Morgunblaðið - 15.12.2001, Síða 8

Morgunblaðið - 15.12.2001, Síða 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ „Yrsa hefur geti› sér gott or› fyrir skemmtilegar barna- og unglingasögur og B10 stendur vel undir væntingum. Sagan ætti a› vekja kátínu og gle›i hjá fermingarbörnum sem ö›rum og ég mæli hiklaust me› henni.“ Katrín Jakobsdóttir, DV Baráttan vi› bo›or›in ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S E D D 1 62 79 12 /2 00 1 Yrsa Sigur›ardóttir Potter litli er að spyrja hvort þið viljið kaupa kústasköft? Fuglaverndarfélag Íslands Verkefni ærin og fer fjölgandi FuglaverndarfélagÍslands hefur lengiverið við lýði og hefur komið ýmsu góðu til leiðar þótt ekki hafi farið mikið fyrir félagsskapn- um. Núverandi formaður félagsins er Jóhann Óli Hilmarsson, fuglafræðing- ur og náttúrulífsljósmynd- ari, og Morgunblaðið fræddist um Fuglavernd- arfélag Íslands í samtali við Jóhann Óla á dögunum. Hvenær var félagið stofnað og af hvaða tilefni? „Fuglaverndarfélag Ís- lands var stofnað árið 1963. Helstu hvatamenn að stofnun þess voru lækn- arnir Björn Guðbrands- son, Úlfar Þórðarson, Richard Thors og Þórður Þor- bjarnarson. Það var stofnað til að bjarga haferninum frá útrýmingu og snerist starfið fyrsta aldar- fjórðunginn að miklu leyti um verndun arnarins og að fylgjast með afkomu hans og útbreiðslu. Starfi frumkvöðlanna, sérstak- lega Björns Guðbrandssonar, sem var aðaldriffjöður félagsins í þrjá áratugi, má eflaust þakka að ern- inum var bjargað frá útrýmingu hérlendis. Þó svo að örninn sé kominn yfir erfiðasta hjallann, eftir herferð gegn honum á fyrri hluta síðustu aldar, er enn fylgst náið með honum. Stofninn vex mun hægar heldur en í nágranna- löndunum og er nú reynt að finna út úr hvað veldur því.“ Hvað eru félagar margir? „Þeir eru vel á fimmta hundr- aðið. Við höfum sett markið á að fjórfalda þá tölu á allra næstu ár- um.“ Hvað gerir félagið helst fyrir fé- laga sína? „Starfsemin er fjölbreytt og fer vaxandi. Þar sem þetta er eina fuglafélag landsins sinnir það bæði fuglaverndarmálum og auk þess ýmsu því sem fuglafræði- félög nágrannalandanna standa að. Við gefum reglulega út frétta- bréf, sem er 4 til 24 síður að stærð. Það fer eftir því hve mikið berst af efni og hvað er að gerast hverju sinni. Félagið er aðili að útgáfu Blika, eina íslenska fuglatímarits- ins, en stefnan hefur verið sett á að gefa út veglegt ársrit með lit- myndum og öðru fíneríi fljótlega. Félagið stendur á hverjum vetri fyrir fræðslufundum, fuglaskoð- unum, rabbfundum og ýmiss kon- ar fræðslu. Við höfum staðið fyrir uppákomum, eins og árlegum flórgoðadegi við Ástjörn í sam- vinnu við Hafnfirðinga, margæs- ardegi, farfuglakynningu, vísiter- að sveitarfélög o.m.fl. Garðfuglakönnun er eitt, en milli 20 og 30 félagar taka þátt í henni á hverjum vetri. Við gefum auk þess út jólakort, ýmsa bæklinga og fleira, bæði ein og sér eða í sam- vinnu við aðra. Ein deild er starfandi á lands- byggðinni og er hún á Austur- landi. Þar hafa ýmsar uppákomur verið í gangi, fuglatalningar, myndasýningar, flórgoðatjarnir teknar í fóstur og margt fleira. Heimasíða félagsins er fremur ný, en við bindum miklar vonir við að hún verði lifandi vettvangur um- ræðu og fræðslu í framtíðinni. Slóðin er www.fuglavernd.is.“ Félagið lætur sér fátt óviðkom- andi, m.a. endurheimtingu vot- lendis, virkjunarmál, friðlönd o.m.fl. Eru verkefnin e.t.v. fleiri heldur en félagið ræður almenni- lega við? „Ég held ég verði að svara þessu játandi. Eins og þulan sem þú nefndir sýnir eru verkefnin ær- in og þeim fer fjölgandi. Nú er nær allt starf unnið í sjálfboða- vinnu en við stefnum að því að koma okkur upp launuðum starfs- manni sem allra fyrst. Það er alla- vega stúss og skriffinnska, sem stjórnarmenn eru að vasast í, en þeir gætu beitt sér í baráttunni af alhug, ef fagmaður sæi um skrif- stofureksturinn. Svo leggst félag- ið líka í dvala á sumrin, sem er af- ar slæmt fyrir starfsemina, þegar starfið meðal félaganna ætti að vera hvað öflugast. Stjórnarmenn og -konur leggjast þá út, frá því í maí og fram í september, og sinna starfi sínu eða áhugamáli úti í náttúrunni, meðal fuglanna. Ef einhvern fjársterkan aðila vantar gott málefni til að styðja, þá veit ég um eitt...