Morgunblaðið - 15.03.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Waldorfskólinn kynnir starfsemina
Þroskar og
eflir alla þætti
NÚ UM helginaverða aðstand-endur Waldorf-
skólans við Lækjarbotna
við Suðurlandsveg með
kynningu á starfseminni
sem þar fer fram. Þóra
Tómasdóttir, kennari við
skólann, er í forsvari fyrir
kynninguna og hún svaraði
nokkrum spurningum sem
Morgunblaðið lagði fyrir
hana.
Hvaðan kemur nafnið
Waldorf?
„Nafnið kemur frá
fyrsta skólanum sem starf-
ræktur var eftir kenning-
um mannspekingsins Ru-
dolfs Steiners. Sá skóli var
fyrir börn Waldorf-verk-
smiðjunnar í Stuttgart í
Þýskalandi.“
Fyrir hvað stendur skólinn?
„Waldorfuppeldisfræðin leitast
við að þroska og efla alla þætti
manneskjunnar. Jöfn áhersla er
lögð á vitsmunalegan, tilfinninga-
legan og líkamlegan þroska. Leit-
ast er við að ná fram lifandi áhuga
nemandans og stuðla að því að
hann finni hamingju og lífsgleði á
leið sinni til aukins þroska.“
Hver er saga Waldorfskólans?
„Grunnurinn að Waldorf-upp-
eldisfræðinni var lagður á öðrum
og þriðja áratug síðustu aldar af
austurríska náttúruvísindamann-
inum og heimspekingnum Rudolf
Steiner. Fyrsti skólinn var stofn-
aður í Stuttgart árið 1919. Í dag
standa Waldorfskólar fyllilega
undir nafni sem „skólar framtíð-
arinnar“ einmitt vegna þess að
þar er fyrst og síðast tekið mið af
þroskaferli manneskjunnar.
Grundvallarspurning uppeldisins
er: Hvað þurfa börnin til að geta
þroskast sem heilsteyptar mann-
eskjur? Rudolf Steiner undir-
strikaði mikilvægi þess að ná jafn-
vægi á milli þeirra þriggja
mismunandi þátta sem tengja
manneskjuna umheiminum; í
gegnum líkamlegt starf, tilfinn-
ingalífið og hugsunina; höfuð,
hjarta og hönd.
Manneskjan er gædd eiginleik-
um sem eru óstöðugir en í fín-
gerðu jafnvægi. Þetta birtist okk-
ur í þremur grundvallarhæfi-
leikum manneskjunnar, að ganga,
að tala og að hugsa. Athuganir á
því hvernig barnið tileinkar sér
þessa hæfileika, lýsa þeirri stað-
reynd að hreyfing hefur áhrif á
líkamlegan þroska og leggur
grunninn að hæfni hugsunarinn-
ar. Grunnur Waldorf-námskrár-
innar byggist á skilningi á sam-
spili og þróun þessara þátta, í
þroskaferli barnsins.
Áhugafólk um Waldorfuppeld-
isfræði stofnaði fyrst Waldorfleik-
skólann Yl í Lækjarbotnum árið
1990. Waldorfskólinn Lækjar-
botnum var síðan stofnaður haust-
ið 1991. Náið samstarf er milli
skólanna og eru þeir í sama hús-
næði.“
Fyrir hverja er Waldorfskól-
inn?
„Waldorfskólinn
Lækjarbotnum er
grunnskóli fyrir börn á
aldrinum 6 til 13 ára.
Leikskólinn Ylur er
fyrir börn á aldrinum 3 til 6 ára.“
Hvers vegna í Lækjarbotnum?
„Í upphafi var leitað að stað fyr-
ir utan skarkala borgarlífsins og
rak þá núverandi húsnæði skólans
á fjörur okkar. Við viljum gefa
börnunum kost á að vera í nánum
tengslum við náttúruna. Þau fá að
upplifa hrynjandi árstíðanna,
fylgjast með gróðri og dýralífi.
Það frelsi sem felst í því að hafa
fjöll, dal og læki sem leikvöll er
ómetanlegt.“
Nú stendur kynning fyrir dyr-
um, hvernig verður hún?
„Við bjóðum öllum sem hafa
áhuga á opið hús á laugardaginn
(á morgun) 16. mars frá klukkan
14 til 17. Þar gefst gestum tæki-
færi á að kynna sér starf leikskól-
ans og skólans nánar. Taka þátt í
að mála, skoða vinnu nemenda,
spjalla við foreldra og kennara og
kaupa sér kaffi og vöfflur til
styrktar ferðasjóði 6.–7. bekkjar.
Engir posar!“
Hvað sitja margir við nám í
skólanum?
„Í skólanum eru í vetur 27 nem-
endur á aldrinum 6 til 13 ára. Í
leikskólanum eru 14 börn á aldr-
inum 3 til 6 ára.“
Hvað kostar námið?
„Skólagjald er 20.000 krónur á
barn. Systkinaafsláttur er veittur.
Innifalið auk kennslunnar er
skólaakstur, morgunhressing og
hádegismatur. Allur matur er úr
lífrænt ræktuðu hráefni.“
Hver er sess Waldorfskóla?
„Það starf sem verið er að vinna
í Lækjarbotnum er brautryðj-
endastarf á Íslandi. Úti í víðri ver-
öld eru Waldorfskólar (Steiner-
skólar) víðast hvar viðurkenndur
valkostur foreldra og þeir fyrir-
finnast í öllum heimshlutum, í hin-
um ólíkustu menningarsamfélög-
um. Í dag eru u.þ.b. 800
Waldorfskólar í heiminum.
Norsku Waldorfsamtökin hafa
veitt okkur mikinn stuðning. Það-
an hafa komið Waldorfkennarar
til þess að miðla okkur af reynslu
sinni og kennarar frá
okkur hafa farið til
Noregs í verknám, á
námskeið og ráðstefn-
ur. Skólinn á sér líka
velunnara m.a. í Sví-
þjóð, Þýskalandi og Sviss. Þessi
tengsl okkar við umheiminn eru
mjög þýðingarmikil, við erum
hluti af alþjóðlegri hreyfingu sem
vill framkvæma nýja skólastefnu.
En þessi skólastefna verður ekki
frjósöm nema hún spretti úr og
mótist af þeirri menningu og um-
hverfi sem skólinn er í. Þess
vegna er hver einasti Waldorf-
skóli einstakur.“
Þóra Tómasdóttir
Þóra Tómasdóttir er fædd í
Reykjavík 1964. Stúdent frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
1985. Hefur Waldorfkennarapróf
frá Seminar fur Waldorfpadago-
gik, Stuttgart Þýskalandi 1992.
Waldorfkennari í Lækjarbotnum
1994–97 og aftur frá 2001. Sam-
býlismaður er Daníel Þór Ólason
doktor í sálfræði, starfar hjá
IMG og eiga þau börnin Hildu
Björk, Solveigu Önnu og Ernu
Diljá.
...víðast hvar
viðurkenndur
valkostur
Sporin hræða.