Morgunblaðið - 15.01.2002, Side 24
ERLENT
24 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Þorrablót
LEIGJUM ÚT VEISLUSAL FERÐAFÉLAGS ÍSLANDS Í MÖRKINNI!
í veislusal Ferðafélagsins eða heim í stofu
Súrmatur
Sviðasulta • Lifrarpylsa
Blóðmör • Hrútspungar
Lundabaggar • Bringukollar
Nýmeti
Hangikjöt • Sviðasulta
Lifrarpylsa • Blóðmör
Harðfiskur • Rúgbrauð
Flatbrauð • Hákarl
Síldarsalöt 2 teg. • Sviðakjammar
Heitur matur
Saltkjöt • Rófustappa
Kartöflur • Uppstúf
Nautapottréttur með hrásalati
Athugið að lágmarkspöntun
er fyrir 5 manns
Í þorramatnum erum við á heimavelli.
Ánægðir viðskiptavinir ár eftir ár vitna
um gæðin og ekki síst þjónustuna.
Nú bjóðum við þorramatinn í stórar
sem smærri veislur á einstöku tilboði.
Í minni veislur (lágmarkspöntun fyrir 5
manns) færðu matinn í trogum.
Matreiðslumeistari setur upp
og gengur frá hlaðborði
fyrir stærri þorrablót.
Þorramaturinn í trogum og á glæsilegu hlaðborði
Smiðjuvegi 14 • Kópavogi • www.veislusmidjan.is
Pantanir og uppl. í síma 587- 3800 og 899 2959
Þórarinn Guðmundsson
matreiðslumestari
SKÍÐAFERÐIR
TIL SVISS UM PÁSKANA
Tvær ferðir; ellefu dagar og sex dagar til CRANS MONTANA
FERÐASKRIFSTOFA
GUÐMUNDAR
JÓNASSONAR EHF.
Borgartúni 34, Rvík, sími 511 1515,
www.gjtravel.is Netfang: outgoing@gjtravel.is
Ellefu daga ferð, 21. til 31. mars
Fimmtudaginn 21. mars verður flogið með Flugleiðum
til Amsterdam og og áfram með KLM til Zurich. Þaðan
er ekið til Crans-Montana og gist á Grand Hotel du
Parc næstu 10 nætur. Grand Hotel du Parc er vel
staðsett fjögurra stjörnu hótel í göngufæri við skíða-
lyfturnar. Þann 31. mars er svo ekið til Genfar og flogið
þaðan heim um Amsterdam.
VERÐ 142.600 kr. á mann
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, akstur milli Zurich,
Crans-Montana og Genfar, gisting í 10 nætur í tveggja-
manna herbergi, morgunverður og kvöldverður.
Aukagjald fyrir einsmanns herbergi: 16.300 kr.
Sex daga ferð, 27. mars til 1. apríl
Miðvikudaginn 27. mars verður flogið með Flugleiðum
til Parísar og ekið þaðan til Crans-Montana. Gisting á
Hotel Central næstu 4 nætur. Seinni hluta páskadags,
31. mars, er ekið áleiðis til Frankfurt og gist í
Frakklandi síðustu nóttina. Annan páskadag verður
flogið heim frá Frankfurt. Hotel Central er þægilegt og
vel staðsett, þriggja stjörnu hótel í miðbæ Crans-
Montana.
VERÐ 69.950 kr. á mann
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, akstur milli
Parísar, Crans-Montana og Frankfurt, gisting í tveggja-
manna herbergi í 4 nætur á Hotel Central og eina nótt
í Frakklandi og morgunverður.
Aukagjald fyrir einsmanns herbergi er 5.200 kr.
Verð miðast við gengi og forsendur 04.01. 2001
SKÆRULIÐAHREYFINGIN
FARC samþykkti seint í gærkvöldi
að hefja aftur friðarviðræður við
stjórn Kólumbíu en óttast hafði verið
að stríðið í Kólumbíu myndi harðna
eftir að friðarumleitanir Andres
Pastrana forseta höfðu farið út um
þúfur um helgina. Greindi franski
diplómatinn Daniel Parfait, sem kom
til Kólumbíu í gær ásamt hópi er-
lendra sáttasemjara til að reyna að
blása lífi í friðarumleitanir, frá því að
bæði skæruliðarnir og Pastrana for-
seti hefðu orðið ásáttir um að hefja
viðræður að nýju.
Áður höfðu fulltrúar FARC hafnað
friðarviðræðum og sögðust ætla að
fara af stóru griðasvæði, sem forset-
inn lét hreyfingunni eftir fyrir þrem-
ur árum til að fá hana að samninga-
borðinu.
FARC settir úrslitakostir
Stjórn Kólumbíu flutti þá allar her-
og lögreglusveitir sínar af svæðinu til
að reyna að ná friðarsamkomulagi við
skæruliðana en sú tilraun misheppn-
aðist. Andstæðingar FARC segja að
hreyfingin hafi notað griðasvæðið,
sem er á stærð við Sviss, til að fremja
glæpi, fela fórnarlömb mannræn-
ingja og smygla kókaíni. Hreyfingin
hafi einnig notað svæðið til að þjálfa
skæruliða og gera árásir á önnur
svæði í Kólumbíu. Þessi misnotkun á
griðasvæðinu og lítill árangur af við-
ræðunum urðu til þess að almenning-
ur í landinu snerist gegn friðarum-
leitunum stjórnvalda.
FARC dró sig út úr friðarviðræð-
unum í október eftir að stjórnin fjölg-
aði hermönnum sínum í grennd við
griðasvæðið til að reyna að stöðva
glæpastarfsemi og hernað skærulið-
anna. Pastrana setti hreyfingunni úr-
slitakosti á laugardag og sagði að
annaðhvort yrði hún að leggja fram
raunhæfar friðartillögur eða fara af
griðasvæðinu ekki síðar en í dag.
Hreyfingin neitaði að hefja friðar-
viðræður að nýju og tilkynnti á
sunnudag að hún hygðist fara af
griðasvæðinu. Simon Trinidad,
samningamaður FARC, kenndi
Pastrana um að friðarumleitanirnar
fóru út um þúfur en með liðsinni
stjórnarerindreka frá nokkrum ríkj-
um Evrópu og Rómönsku-Ameríku,
sem hafa stutt friðarumleitanirnar,
hefur nú semsé tekist að koma við-
ræðum á að nýju.
Stríðið í Kólumbíu hefur staðið í
tæp 38 ár og margir hafa óttast að
það myndi harðna á næstu mánuðum.
Reuters
Kólumbískir hermenn búa sig undir að fara í skriðdreka við griðasvæði
skæruliða marxistahreyfingarinnar FARC.
Skæruliðar FARC samþykkja að
koma aftur að samningaborðinu
Los Pozos. AFP, AP.
Reynt að afstýra
stríði í Kólumbíu