Morgunblaðið - 15.12.2001, Síða 78

Morgunblaðið - 15.12.2001, Síða 78
78 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ                 BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÍSLENDINGAR allt frá dögum Ara fróða vilja hafa það í hávegum sem sannast reynist. Kveikjan að þessari bréfsnuddu er sú að hinn 12. síðasta mánaðar varð slys við vega- gerðina á veginum milli Stöðvar- fjarðar og Breiðdalsvíkur. Fór 25 tonna hjólaskófla fram af veginum og hentist liðlega 100 m í sjó niður. Stjórnandi hjólaskóflunnar bjargaði e.t.v. lífi sínu með því að stökkva út. Í þessum rituðum orðum sit ég við tölvuna mína og er að lesa þessa frétt á baksíðu Morgunblaðsins frá 13. nóv. Þar með er ég kominn að þungamiðju erindisins. Ég hef undanfarin misseri orðið var við, að í fréttaflutningi af þessu áðurritaða svæði milli Stöðvarfjarð- ar og Breiðdalsvíkur, gætir mein- legrar missagnar. Svæði þetta er bratt, þrjár skriður með stuttu milli- bili, sem ná frá Kambanesi inn að svonefndri Hökulvík. Í fréttum dagsins er ávallt talað um Kamba- nesskriður! Þetta gengur ekki. Í sumar ræddi ég símleiðis við vega- málastjóra um þessa meinlegu mis- túlkun. Man ég ekki betur en hann sýndi erindi mínu fullan skilning – en það virðist ekki ætla að duga. Skal nú leitast við að koma þessu í rétt horf: Ef komið er að austan (frá Stöðv- arfirði) og beygt er fyrir fjallsend- ann upp af Kambanesi er komið að bröttustu skriðunum. Þær heita Kambaskriður kenndar við eyðibýl- ið Kamba sem stóð á ofanverðu Kambanesi. Hefur býlið vafalaust dregið nafn sitt af stílfögrum berg- göngum (Kömbum) er standa í sjó niður af bænum. Innan við Kamba- skriður tekur við graslendi, Hvammar. Innan við þá eru lengstu skriðurnar, Hvalnesskriður, um 0,6 km á lengd. Þá taka við Færivellir, síðan Færivallaskriður, sem láta lít- ið yfir sér, og er þá komið að Hök- ulvík. Að kalla allt þetta svæði Kambanesskriður nær auðvitað engri átt. Vér Íslendingar flestir, vonandi allir, viljum hafa það er sannara reynist. Viljum að gömul örnefni haldi sér, viljum ferðast um landið með þau að leiðarljósi. Viljum taka undir með þjóðskáldinu að „... Landslag yrði lítils virði, / ef það héti ekki neitt“. Þegar talað er um framkvæmdir, viðburði o.þ.h. í Kambanesskriðum fæst ekki ná- kvæm staðsetning hvar fram- kvæmdin eða atburðurinn átti sér stað, svæðið allt spannar hart nær 3 km, fyrir utan það að Kambanes- skriður eru ekki til í vitund fólks. Þar af leiðir að ég veit ekki með vissu hvar áðurnefnt slys átti sér stað. Ég vænti að með þessum skrifum mínum komist betri regla á hlutina, hvet alla til að „hafa það er sannara reynist“. GUÐJÓN SVEINSSON, Mánabergi, Breiðdalsvík. Kambaskriður Frá Guðjóni Sveinssyni: ÞAÐ er staðreynd að í hörðum heimi er hverri þjóð nauðsyn að hafa sem sterkastar landvarnir. Þannig hefur það verið og þannig mun það verða. Við Íslending- ar höfum gegn- um aldirnar orð- ið fyrir því að erlendir sæfar- endur hafa farið hér rænandi og ruplandi. Ýmist hafa það verið Spánverjar, Þjóðverjar eða Eng- lendingar, en einnig sjóræningjar úr Tyrkjaveldi. Þegar landsmenn hafa verið sæmilega vopnum búnir hafa þeir erlendu ójafnaðarmenn orðið að láta í minni pokann. Þegar landsmenn voru hinsvegar vopnlausir urðu afleiðingarnar skelfilegar og nægir í því sambandi að minna á Tyrkjaránið árið 1627. Talið er að þá hafi árásarlið drepið, eða flutt nauðuga úr landi um 400 manns. Eftir að við endurheimtum sjálf- stæði okkar höfum við haft erlend- an her til varnar landi og þjóð. Til eru þeir menn sem vilja herinn á brott, en gleyma því þá að til- tölulega auðvelt yrði fyrir skipu- lagða glæpahópa að hertaka landið. Vilja menn það? Til eru fjölhæfir gáfumenn í áhrifastöðum sem predika svokall- aða hlutleysisstefnu. Hlutleysið gagnar lítt í hörðum heimi og hinar svokölluðu hlutlausu þjóðir svo sem Svíar, Finnar og Svisslend- ingar hafa allir sterkar landvarnir. Þessar þjóðir eru gráar fyrir járn- um og búnar hinum fullkomnustu varnarvopnum. Það er staðreynd að við Íslend- ingar hefðum aldrei unnið svokall- að þorskastríð gegn Englendingum ef við hefðum ekki haft varðskipin. Þessir fallbyssubátar, eins og sum- ir hafa nefnt þau, reyndust vel og án þeirra hefði landhelgin aldrei verið færð út. Þá myndu þjóðir þær sem lögðust gegn útfærslu landhelginnar hafa farið sínu fram og útfærslan aðeins orðið dauður lagabókstafur. Þetta eru ískaldar staðreyndir sem rétt er að hafa í huga. Þingmenn okkar sem sitja í söl- um Alþingis ættu í vetur að sjá sóma sinn í því að flytja frumvarp um stofnun innlends hers. Hér með er skorað á þetta ágæta fólk að láta þessi mál til sín taka. EYJÓLFUR GUÐMUNDSSON, meindýraeyðir, Sólvallagötu 45, Reykjavík. Með vopnum skal land verja Frá Eyjólfi Guðmundssyni: Eyjólfur Guðmundsson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.