Morgunblaðið - 08.11.2001, Page 49
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2001 49
Í forsíðufrétt Morg-
unblaðsins 2. nóvem-
ber sl. af tveggja
daga ferð Tony Blair
til Miðausturlanda
eru höfð eftir for-
sætisráðherranum ör-
fá orð í fyrirsögn sem
segja allt sem segja
þarf um um deilu Ísr-
aela og Palestínu-
manna: ,,Blair hvetur
til nýrra viðræðna um
frið. Segir Ísraela
verða að fara að al-
þjóðalögum“. Enginn
er svo lyginn, að ei
kunni satt að segja.
Blóðugur upp fyrir
haus í árásum á fátækan almenn-
ing í Afganistan, orðræða hans lítt
nema lygar og blekk-
ingar eins og gengur í
slíkum stríðsrekstri,
þá ratast Blair satt
orð á munn varðandi
Palestínumálið. Og
ekki nóg með það, í
þessum fáu orðum
felst lausn alls þess
máls: Fara að alþjóða-
lögum. Ef Bush og
Blair einbeittu sér nú
að því að knýja Ísr-
aela til þess að fara að
alþjóðalögum og
fylgja þar með eftir
samþykktum Sam-
einuðu þjóðanna þá er
málið leyst. Friðar-
lausnin liggur á borðinu ef farið er
að lögum. Samkvæmt þeim ber
Ísrael að aflétta hernáminu og
skila öllum herteknum svæðum
sem þeir lögðu undir sig árið 1967
og leyfa landflótta Palestínumönn-
um að snúa heim aftur. Það eru
grundvallarréttindi sérhvers
flóttamanns samkvæmt aljóðalög-
um og mannréttindasáttmálum.
Samkvæmt sömu lögum ber Ísr-
aelum að hætta árásum á almenn-
ing á herteknu svæðunum, enda
skylda hernámsveldis að tryggja
öryggi íbúanna. Þá skylda lögin
Ísraela til að láta af landtöku og
leggja niður ólöglegar landnema-
byggðir. Palestínumenn gera eng-
ar aðrar kröfur en að farið sé að
alþjóðalögum. Sé það gert er frið-
urinn tryggður.
Enginn er svo lyginn?
Sveinn Rúnar
Hauksson
Friður
Palestínumenn gera
engar aðrar kröfur,
segir Sveinn Rúnar
Hauksson, en að farið
sé að alþjóðalögum.
Sé það gert er friður
tryggður.
Höfundur er læknir og formaður fé-
lagsins Ísland-Palestína.
Fullkomnaðu
verkið
með
þakrennukerfi
þakrennukerfi
BLIKKÁS EHF.
SKEMMUVEGUR 36
200 KÓPAVOGUR
SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111
Fagm
enns
ka
í
fyrir
rúmi
Söluaðilar um land allt
Ungbarnafatnaður
Komdu í bæinn og skoðaðu úrvalið og
verðið. Allt fyrir mömmu.
Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136.