“ Er félagið sæmilegasti þrýsti- hópur? „Sæmilegur þrýstihópur, það er orðið, við yrðum mun öflugri þrýstihópur, ef við gætum einbeitt okkur að baráttunni, eins og ég nefndi hér áðan. Hinir fiðruðu, mállausu skjólstæðingar okkar þurfa á öllum okkar stuðningi að halda.“ Hvernig er starfsemin fjár- mögnuð ef frá eru talin fé- lagsgjöld? „Félagsgjöldin eru ennþá aðal- tekjulindin. Við höfum þó fengið styrki í nokkur afmörkuð verkefni eins og frá Þjóðhátíðarsjóði, sem hefur styrkt arnar- starfið, umhverfisráðu- neytið hefur einnig styrkt okkur, Body Shop styrkti okkur til að gera bækling og veggspjald um vernd votlendis og Konunglega breska fuglaverndar- félagið hefur styrkt okkur með heimsóknum sérfræðinga. Einnig má nefna að Pokasjóður styrkti okkur rausnalega til að byggja upp friðland í Flóa. Við reynum einnig að hressa við pyngjuna með sölu jólakorta. Það eru falleg kort, jólalegar fuglaljósmyndir sem ég hef tekið.“ Jóhann Óli Hilmarsson  Jóhann Óli Hilmarsson er fæddur í Reykjavík árið 1954, en er nú búsettur á Stokkseyri. Hann hefur starfað um árabil sem sjálfstæður fuglafræðingur og fuglaljósmyndari og hefur m.a. ritað og myndskreytt bók- ina Íslenskur fuglavísir. Eftir hann liggur aragrúi af greinum, skýrslum, fréttum, myndskreyt- ingum og fleira, jafnt í inn- lendum sem erlendum miðlum. Hann hefur verið formaður Fuglaverndarfélagsins frá árinu 1998, setið í stjórn þess frá 1987 og verið félagi þar síðan 1971. Stjórnarmenn og -konur leggjast út LYFJAEITRANIR og sjálfsvíg voru samanlagt algengustu ástæð- ur skyndidauða utan spítala næst á eftir hjartasjúkdómum í þeim til- vikum sem áhöfn neyðarbíls var kölluð til. Árangur af endurlífgun- artilraunum er mun lakari þegar ástæða skyndidauða er önnur er hjartasjúkdómur. Lífslíkur eru skástar þegar um köfnunar- eða drukknunartilvik er að ræða. Þetta kemur fram í grein læknanna Sigurðar Marelssonar og Gests Þorgeirssonar í síðasta tölublaði Læknablaðsins. Tilgang- ur höfunda var að kanna þau tilfelli skyndidauða utan sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæðinu sem orðið hafa af öðrum ástæðum en hjarta- sjúkdómum árin 1987 til 1999. Læknar neyðarbílsins skrá til- felli skyndidauða og er þeim skipt í tvo flokka. Ytri ástæður teljast sjálfsvíg, lyfjaeitranir, áverkar, drukkanir og tilfelli sem rakin eru til köfnunar. Innri ástæður eru ýmsar tegundir blæðinga, súrefn- isþurrð, vöggudauði og ýmsir sjúk- dómar aðrir en hjartasjúkdómar. Af 738 tilfellum voru 140 tilfelli af skyndidauða af öðrum ástæðum en hjartasjúkdómum. Er það um fimmta hvert tilfelli sem neyðarbíll er kallaður til vegna skyndidauða. Sjálfsvíg voru 19 af þessum 140 til- vikum og lyfjaeitranir 23 en þau eru flest eða öll talin vera í sjálfs- vígstilgangi. Þá voru ýmsir áverkar ástæða skyndidauða í 23 tilfellum og voru bílslys algengust þeirra. Aðrar or- sakir áverka voru rafmagnsslys, freonslys og slys í heimahúsum. Köfnun eða næstum því köfnun voru 20 tilvik og var flogaveiki al- gengasta ástæðan. Sjö einstakling- ar drukknuðu. Endurlífgun var reynd af áhöfn neyðarbílsins í 135 tilvikum af þessum 140. Nærstaddir reyndu grunnendurlífgun í 34 tilvikum og útskrifuðust fjórir þeirra. Í 81 til- felli var hún ekki reynd og útskrif- uðust tveir einstaklingar. Í 25 tilfellum var ekki vitað hvort grunnendurlífgun var reynd af nærstöddum og útskrifuðust þrír úr þeim hópi. Hvort sem vitni urðu að áfalli eða grunnendurlífg- unartilraun var reynd leiddi það ekki til þess að hlutfallslega fleiri úr þeim sjúklingahópi lifðu áfallið af. Lyfjaeitrun og sjálfsvíg algengasta ástæðan Skyndidauði af öðrum ástæðum en hjartasjúkdómum AÐALFUNDUR Íslensk-ameríska félagsins var haldinn þriðjudaginn 11. desember 2001 og voru þá kjörin í stjórn: Einar Benediktsson formaður og meðstjórnendur Þórður S. Óskars- son, Sigurjón Ásbjörnsson, Árni S. Sigurðsson, Kristín Jónsdóttir, Gunn- ar S. Sigurðsson og Skarphéðinn B. Steinarsson. Framkvæmdastjóri fé- lagsins er Kristín Ólafsdóttir. Meðal hefðbundinna starfa félags- ins á síðastliðnu ári var veiting náms- styrkja á þess vegum en þeirra helst- ur er Thor Thors-styrkurinn. Þess styrks njóta nú 7 námsmenn og eru flestir þeirra við doktorsnám í Banda- ríkjunum. Önnur störf á vegum fé- lagsins voru skipulagning námstefnu um háskólanám í Bandaríkjunum. Aðalfundur Íslensk- ameríska félagsins
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.