Morgunblaðið - 15.03.2002, Blaðsíða 26
ERLENT
26 FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SAKSÓKNARINN í máli Rahmis
Sahindals, sem hefur verið ákærð-
ur í Svíþjóð fyrir morð á dóttur
sinni, Fadime, skýrði frá því í gær
að 31 árs frændi hennar hefði ját-
að að hafa myrt hana. Lögreglan
yfirheyrði frændann í fyrrakvöld
en hann liggur ekki undir grun um
aðild að morðinu þrátt fyrir játn-
inguna, að sögn Svenska Dag-
bladet.
Saksóknarinn, Anne Sjöblom,
komst að þeirri niðurstöðu í gær
að frásögn frændans sýndi ekki að
hann hefði átt aðild að morðinu.
Verjandi Rahmis Sahindals krafð-
ist ekki frekari rannsóknar á mál-
inu.
Bróðirinn kærir útvarpsstöð
Sænska útvarpsstöðin Radio
Uppland sagði í fyrradag að það
hefði verið bróðir Fadime sem
hefði játað á sig morðið. Bróðirinn
hefur kært útvarpsstöðina fyrir
rógburð, að sögn lögreglunnar í
Uppsölum þar sem réttarhöldin í
máli Sahindals fara fram. Gert er
ráð fyrir því að þeim verði haldið
áfram í dag.
Réttarhöldunum var frestað á
miðvikudag vegna nýrra upplýs-
inga sem bentu til þess að frændi
Fadime kynni að hafa átt aðild að
morðinu en faðir hennar hefði
samt haldið á byssunni. Frændinn
hafði samband við lögreglumann
þegar hlé var gert á réttarhöld-
unum og játaði á sig morðið en eft-
ir að hann var yfirheyrður um
kvöldið komst saksóknarinn að
þeirri niðurstöðu að ekki væri
ástæða til að ætla að maðurinn
væri viðriðinn morðið.
Játa aðild í von um mildari
dóm yfir föður Fadime
Svenska Dagbladet kvaðst hafa
fengið upplýsingar um að ættingj-
ar hins ákærða hefðu búist við því
að hann yrði úrskurðaður ósak-
hæfur vegna geðveiki. Blaðið leiðir
getum að því að ættingjarnir vilji
nú játa aðild að morðinu í von um
að það verði til þess að faðir Fad-
ime fái mildari dóm.
Rahmi Sahindal, sem er innflytj-
andi úr röðum múslíma, er sagður
hafa myrt dóttur sína vegna þess
að hún var í sambúð með sænskum
kærasta sínum og neitaði að eiga
mann sem faðirinn valdi.
Frændi Fadime
játaði á sig morðið
Hann er þó ekki grunaður um
aðild að verknaðinum
Neysla
kannabis-
efna verði
heimiluð
Skýrsla opinberrar
nefndar birt í
Bretlandi
Í SKÝRSLU, sem nefnd á vegum
bresku ríkisstjórnarinnar skilaði af
sér í gær, er lagt til að kannabis
verði skilgreint sem fíkniefni í C-
flokki. Þetta myndi þýða að menn
gætu reykt kannabis á almannafæri
án þess að eiga handtöku yfir höfði
sér.
Í skýrslu ráðgjafarnefndar um
misnotkun eiturlyfja (ACMD) segir
að núverandi flokkun kannabis sé
ekki í samræmi „við þann skaða
sem efnið veldur“. Sir Michael
Rawlins, formaður nefndarinnar,
sagði í samtali við fréttavef breska
ríkisútvarpsins, BBC, í gær að
þetta þýddi ekki að nefndin teldi
efnið skaðlaust.
„Kannabis er tengt nokkrum
þáttum sem ógna heilsu manna en
nefndin kemst að þeirri niðurstöðu
að áhættan sem fylgir notkun þess
sé minni en annarra eiturlyfja í B-
flokki svo sem amfetamíns,“ sagði
Sir Michael.
Talsmaður Tony Blairs forsætis-
ráðherra sagði að þótt David Blun-
kett innanríkisráðherra hefði lýst
yfir því að hann hallaðist sterklega
að því að endurskilgreina bæri
kannabis hefði engin slík ákvörðun
verið tekin.
Frjálslyndir
vilja breytingar
Um liðna helgi var samþykkt á
þingi Frjálslynda demókrataflokks-
ins að lögleyfa bæri notkun kanna-
bis. Er það í fyrsta skipti sem einn
af helstu stjórnmálaflokkum Bret-
lands samþykkir slíka breytingu.
Flokksmenn samþykktu einnig að
hætta bæri að fangelsa þá sem hafa
ólögleg efni í fórum sínum og hvöttu
til þess að alsæla (e. ecstacy) yrði
skilgreint sem fíkniefni í B-flokki en
ekki í A eins og nú.
Fíkniefni eru flokkuð í þrjá
flokka, A, B og C eftir skaðsemi
þeirra í Bretlandi.
Kveðst hafa
myrt Pearl
Islamabad. AP.
LÖGREGLA í Pakistan hefur til yf-
irheyrslu mann, er kveðst hafa myrt
bandaríska blaðamanninn Daniel
Pearl, sem var
rænt í Pakistan
23. janúar sl.
Maðurinn sem
verið er að yfir-
heyra er sagður
heita Adnan og
gaf sig fram á rit-
stjórn dagblaðs-
ins Khabrain í
borginni Lahore í
gær. Blaðið kom
honum í hendur lögreglu.
„Við erum að reyna að staðfesta
frásögn hans,“ sagði lögreglustjór-
inn í Lahore. „Enn sem komið er er
ekkert staðfest.“ Að sögn ritstjóra
Khabrain kveðst Adnan hafa myrt
Pearl með öxi á báti úti fyrir Karachi
þar sem honum var rænt. Myndband
sem bandaríski ræðismaðurinn í
Karachi fékk sent í síðasta mánuði
staðfesti að Pearl væri látinn.
Fjórir hafa verið handteknir,
grunaðir um morðið, þ.á m. meintur
skipuleggjandi þess, Ahmed Omar
Saeed Sheikh. Lík Pearls hefur ekki
fundist. Adnan sagðist hafa myrt
Pearl „til að kenna gyðingum og
Bandaríkjamönnum lexíu“, og hent
sundurhlutuðu líki hans í sjóinn.
Daniel Pearl
♦ ♦ ♦