Morgunblaðið - 08.11.2001, Blaðsíða 64
DAGBÓK
64 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Lud-
vig Andersen og Lómur
koma í dag. Bluebird,
Helgafell og Dettifoss
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss fer í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, kl. 10 boccia,
kl. 13 vinnustofa og
myndmennt, föstud. 9.
nóv. í kaffitímanum
syngur og kynnir
Ágústa Sigrún Ágústs-
dóttir gömul dægurlög
eftir föðursinn, Ágúst
Pétursson. Nýtt nám-
skeið í jóga hefst mið-
vikud. 14. nóv. skráning í
afgreiðslu, s. 562-2571.
Vakin er athygli á opnu
húsi frá kl. 19.30–22 spil-
uð félagsvist, kaffi á
könnunni. Allir vel-
komnir.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, opin
handavinnustofan, bók-
band og öskjugerð, kl.
9.45–10 helgistund, kl.
10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13–16.30 opin
smíðastofan, kl. 10–16
púttvöllur opinn. Allar
uppl. í síma 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 9–16 handavinna,
kl. 9–17 fótaaðgerð, kl.
10 helgistund. Vetr-
arfagnaður verður
fimmtud. 8. nóv. Hlað-
borð, salurinn opnaður
kl. 16.30, dagskráin
hefst með borðhaldi kl.
17. Kvöldvökukórinn
syngur undir stjórn
Jónu Kristínar Bjarna-
dóttur, happdrætti,
Húnar (Ragnar Leví)
leika fyrir dansi.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudögum
kl. 13–16.30, spil og
föndur. Jóga á föstudög-
um kl. 13.30. Kóræfingar
hjá Vorboðum, kór eldri
borgara í Mosfellsbæ, á
Hlaðhömrum fimmtu-
daga kl. 17–19. Uppl. hjá
Svanhildi, s. 586-8014,
kl. 13–16. Uppl. um fót-,
hand- og andlitssnyrt-
ingu, hárgreiðslu og fót-
anudd, s. 566-8060, kl. 8-
16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9–12
aðstoð við böðun, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan
opin, kl. 9–13 handa-
vinnustofan opin, kl. 9.30
danskennsla, kl. 14.30
söngstund.
Félagsstarf aldraðra
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 9 fótaaðgerð, kl.
10 hársnyrting, kl. 11
leikfimi, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ.Vetrarfagn-
aður í Garðaholti 8. nóv-
ember. Fullbókað. Borg-
arleikhúsið 15. nóv. kl.
20 Miðapantanir sem
fyrst í síma 820-8571 eft-
ir hádegi. Rúta frá
Kirkjuhvoli kl. 19.15.
Stundaskrá í hópastarfi
er auglýst á töflu kjall-
aranum í Kirkjuhvoli og
á www.fag.is
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Pútt í Bæjarútgerðinni
kl. 10. Glerskurður fellur
niður af óviðráðanlegum
ástæðum. Sækja þarf
miðana á Mávahlátur í
dag eða á morgun milli
kl. 13 og 16.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Kaffistofan opin virka
daga frá kl. 10–13. Kaffi
– blöðin og matur í há-
degi. Fimmtud.: Baldvin
Tryggvason verður til
viðtals um fjármál og
leiðbeiningar um þau
mál á skrifstofu FEB í
dag kl. 10.30–12, panta
þarf tíma. Brids kl. 13.
Framsögn kl. 16.15.
Heilsa og hamingja
laugard. 10. nóv. í Ás-
garði, Glæsibæ, hefst kl.
13.30, Laufey Stein-
grímsdóttir næring-
arfræðingur ræðir um
hollt mataræði og mik-
ilvægi þess til að halda
góðri heilsu. Ásgeir
Theódórs læknir, sér-
fræðingur í melting-
arsjúkdómum, ræðir um
krabbamein í ristli og
um væntanlega hóp-
rannsókn í leit að
krabbameini. Á eftir
hverju erindi gefst tæki-
færi til spurninga og
umræðna. Strindberg-
hópurinn býður Félagi
eldri borgara afslátt á
miðum á sýningu á
Dauðadansinum á Litla
sviði Borgarleikhússins
laugard. 10. nóv. kl. 20.
Skráning á skrifstofu
FEB. Silfurlínan er opin
á mánu- og mið-
vikudögum kl. 10–12.
Skrifstofan er flutt að
Faxafeni 12, sama síma-
númer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Uppl.
á skrifstofu FEB.
kl. 10–16, s. 588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
glerskurður, kl. 9–13
hárgreiðsla, kl. 9–16
böðun, kl. 10 leikfimi, kl.
15.15 dans. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16
blöðin og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæf-
ingar í Breiðholtslaug
kl. 9.30, helgistund kl.
