Morgunblaðið - 27.11.2001, Síða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isFetar Dunn í fótspor „Gazza“ og Owens
með liði Englendinga á HM? /B5
„Vítabaninn“ Roland Eradze er tilbú-
inn að skipta um ríkisfang /B2
12 SÍÐUR40 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
ÚRSKURÐUR ríkistollanefndar í
máli innflytjanda bóka gegn úr-
skurði tollstjórans í Reykjavík féll
innflytjandanum í vil, en nefndin
úrskurðaði að reikningsverð bók-
anna skyldi lagt til grundvallar við
útreikning tollverðs eins og inn-
flytjandinn fór fram á en ekki lista-
verð eins og tollstjóri krafðist.
Tildrög málsins eru þau að í
febrúar sl. keypti viðkomandi sex
bækur á tilboði hjá breska bóka-
klúbbnum The Folio Society. Til-
boðsverðið var 14,95 pund gegn því
að kaupa fjórar bækur til viðbótar
á tilteknu tímabili á svokölluðu
listaverði.
Við tollafgreiðslu neitaði toll-
stjóri að samþykkja kaupverðið
sem tollverð og reiknaði 24,5%
virðisaukaskatt út frá listaverði
bókanna eða 188,95 pundum. Inn-
flytjandinn gerði þá kröfu í kæru
sinni til ríkistollanefndar að við-
skiptaverðið yrði lagt til grundvall-
ar útreikningi aðflutningsgjalda, að
innheimtur yrði 14% virðisauka-
skattur og að honum yrði úrskurð-
aður málskostnaður. Tollstjórinn
krafðist staðfestingar á úrskurði
sínum og mótmælti jafnframt kröfu
kæranda um málskostnað.
Varðandi kröfu kæranda um
málskostnað tók ríkistollanefnd
fram að hana skorti lagaheimild til
að úrskurða um slíkt og var kröfu
kæranda um málskostnað því hafn-
að.
Kröfu kæranda um að 14% virð-
isaukaskattur yrði lagður til
grundvallar við útreikning skatts-
ins var jafnframt hafnað með vísan
til rökstuðnings ríkistollanefndar í
úrskurði sínum nr. 14/1999. Þar
kemur fram að það sé í samræmi
við íslensk lög að innheimta 24,5%
virðisaukaskatt af bókum á erlendu
máli enda sé tollmeðferðin sú sama
hvort sem hin erlenda bók sé
prentuð hér á landi eða erlendis.
Varðandi aðalkröfuna, þ.e. hvaða
tollverð skuli lagt til grundvallar
við álagningu gjalda, kemur fram í
úrskurði ríkistollanefndar að ekki
sé ágreiningur milli kæranda og
tollyfirvalda um kaupverð vörunn-
ar, þ.e. 14,95 pund. Verð vörunnar
liggi fyrir, sé óumdeilt og standi
öllum til boða. „Enda þótt skilyrði
þess að njóta verðsins 14,95 GBP á
fyrstu bókunum sé að kaupa fjórar
aðrar bækur á svokölluðu listaverði
verður að líta svo á að í því felist
aðeins ein aðferð seljanda vöru til
þess að veita magnafslátt, með
sama hætti og t.d. væri veitt hag-
stæðara verð á vöru ef hún væri
keypt í miklu magni. Það er mat
ríkistollanefndar að það að innflytj-
andi geri viðskiptasamning eins og
í þessu tilfelli um kaup á tilteknu
magni af vöru, á tilteknu verði,
valdi því ekki að viðskiptaverð sé
ekki tækt til tollverðs. Það er al-
kunna að verð á ýmsum vörum
lækkar tiltölulega hratt frá því að
þær voru fyrst settar á markað.
Þetta á til að mynda við um þá
vöru sem hér er verið að deila um
tollverð á.“
Í samræmi við þetta taldi rík-
istollanefnd að reikningsverðið
14,95 pund skyldi lagt til grund-
vallar við útreikning tollverðs.
Ríkistollanefnd úrskurðar bókakaupanda í hag
Tollur reiknaður
af reikningsverði
SAMSTÖÐUGANGA tónlistarkenn-
ara fór fram í gær og var gengið á
fjallið Þorbjörn við Grindavík en
þátttakendur voru bæði af höf-
uðborgarsvæðinu og Suðurnesjum.
Að sögn Helgu Bjarkar Grétudótt-
ur, sem skipulagði gönguna, var
þátttaka góð og reyndust tónlistar-
kennarar í góðu formi og voru
snöggir upp á fjallið þar sem séra
Pétur Þorsteinsson flutti erindi auk
þess sem sungnir voru baráttu-
söngvar. Fyrir göngunni var borinn
gunnfáni með áletruninni „tónlist
er opinberun og einmitt í því er fal-
inn sigurmáttur hennar“. Á hinni
hlið fánans stóð: „Tónlistin er tákn
lífsins.“
Göngumenn drukku síðan kaffi í
safnaðarheimili Grindavíkurkirkju
og héldu að því loknu í Bláa lónið.
Sigríður Sveinsdóttir hjá Félagi
tónlistarskólakennara segir að
gangan sé til marks um hug-
myndaauðgi tónlistarkennara.
„Menn hafa látið sér detta ýmislegt
í hug til þess að sameina andann, og
gangan var liður í þeirri viðleitni.
