilegar, áhugaverðar og þjóni mikilvægu hlutverki í fræðslu um sögu borgarinnar og byggðar í landinu. Formaður hópsins er Anna Margrét Guðjónsdóttir menningarfulltrúi og aðrir meðlimir eru Helga Jónsdótt- ir borgarritari, Stefán Her- mannsson borgarverkfræð- ingur, Þorvaldur S. Þorvaldsson skipulagsstjóri, Guðný Gerður Gunnarsdóttir borgarminjavörður, Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminja- vörður, Óskar Magnússon, stjórnarformaður Þyrpingar, og Sveinn Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðn- aðarins. Verkefni hópsins eru m.a. þau, að finna leiðir til að gera fornminjar aðgengilegar og gera áætlun um hvernig megi tengja þær fræðslu um sögu borgarinnar og byggðar í landinu auk þess að gera áætlun um hvernig megi nýta fornminjar í þágu menning- artengdrar ferðaþjónustu. Þá verður leitast við að fram- setning verði með þeim hætti að þeir sem skoða svæðið skynji að fornminjarnar eru einstakar. Þá á að samræma fyrirhugaða nýtingu á reitn- um og aðgengi að fornminj- unum og gera áætlun um hvernig tengja megi forn- minjarnar öðrum menningar- verðmætum í Aðalstræti, s.s. nýtingu í elsta húsi borgar- innar. Fornminjarnar styrki miðborgina Ennfremur á að gera áætl- un um hvernig nýta megi fornminjarnar til að styrkja miðborgina sem vöggu ís- lenskrar byggðar. Gert er ráð fyrir að vinnuhópurinn skili áfangaskýrslu 1. febrúar 2002 og lokaniðurstöðu fyrir sum- arbyrjun 2002. Í greinargerð með erindis- bréfinu kemur m.a. fram að borgarráð hafi á síðasta ári ákveðið að gerð yrði rann- sókn á fornminjum sem vitað var um á horni Túngötu og Aðalstrætis. Rannsóknin var unnin í tengslum við gerð deiliskipulags fyrir svæðið og áhuga á byggingu hótels þar. Segir ennfremur í greinar- gerðinni að fornminjarnar sem grafnar voru upp, séu meðal merkilegustu minja um upphaf byggðar í landinu, en þær séu hluti af híbýlum landnámsmanna Íslands og varði því ekki aðeins Reyk- víkinga heldur landsmenn alla. Sérstaða þeirra felist einnig í því að fáar ef nokkrar þjóðir eigi minjar um fyrstu búsetu og þannig megi segja að þær falli í flokk merkustu minja heims. Á sama stað sé að finna minjar um upphaf kaupstaðarins Reykjavík og iðnaðar í landinu. „Varðveislu minjanna og frágangi ber því að sýna sóma um leið og hafa ber í huga að þær verði aðgengilegar öll- um. Þekkingu þeirri, sem afl- að verður með rannsóknun- um, ber að miðla til íbúa landsins, ekki síst barna, og ferðamanna sem sækja borg- ina heim en margar kannanir staðfesta að áhugi á menning- artengdri ferðaþjónustu vex stöðugt,“ segir þar ennfrem- ur. Átta manna vinnuhópur um fornminjarnar á horni Aðalstrætis og Túngötu Fornminjarnar verði aðgengilegar öllum Miðborg ÁRNI Þór Sigurðsson, for- maður skipulags- og bygg- ingarnefndar Reykjavíkur- borgar, telur að hótelstarfsemi á horni Tún- götu og Aðalstrætis, þar sem fornminjar frá landnámsöld hafa verið grafnar upp, sé já- kvæð fyrir Kvosina og geti bygging á horninu styrkt götumyndina í Aðalstræti. Þessu lýsti hann á fundi um skipulag og minjavernd á vegum Félags íslenskra safna og safnamanna, sem haldinn var á þriðjudagskvöld. Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, lýsir hins vegar sambúð hótels og fornminj- anna sem „klúðri“. Árni sagði að skipulags- og byggingarnefnd hefði ekki tekið afstöðu til margvíslegra athugasemda sem hafa borist vegna tillögu að deiliskipulagi fyrir Grjótaþorpið en í und- irbúningi væru breytingartil- lögur við deiliskipulagið þar sem taka þyrfti tillit til at- hugasemdanna. „En það er líka augljóst að óhjákvæmi- legt er að skoða nýju deili- skipulagstillöguna í ljósi þess sem hér er sérstaklega til umræðu. [fornminja] Að mínu mati þarf að huga að því hvernig deiliskipulagið fyrir Grjótaþorp lýsir forn- leifunum og því, hvernig varðveita á þær og hvernig aðgengi verður að þeim. Þá þarf að huga að því hvort fornleifarnar kalli á sérstaka skipulagslega stöðu umfram það eða til viðbótar því sem kveðið er á um í þjóðminja- lögum.