Morgunblaðið - 15.12.2001, Page 20
LANDIÐ
20 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR skömmu efndi Anna Svan-
hildur Björnsdóttir til útgáfuhátíðar
í Safnahúsinu á Húsavík. Þar kynnti
Anna Svanhildur ljóðabók sína, Með-
an sól er enn á lofti.
Á hátíðinni var m.a boðið upp á
söng- og ljóðlist, Hólmfríður Bene-
diktsdóttir söng nokkur lög við und-
irleik Aladár Rácz og Snædís Gunn-
laugsdóttir las nokkur ljóð upp úr
þessari nýútkomnu ljóðabók. Að
þessu loknu var boðið upp á glæsi-
legar veitingar sem runnu ljúflega
niður við píanóundirleik Aladár
Rácz.
Þetta er sjöunda ljóðabók höfund-
ar sem gefur hana út sjálf eins og
þær fyrri. Anna Svanhildur, sem hef-
ur hlotið verðlaun fyrir ljóð sín bæði
hér heima og erlendis, starfar nú
sem kennari við Borgarhólsskóla á
Húsavík.
Anna Sv. Björnsdóttir
kynnir ljóðabók sína
Húsavík
BRÆÐURNIR Jóhann Viðar og
Karl Jóhannssynir hafa hannað
og smíðað vél sem verkar skít
undan refa- og minkabúrum.
Karl sem býr loðdýrabúi ásamt
konu sinni Svanfríði Óladóttir á
Þrepi í Eiðaþinghá sagði að þeg-
ar loðdýrabúin voru byggð upp á
sínum tíma hafi gleymst að gera
ráð fyrir tækni til að moka undan
dýrunum. Hingað til hafi menn
þurft að moka undan búrunum
hálfbognir með kvísl og hjólbörur
að vopni. Karl fékk þess vegna
Jóhann Viðar bróður sinn sem
rak vélsmiðju í Keflavík í lið með
sér og í sameiningu hönnuðu þeir
og þróuðu vél sem sett er framan
á léttan traktor og hreinsar Karl
nú allan skít úr loðdýrahúsunum
hjá sér með þessari vél. Vélin er
glussadrifin og samanstendur í
meginatriðum af tveimur sniglum
sem smíðaðir voru hjá Héðni,
annar snigillinn tekur skítinn upp
og færir að hinum sniglinum sem
færir hann upp í kassa sem er
fastur við vélina. Síðan er hægt
að losa kassann af traktornum
þar sem henta þykir en Karl not-
ar allan loðdýraskít til upp-
græðslu.
Jóhann Viðar segir að þessi
smíði hafi kostað nokkurt fé ef
allar vinnustundir séu teknar
með í reikninginn en mikið hafi
þurft að spekúlera og breyta og
bæta meðan á smíðinni stóð.
Hann segist ekki vilja smíða eina
og eina svona vél en telur kannski
grundvöll fyrir smíði ef hann
fengi pöntun í tíu vélar í einu.
Norður-Hérað
Karl Jóhannsson við snig-
ilinn sem tekur skítinn upp
af gólfinu. Vel tókst til með
stillinguna á nánd snigilsins
við botninn í húsunum sem
jafnan er sandbotn, hann
tekur svo vel upp af gólfinu
að sandurinn er nánast
hreinn eftir.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins
Jóhann Stefánsson var að
moka út úr loðdýrahús-
unum og segir að vélin
virki vel og búið sé að
komast fyrir byrjunarörð-
ugleikana sem alltaf fylgi
svona smíði.
Verka skít und-
an loðdýrum
með nýrri vél
CUVILLIÉS-strengjakvartettinn
hélt tónleika í Egilsstaðakirkju á
dögunum. Kvartettinn er skip-
aður Florian Sonnleitner, kons-
ertmeistara Útvarpshljómsveit-
arinnar í München á 1. fiðlu, Aldo
Volpini 2. fiðlu, Roland Metzger á
lágfiðlu og Peter Wöpke á kné-
fiðlu. Þeir eru allir meðal for-
ystumanna í Ríkishljómsveit-
inni í Bayern, en hún leikur í
Ríkisóperunni í München, einni
virtustu óperustofnun Evrópu.
Á tónleikunum voru flutt
þrjú verk: Dissonanz í C-dúr
K.465 eftir Mozart, strengja-
kvartett nr. 2 í a-moll eftir
Béla Bartók og strengjakvart-
ett í Es-dúr, op. 74 eftir
Beethoven, en öll þrjú verkin
teljast til öndvegisverka höfunda
sinna.
Sonnleitner sagði tónleikagest-
um frá tónlistinni og höfundum
hennar og að flutningi loknum
þakkaði hann sérstaklega ungum
tónleikagestum í Egilsstaðakirkju
góða hlustun.
Cuvilliés-kvartettinn hefur á
liðnum árum 10 sinnum komið til
landsins til tónleikahalds
Strengjakvartettar í Egilsstaðakirkju
Egilsstaðir
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Cuvilliés-strengjakvartettinn frá München spilaði strengjakvartetta í Egilsstaðakirkju.
DAGAR myrkursins voru haldnir
hátíðlegir öðru sinni á Austurlandi
dagana 22.–25. nóvember og voru
skemmtanir víða um fjórðunginn af
því tilefni. Myrkrið var hyllt með
blysför, stjörnuskoðun, kvöldvök-
um, draugasögum, tónleikum og
mörgu fleira. Einhverjir grunn-
skólar voru með sérstaka dagskrá
nemenda í tengslum við hátíðina.
Vakan hófst með opnun listsýn-
ingar leikskólabarna um þemað
myrkur í aðalsal menningar-
miðstöðvarinnar. Í framhaldi af því
voru tónleikar og síðan harm-
ónikkuball fram eftir kvöldi. Fyrr
um daginn var draugasögustund í
bókasafninu og stjörnuskoðun á
Fjarðarheiði.
Dagar
myrkursins
haldnir
hátíðlegir
Seyðisfjörður
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Avanti Ósk Pétursdóttir og Muff Warden, á píanó, syngja lagið um hann Tuma litla sem fer á fætur í myrkrinu.