Morgunblaðið - 15.12.2001, Síða 84

Morgunblaðið - 15.12.2001, Síða 84
FULLTRÚI „fólksins“ hefuraldrei tekið viðtal áður íreykherbergi Morgun-blaðsins, einfaldlega vegna þess að a) hann reykir ekki, b) viðtöl eru tekin úti í bæ eða í gula sófa og c) herbergið er fremur óásjálegt. Ólaf- ur, eða Ó. Jónsson eins og hann er gjarnan kallaður, var þó þegar byrj- aður að vefja sér vindling í gula sóf- anum og setti upp hvolpaaugu er honum var tjáð að reykingar væru ekki leyfðar þar. Við drifum okkur því inn í herbergið „góða“ og þar dró Ragnar þá upp vindil. Vettvangurinn reyndist svo, góðu heilli, meira en kjörinn fyrir spjall við tvo félaga úr lágstemmdri, harm- rænni hljómsveit sem leggur fyrir sig jaðarskotna sveitatónlist. Nema hvað … Kofi í Borgarfirði „Já …“ segir Ragnar og er hugsi. Hann er beðinn að rifja upp hina stuttu sögu Funerals. „Í apríl á þessu ári fórum við Doddi (Þorvaldur Gröndal) að glamra á gítar, búa til lög og drekka púrtvín. Þetta var nú bara svona fikt, gaman að þessu og svona, en síðan kom það til að ég var beðinn að vera með gjörning í Ný- listasafninu. Þannig að ég spurði Dodda: „Eigum við ekki bara að spila lag?“ Og það gerðum við.“ Hann segir þetta svo hafa byrjað fyrir alvöru þegar þeir og fleiri fóru í kofann hans Dodda í Borgarfirðin- um. Kofa sem afi hans byggði árið 1940. „Hvatinn að því að við ákváðum að gera plötuna var sá að Ó. Jónsson (bendir á félaga sinn) var að fara til útlanda, þannig að okkur langaði til að gera eitthvað skemmtilegt áður en hann færi. Við tókum því með okkur upptökutæki, rafstöð og fullt af bjór. Og þarna varð hljómsveitin til, um þessa helgi.“ Þeim félögum er bent á þá popp- sögulegu staðreynd að þeir félagar Gram Parsons og Chris Hillman fóru svipaða leið er þeir stofnsettu The Flying Burrito Brothers í lok sjö- unda áratugarins, en sveitin sú er eitt áhrifamesta sveitarokksband sem uppi hefur verið. „Það sem er svo gaman við þetta er að það er alltaf verið að benda okkur á áhrifavalda sem við þekkjum ekki sjálf,“ segir Ragnar. „Í kringum þetta hefur maður uppgötvað alveg ógrynni af ógeðs- lega skemmtilegri tónlist. Alveg óvart (hlær).“ Óli segir þau hafa komið með þetta í bæinn og: „Það næsta sem við vitum er að það á að gefa þetta út og það vantar fleiri lög.“ Ragnar segir þá að upprunalega hafi þau bara gert þetta til að gera þetta. „Okkur fannst þetta vera fullkom- ið jólaföndur handa vinum og ætt- ingjum. Að gefa þeim kántríplötu. En svo vildi tæknóboltinn Þórhallur í Thule gefa þetta efni út?!“ Tónlist Funerals er þessleg að margir vita ekki almennilega hvern- ig á að taka þessu; er þetta tómt grín eða er þetta alvarlegt? Mæðulegir söngvarnir, sem heita nöfnum eins og „Puppy Eyes“ og „The Power of Pathetic“, eru sumir hverjir svo sorglegir að það er ná- lægt því grátbroslegt. Eða eins og segir í dómi Steinunnar Haraldsdótt- ur um Pathetic Me, sem birtist í fimmtudagsblaðinu síðasta undir fyrirsögninni „Tár, bros og kúreka- stígvél“: „Ég er … ekki frá því að það sé einmitt blandan af þessari tilfinn- ingasemi og brosi út í annað sem ger- ir þessa sveitasöngva alveg mátulega svala …“ „Ég held að það sé nauðsynlegt að fólk fái þetta svona upp í hendurnar,“ segir Óli, „þ.e. án allra útskýringa.