“ Árni sagði að deili- skipulagið gerði líka ráð fyrir uppbyggingarmöguleikum, en þar vægju þyngst áformin um hótel á horni Aðalstrætis og Túngötu. „Ég tel að hót- elstarfsemi sé jákvæð fyrir Kvosina og ef vel tekst til um hönnun í anda þess sem sýnt hefur verið, þá geti bygging á þessu horni styrkt götu- myndina í Aðalstræti og átt sinn þátt í að ná fram þeim markmiðum sem við höfum mótað í þróunaráætlun mið- borgarinnar. Ég tel raunar að uppbygging hótelsins ann- ars vegar og varðveisla forn- minjanna hins vegar geti stutt hvort annað, verið hvort öðru lyftistöng um leið og það myndi styrkja miðborg Reykjavíkur verulega.“ Þarf að endurskoða deili- skipulagið frá grunni Ólafur F. Magnússon borg- arfulltrúi segir að endur- skoða þurfi deiliskipulagið frá grunni út frá fornminjunum sem fundust og segir ekki nóg að gert þótt reynt hafi verið að hliðra til í áætlunum vegna fornminjanna. „Það er verið að reyna lagfæra hlut- ina út frá þeirri áætlun að hafa þarna hótel og mér sýn- ist að mörgu leyti að það geti ekki orðið annað en klúður úr því, þótt reynt sé að gera vel með því að endurbyggja margar gamlar byggingar. Mér sýnist þrengt það mikið að fornminjunum að þær fái ekki þann sess sem þær eiga að skipa á svæðinu, ekki síst varðandi varðveislu þeirra, sögulega þýðingu og aðgengi almennings. Það þarf að end- urskoða skipulagið því það er ekki víst að að það sé farsæl lausn á þessu máli að bæta það skipulag sem búið var að setja inn, með hótelbyggingu og fleira. Ég hef miklar efa- semdir um að hótelbygging eigi heima á þessum reit enda verða fornminjarnar að hafa algjöran forgang og skipuleggja verður svæðið út frá þeim,“ segir Ólafur en hann segist reiðubúinn að fylgja skoðun sinni eftir með tillöguflutningi í borgar- stjórn. Árni Þór Sigurðsson um sambúð fornminja og hótelbyggingar í Aðalstræti Hótelstarfsemi jákvæð fyrir Kvosina Grjótaþorp Ólafur F. Magnússon varar við „klúðri“ HOLLVINIR Ingólfsbæjar hafa afhent Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur borg- arstjóra lista með undir- skriftum 133 íbúa í Grjótaþorpi og grennd auk 224 úr öðrum hverfum þar sem skorað er á borgaryf- irvöld að hverfa frá áform- um um byggingar eða ann- að umrót í suðausturhorni Grjótaþorps sem þrengi að Ingólfsbæ og eðlilegri þró- un svæðisins sem menning- ar- og sögusetur. Hafa Holl- vinir Ingólfsbæjar sent borgarstjóra svohljóðandi áskorun: „Við undirrituð viljum standa vörð um fornleifar þær sem fundust við Að- alstræti á liðnu sumri og teljum þær ómetanleg menningarverðmæti. Þarna er stigið fram úr myrkri aldanna heimili einnar fyrstu fjölskyldu sem settist að í landinu og fátt líklegra en húsráðendur þar á bæ hafi eins og sögur herma verið landnámshjónin Ing- ólfur Arnarson og Hallveig Fróðadóttir. Slíkri þjóð- argersemi ber að veita veg- legan umbúnað. Við skorum á borgarstjórn Reykjavíkur að vísa á bug öllum áform- um um bygginar eða annað umrót í suðausturhorni Grjótaþorps sem þrengi að Ingólfsbæ og eðlilegri þró- un þessa svæðis sem menn- ingar- og sögusetur. Því hefur verið haldið fram að sátt væri meðal íbúa í hverfinu um þau áform að reisa hótel og bíla- geymslu yfir og undir forn- minjunum, en undirskrift- arskjölin bera öðru vitni.