Morgunblaðið - 15.03.2002, Síða 14

Morgunblaðið - 15.03.2002, Síða 14
NORÐURLANDSSKÓGAR og Skógræktarfélag Eyfirðinga hafa gert með sér samningu um ræktun skógarplantna fyrir skógarbændur á Norðurlandi. Samningurinn er gerð- ur í kjölfar útboðs sem fór fram í desember síðastliðnum en boðin var út tæplega ein milljón skógar- plantna. Skógræktarfélag Eyfirð- inga átt lægsta tilboðið, tæpar 27 milljónir króna. Plönturnar verða af- hentar á næsta og þar næsta ári. Hallgrímur Indriðason, fram- kvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga, sagði að starfsemi fé- lagsins í Kjarna myndi aukast um- talsvert í kjölfar þessa samnings. „Við horfum björtum augum til framtíðarinnar og vonum að langt og gott samstarf verði við Norðurlands- skóga,“ sagði hann. Tvö ný gróðurhús í byggingu Vegna þessa verkefnis hefur verið ráðist í mikla uppbyggingu á gróðra- stöðinni í Kjarna en þar er nú verið að byggja tvö 350 fermetra gróður- hús til að auka framleiðslugetuna. Þá eru uppi hugmyndir um að bæta þriðja gróðurhúsinu við næsta haust. Einnig hefur Skógræktarfélagið fest kaup á nýjum tækjabúnaði, m.a. moldaráfyllingar- og sáningarvél sem létta mun störfin, en vélin getur fyllt 2.000 fjölpottabakka á dag. Fjárfestingarnar munu þannig leiða til aukins hagræðis og gera gróðr- arstöðinni kleift að hafa alltaf á boð- stólum fyrsta flokks plöntur. Samn- ingurinn við Norðurlandsskóga gerir að verkum að 3–4 ný ársverk skapast hjá Skógræktarfélaginu. Þetta er mesta magn skógar- plantna sem Norðurlandsskógar hafa boðið út en auk þessa útboðs er í gildi samningur við Gróðrarstöðina Barra á Egilsstöðum um framleiðslu á rúmlega 300 þúsund plöntum. Skógarbændur á Norðurlandi munu því geta gróðursett rúmlega 1,2 milljónir skógarplantna á næsta ári, en mikill áhugi er fyrir skógrækt þeirra á meðal um þessar mundir. Rúmlega 200 landeigendur hafa nú sótt um inngöngu í Norðurlands- skóga. Samningur Skógræktarfélags Eyfirðinga og Norðurlandsskóga Framleiða tæplega milljón plöntur á næstu 2 árum Morgunblaðið/Kristján Fulltrúar Norðurlandsskóga og Skógræktarfélags Eyfirðinga framan við nýtt gróðurhús Skógræktarfélagsins í Kjarna. F.v. Sigrún Sigur- jónsdóttir, Hallgrímur Indriðason, Vignir Sveinsson, Guðrún Helga Guðbjörnsdóttir, Valgerður Jónsdóttir og Magnús Stefánsson. AKUREYRI 14 FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Til leigu skrifstofuhúsnæði í Alþýðuhúsinu á Akureyri Til leigu er skrifstofuhúsnæði á annarri hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri (áður Lögmannsstofa Ingu Þallar). Húsnæðið er 53 fm 2ja herbergja skrifstofurými með eldhúskrók. Húsnæðið er laust frá 1. apríl nk. Nánari upplýsingar gefur Björn hjá Einingu-Iðju í síma 460 3600 „AÐGERÐIN gekk vel og tók að- eins hálfa klukkustund,“ sagði Jónatan Magnússon, handbolta- kappi í KA. Hann fór í aðgerð á FSA í gær, þar sem brot úr tönn Þorvarðar Tjörva Ólafssonar, leikmanns Hauka, var fjarlægt úr nefi hans. Eins og fram hefur komið lentu þeir Jónatan og Þorvarður Tjörvi í harkalegu samstuði í leik KA og Hauka í maí í fyrra og frá þeim tíma, eða í 10 mánuði, hefur brot úr framtönn Haukamannsins set- ið í nefi Jónatans