Morgunblaðið - 27.11.2001, Síða 36
UMRÆÐAN
36 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FÁTT er mikilvæg-
ara í samfélagi okkar
en að sköttum sé skip-
að á þann veg að jafn-
ræðis sé gætt milli
skattgreiðenda. Við
höfum jafnan rétt til
náms, sjúkraþjónustu
og annarrar þjónustu
sem greidd er úr sam-
eiginlegum sjóðum
landsmanna. En án
skatta væru engir
sameiginlegir sjóðir til
ráðstöfunar. Án skatta
gætum við ekki starf-
að saman í því þjóð-
félagi velferðar og lýð-
ræðis sem við erum
stolt af.
Úr því að jafnræði er í heiðri
haft við útgreiðslur úr sameiginleg-
um sjóðum er ekki sjálfgefið að
jafnræði sé ófrávíkjanleg regla í
skattheimtunni? Jú, við höfum
haldið að það sé sjálfgefið enda er
kveðið á um það í stjórnarskrá okk-
ar að allir skuli jafnir fyrir lögum,
skattalögum eins og öðrum lögum.
Að sjálfsögðu fær til dæmis ekki
staðist að eitt skatthlutfall gildi fyr-
ir karla og annað fyrir konur eða að
skatthlutfall sé mismunandi eftir
menntun eða búsetu.
Hvernig má það þá vera að í ein-
um þætti í fyrirliggjandi frumvarpi
til laga um tekjuskatt og fleira
skuli felast tillaga um grófa mis-
munun í álagningu tekjuskatts?
Hvernig má það vera að fram komi
hugmynd um að vissum hópi lands-
manna verði gefinn
kostur á að lækka það
hlutfall sem þeir
greiða í skatt af hluta
tekna sinna úr um
38% (eða 45%) í ein-
ungis 26,2%? Þetta á
að vera unnt að gera
með ákaflega auð-
veldri formbreytingu á
atvinnustarfsemi úr
einstaklingsrekstri í
einkahlutafélag. Þetta
er nærri því jafn frá-
leit mismunun og að
kveða á um að þeir
sem keypt hafa sér-
stakar númeraplötur á
bíla sína skuli njóta
verulega lægra skatthlutfalls en
aðrir landsmenn.
Sömu tekjur – Mikill
munur á sköttum
Við skulum skoða eitt lítið dæmi
um þá mismunun sem hér er stefnt
að. Við skulum líta á skatta Jóns og
Péturs sem hafa hliðstæða mennt-
un og sömu tekjur. Pétur mun geta
nýtt sér fyrirhugaða lagabreytingu
en Jón ekki.
Jón er launþegi enda hefur verið
lítið um það á hans starfssviði að
menn gætu boðið fram vinnu sína
sem verktakar. Auk starfa fyrir að-
allaunagreiðanda vinnur hann tölu-
verða aukavinnu fyrir aðra. Ætla
má að tekjur hans á árinu 2001
verði að meðaltali 550.000 kr. á
mánuði.
Pétur hefur starfað sem verktaki
og fært tekjur sínar í rekstrar-
reikning og á skattframtal sem ein-
staklingur með rekstur samkvæmt
núgildandi reglum. Hann hefur því
greitt sama hlutfall í skatt af
tekjum sínum og Jón. Pétur er
himinlifandi yfir framkomnum til-
lögum í skattamálum. Hann er þeg-
ar búinn að ákveða að stofna einka-
hlutafélag með 500.000 kr. hlutafé
og verður hann eini hluthafinn. Pét-
ur verður jafnframt eini starfsmað-
ur félagsins enda hefur hann ekki
haft starfsmenn í þjónustu sinni til
þessa. Hann áætlar að tekjur sínar
að frádregnum rekstrargjöldum
verði að meðaltali 550.000 kr. á
mánuði á árinu 2001. Sem rekstr-
araðili þekkir Pétur reglur skatt-
yfirvalda um svokallað reiknað end-
urgjald og mun framvegis sem
hingað til reikna sér þau lágmarks-
laun sem fram koma í reglunum
varðandi hans starfsgrein og starfs-
umfang. Þetta lágmark er 330.000
kr. á mánuði á árinu 2001. Ef fyr-
irhugað skatthlutfall væri í gildi á
árinu 2001 mundi hann því greiða
26,2% af 220.000 kr. á mánuði
(550.000-330.000) í stað um 38%.
Ef hinar fyrirhuguðu reglur
væru í gildi á árinu 2001 mundi
Pétur greiða rúmlega 300.000 kr.
minni tekjuskatta en Jón enda þótt
tekjur þeirra séu þær sömu.
Fær slík mismunun staðist?
Væru Jón og Pétur jafnir fyrir lög-
um ef svona væri að farið?
Reiknuð laun
Með hliðsjón af því sem að fram-
an segir um skattamál Péturs má
spyrja hvort ekki megi bæta úr
umræddu misrétti með því að
hækka þau lágmörk sem skattyfir-
völd setja um reiknuð laun og
herða framkvæmd reglna um það
efni. Ljóst er þó að eðli máls sam-
kvæmt verður að gæta mikils hófs
við ákvörðun slíkra lágmarksfjár-
hæða og hófsemdar um alla fram-
kvæmd. Ég fæ ekki séð að það sem
fram kemur um þetta efni í fyr-
irliggjandi frumvarpi geti breytt
neinu sem máli skiptir á þessu
sviði. Kunnáttumenn í skattamálum
sem ég hef rætt við eru mér sam-
mála um þetta.
Nær misréttið aðeins
til fáeinna hátekjumanna?