9.30, frá hádegi vinnu-
stofur og spilasalur op-
inn, vetrardagskráin
komin. Veitingar í veit-
ingabúð. Upplýsingar
um starfssemina á
staðnum og í síma 575-
7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnnustofan opin
leiðbeinandi á staðnum
kl. 9.30 klippimyndir,
taumálun, kl. 9, kl. 9.05
og 9.50 leikfimi, kl. 13
gler- og postulínsmálun,
kl. 16.20 og kl. 17.15 kín-
versk leikfimi. Kór
Kópavogsskóla undir
stjórn Maríu Ein-
arsdóttur kemur í heim-
sókn í dag kl. 10 og
syngur nokkur lög.
Gullsmári, Gullsmára
13. Postulínsmálun kl.
9.15, jóga, kl. 9.05 brids,
kl. 13 handavinnustofan
opin, leiðbeinandi á
staðnum, línudans kl. 17.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin vinnustofa, búta-
saumur, kortagerð og
perlusaumur, kl. 9.45
boccia, kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og bútasaumur,
kl. 10 boccia, kl. 13
fjölbreytt handavinna,
kl. 14 félagsvist.
Hársnyrting og fót-
snyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9 tré-
skurður og opin vinnu-
stofa, kl. 10–11 ganga,
kl. 10–15 leirmuna-
námskeið.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15–12 aðstoð við
böðun, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 10
boccia, kl. 13–14 leikfimi,
kl. 13–16 kóræfing, kl.
17–20 leirmótun. Flóa-
markaður verður
fimmtud. 8. nóv. og
föstud. 9. nóv. kl. 13–16.
Ragnar Páll Einarsson
leikur fyrir dansi kl.
14:30–16 á föstudaginn.
Rjómaterta með kaffinu,
allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og boccia, kl. 13
handmennt og frjálst
spil, kl. 14. leikfimi. Kl.
20 spiluð félagsvist.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst kl.
13.
Ga-fundir spilafíkla kl.
18.15 á mánud. í Sel-
tjarnarneskirkju, kl.
20.30 á fimmtud. í
fræðsludeild SÁÁ, Síðu-
múla 3–5, og í Kirkju
Óháða safnaðarins við
Háteigsveg á laugard.
kl. 10.30.
Sjálfboðamiðstöð Rauða
krossins, Hverfisgötu
105: Kl. 13–16 er prjónað
fyrir hjálparþurfi er-
lendis. Efni á staðnum.
Allir velkomnir.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Bláa salnum.
Kristniboðsfélag
kvenna, Kristniboðs-
salnum, Háaleitisbraut
58–60. Bænastund.
Fundurinn hefst kl. 17.
Allar konur velkomnar.
Kvenfélag Bústaða-
sóknar heldur fund á
Grand Hóteli, 4. hæð,
mánudaginn 12. nóv. kl.
20. Upplestur. 4 klass-
ískar (Aðalheiður,
Björk, Jóhanna og
Signý) syngja. Kaffiveit-
ingar.
Kiwanisklúbburinn
Geysir Mosfellsbæ. Fé-
lagsvist spiluð í kvöld kl.
20.30, stundvíslega, í
Kiwanishúsinu Mos-
fellsbæ.
Í dag er fimmtudagur 8. nóvember,
312. dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Svo miskunnar hann þá þeim, sem
hann vill, en forherðir þann, sem
hann vill.
(Rómv. 9, 18.)
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
ÞAÐ er stundum haft á orði að þaðþýði ekki að deila við dómarann.
Þetta er sjálfsagt rétt og oftast nær
er ekki ástæða til að deila við dóm-
arana því dómar þeirra eru sem bet-
ur fer yfirleitt réttir og sanngjarnir.
En dómarar eru hins vegar mann-
legir og þeim geta orðið á mistök eins
og öðrum. A.m.k. er ekki annað hægt
að lesa út úr nýlegum úrskurði
nefndar um dómarastörf þar sem
fundið er að störfum dómara við Hér-
aðsdóm Austurlands. Nefndin taldi
framgöngu dómarans í þinghaldi að-
finnsluverða en taldi ekki ástæðu til
að veita honum formlega áminningu.
Það er ekki oft sem fluttar eru fréttir
af gagnrýni á dómara og því vekur
fréttin nokkra athygli.
Víkverji varð hins vegar fyrir því
fyrir skömmu að fá í hendur dóms-
úrskurð þar sem augljóslega höfðu
átt sér stað mistök. Þegar dómarar
kveða upp dóma í kynferðisafbrota-
málum eru málsaðilar oftast nær
ekki nefndir á nafn í úrskurðinum.
