Morgunblaðið - 15.03.2002, Blaðsíða 18
LANDIÐ
18 FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
meistar inn. is
HÖNNUN LIST
BENEDIKT Þorsteinsson knatt-
spyrnumaður var valinn íþróttamað-
ur Siglufjarðar árið 2001. Þetta var í
26. sinn sem þessi verðlaun voru
veitt, en það er Kiwanisklúbburinn
Skjöldur sem hefur staðið fyrir kjöri
íþróttamanns Siglufjarðar frá upp-
hafi.
Benedikt, sem er 25 ára, hefur
verið markvörður KS í knattspyrnu
undanfarin ár. Hann þótti standa sig
vel og vera yfirburðamaður í liðinu á
Íslandsmótinu síðastliðið sumar þó
svo að lið KS hafi ekki átt góðu
gengi að fagna, en liðið féll úr 1
deild.
Samhliða kjöri íþróttamanns
Siglufjarðar eru veitt verðlaun fyrir
árangur í hinum ýmsu greinum ung-
linga og fullorðinna. Að þessu sinni
voru veitt 12 verðlaun. Mark Duf-
field, leikmanni KS í knattspyrnu,
var veitt sérstök viðurkenning í til-
efni þess að hann náði þeim ein-
stæða árangri að leika sinn 350. leik
í meistaraflokki á Íslandsmóti í
knattspyrnu. Þessi leikjafjöldi er Ís-
landsmet, en þá eru ótaldir aðrir
leikir í bikarkeppnum og öðrum
mótum. Mark hóf að leika með
meistaraflokki 17 ára gamall og hef-
ur mestan hluta ferils síns leikið með
KS, en hann hefur leikið með liðum í
öllum deildum Íslandsmótsins.
Benedikt Þorsteinsson, íþróttamaður Siglufjarðar, og Mark Duffield
sem fékk viðurkenningu fyrir að leika sinn 350. leik í meistaraflokki á
Íslandsmóti í knattspyrnu, en það afrek mun vera Íslandsmet.
Markvörður valinn
íþróttamaður ársins
Siglufjörður
FJÓRÐA WSA-Snocross móta-
raðarinnar stendur nú yfir í Mý-
vatnssveit. Fyrri umferðir fóru
fram á Dalvík, Húsavík og Ak-
ureyri.
Bræðurnir Steinþór Guðni og
Reynir Hrafn Stefánssynir
mynda, ásamt Árna Þór Bjarna-
syni, Stefáni Vignissyni og Svein-
birni Val Jóhannssyni, keppnis-
hóp frá Egilsstöðum. Þeir hafa
sameiginlega safnað styrktarað-
ilum, en það gerir þeim kleift að
taka þátt í mótum af fullum krafti
og stendur undir kostnaði við
rekstur flutningabíls og snjó-
sleða, auk annars útbúnaðar.
Keppt er í fjórum flokkum á
mótinu og fer skipting í flokka
eftir stærð sleðanna. ProStock-
flokkur er fyrir 440cc sleða, en
stórir, breyttir fara í ProOpen,
báðir flokkar eru fyrir vana öku-
menn. Í SportOpen-flokk fara
stórir, breyttir sleðar og
Sport500 minni, og er hvoru
tveggja flokkurinn fyrir óvana
ökumenn.
Árni Þór er nú annar í Pro-
Open-flokknum en Reynir Hrafn
fjórði. Steinþór Guðni í 5. sæti og
Stefán keppa báðir í ProStock-
flokki, þar sem sá fyrrnefndi er í
5. sæti og Sveinbjörn Valur er nú
efstur í Sport500-flokknum. Þeir
félagar keppa á Polaris-, Skidoo-
og ArtiCat-sleðum.
Um páskahelgina verður snjó-
sleðamót á Akureyri og árlegt al-
þjóðlegt mót á Ólafsfirði 12.–14.
apríl. Lokamót í keppni til
Íslandsmeistara verður haldið á
Egilsstöðum 26.–28. apríl.
Morgunblaðið/Steinunn
Snjósleðakappar frá Egilsstöðum. F.v. Reynir Hrafn Stefánsson, Sveinbjörn Valur Jóhannsson, Stefán
Vignisson, Steinþór Guðni Stefánsson og Árni Þór Bjarnason. Þeir taka þátt í WSA-Snocross-mótinu.
