Morgunblaðið - 08.11.2001, Side 30
LISTIR
30 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
WHO, Alþjóða heilbrigðisstofnun-
in, eða sú deild hennar sem hefur að-
setur sitt í Evrópu, hefur gripið til
þeirra óvenjulegu aðgerða að fá um
tvo tugi þekktra listamanna til að
búa til verk gegn reykingum. Stofn-
unin fékk Galatea, enska listráð-
gjafa, til að hleypa framkvæmdinni
af stokkunum. Verkin munu vera til
sölu, en svokallað „Hljóðlátt upp-
boð“ gerði gestum kleift að eignast
verkin með því að bjóða í þau.
Uppboðið hófst við helming af
raunverði verkanna, og hafa nokkur
þeirra þegar horfið af vettvangi af
þeim sökum enda hefur sýningin
þegar farið um Frakkland, Þýska-
land, Pólland og Bretland. Eftir
standa listaverk eftir um fimmtán
listamenn, nægilega mörg til að gera
ListVerkun eða ArtWorks, eins og
framtakið heitir á ensku – að
skemmtilegri og óvenjulegri sýn-
ingu.
Það er athyglisvert að sjá þekkta
listamenn á borð við Stefano Arienti,
Wim Delvoye, Dominique Gonzalez-
Foerster, Ange Leccia, Vitali Kom-
ar, Alexander Melamid, Lisu Milroy,
Nakis Panayotidis, Sarah Staton og
Not Vital hella sér út í gerð pró-
grammatískra verka fyrir sýn-
inguna. Hver og einn reynir að vinna
í samræmi við sjálfan sig svo oftast
má þekkja listamanninn á hand-
bragðinu og inntakinu. Hvert verk
mun jafnframt vera efniviður í vegg-
spjald – plakat – þar sem átakið er
rækilega tíundað.
Trúlega er það ýmsum vandkvæð-
um háð fyrir fræga listamenn að
setja sig niður á plan grafísks hönn-
uðar og finna eitthvað nægilega
frumlegt, skondið, eða dramatískt til
að segja um þann kauðska, bráð-
drepandi og ónauðsynlega ávana að
svæla tóbaksreyk. Áherslurnar eru
eins misjafnar og verkin eru mörg.
Þó var erfitt að finna nokkuð sem
bakaði ljósmynd belgíska myndlist-
armannsins Vim Delvoye af teiknuð-
um Tinnalegum unglingi sem tekur
sig út skælbrosandi með sígarettuna
í munnvikinu. En grannt skoðað er
andlitsteikning Delvoye útsaumur
með stoppugarni á reykta skinku-
sneið.
Uppstilling ítalska listamannsins
Stefano Arienti af ótal öskubökkum
af öllum stærðum og gerðum er
einnig góðra gjalda verð. Sama má
segja um kyrralífssamsafn bresku
listakonunnar Lisu Milroy af máluð-
um leirmunum – krumpuðum vind-
lingapakka, öskubakka kúfuðum af
stubbum, sem subbast hafa út á
borðið, og eldspýtustokk. Þessi sam-
setning minnir að vísu sumpart á að-
ferðafræði popparans Claes Olden-
burg, en þá er ekki leiðum að líkjast.
Sem dæmi um dramatíska andstæðu
má nefna gríska listamanninn Nakis
Panayotidis. Hann sýnir drungalega
ljósmynd af áberandi verksmiðju í
Piombino á Ítalíu, sem legið hefur
undir ámæli um að menga illilega
hafið undan ströndum Toskana-hér-
aðs andspænis eynni Elbu.
Þá er hægt að skemmta sér yfir
spennandi ferðalagi breska mynd-
höggvarans og myndbandalista-
mannsins Gavin Turk, þar sem hann
heldur í langt og strangt ferðalag til
að finna apann reykjandi, fjarskyld-
an ættingja okkar mannanna sem
fallið hefur í menningargryfjuna. Án
þess að láta uppi hvernig sú ferð
endar má staðhæfa að verkin á sýn-
ingunni gefi nægilegt tilefni til að
heimsækja Fjörðinn, því sýningin er
prýðilega upp sett. Fyrir þá sem
hafa litla þolinmæði gagnvart puðr-
inu er sýningin hins vegar algjört
„möst“, eins og það er kallað á hinu
nýja ylhýra.
