Morgunblaðið - 08.11.2001, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2001 65
DAGBÓK
LJÓÐABROT
VIÐLÖG
Ljúfan mann leit eg þann
við borgir.
Hvar hann er,
bíður hann engar sorgir.
Þegar á unga aldri.
Lifi eg enn
og leik mér aldri.
Blessi drottinn berin á því lyngi.
Hátt og lengi
harpan mín syngi.
Árnað heilla
Á MIKILVÆGU andartaki
í úrslitaleik Bandaríkja-
manna og Norðmanna á
HM í París kom Peter
Weichsel út með tromp
gegn sex hjörtum og
hnekkti þannig slemmu sem
ekki var sögð á hinu borð-
inu. Nokkru áður hafði Geir
Helgemo spilað út laufás
gegn sex spöðum, þegar
tromp út hefði verið ban-
vænt:
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♠ G984
♥ 7
♦ D1043
♣K1073
Vestur Austur
♠ 7 ♠ 632
♥ D1032 ♥ KG64
♦ 962 ♦ Á8
♣ÁG842 ♣D965
Suður
♠ ÁKD105
♥ Á985
♦ KG75
♣–
Í lokaða salnum stönsuðu
Norðmennirnir Brogeland
og Sælensminde í fimm
spöðum eftir slemmuþreif-
ingar og fengu tólf slagi.
Hinum megin sögðu
Stansby og Martel slemm-
una:
Vestur Norður Austur Suður
Helgemo Stansby Helness Martel
– – – 1 spaði
Pass 3 spaðar Pass 4 tíglar
Pass 4 spaðar Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Eftir þessar tiltölulega
lokuðu sagnir kom Helgemo
út með laufásinn. Það var
þægilegt fyrir sagnhafa, því
nú var nóg að trompa hjarta
tvisvar í borði og henda einu
niður í laufkóng. Vörnin
fékk aðeins slag á tígulás.
Útspil í hjarta gerir sagn-
hafa erfiðara fyrir, en dugir
þó ekki til að hnekkja
slemmunni. Þá er hjarta
stungið í öðrum slag, farið
heim á spaða og hjarta
trompað. Síðan er farið
heim með lauftrompun og
síðasta hjartað trompað. Og
nú er óhætt að spila tígli.
En með spaða út er engin
leið að ná í tólf slagi. Ef
sagnhafi reynir að trompa
öll hjörtun í borði þarf hann
að ferðast heim með lauf-
stungum og þá styttist hann
of mikið. Og hitt gengur
heldur ekki að spila tígli, því
þá notar austur tækifærið
og trompar aftur út.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4
4. Dc2 O-O 5. a3 Bxc3+ 6.
Dxc3 b6 7. Bg5 c5 8. dxc5
bxc5 9. Rf3 a5 10. Rd2 Bb7
11. f3 h6 12. Bh4 a4 13. e3
d6 14. Bd3 Rbd7 15. O-O-O
Da5 16. Dc2 Hfb8 17. g4
Bc6 18. Bg3 Re5 19. Bxe5
dxe5 20. h4 Rd7 21. Bh7+
Kh8 22. Be4 Db6 23. Hh2
Ha7 24. Bxc6 Dxc6 25. Re4
Hab7 26. g5
Hxb2 27.
Dxb2 Hxb2
28. Hxb2
Dc7 29.
gxh6 gxh6
Bragi
Þorfinns-
son (2393)
stendur nú í
stórræðum
í landsliði
Íslendinga í
Leon á
Spáni í Evr-
ópukeppni
landsliða.
Hann er á
þriðja borði
en ekki hef-
ur meðaldur íslensku lið-
anna verið jafnlágur og nú.
Staðan kom upp í minning-
armóti Jóhanns Þóris Jóns-
sonar þar sem Bragi hafði
hvítt gegn Magnúsi Erni
Úlfarssyni (2298). 30.
Hxd7! Dxd7 31. Hb8+ Kg7
32. Hg8+ og svartur gafst
upp enda fátt til varnar eft-
ir 32... Kxg8 33. Rf6+.
Þessa dagana fer fram Evr-
ópumót landsliða í Leon á
Spáni. Ísland hefur lið í
opnum flokki og kvenna-
flokki. Hægt er að fylgjast
með gangi mála á skak.is.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Ljósmyndastofa Erlings
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 1. september sl. í
Laugarneskirkju af sr. Írisi
Kristjánsdóttur Guðrún
Garðarsdóttir og Þorsteinn
Magnússon. Heimili þeirra
er á Faxastíg 6b.
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 18. ágúst sl. í Laug-
arneskirkju af sr. Bjarna
Karlssyni Bryndís Skafta-
dóttir og Páll Heimir Páls-
son.
Ljósmyndastofa Erlings
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 26. maí sl. í Lága-
fellskirkju af sr. Jóni Þor-
steinssyni Jóhanna Þórunn
Gunnarsdóttir og Pétur
Rúnar Grétarsson. Heimili
þeirra er á Fálkahöfða 2,
Mosfellsbæ.
Jeffrey, sem er á fertugs-
aldri óskar eftir að skrifast á
við íslenska konu. Áhugamál
hans eru m.a. söngvar, vísur
og Íslendingasögur – að
stunda gönguferðir, fara á
kajak svo að ekki sé minnst
á bakstur.
Jeffrey c/o MIMC,
1401 Rockville Pike,
Suite 300,
Rockville
MD 20852,
U.S.A.
Marie, sem er 26 ára göm-
ul, óskar eftir íslenskum
pennavini.