Í fyrirliggjandi frumvarpi er að
sjálfsögðu ekki að finna upplýsing-
ar eða áætlun um fjölda þeirra
skattgreiðenda sem framangreind
mismunun í skattheimtu mun ná til.
Þeir Pétur og Jón, sem fjallað er
um hér að framan, hafa vissulega
góðar tekjur og spyrja má hvort
umrædd mismunun muni ekki ein-
ungis snerta skatta fámenns hóps
hátekjumanna. En þeir félagar Pét-
ur og Jón hafa nú ekki hærri laun
en það að þeir hefðu ekki greitt
svokallaðan hátekjuskatt af þeim
fjárhæðum á tekjuárinu 2000 enda
bætast ekki við neinar tekjur frá
maka. Þeir hefðu því ekki komist í
hóp 15.144 skattgreiðenda sem
greiddu hátekjuskatt af tekjum árs-
ins 2000. Lögð skal áhersla á að
fyrirhuguð mismunun verður enn
meiri af fjárhæðum sem lenda í há-
tekjuskatti heldur en dæmið um
Jón og Pétur sýnir.
Það mál sem hér er til umræðu
mun því snerta stóran hóp skatt-
greiðenda með beinum hætti.
Margir þeirra munu verða himinlif-
andi, eins og Pétur í dæminu hér að
framan, og munu hugsa með mikilli
hlýju til þeirra sem standa að fram-
gangi málsis. Aðrir munu verða að
láta sér nægja að óska þeim til
hamingju sem voru svo heppnir að
lenda í skattalegum forréttinda-
hópi.
En auðvitað varðar þetta mál alla
landsmenn enda þótt það snerti
ekki alla með beinum hætti í dag.
Það skiptir alla miklu að landsmenn
verði áfram jafnir fyrir skattalög-
um eins og öðrum lögum. Með um-
ræddri löggjafartillögu er stefnt á
mjög varhugaverða braut í þessu
efni.
Kemst þú í fyrirhugaðan
forréttindahóp?
Fái það staðist að mati meiri-
hluta á Alþingi að lögfesta skatta-
leg forréttindi með framangreind-
um hætti munu allir sem hafa
tekjur yfir vissu marki taka stefn-
una á fyrirhugaðan skattalegan for-
réttindahóp. Þetta er einfalt mál
hjá þeim sem nú eru með svokall-
aðan einstaklingsrekstur. Öðru máli
gegnir um þá sem nú eru launþeg-
ar. Þeir þurfa að gerast verktakar
til að ná þessu markmiði. Hefur þú,
lesandi góður, aðstöðu til að komast
í forréttindahópinn?
Kemst þú í fyrirhug-
aðan forréttindahóp?
Sveinn
Jónsson
Tekjuskatturinn
Hvernig má það þá
vera, spyr Sveinn Jóns-
son, að í einum þætti í
fyrirliggjandi frumvarpi
til laga um tekjuskatt og
fleira skuli felast tillaga
um grófa mismunun í
álagningu tekjuskatts?
Höfundur er löggiltur
endurskoðandi.
TALSMENN inn-
göngu Íslands í Evr-
ópusambandið fara
mikinn þessa dagana.
Nýjasta áróðursbragð
þeirra er að reyna að
telja okkur trú um að
áhrif Íslands yrðu
veruleg í ESB.
Kannski ekki eins mikil
og Þýskalands, segja
þeir drýgindalega, en
engu að síður svo mikil
að eftir okkur yrði tek-
ið.
Vitanlega láta aðild-
arsinnar engar nánari
skýringar fylgja en
beita fyrir sig mál-
skrúði eins og að alltaf sé hægt að
koma góðum málum fram séu þau
,,nægilega vel undirbúin“.
Það þarf ekki að fara í grafgötur
um hver áhrif Íslands yrðu í Brussel.
Í dagblaðinu Financial Times frá 12.
desember 2000 er tafla um áhrif að-
ildarríkjanna í helstu stofnunum
ESB.
Samkvæmt núgildandi reglum um
atkvæði í ráðherraráðinu hefur Lúx-
emborg, smáþjóð með 430 þúsund
íbúa, tvö atkvæði af 87. Eftir að Nice
samþykktin öðlast gildi og aðildar-
ríkjum fjölgar fær Lúxemborg fjög-
ur atkvæði af 237, eða
liðlega eitt prósent. Á
Evrópuþinginu hefur
Lúxemborg sex at-
kvæði af 626, eða minna
en eitt prósent. Það
hlutfall mun lækka
þegar fjölgað verður
þingmönnum.
Ráðherraráðið og
Evrópuþingið eru þær
stofnanir sem taka til
sín æ meira vald á
kostnað framkvæmda-
stjórnar ESB, en þar
hefur hlutur smáþjóða
verið tryggður með því
að þær fengu til
skamms tíma að til-
nefna framkvæmdastjóra.
Þegar það liggur fyrir að hlutur
Íslands í ESB yrði eitt prósent, eða
þaðan af minna, verður æpandi
tómahljóð í málflutningi aðildar-
sinna. Þeir munu ekki láta segjast, ef
að líkum lætur, og auka enn á hávað-
ann í þeirri von að blekkja fólk til liðs
við vondan málstað.
Ísland hefði
1% áhrif í ESB
Páll
Vilhjálmsson
Höfundur er fulltrúi.
Evrópusambandið
Þegar það liggur fyrir
að hlutur Íslands í ESB
yrði eitt prósent, eða
þaðan af minna, segir
Páll Vilhjálmsson, verð-
ur æpandi tómahljóð í
málflutningi aðildar-
sinna.
Hrei
nsum
viðar-, rimla-,
strimla-, plíseruð-
og sólargluggatjöld.
Hlíðarhjalla 26, s. 897 3634.