Fjórða umferð WSA-Snocross-mótsins hefst í dag
Ískaldir snjósleðakapp-
ar frá Egilsstöðum
Egilsstaðir
FRUMRAUN trúbadorsins Sigur-
björns Daða Dagbjartssonar sem
er Grímseyingur að hálfu, fæddur
og uppalinn í Grindavík, var haldin
í þéttskipuðu félagsheimilinu Múla
á dögunum.
Sigurbjörn Daði sagði að hann
væri meðlimur hljómsveitarinnar
Stóri Björn í Grindavík en þetta
væri í fyrsta sinn sem hann kæmi
fram opinberlega sem trúbador.
Sigurbjörn Daði var bæði með mik-
ið og fjölbreytt lagaval, þannig að
allir fengu eitthvað við sitt hæfi.
Eins bauð Sigurbjörn söngfugl-
um Grímseyjar að stíga á svið og
syngja með og setti það skemmti-
legan blæ á tónleikana. Áheyrend-
urnir voru frá hálfs árs og upp úr
og skemmtu sér konunglega þessa
kvöldstund.
Frumraun
trúbadors
Grímsey
Morgunblaðið/Helga Mattína
Trúbadorinn Sigurbjörn Daði
skemmti Grímseyingum.
SAMINGUR um rekstur tóm-
stunda- og menningarhúss fyrir
ungt fólk á Akranesi hefur verið
undirritaður milli Akraneskaup-
staðar og Rauða krossins, en bæj-
arráð Akraness samþykkti á fundi
sínum 7. febrúar sl. stofnsamning
um rekstur slíks húss.
Tilgangur þessa er rekstur húss
fyrir ungt fólk á aldrinum frá 16 til
25 ára. Í húsinu, sem er á Skóla-
braut 9 (gamli iðnskólinn), verður
aðstaða fyrir ungt fólk til að vinna
að hugðarefnum sínum, hvort held-
ur það er í félagsstarfi, listum eða
leik. Megináhersla og skilyrði fyrir
þátttöku aðila er vímulaus starf-
semi, þ.e. menningarhúsið verður
vímuefna-, tóbaks- og reyklaust að
öllu leyti. Hægt verður að kaupa
kaffi, gosdrykki og meðlæti ýmiss
konar. Veittur verður aðgangur að
nettengdum tölvum, fundarað-
stöðu, skipulagðir menningarvið-
burðir og hvað eina sem aðilar og
aðrir sem að rekstri hússins koma
vilja gera til að auka félagsþroska
og færni ungs fólks. Rauði kross-
inn rekur húsið á árinu 2002 og
2003, en frá áramótum 2003/2004
tekur Akraneskaupstaður yfir
reksturinn. Auglýst verður eftir
forstöðumanni fyrir húsið á næstu
dögum.
Morgunblaðið/Jón Á. Gunnlaugsson
Fulltrúar Rauða kross Íslands, þau Arinbjörn Kúld og Helga G. Hall-
dórsdóttir, ásamt formanni bæjarráðs, Guðmundi Páli Jónssyni, og
Gísla Gíslasyni bæjarstjóra að lokinni undirritun samningsins.
Samningur um
rekstur tómstunda-
og menningarhúss
Akranes
LEIKHÓPURINN Vera á Fá-
skrúðsfirði hélt upp á tuttugu ára
afmæli sitt í Félagsheimilinu
Skrúð nýlega. Sýnd voru atriði úr
hinum ýmsu verkum sem hóp-
urinn hefur sýnt á þessu tímabili.
Húsfyllir var í afmælishófinu og
sýningunum var vel tekið. Hóp-
urinn hefur staðið að sýningum í
samvinnu við grunnskóla Fá-
skrúðsfjarðar, ásamt sínum eigin
sýningum. Hópurinn kom upp
götuleikhúsi sem starfað hefur í
nokkur ár og hefur tekið þátt í
bæjarhátíðum víða um Austurland
og á Akureyri.
Eftir dagskrána í Skrúði var
boðið uppá veitingar, sem slysa-
varnadeildin Hafdís sá um fyrir
Veru. Kveðjur bárust frá Banda-
lagi Íslenskra leikfélaga og Leik-
félagi Reyðarfjarðar. Formaður
Veru er Brynhildur Guðmunds-
dóttir. Hún þakkaði gestum fyrir
komuna og afhenti
grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
ávísun að upphæð 131 þúsund
krónur, sem var hlutur grunn-
skólans í sýningu á Dýrunum í
Hálsaskógi síðastliðinn vetur.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Leikhópurinn Vera
Fáskrúðsfjörður
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni