Morgunblaðið - 15.03.2002, Blaðsíða 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HUGMYNDIR um endur-
vakningu þriggja torga í
Þingholtunum í Reykjavík
hafa fengið jákvæða umsögn
skipulagsfulltrúa, en tillög-
urnar voru til umfjöllunar í
skipulags- og byggingarnefnd
á fundi hennar á miðvikudag.
Torgin sem um ræðir kallast
Óðinstorg, Baldurstorg og
Freyjutorg í tillögum frá íbúa
hverfisins.
Íbúinn sem um ræðir er
Eva María Jónsdóttir dag-
skrárgerðarkona og leggur
hún til að Óðinstorg, á mótum
Óðinsgötu, Týsgötu, Þórsgötu
og Spítalastígs, verði nýtt
sem borgartorg en þar eru nú
bílastæði. Sömuleiðis yrðu
torg á mótum Óðinsgötu,
Freyjugötu og Bjargarstígs
(Freyjutorg) og á mótum Óð-
insgötu, Baldursgötu og
Nönnugötu (Baldurstorg).
Aðspurð segir Eva María
að hún gangi mikið um hverf-
ið og hafi saknað þar staða
þar sem fólk gæti hist, án
þess að fara inn á veitingahús
sem bjóða upp á fullan máls-
verð. „Kannski var draumur-
inn sá að fólk gæti verið í sínu
hverfi og hist á kaffihúsi þar
sem væri eitthvert mannlíf
sem væri ekki bara bundið
kvöldverði. Og af því að ég
veit að mikið af ungu fólki
býr á þessu svæði datt mér í
hug að ég væri kannski ekki
ein um að hafa áhuga á
þessu.“
Hún segir einnig hafa
fundið fyrir því að lítið er um
staði fyrir barnafólk í hverf-
inu. „Ég fann fyrir því að ef
maður ætlar út með barnið
sitt þá er annaðhvort aða
fara á róló eða á kaffihús.
Mér fannst óréttlátt gagn-
vart sjálfri mér að ég þyrfti
að hanga á róló og sitja á
bekk og horfa á hana moka
sandi eða skikka hana með
mér á kaffihús og hún gæti
þá ekkert gert. Ef það væru
t.d. steinar eða pollar fyrir
börn á þessum torgum gæti
fullorðna fólkið setið og haft
það huggulegt án þess að fá
sand í háhæluðu skóna!“
„Okkar gamla hverfi“
Eva María segir torg eins
og þau sem hún leggur til
þekkjast víða erlendis. „Í
borgum í útlöndum eru alltaf
eitt eða fleiri gömul hverfi
þar sem allt er svo fallegt,
þeim er vel við haldið og er
hampað af því að þau eru
gömul og hafa sérstöðu.
Þingholtin eru okkar gamla
hverfi en því er kannski ekk-
ert hampað umfram önnur.
Rétt áður en ég kom með
þessa tillögu kom í ljós að
hátt hlutfall þeirra sem
heimsækja miðbæinn heim-
sækja hann eingöngu til að
skoða sig um og njóta um-
hverfisins. Þeir eru ekki að
fara að versla eða gera eitt-
hvað sérstakt heldur eru
bara að fara á röltið. Þá er
auðvitað skemmtilegra að
rölta ef maður getur sest nið-
ur með reglulegu millibili.“
Eva María segir að torgin
yrðu á leið þeirra sem gengju
frá Skólavörðustíg. „Skóla-
vörðustígur er einskonar túr-
istagata því fólk gengur frá
Hallgrímskirkju og fer niður
í bæ. Þá er annar valkostur
að fara Óðinsgötuna og byrja
á Óðinstorgi því þar er eitt-
hvað að sjá. Svo yrði næsta
torg Freyjutorg sem fólk
gengur á ef það er fallegt.
Svo gæti það endað á Bald-
urstorgi sem er óvenju sól-
ríkt því það snýr á móti suðri
og hefur gott pláss. Þar er
þetta gamalgróna veitinga-
hús Þrír frakkar sem hefur
haldið velli árum saman. Mér
skilst að nánast allir útlend-
ingar sem ætli að fá sér góð-
an fisk fari þangað og þess er
getið í túristabæklingum og
veitingahúsabókum.“
Aðspurð segir Eva María
að í þessum hugrenningum
hafi hún kynnt sér gamla til-
lögu Guðrúnar Jónsdóttur
arkitekts að endurvakningu
Óðinstorgs auk þess sem hún
ræddi við sagnfrótt fólk um
þessa staði í Þingholtunum.