Þetta er gert til að vernda brotaþola,
en hann á að sjálfsögðu rétt á að nafn
hans og annarra sem málinu tengjast
séu ekki gerð opinber því það getur
valdið brotaþola enn meiri sársauka
og tjóni. Oftast nær eru bókstafir
settir í úrskurðina í stað nafna. Þann-
ig heitir brotaþoli A og vitni heita B
og C.
Í kynferðisofbeldismáli sem ný-
lega var dæmt í voru hins vegar allir
málsaðilar nefndir X. Þetta olli því að
erfitt var á köflum að skilja úrskurð-
inn því ekki lá alltaf ljóst fyrir hvort
átt væri við brotaþola, sakborning,
móður brotaþola eða önnur vitni. Það
sem var hins vegar verra var að á
nokkrum stöðum hafði gleymst að
fella nöfn niður og mátti þar því bæði
lesa nöfn vitna og meira segja fórn-
arlambsins sjálfs. Þetta eru ófyrir-
gefanleg mistök. Væntanlega eru það
ekki dómarar sem sjá um frágang
dóma, en það er þó á þeirra ábyrgð að
sjá til þess að svona mistök séu ekki
gerð.
x x x
NEMENDALEIKHÚSIÐ sýnirum þessar mundir Túskild-
ingsóperuna eftir Bertolt Brecht og
Kurt Weill. Þetta er mjög kraftmikil
og skemmtileg uppfærsla á þessu
kunna verki. Leikstjórn Viðars Egg-
ertssonar er hugmyndarík og örugg.
En Víkverja fannst þó mest til um
frammistöðu leikhópsins sem yfir-
leitt stóð sig afskaplega vel. Greini-
legt er að þarna eru á ferðinni hæfi-
leikaríkir einstaklingar sem líklegt er
að eigi eftir að verða áberandi í leik-
húslífi landsmanna á næstu árum.
Ólafur Egill Ólafsson og Brynja
Valdís Gísladóttir stóðu sig einstak-
lega vel í hlutverkum herra og frú
Peachum. Arnbjörg Hlíf Valsdóttir
sýndi einnig mjög sterkan leik í hlut-
verki dótturinnar Pollýjar Peachum
og söngur hennar var ekki síðri. Ívar
Örn Sverrisson var líka mjög
skemmtilegur í hlutverki Makka
hnífs. Aðrir leikarar stóðu einnig vel
fyrir sínu.
Víkverji hefur reyndar verið
óvenju duglegur að fara í leikhús það
sem af er vetri. Auk Túskildingsóper-
unnar fór hann nýlega að sjá Blíðfinn
í Borgarleikhúsinu, en leikritið er
byggt á sögu Þorvaldar Þorsteins-
sonar. Sýningin hefur fengið ágæta
dóma og víst er að börnin á sýning-
unni skemmtu sér konunglega við að
fylgjast með ævintýrum Blíðfinns og
vina hans.
Líkamsárásir
NÝLEGA var frá því skýrt
í fréttum að maður nokkur
hefði verið dæmdur í þriðja
eða fjórða sinn fyrir lík-
amsárás. Í þetta sinn barið
fórnarlambið ítrekað í höf-
uðið með skófluskafti.
Þessi ofbeldismaður hlaut
enn einu sinni skilorðs-
bundinn dóm og nú til
tveggja ára.
Dómarar virðast m.ö.o.
líta svo á að slík líkamsárás
sem hér um ræðir sé næsta
lítilfjörleg og ekki ástæða
til harkalegra viðbragða
gegn sökudólgnum. Sú lin-
kind, sem þetta lýsir gagn-
vart ofbeldismönnum, er
orðin að áhyggjuefni
margra enda er þessi lin-
kind eins og rauður þráður
í dómum dómstóla lands-
ins. Dómarar virðast teygja
sig á ýtrustu mörk til að
dæma skilorðsbundið og
það fólk sem á fyrir lang-
varandi afbrotaferil. Sér-
staklega virðast dómarar
falla fyrir því ef viðkomandi
afbrotamaður er kominn í
meðferð hjá SÁÁ þegar
dómur er kveðinn upp.
Ekki virðist spilla fyrir ef
afbrotamaðurinn segir sem
svo; ég er nú að vinna í mín-
um málum.
Þegar síðan þægilegri
vist hjá SÁÁ er lokið og
skilorðstíminn er útrunn-
inn er kominn tími fyrir
næsta innbrot, næsta glæp
eða næstu líkamsárás.
Undarleg er líka linkindin
gagnvart dópliði því sem
gripið er með lítið magn
dóps og lýsir því yfir þegar
það er gripið; þetta er nú
bara til einkaneyslu. Eins
og það sé þá afsakanlegt.