“ Ragnar staðhæfir: „Við meinum þetta alveg 100%. Ég ætla ekki að segja hvað sumir af meðlimunum hafa farið í gegnum mikla tilfinn- ingalega geðveiki í kringum þennan disk. Eins og allt í lífinu eru hlutirnir ekki bara alvarlegir eða bara skemmtilegir og við værum að ljúga ef við segðum að þetta væri bara eitt- hvert þunglyndi. Mér finnst það líka mjög jákvætt að hlutir séu þannig að fólk geti ekki alveg sett fingurinn á það sem er að gerast.“ Í þessu sambandi kemur upp nafn Wills Oldhams, en hann þykir vera með athyglisverðari iðkendum myrks og sorglegs sveitarokks. „Ég held að þegar Oldham kemur heim til sín til Kentucky þá segi vinir hans og kunningjar: „Hey! Will, allt- af gamli grínarinn,““ segir Ragnar. „En svo þegar hann kemur hingað til lands að spila mæna allir á hann eins og hann sé einhver Guð.“ Hann rifjar í framhaldinu upp skemmtilega athugasemd frá Óla, frá því að sveitin fór mikla frægð- arför út á land, hvers ferðasaga birt- ist á forsíðu menningarblaðs New York Times, hvorki meira né minna. „Óli sagði einhvern tíma í þynn- kunni í túrnum: „Áður en ég byrjaði í þessari hljómsveit skildi ég ekkert í kántrí. Og nú þegar ég er kominn í þessa hljómsveit – skil ég ennþá ekk- ert í kántrí.““ Svipað og pönkið Ragnar segir að eitt af einkennum þessa nýja kántrís, sem á ensku er kallað „alt-country“ eða jaðarsveit- arokk, er að það leiti í ræturnar, svona svipað og pönkið. „Þetta er einfalt eins og pönkið og raunar einfaldara af því að hljóma- gangurinn er iðulega svo hægur. Svo eru þetta yfirleitt þrír hljómar og því auðvelt að spila þetta.“ Útgáfutónleikar Funerals fara fram í Tjarnarbíó í kvöld og verður dyrum upp lokið kl. 20.30. Tónleik- arnir hefjast svo hálftíma síðar. Á undan sveitinni mun Arnar Eggert Thoroddsen stíga á svið og leika og syngja nokkur lög úr sarpi banda- rískrar sveitatónlistar. Sveitatónlistin hefur fengið upp- reisn æru að und- anförnu, og þykir nú meira að segja nokkuð svöl. „Fólk í fréttum“ ræddi við Ragnar Kjartansson og Ólaf Jónsson, meðlimi hinnar tregafullu sveitar The Funerals, en frumburður hennar, platan Pathetic Me, var tilnefndur til Íslensku tónlist- arverðlaunanna á dögunum. Morgunblaðið/Sverrir The Funerals á hljómleikum í Kaffileikhúsinu 25. ágúst. Frá vinstri: Ó. Jónsson, Þorgeir Guðmundsson, Þorvaldur Gröndal og Ragnar Kjartansson. Th e F u ne ra ls m e ð ú tg áf u tó nl e ik a í T ja rn ar bí ó i folk@mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM 84 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ LAUGAVEGI, S: 511 1717 KRINGLUNNI, S: 568 9017 Dömur: Mikið úrval af fallegum kápum verð frá 7.990 KOOKAI kjólar (svartir, rauðir) verð frá 6.990 LAURA AIME bolir, margir litir verð frá 1.990 ASSURE buxur, svartar verð frá 2.990 TARK kvartbuxur verð frá 3.990 DIESEL gallabuxur verð frá 7.990 NICE GIRL peysur (hlý jólagjöf) verð frá 2.990 Vorum að fá meiriháttar sendingu af kjólum, pilsum og toppum - einnig flottir fylgihlutir Tilvalið til jólagjafa..... Opið til kl. 22.00 fram að jólum Herrar: Parks jakkaföt 19.900 Parks skyrtur 2.990 4 you bindi 2.990 4 you ullarjakkar 10.990 4 you frakkar 12.990 Camper skór 11.990 Drengjajakkaföt 15.990
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.