Morgunblaðið - 08.11.2001, Side 22
NEYTENDUR
22 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Stór humar,
túnfiskur, lúða, skötuselur,
hörpuskel og rækjur
Gnoðarvogi 44, sími 588 8686.
11–11-búðirnar
Gildir til 12. nóv. nú kr. áður kr. mælie.
Búrfells grillborgarar, 4 stk. m/brauði ...... 199 349 516 kg
Stjörnu paprikustjörnur, 90 g .................. 2 fyrir 1 378 952 kg
Myllu heimilisbrauð ............................... 111 236 144 kg
Maryland kex, 33% extra ........................ 99 139 495 kg
11–11-ís, 1 ltr. ...................................... 2 fyrir 1 279 140 ltr.
Egg frá Nesbúi, 50% afsl. v. kassa........... 183 365 183 kg
SS amar. grísahnakki, 25% af v. kassa .... 1.101 1.468 1.101 kg
Ísl. kartöflur .......................................... 89 149 89 kg
HAGKAUP
Gildir til 11. nóv. nú kr. áður kr. mælie.
KS lambalæri, frosið .............................. 799 1.088 799 kg
Ágætis kartöflur, rauðar, 2 kg.................. 199 289 99 kg
Ágætis kartöflur, premier, 2 kg ................ 199 289 99 kg
River hrísgrjón, 1361 g........................... 329 379 242 kg
SELECT-verslanir
Gildir til 14. nóv. nú kr. áður kr. mælie.
Freyju lakkrísdraumur, stór ..................... 79 110
Toms súkkulaðistykki, 28 g, 4 teg............ 49 65
Pingvin lakkrísstangir, 27 g..................... 35 45
Findus pan buff m/lauk, 400 g............... 229 435
Findus schnitz. cordon bleu, 400 g ......... 239 449
10–11-búðirnar
Í gildi frá 2.–11. nóv. nú kr. áður kr. mælie.
Kjörís Heimaís, van./súkk./jarð. 2 f. 1..... 359 718 180 ltr.
Pringles, 200 g + lítri af kóki ................... 299 408
Homeblest kex, blátt, 200 g ................... 89 159 445 st.
Nammibar, 50% afsl. v. kassa ................ 645 1290 645 kg
Rally Hershey’s súkkulaði ....................... 59 Nýtt 944 kg
Gildir frá 9.–11. nóv.
Höfðingi ................................................ 259 289 1.726 kg
Brie m/ sólþurrkuðum tómötum.............. 359 399 1.994 kg
Kjarnafæði, rauðvínsl. lambalæri ............ 799 1.298 799 kg
Græn epli ............................................. 149 229 149 kg
UPPGRIP – verslanir OLÍS
Nóvembertilboð nú kr. áður kr. mælie.
Egils orka, 0,5 ltr. .................................. 129 150 258 ltr
Kaffi Gevalia, 250 g............................... 165 195 660 kg
Läkerol, 3 teg. ....................................... 65 85 65 pk.
ESSÓ-stöðvarnar
Gildir 1.–30. nóv. nú kr. áður kr. mælie.
Nói tröllatópas, saltlakkrís, 60 g ............. 99 115 1.650 kg
Nói risatópas, 60 g ................................ 99 115 1.650 kg
Nói eitt sett, 23 g .................................. 49 65 2.140 kg
Nói tromp, innpakkað, 20 g.................... 25 35 1.250 kg
Kexsmiðjan, vínarbrauð, 300 g ............... 329 380 1.100 kg
Trópi appelsínu, 330 ml plastflaska ........ 95 110 288 ltr
Kartöflur á tilboðs-
verði. Nammiafsláttur.
Helgartilboð
Verðupplýsingar sendar frá verslunum
MIKIÐ verður um að vera í versl-
unum 10–11 á sjálfan afmælisdag-
inn, laugardaginn 10. nóvember, en
10–11-verslanirnar hafa verið með
afmælisleik og tilboð frá því í síð-
ustu viku. Guðmundur Gíslason inn-
kaupastjóri hjá 10–11 segir að við-
skiptavinum verði boðið upp á kaffi
og með því og einnig fái börnin
óvæntan glaðning meðan birgðir
endast.
„Öll börn sem fæðast á afmæl-
isdegi 10–11 munu fá gjöf frá fyr-
irtækinu,“ segir Guðmundur enn-
fremur.
Sólmundur Oddsson, markaðs-
stjóri Nóatúns, segir að „nú fari
hver að verða síðastur að næla sér í
tilboðsvörur á dönskum dögum, sem
lýkur nú um helgina. Meðal þess
sem er á tilboði er kjúklingur frá Ís-
landsfugli á 399 krónur kílóið og
kalkúnn frá Alifuglabúinu Reykjum
á 599 krónur kílóið,“ segir Sólmund-
ur.