Marie Kawachi,
Post Office Nagoya
Kikui,
1-3-14 Kikui Nishi-ku,
Nagoya-shi Aichi-ken,
451-0044,
Japan.
Miho, sem er 13 ára göm-
ul japönsk stúlka, óskar eftir
íslenskum pennavini. Hún
hefur áhuga á Brad Pitt og
Cameron Diaz.
Miho Hirie,
12-301 Sunny Hill
Omoteyama,
3-15-6 Omoteyama
Tenpaku’ku,
Nagoya-shi Aichi-ken,
468-0069 Japan.
Pennavinir
Ljósmynd/Sigríður Bachmann
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 10. maí sl. í Fíladelfíu
Sangka Thana og Sigurður
Guðleifsson. Heimili þeirra
er í Nönnufelli 1, Reykjavík.
FRÉTTIR
kvöldpeysur
Fallegar
Opið virka daga frá kl. 10-18,
laugardaga frá kl. 10-14
Lagerútsala
á buxum
Mikil verðlækkun
Mörkinni 6, 108 Reykjavík, sími 588 5518
Ný sending
af ódýrum pelsum - stuttir og síðir
Hattar og húfur
Opið laugardaga frá kl. 10-15
Nýbýlavegi 12, Kóp.,
sími 554 4433
Haust- og
vetrardragtir
frá kr. 8.000
Dragt i r
Þakka öllum þeim, sem sýndu mér vináttu og
hlýhug á áttræðisafmæli mínu 30. október sl.
Guðmunda Jónasdóttir,
Höfðagötu 21,
Stykkishólmi.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert alvörugefinn og fólk
sækir í þig til að fá ráð. Sú
aðstoð heldur nafni þínu á
lofti.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er gott að vera bjartsýnn
en ekki úr hófi fram því þá er
hætt við að alltof lítil alvara
verði í hlutunum og árangur-
inn þá eftir því.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Notaðu nú tækifærið og jafn-
aðu ágreining þinn við gaml-
an vin. Sjaldan veldur einn þá
tveir deila og þú skalt ganga
fram fyrir skjöldu með sátta-
boð.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ef þú heldur rétt á spöðunum
ætti flest að ganga þér í hag-
inn. Mundu bara að misnota
ekki fólk sem er meira en
tilbúið að rétta þér hjálpar-
hönd.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það gerist ekkert ef þú situr
bara og bíður eftir hlutunum.
Þú verður að taka þig á og
sækja þá sjálfur og þá er eins
gott að vita hvað þú vilt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú getur verið hreykinn af
því hvernig þú hefur haldið á
málum og komið þér fyrir.
Gættu þess vel að enginn mis-
noti gestrisni þína. Vertu já-
kvæður.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú þarft ekkert að fyrirverða
þig fyrir tilfinningar þínar, ef
þær eru sannar og án sárs-
auka fyrir aðra. Sýndu tillits-
semi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ef þú gætir þess að hafa allt á
hreinu, þá máttu vænta þess
að þér verði umbunað fyrir
vel unnin verk. Sýndu þó ekki
of mikla óþolinmæði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Útlitið er ekki allt og þú mátt
ekki láta óánægju með það
standa þér fyrir þrifum, því
þú hefur alla hæfileika sem
þarf til að ná árangri.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Óvænt kemur gamalt leynd-
armál upp á yfirborðið og
kemur þér í klípu, en ef þér
tekst að halda ró þinni ættu
mál að leysast með farsælum
hætti.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu ekki þrjóskuna standa í
vegi fyrir því að þiggja aðstoð
vinar þíns. Þú ert ekkert
minni maður fyrir það og get-
ur endurgoldið, þegar þarf.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú átt auðvelt með að ná til
annarra og það hjálpar þér til
að koma þínum málum fram.
Gættu þess þó að vera ekki of
aðgangsharður við aðra.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ættir að freista þess að
skapa þér meira svigrúm svo
þú getir athafnað þig að vild.
Eins og er átt þú ekki mögu-
leika til fulls árangurs.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
„FUNDUR í trúnaðarmannaráði
Félags járniðnaðarmanna 6. nóvem-
ber 2001 varar við alvarlegu atvinnu-
og efnahagsástandi,“ segir í frétt frá
félaginu.
„Aðgerðarleysi stjórnvalda í efna-
hagsstjórnun síðustu ára og gegn fá-
keppni á markaði, ásamt ofurvöxtum
sem Seðlabankinn heldur uppi hefur
valdið því að verðlag hefur hækkað
um 11,7 % frá gerð kjarasamninga
Alþýðusambandsfélaganna á síðasta
ári. Verðbólgan, ofurvextirnir og
minnkandi atvinna hafa leitt til veru-
legrar kaupmáttarskerðingar og
framundan er hættuástand.
Í málmiðngreinum eru um 100
starfsmenn á uppsagnarfresti. Yfir-
vinna hefur dregist saman í fjöl-
mörgum fyrirtækjum og þar með
tekjur starfsmanna.
Fyrirtæki eru í greiðslustöðvun og
gjaldþrot blasa við.
Fundurinn telur brýnt að lands-
sambönd og félög innan ASÍ geri
sameiginlega úrslitatilraun til að fá
stjórnvöld í lið með sér á næstu vik-
um í baráttu gegn verðbólgudraugn-
um og atvinnuleysi. Náist ekki ár-
angur í þeim efnum blasir við að
segja verður upp kjarasamningum í
febrúar á næsta ári,“ segir í frétta-
tilkynningu frá Félagi járniðnaðar-
manna.
Járniðnaðarmenn vara
við alvarlegu ástandi