Morgunblaðið - 15.03.2002, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 9
Kjólar — stuttir — síðir
einlitir — munstraðir
Jakkar í stíl
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Eddufelli 2
s. 557 1730
Bæjarlind 6
s. 554 7030
Opið
mán.—fös. frá kl. 10—18,
lau. 10—15.
Vor í Rítu
Við þurfum ekki að auglýsa
risavaxinn afslátt,
því verðið okkar er frábært.
Full búð af nýjum og glæsilegum
vor- og sumarvörum.
Stærðir 36—56.
Nýtt kortatímabil
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
IT
M
90
01
Furu-eldhúsinnréttingar
V. Fellsmúla • S. 588 7332
S æ n s k ú r v a l s f u r a
Pantið tímanlega
eða meðan birgðir endast
30 % afsláttur
í mars
Snyrtistofan Guerlain,
Óðinsgötu 1, sími 5623220.
Tilboð
á handsnyrtingu og
fótsnyrtingu
til 21. mars
Tilboð fyrir
fermingarnar
Vincent Van Gogh gjafakassar
Kr. 1.500
Snyrtibox, 2 saman, kr. 3.500
Álbox kr. 1.800
Falleg úr með læknandi segulól
Kr. 2.500
Apótek Austurlands, Apótek Blönduóss, Apótek Keflavíkur, Apótek Ólafsvíkur, Apótek Vest-
mannaeyja, Árbæjarapótek, Borgar Apótek, Borgarness Apótek, Dalvíkur Apótek, Garðs Apó-
tek, Grafarvogs Apótek, Hafnar Apótek, Hringbrautar Apótek, Ísafjarðar Apótek, Laugarnes
Apótek, Nesapótek Seltjarnarnesi,Rima Apótek, Siglufjarðar Apótek, Stykkishólms Apótek
www.plusapotek.is
KRISTJÁN Gíslason, stjórnar-
formaður eignarhaldsfélagsins
Eykis í Reykjavík, slasaðist við
undirbúning fyr-
ir Guðlaugssund
1994, en byrjaði
að synda aftur í
fyrra og náði
besta tíma sem
náðst hefur í
sundinu til
þessa.
Eins og greint
var frá í Morg-
unblaðinu fyrr í
vikunni tóku þrír garpar þátt í
Guðlaugssundinu í sundhöllinni í
Vestmannaeyjum í fyrradag. Um
er að ræða 6 km langt sund til að
minnast afreks Guðlaugs Friðþórs-
sonar 1984, þegar hann synti í um
6 tíma í sjónum og náði landi á
Heimaey eftir að bátur fórst sem
hann var á.
Kristján Gíslason segir að síðan
1994 hafi það verið draumur sinn
að synda Guðlaugssundið til að
minnast eins mesta afreks Íslend-
ings. „Ég byrjaði að þjálfa mig fyr-
ir sundið og fór meðal annars til
Spánar, þar sem ég synti í ískaldri
sundlaug. Ég lenti illa í lauginni
eftir að hafa stokkið af stökk-
bretti, fékk brjósklos og hef átt við
bakmeiðsl að stríða síðan. Í fyrra
gat ég byrjað að fikra mig áfram í
sundi á ný og fyrir hálfu ári byrj-
aði ég að synda með það fyrir aug-
um að fara Guðlaugssundið á
þokkalegum tíma. Eftir að hafa
tekið tímann setti ég markið á að
fara sundið á undir tveimur tímum
og mér tókst það, synti á einum
tíma, 47 mínútum og 51 sekúndu.“
Getur eingöngu beitt hönd-
unum vegna bakmeiðsla
Þetta er besti tími sem náðst
hefur í sundinu en Magnús Krist-
insson, útvegsbóndi í Eyjum, sem
var líka á meðal sundmanna að
þessu sinni, átti besta tímann,
synti á tveimur tímum og 20 mín-
útum 1997.
Að sögn Kristjáns er ánægjulegt
að hafa slegið tímametið en það sé
ekki síður ánægjulegt að hafa
fengið tækifæri til að synda aftur.
Ennfremur skipti sig miklu máli
að hafa getað látið drauminn ræt-
ast og hafa náð að synda Guð-
laugssundið.
Hann hefur aldrei æft sund en
hefur synt sér til ánægju frá unga
aldri. Vegna bakmeiðslanna getur
hann ekki synt með fótum heldur
eingöngu beitt handartökum. „Ég
hef fylgst með krökkum á æfingu í
Laugardalslauginni og lært að
nota kút á milli fóta en dreg mig
áfram á skriðsundi með höndum,“
segir hann og bætir við að Jósep
Ó. Blöndal, læknir í Stykkishólmi,
hafi með meðferð sinni komið í
veg fyrir að hann þyrfti að fara í
uppskurð en fyrir það beri að
þakka mikið. „Vegna meðferðar
hans hef ég getað aðlagað líf mitt
meiðslunum og auk sundsins
stunda ég mikið golf, skíði og
bretti. Ég geri allt sem ég get til
að mæta til Eyja að ári og í fram-
tíðinni vegna Guðlaugssundsins og
ég vona að tíminn, sem ég náði,
verði hvatning fyrir aðra að mæta
og gera betur.“
Kristján
Gíslason
Slasaðist fyrir nokkrum árum en
byrjaði aftur að synda í fyrra
Náði besta tím-
anum í Guðlaugs-
sundinu til þessa
ATLA Gíslasyni, hrl., Guð-
mundi Páli Ólafssyni rithöf-
undi, Ólafi S. Andréssyni líf-
efnafræðingi og Náttúru-
verndarsamtökum Íslands
hefur verið veitt gjafsókn í máli
þeirra á hendur umhverfisráð-
herra vegna úrskurðar hennar
frá 20. desember sl. þar sem úr-
skurður Skipulagsstofnunar
var felldur úr gildi og fallist á
virkjunarframkvæmdir við
Kárahnjúka.
Gjafsókn er veitt á grundvelli
b-liðar 1. málsgreinar 126.
greinar laga nr. 91/1991 um
meðferð einkamála á þeirri for-
sendu að úrlausn málsins hafi
verulega almenna þýðingu. Að-
alkrafa stefnenda er að úr-
skurður umhverfisráðherra
verði felldur úr gildi og ráð-
herra gert að staðfesta úrskurð
Skipulagsstofnunar. Til vara er
þess krafist að úrskurður um-
hverfisráðherra verði ómerkt-
ur.
Héraðsdómur Reykjavíkur
féllst á flýtimeðferð málsins og
héraðsdómari hefur gefið
stefnuna út. Málið var þingfest
þriðjudaginn 19. febrúar. Lög-
maður stefnenda er Atli Gísla-
son hrl.
Gjafsókn
veitt í
máli gegn
umhverfis-
ráðherra