„Ég fór að velta því fyrir mér
að það gæti ekki verið til-
viljun að þessi gatnamót eru
öll miklu viðameiri en gengur
og gerist með gatnamót al-
mennt. Því spurði ég Guðjón
Friðriksson sagnfræðing út í
ástæðurnar fyrir því og hann
benti mér á að Óðinstorg hafi
áður verið markaðstorg og
fisksölutorg. Þá mundi ég
einmitt að Guðni rektor, sem
ólst upp við þetta torg, var
vanur að kaupa fisk þarna af
mönnum sem stilltu sér upp
með fiskvagna og seldu. Guð-
jón sagði mér að það hefði
verið lenska víðar þó það hafi
ekki verið formlegt. Þar sem
var pláss var oft fólk sem
seldi eitthvað. Ég bý við
Kárastíg, en neðst við götuna
er Káratorg. Mér skilst að
þangað hafi komið fólk með
þvottinn sinn til að hinar svo-
kölluðu þvottakonur gætu
síðan farið með hann gang-
andi niður í þvottalaugarnar
í Laugardal. Þetta var því
eins konar samkomustaður
eða staður þar sem fólk
mættist þó allt væri það með
óformlegum hætti.“
Eva María leggur áherslu
á að ekki megi ofhanna torg-
in. „Þetta er hverfi sem
byggðist upp að verulegu
leyti áður en fyrsta borgar-
skipulagið var samþykkt árið
1927 og það hefur yfirbragð
sem er algjörlega einstakt.
Það væri mikil skemmd ef
þetta yrði hannað í hólf og
gólf í stað þess að halda
áfram með þessa uppruna-
legu stemningu. Það eru
þarna hlutir fyrir sem má ýta
undir.“
Eva María telur að það
fólk sem sæki í að búa í mið-
bænum óski eftir því að geta
sinnt sínum brýnustu erind-
um án þess að vera háð
einkabíl. Sömuleiðis óski
þetta fólk eftir því að varð-
veita söguna. „Ef þetta verð-
ur að veruleika sé ég fyrir
mér að þetta auki umferð
gangandi vegfarenda og þeg-
ar vel viðrar komi fólk úr
fylgsnum sínum til að hittast
á torgum úti.“
Hugmynd um endurvakningu þriggja torga í Þingholtunum rædd í skipulagsnefnd borgarinnar
„Hittast á
torgum úti“
Morgunblaðið/Jim Smart
Óðinstorg er eitt þriggja torga sem á að endurvekja.
Þingholt
FOSSINN, sem varpað var á
framhlið Aðalstrætis 6 á vetr-
arhátðinni Ljós í myrkri,
verður aftur til sýnis föstu-
dagskvöldið 15. mars og laug-
ardagskvöldið 16. mars frá kl.
21–24.
Segir í fréttatilkynningu að
þetta sé gert vegna fjölda
áskorana en fyrri tilraunir til
að varpa fossinum upp hafi
mistekist vegna veðurs. Er
fólk hvatt til að mæta á Ing-
ólfstorg, því um sé að ræða
einstakan viðburð sem ekki
verði endurtekinn.
Fossinn endurtekinn
Miðborg
VATNALEIKJAGARÐUR
verður settur upp í Laug-
ardalslaug verði hugmyndir
þar að lútandi að veruleika.
Hugmyndirnar eru settar
fram í skýrslu sem rædd
verður á fundi Íþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur í
dag.
Að sögn Steinunnar Valdís-
ar Óskarsdóttur, borgarfull-
trúa og formanns ÍTR, hefur
verið unnið að stefnumörkun
og þróunaráætlun fyrir allar
sundlaugar borgarinnar.
„Þar komu meðal annars
fram hugmyndir um að nýta
sérstöðu hverrar laugar
þannig að þær þurfi ekki all-
ar að verða eins. Sundhöllin
er til dæmis ólík Laugardals-
lauginni í karakter sem aftur
er ólík Vesturbæjarlauginni
og svo framvegis.“
Hún segir sérstöðu Laug-
ardalslaugarinnar vera meðal
annars þá að hún sé mikið sótt
af erlendum ferðamönnum og
fjölskyldufólki. „Þegar nýja
50 fermetra yfirbyggða sund-
laugin og heilsuræktarstöðin
verður komin gefst tækifæri
til að búa þarna til vatnapa-
radís og vatnsleikjagarð. Það
gæti meðal annars útheimt að
við breyttum lauginni þannig
að hluti hennar yrði tekinn
undir rennibrautir, leiktæki
og annað.“
Steinunn leggur þó áherslu
á að áfram yrði haldið í
ákveðin einkenni laug-
arinnar. „Þetta er auðvitað
eina laugin okkar sem er 50
metra útisundlaug þannig að
það yrði áfram haldið í það.