Og andinn hefur raunar verið góð-
ur allan tímann og við erum óskap-
lega ánægð með allan þann samhug
sem við höfum fundið fyrir.“
Sigríður segir að auðvitað vonist
tónlistarkennarar til þess að fara
að sjá fyrir endann á verkfallinu;
verkfallið sé búið að standa í fimm
vikur og sjötta vikan nú að hefjast.
Fulltrúar tónlistarkennara hafa
setið nær sleitulaust á samn-
ingafundum með viðsemjendum frá
því á föstudaginn. Samnningafund-
ur hófst klukkan níu í gærmorgun
og stóð enn þegar síðast fréttist en
ekki var ljóst hvort samkomulag
væri í augsýn.
Morgunblaðið/RAX
Tónlistarkennarar á Þorbjörn
Jólakveðjur
á mbl.is
LESENDUR vefja mbl.is geta
sem fyrr nýtt sér þá þjónustu
að senda jólakveðjur af forsíðu
mbl.is. Hægt er að velja kveðj-
ur á mismunandi tungumálum
og mynd sem fylgja á kveðj-
unni. Þeir sem senda jólakveðj-
ur með þessum hætti lenda í
lukkupotti og dregnir verða út
vinningar frá Hans Petersen á
nýju ári.
Einnig er hægt að senda aðr-
ar kveðjur, s.s. vegna brúð-
kaups, afmælis, skírnar o.s.frv.
HVÍTT duft, sem talið var að gæti
innihaldið miltisbrandsgró, fannst á
gólfi farangursrýmis Flugleiðaþotu
á Keflavíkurflugvelli í gærdag. Vélin
var kyrrsett en í ljós kom að duftið
var bindiefni fyrir ávaxtasafa sem
hafði lekið úr kassa.
Vélin var að koma frá Kaup-
mannahöfn og var á leið til New
York. Önnur vél Flugleiða flutti far-
þegana vestur um haf. Að sögn Guð-
jóns Arngrímssonar, upplýsingafull-
trúa Flugleiða, varð rúmlega tveggja
tíma seinkun af þessum völdum.
Óskar Þórmundsson, yfirlögreglu-
þjónn á Keflavíkurflugvelli, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
hlaðmenn hefðu orðið varir við tor-
kennilegt hvítt duft á gólfi farang-
ursrýmis þotunnar þegar þeir unnu
að því að afferma hana. Þeir þustu
þegar út úr vélinni og kölluðu til
slökkviliðið sem fékk tilkynningu um
málið kl. 16:20. Óskar segir að allur
viðbúnaður hafi miðast við að í duft-
inu gæti verið miltisbrandsgró. Þot-
an var því lokuð af og eiturefnadeild
slökkviliðsins kölluð á staðinn. Jafn-
framt var haft samband við Harald
Briem sóttvarnalækni og samráð
haft við hann um aðgerðir
Fjórir hlaðmenn voru að vinna við
vélina þegar duftið fannst og voru
þeir allir sendir til Reykjavíkur til
læknisskoðunar og sýni tekin til
ræktunar.
Að sögn Óskars settu slökkviliðs-
menn duftið í vettvangspróf og voru
niðurstöður úr því neikvæðar. Í
framhaldi af því fóru lögreglumenn
inn í vélina og fundu þar kassa sem
lak hvítu dufti. Í farmskránni kom
fram að kassinn innihélt xantan-
gúmmí sem er bindiefni fyrir ávaxta-
safa. Viðtakandi var Ölgerð Egils
Skallagrímssonar í Reykjavík. Í ljósi
niðurstöðu vettvangsprófsins og
farmlýsingarinnar á kassanum var
ákveðið að aflétta viðbúnaði kl. 19:40.
Morgunblaðið/ Hilmar Bragi
Mikill viðbúnaður var við vélina þar til í ljós kom að duftið var meinlaust.
Hvítt duft var í
farangursrými
LÖGREGLAN í Hafnarfirði handtók
tvo menn á fertugs- og fimmtugsaldri
síðastliðið laugardagskvöld og í fram-
haldi af því var gerð húsleit í iðnaðar-
húsnæði í Hafnarfirði þar sem komið
var upp um eina umfangsmestu fíkni-
efnarækt sem íslensk lögregla hefur
komist í tæri við. Hald var lagt á tæp-
lega 600 kannabisplöntur, sem menn-
irnir játuðu að hafa átt. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni hafði
verið komið upp aðstöðu með tilheyr-
andi búnaði fyrir fíkniefnaframleiðsl-
una.
Lögregluna grunar að stunduð hafi
verið markviss fíkniefnaframleiðsla í
söluskyni og segir hún að plönturnar
hafi verið á öllum framleiðslustigum.
Við húsleitina fundust ennfremur um
700 grömm af tilbúnu maríjúana.
Mönnunum tveimur var sleppt að
loknum yfirheyrslum og þótti ekki
ástæða til að krefjast gæsluvarðhalds
vegna rannsóknar málsins.
Undirbúningur að málinu hefur
staðið frá því í júlí og segir lögreglan
að vandaður undirbúningur og mik-
ilvæg samvinna þeirra lögregluemb-
ætta sem aðild áttu að málinu hafi
skipt sköpum. Annar þeirra sem
handteknir voru er vel þekktur í fíkni-
efnaheiminum.
Málið var unnið í samvinnu við rík-
islögreglustjóra, lögregluna í Kefla-
vík og Kópavogi og fíkniefnadeild lög-
reglunnar í Reykjavík.
Hald lagt
á tæplega
600 kanna-
bisplöntur