Morgunblaðið - 15.12.2001, Side 75

Morgunblaðið - 15.12.2001, Side 75
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 75 ANNA SUI Draumórakenndur ilmur SUI DREAMS ÚTSÖLUSTAÐIR: Clara, Kringlunni, Sigurboginn, Laugavegi, Debenhams, Smáralind, Hagkaup, snyrtivörudeildir, Lyfja, Smáralind, Laugarnes Apótek, Nana, Hólagarði, Hringbrautar Apótek, Hringbraut, Borgar Apótek, Álftamýri, Gallery Förðun, Keflavík, Silfurtorg, Ísafirði, Tara, Akureyri, Apótek Blönduóss, Apótek Sauðárkróks, Apótek Vestmannaeyja, Hafnarapótek, Hornafirði, Húsavíkur Apótek. MIKIÐ er um að vera í Smáralind um helgina, í dag, laugardaginn 15. desember, jólaball, Páll Óskar og Monika, Svala Björgvinsdóttir ásamt DJ Erb og Angel, Á móti sól, Buttercup, Védís Hervör, Geir Ólafsson, Rottweilerhundar, harm- onikkuhljómsveit, Karlakór Kjalnes- inga, Fatíma, jólasveinar bjóða börn- um í hestvagnaferðir, sýndur dans og jólasagan lesin. Sunnudaginn 16. desember syngur Mosfellskórinn, Fjórar klassískar, Katrín Sigurðar- dóttir og Klossakórinn, Skólahljóm- sveit Kópavogs leikur, jólaball, jóla- sagan, Gulli Briem, Jón forseti og hljómsveit Farmalls, jólasveinar, strengjasveitir og flautuleikur, segir í frétt frá Smáralind. Smáralind um helgina BEDCO & Mathiesen styðja og styrkja verndaða vinnustaðinn Ás- garð þar sem mikið tjón vegna bruna varð í byrjun desember sl. Í stað þess að senda út hefðbundnar jólakveðjur mun Bedco & Mathie- sen láta andvirði þeirra renna til Ásgarðs handverstæðis. Þór Ingi Daníelsson hefur unnið þar upp- byggingarstarf og vinna nú 18 fatl- aðir starfsmenn í Ásgarði, segir í fréttatilkynningu. Óskar Albertsson, Þór Ingi og Sigurður Kristjánsson taka við styrknum frá Árna Sv. Mathiesen og Jens G. Einarssyni. Styrkja Ásgarð handverkstæði FERÐAFÉLAG Íslands gengst fyrir gönguferð á Kerhólakamb á Esju sunnudaginn 16. desem- ber. Þetta er árviss vetrarsól- stöðuferð hjá félaginu. Lagt verður upp frá Esjubergi og má gera ráð fyrir að gangan taki um fjórar klst. Fararstjóri er Sigrún Huld Þorgrímsdóttir og fargjald 1.000/1.200 kr. Lagt verður af stað frá BSÍ kl. 10.30 og komið við í Mörkinni 6. Rétt er að búa sig vel til göngunnar því að leiðin liggur upp í rúmlega 860 metra hæð. Minnum á áramótaferð í Landmannalaugar sem hver fer nú að verða síðastur að bóka sig í. Gengið á Ker- hólakamb á Esju

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.