Löggæsla og þó sérstak-
lega dómarar reyna alvar-
lega á þolinmæði og traust
almennings með þeirri lin-
kind sem hér er lýst.
Kristinn Snæland,
leigubílstjóri.
Svar til ökumanns
SVAR til ökumanns sem
skrifar um dekk í Velvak-
anda föstudaginn 2. nóv:
Engan vafa á því tel/ að
hér betur reynast/ dekk ef
neglast ný og vel/ niður-
stöður greinar.
Pálmi Jónsson,
Sauðárkróki.
Tapað/fundið
Lyklakippa týndist
LYKLAKIPPA með 6-7
lyklum á hring týndist lík-
lega við raunvísindadeild
Háskóla Íslands, VR2.
Skilvís finnandi hafi sam-
band við Sigríði í síma 560-
1160.
Replay-gleraugu
týndust
REPLAY-gleraugu með
svartri umgjörð týndust
aðfaranótt laugardags, lík-
lega á Gauki á Stöng eða í
miðbæ Reykjavíkur. Skil-
vís finnandi hafi samband í
síma 867-0082.
Dýrahald
Lítil læða týndist
HEFUR einhver séð litlu
kisu? Hún er ca. 7 mán.
læða, svört með hvíta
bringu og lappir og hvíta
blett í trýni. Hún fór að
heiman frá Hæðargarði 31.
okt. Ef einhver hefur orðið
hennar var vinsamlega haf-
ið samband í síma 581-2874,
696-2514 eða 567-9024.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
MEÐAN lesendur hafa
ekki fleygt frá sér Les-
bókinni 3. nóv. vil ég
hvetja þá til að lesa þar
stutta og vekjandi grein
um listaskáldið Pál
Ólafsson (1827–1905) og
nýútkomin sönglög við
ljóð hans.
Ég hafði þá ánægju að
hlýða á frábæra dagskrá
um ljóð Páls í umsjá Þór-
arins Hjartarsonar og
Ragnheiðar Ólafsdóttur í
Kaffileikhúsinu og fagna
því að lög þessi koma nú
út á geisladiski með söng
þeirra við undirleik
fyrsta flokks tónlistar-
manna.
Greinin í blaðinu geld-
ur Páli allan þann heiður
sem hann verðskuldar
fyrir hans tæru klassík í
ótal yndislegum ljóðum,
sem hafa þó farið
framhjá mörgum, með-
fram af því að einn gild-
asti þáttur þeirra, Fund-
in ljóð, ástarljóð til konu
hans, kom ekki út fyrr en
1971.
Það er vel, að Lesbókin
reisi við æru þessa mikla
skálds af Austurlandi,
því að í snautlegri grein
bókmenntafræðings í
blaðinu fyrir nokkrum
árum var Páll mældur
niður í það eitt að vera
„góður hagyrðingur“.
Páll var vissulega
landsfrægur fyrir sínar
snilldarferskeytlur, en
að hann var höfuðskáld
dylst engum sem þekkir
skáldskap hans í raun.
Fundin ljóð og önnur áð-
ur útgefin setja hann í
fremstu röð íslenzkra
ástarljóðaskálda, þótt
hæfileikar hans liggi
miklu víðar.
Páll á það skilið að
þjóðin öll festi jafnmiklar
hugástir við hann eins og
hann sjálfur við Ragn-
hildi konu sína.
Jón Valur Jensson,
cand. theol., rithöf.
Ljóðasöngur Páls Ólafssonar
LÁRÉTT:
1 harðsvíraður, 8 hár-
knippis, 9 spil, 10 smá-
býli, 11 mjórri götu, 13
kjánar, 15 höfuðfats, 18
eru gjaldgeng, 21 spil, 22
höfðu upp á, 23 ákveðin,
24 rétta.
LÓÐRÉTT:
2 veðurofsi, 3 illþýði, 4
svíkja, 5 mergð, 6 vefn-
aður með jöfnu yfirborði,
7 skordýr, 12 munir, 14
klaufdýr, 15 fjötur, 16
kaggi, 17 tími, 18 þarma,
19 óbundin, 20 korna.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 horsk, 4 hæfur, 7 sólar, 8 lærði, 9 tel, 11 rauf,
13 kalt, 14 ólmur, 15 karl, 17 álum, 20 arg, 22 tækið, 23
örðug, 24 remma, 25 tugur.
Lóðrétt: 1 hosur, 2 rollu, 3 kurt, 4 höll, 5 forna, 6 reist,
10 eimur, 12 fól, 13 krá, 15 kútur, 16 ríkum, 18 liðug, 19
mágur, 20 aðra, 21 gölt.