MYNDLIST
H a f n a r b o r g ,
H a f n a r f i r ð i
Opið alla daga nema þriðjudaga
kl. 11–17. Til 12. nóvember.
BLÖNDUÐ TÆKNI
15 LISTAMENN
FRÁ ÝMSUM LÖNDUM
Listin að hætta
að reykja
Reykjandi unglingur belgíska
listamannsins Wim Delvoye.
Mengandi verksmiðja í Piombino eftir Grikkjann Nakis Panayotidis.
Halldór Björn Runólfsson
TÓNLISTARFÓLK búsett í um-
dæmi Dómkirkjunnar stóð fyrir
tónleikum í kirkjunni sl. sunnudag
og gaf kirkjunni framlag sitt. Tón-
leikarnir hófust á leik Hrefnu Unn-
ar Eggertsdóttur er flutti b-moll-
prelúdíuna úr 1. hefti Das Wohl-
temperierte Klavier. Margir
sagnfræðingar hafa gjört sér það til
gamans að segja b-moll-prelúdíuna
og þá í es-moll vera eins konar spá-
sögn um Chopin, sérlega vegna
þess hve hljómskipan verkanna er
rómantísk og lagferlið undarlega
syngjandi, með þeim hætti er fellur
einstaklega vel að píanóinu. Hrefna
lék bæði prelúdíuna, með sinni fal-
legu hljómskipan, og fúguna mjög
vel og gerði góða grein fyrir inn-
komum stefsins, sem er eina fúgu-
stefið í báðum heftunum sem snýst
um minnkaða níund.
Annað viðfangsefnið var sónata í
G-dúr K. 301 eftir Mozart. Laufey
Sigurðardóttir og Hrefna Unnur
Eggertsdóttir fluttu þessa elsku-
legu sónötu á stílhreinan og fal-
legan máta. Þessi sónata er fyrst í
flokki sónötuverka fyrir píanó og
fiðlu sem nefnast Mannheim-són-
öturnar. Camilla Söderberg og
Snorri Örn Snorrason fluttu fjóra
kafla úr svítu fyrir blokkflautu og
teorbu eftir Boismortier með glæsi-
brag og þar á eftir fluttu Oddur
Björnsson og Marteinn H. Frið-
riksson sónötu í g-moll eftir Loeil-
let, umritaða fyrir básúnu, og
hljómaði þessi gerð sónötunnar
mjög vel, sérstaklega fyrir ágætan
flutning Odds og gott sampil hans
og Marteins.
Lokaverkefni tónleikanna voru
tvö rómantísk verk op. 83, nr, 5 og
6, eftir Max Bruch, það fyrra lag
frá Rúmeníu og seinna Næturljóð,
samið fyrir lágfiðlu, klarinett og pí-
anó. Flytjendur voru Herdís Jóns-
dóttir, Kjartan Óskarsson og
Hrefna Unnur Eggertsdóttir og
voru þessi smástykki mjög vel flutt,
sérstaklega er varðaði fallega tón-
mótun hjá lágfiðluleikaranum Her-
dísi og klarinettleikaranum Kjart-
ani, svo og sameiginlega túlkun í
ágætu samspili.
Í heild voru þetta ánægjulegir
tónleikar, þar sem brugðið var upp
þeim myndum sem segja til um
hvað þessir nágrannar kirkjunnar
eru að fást við heima hjá sér, og að
því leyti til var yfirbragð tón-
leikanna eins og á „Hauskonzert“,
líklega þá í sama anda og Loeillet
hélt heima hjá sér eftir að hann
hætti störfum við King’s Theatre í
London 1710 og einnig er meistari
Bach lék prelúdíurnar og fúgurnar
á sitt „Clavier“ fyrir fjölskylduna
og vini sína á góðum stundum.
Jón Ásgeirsson
TÓNLIST
D ó m k i r k j a n
Á Tónlistardögum Dómkirkjunnar
sl. sunnudag flutti tónlistarfólk bú-
sett í nágrenni kirkjunnar tónverk
eftir J.S. Bach, Mozart, Boismor-
tier, Loeillet og Bruch.
Sunnudaginn 4. nóvember.
KAMMERTÓNLEIKAR
Nágrannar
Dómkirkjunnar
FRÁ því að dogme-hreyfingin
danska sló um sig á kvikmyndavett-
vangi samtímans með Lars von
Trier í broddi fylkingar, hafa menn
skipst á að velta fyrir sér hvað hin-
um annars ágætu kvikmyndagerð-
armönnum hafi gengið til með svo
stífri reglusetningu sem vandlega
skrásett aðferðafræðin markast af. Í
því sambandi hafa upphafsmenn
reglunnar ýmist verið álitnir snill-
ingar eða uppgerðarsérvitrir tæki-
færissinnar í leit að fjölmiðlaathygli.
En hvað sem þeim skoðanaskiptum
líður, felst gildi dogme-kennisetn-
ingarinnar í þeim vangaveltum sem
hún dregur fram um miðlun list-
arinnar í kvikmyndinni. Hér er
reyndar um að ræða sígilda spurn-
ingu sem varðar allar listgreinar en
er ekki vanþörf á að dusta rykið af
þar sem kvikmyndin er annars veg-
ar. Þ.e. hvort hin slétta og fellda
áferð sem viðtekin er m.a. í afurðum
Hollywood-iðnaðarins sé þess betur
umkomin að snerta við áhorfand-
anum en saga sem sögð er án þeirra
áhrifameðala sem kvikmyndagestir
eru orðnir svo vanir.
Nýjasta afurð dogme-reglunnar,
Ítalska fyrir byrjendur, heldur
þessum spurningum hátt á lofti. Þar
er sögð saga nokkurra manneskja í
ofurvenjulegum dönskum bæ eða
úthverfi, sem bögglast með sitt sál-
artetur í gegnum hversdagleika og
hörmungar tilverunnar. Kraftar
höfundarins beinast þar fyrst og
fremst að sögunni sem sögð er, og
er það hið sterka handrit myndar-
innar sem er listrænn miðpunktur
kvikmyndarinnar. Þar er hin efni-
lega danska leikstýra Lone Scherfig
þó hvergi hrædd við að búa til dálít-
ið rómantískan heim, að skemmta
áhorfandanum, með sögu sem kann-
ar bæði gleði og sorgir persóna
sinna og miðlað er af traustum hópi
danskra leikara. Ítalska fyrir byrj-
endur er því enn einn danski sól-
argeislinn í kvikmyndagerð samtím-
ans.
KVIKMYNDIR
R e g n b o g i n n
Leikstjóri og handritshöfundur:
Lone Scherfig. Kvikmyndataka:
Jörgen Johansson. Klipping: Gerd
Tjur. Aðalhlutverk: Anders W.
Berthelsen, Ann Elenora Jörg-
ensen, Anette Stövelbæk, Peter
Gantzler, Lars Kaalund.
Sýningartími: 112 mín. Danmörk/
Ítalía. DFI, DR og Zentropa
Entertainments, 2000.
ITALIENSK
FOR BEGYNDERE
(ÍTALSKA FYRIR
BYRJENDUR) Danskur
sólar-
geisli
„Ítalska fyrir byrjendur er enn einn danski sólargeislinn í kvikmynda-
gerð samtímans,“ segir meðal annars í umsögninni um myndina.