Hins vegar yrði meira reynt
að horfa á svæðið sem bað-
stað en sundlaug þar sem fólk
kemur bara til að synda.
Þetta yrði samkomustaður
þar sem fólk gæti komið á
góðum degi og þess vegna
eytt öllum deginum þar.“
Hún segir hugmyndir um
að nýta svæðið, sem myndast
milli nýja mannvirkisins og
gömlu laugarinnar, fyrir litla
útipotta sem meðal annars
væri hægt að hafa sjó í. „Þar
væri hægt að hafa uppsprettu
með söltu vatni og hugs-
anlega einhverja leirpotta og
annað slíkt.“
Að sögn Steinunnar hafa
stúdentar í Háskóla Íslands
þegar reiknað út arðsemi
slíks vatnaleikjagarðs og
fundið út að hann ætti að
minnsta kosti að geta staðið
undir sér. Er þar miðað við
aðgangseyri sem yrði svip-
aður og gerist í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum.
Heilsulind
í Sundhöllinni
En hversu langt á veg eru
þessar hugmyndir komnar?
„Við erum að fara af stað með
hönnun á 50 metra innisund-
lauginni,“ segir Steinunn.
„Þetta er svolítið til hliðar við
það og kemur inn sem hug-
mynd af minni hálfu. En ég
geri fastlega ráð fyrir því að
þetta muni verða þróað og
unnið áfram að þessu þegar
gamla sundlaugin verður end-
urbætt. Hún er það illa farin
að það þarf að loka henni og
gera við hana á næstu árum og
þá myndum við væntanlega
skoða þetta í því samhengi.“
Hún segir að verði stefnu-
mörkun sundlauganna, sem
rædd verður í dag, samþykkt
sé næsta skref að þróa hvern
stað út frá sinni sérstöðu. „Þá
færu menn væntanlega ekki
aðeins að horfa á Laugardals-
laugina sem vatnaleikjagarð
heldur færu menn líka að
hugsa um Árbæjarlaugina
sem fjölskyldu- og barnalaug,
Sundhöllina sem heilsulind
þar sem fólk kæmi til slök-
unar í notalegu og þægilegu
andrúmslofti og svo mætti
lengi telja. Þetta eru allt hug-
myndir sem eru settar fram í
þessari skýrslu sem ÍTR er að
fara að taka til skoðunar.“
Skýrsla um stefnumörkun fyrir sundlaugar borgarinnar
Morgunblaðið/Billi
Þessir krakkar eiga sjálfsagt ekki eftir að fúlsa við leiktækjum, leirböðum, sjávarupp-
sprettum og öðrum nýjungum sem hugmyndir eru um að koma upp í Laugardalslauginni.
Laugardalur
Vatnaleikjagarður
komi í Laugardalslaug
Í ár taka þátt 1.476 nemend-
ur í 69 bekkjardeildum í allri
borginni en markmið keppn-
innar er að efla íslenskt mál og
efla færni nemenda í notkun
þess.
Lokahátíð Árbæjar og
Breiðholts fór fram í Fella- og
Hólakirkju og eins og sjá má
af myndinni lagði unga fólkið
sig fram við upplesturinn enda
segir í fréttatilkynningu frá
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur
að margir telji þetta mestu
menningarsamkomur sem
haldnar eru í hverfunum. Er
víst um að lesturinn hafi yljað
viðstöddum um hjartaræturn-
ar enda fátt sem hrífur meira
en kraftmikill skáldskapur.
Lesið upp á
lokahátíð
Árbær/Breiðholt
Morgunblaðið/Jim Smart
Góðar bókmenntir voru í hávegi hafðar á lokahátíð Stóru
upplestrarkeppninnar í Fella- og Hólakirkju í gær.
LOKAHÁTÍÐIR Stóru upp-
lestrarkeppninnar hófust í
gær en þá fóru fram hátíðir í
Vesturbæ annars vegar og í
Árbæ og Breiðholti hins veg-
ar. Lokahátíðir í Austurbæ og
Grafarvogi verða haldnar á
mánudag.
Stóra upplestrarkeppnin
hófst veturinn 1996–1997 en
aðstandendur keppninnar
hafa frá upphafi verið samtök-
in Heimili og skóli, Íslensk
málnefnd, Íslenska lestrar-
félagið, Kennaraháskóli Ís-
lands, Kennarasamband Ís-
lands og Samtök móður-
málskennara.