Fleiri tilboðsvörur á dönskum
dögum eru danskar rúllutertur á
149 krónur stykkið og margt fleira,
að hans sögn.
Loks má benda á lambakjötsút-
sölu í Hagkaupi frá 8.–11. nóvem-
ber.
Morgunblaðið/Golli
10–11 á afmæli á laugardaginn og fá viðskiptavinir kaffi og með því.
Afmælisgjöf til
barna sem fæðast
10. nóvember
ATHYGLI lesenda er vakin á því að
helgartilboð verslana taka ýmist
gildi á fimmtudögum eða föstudög-
um og standa jafnframt mislengi,
stundum nokkrar vikur. Í sumum til-
fellum standa þau meðan birgðir
endast. Nákvæmar dagsetningar
eru tilgreindar í tilboðsrammanum.
Gildistími tilboða er mis-
munandi eftir verslunum
ÍSLANDSPÓSTUR býður þeim
sem ekki kæra sig um ómerktan
póst í lúguna að afþakka slíkar
sendingar með öllu. Póstur af því
taginu er stundum nefndur „rusl-
póstur“ í daglegu tali, en er líka
kallaður fjölpóstur. Þeir sem hug
hafa á að draga úr ómerktum
póstsendingum til síns heima geta
snúið sér til Íslandspósts og fyllt
út þar til gerða beiðni, Engan fjöl-
póst – takk! og fá að auki gulan
límmiða með sömu áletrun sem
settur er á póstkassa eða hurð til
þess að upplýsa starfsfólk Íslands-
pósts og Póstdreifingar um að
ekki sé óskað eftir fjölpósti inn
um lúguna.
Fjölpóstur er skilgreindur sem
„margskonar auglýsingar- og
kynningarefni sem ekki er áritað
með nafni og dreift er til heimila
og fyrirtækja í landinu“.
Beiðnin sem fyrr er getið er
fyllt út og hún síðan afhent á
næsta pósthúsi og er bent á að
viðkomandi þurfi að sýna per-
sónuskilríki svo tryggja megi að
ekki sé verið að afþakka fjölpóst í
annars nafni.
Vilji fólk fá fjölpóst til sín á nýj-
an leik fyllir það út eyðublað öðru
sinni og fjarlægir límmiðann og
eins þarf að endurtaka beiðni um
fjölpóst (eða ekki) þegar skipt er
um dvalarstað.
Guli límmiðinn er sjálflímandi
og veðurþolinn og á ekki að vera
hærra en 10 sm fyrir ofan bréfa-
lúgu svo tryggja megi að bréfber-
inn sjái hann tímanlega, sam-
kvæmt upplýsingum frá
Íslandspósti.
Þjónustuver Íslandspósts veitir
upplýsingar um fjölpóst auk þess
sem hægt er að nálgast þær á
næsta pósthúsi.
„Allt eða ekkert“
Áskell Jónsson, framkvæmda-
stjóri markaðs- og sölusviðs Ís-
landspósts, segir að þessi þjónusta
hafi verið sett á laggirnar í sumar
og vill árétta að þeir sem afþakki
fjölpóst fái ekki til sín „vandaðri
auglýsingabæklinga“ sem tiltekin
fyrirtæki sendi út með reglulegu
millibili, þar sem ekki sé unnt að
flokka fjölpóstinn sérstaklega.
„Þetta er því spurning um allt eða
ekkert,“ segir hann.
Áskell segir jafnframt að um-
rædd þjónusta sé til komin vegna
umhverfissjónarmiða og sett upp
að norrænni fyrirmynd. „Hug-
myndin er líka sú að búa til ná-
kvæman gagnagrunn yfir hversu
mikið magn þarf raunverulega af
fjölpósti því fjöldi heimila vill ekki
fá slíkan póst sendan. Þess vegna
er ekki nóg að setja bara upp lím-
miða, það þarf líka að skrá við-
komandi beiðni,“ segir hann.
Greint var frá því í Morg-
unblaðinu fyrir ári síðan að
Hreggviður Jónsson fram-
kvæmdastjóri og fyrrverandi al-
þingismaður hefði safnað 17,55
kílóum af „ruslpósti“ á einu ári,
að meðaltali 1,4 kílóum á mánuði.
Reiknaðist Hreggviði einnig til að
rúmlega 1.110 tonn af slíkum
pósti væru borin út til 63.294
heimila á höfuðborgarsvæðinu á
hverju ári.
Hægt að
afþakka
„ruslpóst“