Heiða Jóhannsdótt ir
PRÓFESSOR Ernst Gombrich list-
fræðingur og gagnrýnandi lést í
Lundúnum á laugardag, 92 ára að
aldri. Gombrich
var höfundur
metsölubók-
arinnar Sögu
listarinnar, sem
hefur verið eitt
víðlesnasta rit
um vestræna
myndlist allt frá
því það kom
fyrst út árið
1950. Gombrich
fæddist í Vínarborg 1909, en flúði
til Lundúna árið 1936, undan upp-
gangi nasista. Í Englandi starfaði
hann sem listfræðingur og gagn-
rýnandi og sinnti fræðimennsku
bæði í listfræði, heimspeki og
skyldum greinum. Hann var einn-
ig ágætur tónlistarmaður. Saga
listarinnar höfðaði sterkt til al-
mennings og varð gríðarlega vin-
sæl, en Gombrich skrifaði mörg
fleiri rit um viðfangsefni sín sem
öðlast hafa virðingarsess meðal
fræðirita um myndlist. Gombrich
hlaut margvíslegar viðurkenn-
ingar fyrir störf sín og var sleg-
inn til riddara af Bretadrottningu
árið 1972. Saga listarinnar hefur
verið endurútgefin 16 sinnum með
ítarlegum viðbótargreinum höf-
undarins sjálfs. Hún hefur selst í
meira en sex milljón eintökum á
rúmlega 30 tungumálum. Saga
listarinnar kom út á íslensku hjá
Máli og menningu árið 1997 í þýð-
ingu Halldórs Björns Runólfs-
sonar listfræðings.
Gombrich
allur
Ernst
Gombrich
KONAN í köflótta stólnum er
eftir Þórunni Stefánsdóttur og seg-
ir frá baráttu hennar við þunglyndi
og bata sem hún náði að lokum.
Í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Eftir tíu ára glímu við sjúkdóm,
sem leiddi hana á barm örvænt-
ingar og sjálfsvígstilraunar, sjúk-
dóm, sem hefur lengi verið feimn-
ismál, sjúkdóm sem sækir heim
fleiri en okkur grunar, fann hún á
ný gleðina og tilganginn í lífinu.“
Þórunn Stefánsdóttir er fædd í
Reykjavík árið 1949. Hún lauk
stúdentsprófi frá öldungadeild
Menntaskólans við Hamrahlíð og
hefur m.a. starfað sem fulltrúi
skólastjóra Hjúkrunarskóla Íslands
og síðar sem fulltrúi dagskrárstjóra
á Rás 2. Útgefandi er JPV útgáfa.
Bókin er 190 bls, prentuð í Odda.
Hunang hannaði kápu en mynd á
kápu er af verki Steinunnar Þór-
arinsdóttur: Staður.
Nýjar bækur
STÍGAR er þriðja ljóðabók eft-
ir Guðberg Bergsson, en nú eru
liðin 25 ár frá síðustu ljóðabók
hans.
Í kynningu
segir m.a.:
„Ljóðin mynda
áhrifamikla
heild þótt þau
séu skrifuð á
ýmsum tímum.
Bók um skáld-
skapinn, ævina
og hugmynd-
irnar.“
Útgefandi er
JPV útgáfa. Bókin er 74 bls.,
prentuð í Odda. Hunang hannaði
bók og kápu en mynd á kápunni
er eftir Birgi Snæbjörn Birgisson.
♦ ♦ ♦
Guðbergur
Bergsson
KAFTEINN Ofurbrók og árás
kokhraustu klósettanna er eftir
Dav Pilkey í þýðingu Bjarna Fr.
Karlssonar. Þetta er önnur bókin
sem kemur út um Kaftein Of-
urbrók á íslensku.
„Haraldur og Georg eru yfirleitt
mjög ábyrgir drengir því þegar
eitthvað svakalegt gerist eru þeir
yfirleitt ábyrgir fyrir því. Fyrst
eyðileggja þeir hugvitskeppnina í
skólanum og síðan búa þeir óvart
til heila herdeild af kolgrimmum,
kokhraustum klósettum,“ segir
m.a. í fréttatilkynningu.
Útgefandi er JPV útgáfa. Bókin
er 170 bls. Verð: 2.480 kr.
Heimasíða Kafteinsins er:
http://www.captainunderp ants.-
com
Nýjar bækur