Morgunblaðið - 08.11.2001, Blaðsíða 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2001 23
Sjávaréttaveitingastaður
við Reykjavíkurhöfn
Október - Nóvember - Desember
Þín villibráð
Mitt jólahlaðborð
Okkar skötuveisla
Hennar humar-
og ostruveisla
Mömmu hádegisverður
Opnunartími:
Hádegi mán. - fös.t 12.00 - 14.30
Kvöld alla daga frá 18.00
stjörnubarinn
veitingasalurinn
(við Reykjavíkurhöfn)
Geirsgötu 9,
101 reykjavik,
sími 511 3474
netfang restaurant@restaurant.is
heimasíða www.restaurant.is
á innimálningu
Íslensk gæðamálning
miðað við 10 lítra dós í ljósum lit, gljástig 10.
TILBOÐ
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Skeifunni 4, Reykjavík s: 568 7878
Snorrabraut 56, Reykjavík s: 561 6132
Stórhöfða 44, Reykjavík s: 567 4400
Austursíðu 2, Akureyri s: 464 9012
Hafnargötu 90, Keflavík s: 421 4790
Dalvegi 4, Kópavogi s: 540 9100
Bæjarlind 6, Kópavogi s: 544 4411
Harpa Sjöfn málningarverslanir
470 kr.
20-40% afsláttur
af allri innimálningu
Verð á lítra frá
Fagleg ráðgjöf og þjónusta
fyrir einstaklinga.
BRESKA blaðið The Times greinir
frá könnun á mataræði barna þar sem
fram kemur að eitt af hverjum 20 hafi
hvorki neytt ferskra ávaxta né græn-
metis á vikutímabili sem athugunin
náði til.
„Meðalneysla var minni en tveir
skammtar á dag, eða þriðjungur þess
sem manneldismarkmið segja fyrir
um. Er það í samræmi við eldri kann-
anir sem sýnt hafa að neysla á ávöxt-
um og grænmeti er talsvert fyrir neð-
an takmarkið „fimm á dag“ sem talið
er draga úr tíðni hjartasjúkdóma og
krabbameins.“
40% „hata“ rósakál
Umrædd könnun leiddi ennfremur
í ljós að rósakál nýtur minnstrar hylli
hjá smáfólkinu. Segir Times að tæp-
lega 40% barna hafi sagst „hata“
rósakál og að gulrætur og gular baun-
ir falli þeim langbest í geð.
Haft er eftir fulltrúa góðgerðasam-
taka sem beita sér fyrir krabbameins-
rannsóknum og létu gera könnunina
sem vitnað er til, að það sé áhyggju-
efni hversu mörg börn borði of lítið af
ávöxtum og grænmeti. „Athugunin
leiddi jafnframt í ljós að erfitt geti
reynst að fá börn sem ekki venjist því
snemma að borða ferska ávexti og
grænmeti að taka upp slíkar neyslu-
venjur síðar.“
Tekin voru viðtöl við 2.635 börn í 11
skólum í Englandi og Wales og er nið-
urstaðan sú að 11–16 ára börn neyti
6,5 skammta af fersku eða frystu
grænmeti á viku og 6,3 skammta af
ferskum eða frystum ávöxtum. Könn-
unin tók ekki til dósaávaxta og -græn-
metis. Fram hefur komið að drengir
borði minna af grænmeti og ávöxtum
en stúlkur og þegar neysla á ávöxtum
er skoðuð eftir tekjum er hún minni í
tekjulágum fjölskyldum í Norðaust-
ur- og Norðvesturhluta Englands og í
Skotlandi.
Loks segir að þrátt fyrir fyrr-
greinda niðurstöðu sýni landsmeðal-
tal að neysla ávaxta hafi aukist um 2⁄3 í
Bretlandi frá 1975.
Íslensk börn borða
„lítið“ af ávöxtum
Manneldisráð gerði könnun á mat-
aræði íslenskra skólabarna fyrir
nokkrum árum og segir á heimasíðu
þess að íslensk börn borði af einhverj-
um ástæðum „lítið af ávöxtum borið
saman við jafnaldra hjá grannþjóðum
og miklu minna en æskilegt væri mið-
að við hollustu þeirra. Meðalneyslan
var aðeins hálfur ávöxtur á dag í
könnun [Manneldisráðs] á mataræði
skólabarna … en ráðleggingar um
hollt mataræði hljóða upp á einn til
tvo ávexti – helst meira. “
Eitt af hverjum 20
börnum borðar ekki
ferskt grænmeti
Reuters
Íslensk börn borða aðeins hálfan
ávöxt á dag, sem ekki er nóg.