Morgunblaðið - 08.11.2001, Blaðsíða 18
SUÐURNES
18 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HARÐUR árekstur varð á milli
tveggja bíla á Reykjanesbraut, á
Strandarheiði, seint í fyrrakvöld.
Ekki urðu þó alvarleg slys á fólki.
Tilkynnt var um áreksturinn um
klukkan 23.20 um kvöldið. Lögregl-
an telur allt benda til þess að annarri
bifreiðinni sem ekið var á eftir snjó-
ruðningstæki hafi verið verið ekið yf-
ir á öfugan vegarhelming og hún
þannig lent beint framan á bifreið
sem kom á móti.
Þrír voru í öðrum bílnum en einn í
hinum. Tveir voru fluttir á slysa-
deild, ökumaður annarrar bifreiðar-
innar og tveir farþegar hinnar. Ekki
er talið að um alvarleg meiðsl hafi
verið að ræða.
Rákust sam-
an á Strand-
arheiði
Reykjanesbraut
MAÐUR er í haldi lögreglu
vegna rannsóknar á þjófnaðar-
máli frá því í sumar. Rannsókn
málsins er á frumstigi.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar í Keflavík barst
ábending um að þýfi væri að
finna í gömlu fiskverkunarhúsi
í Njarðvík. Í framhaldi af því
fundust á staðnum munir sem
ætla má að séu þýfi, meðal
annars innrétting úr fellihýsi
sem stolið var í Kúagerði í
sumar.
Fundu þýfi
í fiskverk-
unarhúsi
Njarðvík
samkvæmt upplýsingum Sveindísar
Valdimarsdóttur, formanns félags-
ins.
Kjörnefnd mun auglýsa eftir
framboðum til prófkjörsins á næst-
unni og rennur framboðsfrestur út
27. janúar kl. 19.
Kosningarétt við prófkjörið 23.
febrúar hafa allir íbúar Reykjanes-
bæjar sem verða á kjörskrá í vænt-
anlegum bæjarstjórnarkosningum
og auk þess allir félagar í Samfylk-
ingunni í Reykjanesbæ á aldrinum
16–18 ára.
OPIÐ prófkjör verður hjá Samfylk-
ingunni í Reykjanesbæ laugardag-
inn 23. febrúar næstkomandi. Nið-
urstöður fyrir fimm efstu sætin
verða bindandi.
Samfylkingin hefur unnið að und-
irbúningi framboðs fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar á vori kom-
anda. Á fjölmennum félagsfundi í
vikunni voru ákveðnar prófkjör-
sreglur og voru þær samþykktar
með öllum greiddum atkvæðum,
Prófkjör hjá Sam-
fylkingunni í febrúar
Reykjanesbær
EKIÐ var á sex ára gamlan
dreng á Víkurbraut í Grindavík
síðastliðinn föstudag. Hann
hlaut þungt höfuðhögg og heila-
hristing.
Slysið mun hafa orðið með
þeim hætti, samkvæmt upplýs-
ingum lögreglu, að tveir drengir
komu hlaupandi að gangbraut-
arljósum við Víkurbraut. Sá sem
var á undan ýtti á stjórnhnapp
gangbrautarljósanna en sá sem
á eftir kom fór beint út á götuna.
Skall hann á hægra frambretti
bifreiðar sem ekið var norður
Víkurbraut og lenti síðan á göt-
unni. Samkvæmt framburði
vitna var bifreiðinni ekki ekið á
miklum hraða, en bifreið sem
var á leið suður Víkurbraut
hafði stansað við gangbrautina,
að sögn ökumanns áður en
gangbrautarljósin kviknuðu.
Ekið á barn á
Víkurbraut
Grindavík
KANÍNURNAR sem börnin hand-
sama í Selskógi við Þorbjarn-
arfell og víðar í nágrenni Grinda-
víkur enda flestar á góðum
heimilum. Ekki bera þær þó allar
gæfu til að lifa lengi því ýmislegt
getur komið fyrir.
Sumar kanínur verða svo fræg-
ar að komast í skóla þó að ekki
sé það til að læra heldur til þess
að börnin geti fræðst nánar um
þær. Krakkarnir í bekknum 5-F í
Grunnskóla Grindavíkur eru sum-
ir hverjir duglegir við kan-
ínuveiðarnar og þegar blaðamann
bar að garði voru fjórar kanínur
í heimsókn hjá þeim. Þetta voru
þær Doppa, Keli, Steini og Elding
en þær éta ýmislegt.
Sögðu kanínubændurnir við
fréttaritara Morgunblaðsins að
þeim þætti sælgæti einna best.
Þær elska lakkrís.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Kanínur
í skólanum
Grindavík
SKELJUNGUR hefur áhuga á að
leigja tankarými í olíustöð varnar-
liðsins í Helguvík til þess að draga úr
flutningi flugvélaeldsneytis um
Reykjanesbrautina.
Kristinn Björnsson, forstjóri
Skeljungs hf., segist hafa áhyggjur
af tíðum slysum á Reykjanesbraut-
inni. Hann segir að bæirnir á Suð-
urnesjum þurfi mikið eldsneyti,
meðal annars vegna útgerðar. Þar
við bætist Keflavíkurflugvöllur, sem
sé sá staður á landinu sem noti mest
eldsneyti. Því sé töluverður akstur
með eldsneyti eftir Reykjanesbraut-
inni, sérstaklega á háannatímum
flugsins, en Skeljungur sér þotum
Flugleiða fyrir eldsneyti.
„Ef það verða settar takmarkanir
á akstur með eldsneyti um Reykja-
nesbrautina verða menn einfaldlega
að finna aðrar leiðir,“ segir Kristinn.
Rifjar hann það upp að olíubirgða-
stöð varnarliðsins í Helguvík sé ein-
hver fullkomnasta stöð í Evrópu og
hún sé ekki nýtt nema að litlum
hluta. Þegar fulltrúar eigenda henn-
ar hefðu spurst fyrir um það á síð-
asta ári hvort áhugi væri fyrir að
nýta stöðina hefði Skeljungur strax
lýst miklum áhuga á að leigja þar að-
stöðu til þess að hægt væri að dæla
eldsneytinu þar upp á tanka og síðan
upp á Keflavíkurflugvöll. Það myndi
létta mjög á flutningum á Reykja-
nesbrautinni. Málið væri til meðferð-
ar hjá yfirvöldum.
Kristinn segir að ef það yrði nið-
urstaðan á Alþingi að banna olíu-
flutninga um Grindavíkurveg yrði að
flytja olíuna sjóleiðina. Það væri hins
vegar mun dýrara og myndi vænt-
anlega þýða það að olía og bensín
yrðu dýrari í Grindavík.
Vilja leigja að-
stöðu í Helguvík
Reykjanesbraut