og var það því frekar ófrýnilegt. Jónatan sagðist hafa nokkrar áhyggjur af því hvernig nefið kæmi til með að líta út eftir að- gerðina. Skurður á nefi Jónatans frá óhappinu í vor var opnaður í aðgerðinni í gær og hann svo saumaður saman aftur, eftir að brotinu var náð og nefið hreins- að. Jónatan er með umbúðir á nefinu og veit því ekki hvernig það lítur út. „Ég fer í skoðun í næsta viku og þá kemur þetta í ljós og eins hvort ég get leikið á móti FH annan laugardag. Ég mun þó ekki spila ef nefið lítur ekki vel út, ég er alveg búinn að fá nóg af þessu.“ Morgunblaðið/Kristján Jónatan Magnússon með um- búðir á nefinu eftir aðgerðina. Tönnin tekin úr nefi Jónatans í gær Aðgerðin gekk velDæmdur í fangelsi vegna hótana KARLMAÐUR á fertugsaldri hef- ur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í 12 mánaða fangelsi. Fullnustu 9 mánaða refs- ingarinnar er frestað og verður hún felld niður haldi maðurinn almennt skilorð í 3 ár. Maðurinn var ákærður fyrir hót- anir gagnvart fyrrverandi sam- býliskonu sinni síðastliðið sumar, tilraun til nauðgunar, líkamsárás og kynferðisbrot. Maðurinn var sakfelldur fyrir hótanir sem og um kynferðisbrot annað en nauðgun, en sýknaður af ákæru um líkamsárás og kynferð- isbrot. Konan fór ekki fram á bætur. Dómurinn var kveðinn upp síð- degis á mánudag, en endurrit dómsins liggur ekki enn fyrir í Hér- aðsdómi Norðurlands eystra þann- ig að nánari upplýsingar um máls- atvik eru ekki kunnar. Manninum var gert að greiða allan sakarkostn- að og lögmanni sínum, Arnari Sig- fússyni, 200 þúsund krónur auk virðisaukaskatts sem og að greiða réttargæslumanni brotaþola 100 þúsund krónur. Ragnheiður Harð- ardóttir sótti málið fyrir hönd rík- issaksóknara. Dómurinn var fjöl- skipaður, Ásgeir Pétur Ásgeirsson héraðsdómari var dómsformaður, en ásamt honum kváðu Benedikt Bogason héraðsdómslögmaður og Halldór Halldórsson dómsstjóri upp dóminn. Héraðsdómur Norðurlands eystra Samið við Anza HEILSUGÆSLUSTÖÐIN á Akur- eyri hefur gengið frá samningi við ANZA um rekstur tölvu- og upplýs- ingakerfa stöðvarinnar. ANZA mun sjá um rekstur allra útstöðva, mið- lægra netþjóna og netbúnaðar, sem og hafa alla umsjón með jaðartækj- um. Einnig sér ANZA um eftirlit með öryggisafritun og stýringu á staðarnetsbúnaði og kerfum. Síðastliðið haust bauð Akureyrar- bær út tölvuþjónustu fyrir stofnanir bæjarins og var heilsugæslustöðin þar með talin, en þó höfð aðskilin frá aðalútboði. Sökum ýmissa aðstæðna, m.a. óvissu um rekstraraðila, var tekin sú ákvörðun að sleppa heilsu- gæslustöðinni úr útboðinu og taka engu tilboði sem í þjónustuna bárust. Samningar voru svo gerðir við Anza, sem áður sá um þjónustuna, og gildir hann til þriggja ára. Heilsugæslustöðin Sex fyrirtæki vilja byggja leikskóla SEX byggingafyrirtæki sendu inn umsóknir um að taka þátt í alútboði um byggingu leikskóla í Nausta- hverfi, fjögur frá Akureyri, eitt frá Dalvík og eitt úr Reykjavík. Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkti á fundi sínum nýlega að bjóða öllum þátttakendunum sem tóku þátt í forvalinu að taka þátt í alútboðinu og að greiddar verði 300 þúsund krónur til þeirra sem ekki fá verkið. Fyrirtækin sem óskuðu eftir þátttöku eru: Hyrna ehf., Fjölnir ehf., SS-Byggir ehf., P. Alfreðsson ehf., Tréverk ehf. og Íslenskir aðal- verktakar hf. Prinsessan á hörpunni LEIKBRÚÐULAND sýnir leik- brúðusýninguna Prinsessan á hörp- unni í Samkomuhúsinu á Akureyri um helgina. Efni leikritsins er sótt í íslenskan sagnasjóð, Völsungasögu, þar sem segir frá Áslaugu í hörpunni. Stríð geisar og kóngur og drottning eru drepin. Heimir gamli hörpuleikari bjargar Áslaugu prinsessu með því að fela hana í hörpu sinni. Þau leggja á flótta og eftir mikla hrakninga hitt- ir Áslaug gott fólk sem elur hana upp. Löngu síðar kemur konungur- inn Ragnar loðbrók siglandi á skipi sínu og þarf Áslaug að leysa 3 þraut- ir og segir sagan frá því hvernig hún leysir þrautirnar á snjallan hátt. Höfundur er Böðvar Guðmunds- son, Þórhallur Sigurðsson er leik- stjóri, Helga Steffensen, Margrét Kolka Haraldsdóttir og Sigrún Erla Sigurðardóttir sjá um brúðustjórn. Sigrún Edda Björnsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Þórhallur Sigurðsson og Örn Árnason sjá um leikraddir, Kári Gíslason um lýsingu og Vil- hjálmur Guðjónsson um tónlist. Sýningar verða kl. 13 og 15 á laug- ardag og kl. 14 og 16 á sunnudag. KVENNALIÐ íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar varð nú nýlega Íslandsmeistari í íshokkí og er það í annað sinn sem þær ná þeim árangri. Rétt um tvö ár eru frá því stelpurnar fór að æfa þess íþrótt. Í tilefni af titlinum bauð jafnrétt- isnefnd Akureyrar liðinu til hádeg- isverðar í bæjarstjórnarsalnum og færði konunum blómvönd í við- urkenningarskyni, en boðið bar upp á alþjóðlegan baráttudag kvenna, 8. mars. Sigrún Stefánsdóttir formaður jafnréttisnefndar sagði það hafa glatt sitt jafnréttishjarta þegar stofnað var kvennalið í íshokkí, sem fram að því hafði verið karlaíþrótt. Þetta væri liður í jafnréttisbarátt- unni, konur hefðu haslað sér völl á nýju sviði og öll skref í baráttunni væru mikilvæg. „Íshokkíhópurinn er gott dæmi um að konur sækja fram á öllum sviðum,“ sagði Sigrún. Alls eru 18 konur í liðinu, en fyr- irliði er Hulda Sigurðardóttir. Dótt- ir hennar, Anna Sonja Ágústsdóttir, leikur einnig með. Þjálfari liðsins er Carl Watters og honum til aðstoðar er Björn Jakobsson. Morgunblaðið/Kristján Sigrún Stefánsdóttir, formaður jafnréttisnefndar Akureyrar, t.h., afhenti Huldu Sigurðardóttur, fyrirliða Skautafélags Akureyrar, blómvönd í hófi nefndarinnar í gær fyrir góðan árangur liðsins undanfarið. Íshokkístelpurnar heiðraðar ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ 3 karlakórar ÞRÍR karlakórar syngja á tónleik- um í Glerárkirkju á morgun, laug- ardaginn 16. mars kl. 16. Þetta eru Karlakór Akureyrar Geysir, stjórnandi Erla Þórólfsdótt- ir, Karlakór Dalvíkur, stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson, og Karlakór Eyjafjarðar, stjórnandi Björn Leifsson. Meðleikarar á píanó eru Sólveig Anna Jónsdóttir og Helga Bryndís Magnúsdóttir. Kór- arnir munu syngja bæði einir og sér og eins allir saman. Þetta er í annað sinn sem kórarnir stilla saman strengi sína á þennan hátt og von- andi ekki það síðasta ef vel tekst til.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.