“ Mótmæla öllu umróti sem þrengi að Ing- ólfsbæ ÞESSA viku hefur staðið yfir þemavika í Laugarnes- skóla með því að vikið hef- ur verið frá hefðbundinni stundaskrá og unnið þess í stað að fjölbreyttum verk- efnum um sólkerfið og geimferðir. Nemendur 1.– 4. bekkjar hafa starfað saman í vinnu- hópum og fræðst m.a. um tímatal, myndun og sér- stöðu Jarðar, lært um sól- ina og tunglið og margt fleira. Nemendur 5. – 7. bekkjar störfuðu saman að verk- efnum um tunglið, sólkerf- ið, geimferðir og stjörnu- merki og á morgun, föstudag, munu allir nem- endur skólans sýna verk- efnin sem þeir hafa glímt við í vikunni. Vinnan fór fram á mörg- um vinnustöðvum sem sett- ar voru upp í skólanum og voru leikfimihús skólans, smíðastofur auk kennslu- stofa í gær undirlögð af rannsakandi nemendum, sem ýmist voru að smíða líkan af reikistjörnum í réttum hlutföllum, æfa geimdans eða klippa út sól- ir svo eitthvað sé nefnt. Nokkrir eldhressir strák- ar, þeir Ágúst Pálsson og Róbert Eyþórsson báðir 10 ára og Rúnar Guðbjartsson 11 ára voru önnum kafnir við smíðar á stjörnumerkj- um úti í smíðastofu, svo varla sást til sólar fyrir saginu sem gekk undan þeim. Hins vegar var ekk- ert sem skyggði á sólirnar sem nokkrir yngri nemend- anna voru að búa til í stofu 10, sem eiga að fara í óróa með tungli, sól og Jörð. Þau Marteinn Sindri Jónsson 12 ára í 7.K og Viktoría Halldórsdóttir 11 ára í 6.S höfðu m.a. verið að fjalla um tónlist í geimn- um og skýrðu frá vinnunni. Þau áttu að semja tónlist um nokkur orð að eigin vali og segir Marteinn að sinn hópur hafi valið orðin „hringur“, „flott“ og „loft- steinar“. „Síðan áttum við að nota hljóðfæri til að túlka orðin. Við notuðum symbal, píanó, selló, trommur, sílófón og hrossabrest,“ sagði hann. „Áður hélt ég að geim- tónlist stæði fyrir eitthvað stórt og mikilfenglegt eins og í Star Wars og það hef- ur ekkert breyst, en við höfum lært mikið um plán- eturnar.“ Viktoría var ekki lengi að svara því hver væri eft- irlætisplánetan hennar, en það er Venus vegna þess að „Venus byrjar á V og ég líka,“ sagði hún. Aðspurð um tónlist og geiminn sagði hún tónlistina geta tjáð margt. „Hún getur verið bæði róleg og „lítil“ eins og Plútó og dimm og köld eins og Plútó líka af því stjarnan er svo langt í burtu.“ Hún sagðist gjarnan vilja flytja til einhverrar reiki- stjörnu og var ekki lengi að máta spyrjandann þegar hún var spurð hvað hún myndi taka með sér í geim- ferðina. „Stóra borg á stærð við Lundúni.“ Sólkerfið í smíðum í Laug- arnesskóla Laugarnes Morgunblaðið/Golli Þessar sólir eru klipptar út og verða síðar óróaskraut ásamt jörð og tungli. Viktoría og Marteinn Sindri í Laugarnesskóla. MARKMIÐ sem sett voru þegar Hitaveitan, Rafmagnsveitan og Vatnsveitan voru sam- einuð í Orkuveitu Reykjavíkur hafa náðst samkvæmt nýrri úttekt PriceWaterhouseCoop- er. Úttektin var gerð að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðismanna. Í skýrslunni kemur fram að rekstrarhagnaður hefur aukist um 1200 milljónir frá 1998, laun hafa hækkað og launa- munur kynja minnkað. Þá hefur starfsmönnum fækkað um 10 af hundr- aði. Samkvæmt skýrsl- unni er það mat Pri- ceWaterhourseCoopers að þjónustustig Orku- veitunnar hafi hækkað og bent er á að raf- magnsverð hafi lækkað um 13%, heitt vatn um 3,5% og kalt vatn um 7% á tímabilinu, sem verði að teljast góður árangur miðað við þau markmið sem sett voru með sam- einingunni. Markmið Orku- veitunn- ar hafa náðst Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.