Morgunblaðið - 15.03.2002, Blaðsíða 32
MENNTUN
32 FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRLEGUR kynningardagur um háskólanám fyrir nemendur
í framhaldsskólum og alla aðra sem hyggja á háskólanám
verður sunnudaginn 17. mars í húsnæði Háskóla Íslands. En
nemendum á háskólastigi hefur fjölgað um 42% síðustu 5 ár
og eru nú tæplega 13 þúsund manns í háskólanámi á Íslandi.
Háskólakynningin er hugsuð fyrir framhaldsskólanema á
öllum aldri og aðstandendur þeirra, að ógleymdum þeim
sem ekki fóru í háskólanám að loknu stúdentsprófi en
hyggja nú á frekari nám. Þeir geta hitt í Aðalbyggingu HÍ
fulltrúa allra skóla á háskólastigi á einum stað og borið
saman þá valkosti í menntun sem bjóðast. Að háskóla-
kynningunni standa Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri,
Háskólinn í Reykjavík, Kennaraháskóli Íslands, Land-
búnaðarháskólinn á Hvanneyri, Listaháskóli Íslands,
Tækniskóli Íslands og Viðskiptaháskólinn á Bifröst.
Kynningin fer fram í húsnæði Háskóla Íslands, í Aðal-
byggingu, Odda og Nýja-Garði, sunnudaginn 17. mars kl.
11–17.
Hér eru fjórir háskólar kynntir til sögunnar af þessu til-
efni. Sagt verður frá hinum fjórum á menntasíðu á morgun.
Sjá einnig efni um kynninguna á www.hi.is.
Háskóladagurinn I/ Nemendum í íslenskum háskólum hefur fjölgað meira en spáð var.
Námsleiðum hefur að sama skapi fjölgað mikið. Íslenskir háskólar og stofnanir sem tengjast háskólum og
stúdentum kynna starfsemi sína á sunnudaginn í Aðalbyggingu HÍ kl. 11–17.
Dagur allra íslenskra háskóla
HÁSKÓLINN Á AKUREYRI er fram-sækinn háskóli með persónulegt svip-mót, þar sem áhersla er lögð á rann-
sóknir nemenda og kennara, samvinnuverkefni
og einstaklingsbundna leiðsögn. Nemum er
boðin góð aðstaða sem felst í nýju kennsluhús-
næði, vel búnum tölvuverum, rúmri
aðstöðu í lesrýmum og stúdenta-
görðum sem staðsettir eru í nágrenni
háskólans. Fimm deildir eru starf-
ræktar við háskólann, auðlindadeild,
heilbrigðisdeild, kennaradeild,
rekstrardeild og upplýsingatækni-
deild.
Haustið 2002 tekur ný deild, auð-
lindadeild, til starfa við háskólann, en
nám við deildina byggist að nokkru á
námi sem áður var kennt í sjávarútvegsdeild. 4
brautir verða til B.Sc. gráðu; fiskeldi, líftækni,
sjávarútvegsfræði og umhverfisfræði.
Nám í fiskeldi byggir m.a. á líffræði fiska, ör-
verufræði, sjúkdómafræði, fóður- og hráefnis-
fræði, eldistækni og viðskiptagreinum. Mark-
miðið er að veita nemendum góðan
þekkingargrunn til uppbyggingar fiskeldis.
Nám í líftækni fjallar um notkun örvera við
matvæla- og efnavinnslu og nýtingu lífefna þar
sem frumur eða frumuhlutar eru notaðir við
framleiðslu verðmætra efna. Kenndar eru und-
irstöðugreinar líftækninnar, m.a. efnafræði, ör-
verufræði, lífefnafræði og erfðafræði ásamt við-
skiptagreinum. Áhersla er á matvælalíftækni.
Í sjávarútvegsfræði eru auk grunngreina
kenndar sérgreinar, s.s. stjórnun, hagfræði, við-
skiptafræði, líffræði og ýmsar tæknigreinar.
Markmiðið er að mennta fólk íábyrgðarstöður í
fyrirtækjum tengdum sjávarútvegi.
Nám í umhverfisfræðum er almennt grunn-
nám í náttúruvísindum, ásamt námi í umhverf-
isskipulagi, umhverfismati, áhrifum mengunar,
auðlindahagfræði og viðskiptagreinum. Mark-
mið námsins er að nemendur þekki til helstu
ferla í náttúrunni þannig að þeir geti m.a. metið
áhrif þjóðfélagsins á umhverfi sitt.
Í heilbrigðisdeild fer fram nám á tveimur
brautum, hjúkrunarfræðibraut og iðjuþjálf-
unarbraut. Nám í deildinni tekur 4 ár og braut-
skrást nemendur með B.Sc. gráðu. Mögulegt er
að ljúka meistaragráðu í hjúkrunarfræði frá
deildinni, hún er sú eina sem býður nám í iðju-
þjálfun, en mikill skortur er á iðjuþjálfum.
Í kennaradeild eru grunn-
skólabraut, leikskólabraut, framhalds-
braut, skólaþróunarsvið og nám í nú-
tímafræðum. Á grunnskólabraut er
fjallað um kennslugreinar grunnskól-
ans, kennslufræði þeirra og uppeld-
isgreinar sem kennurum eru nauðsyn-
legar og á leikskólabraut eru kennd
leikskólafræði, listir, uppeldisgreinar
og umhverfis- og náttúrufræði. Nám í
nútímafræði er 30 eininga nám sem
veitir undirstöðu fyrir áframhaldandi nám í
heimspeki-, félagsvísinda- og guðfræðideild HÍ
og einnig er mögulegt að tengja það við nám á
öðrum brautum kennaradeildar HA.
Á framhaldsbraut eru 2 námsleiðir, kennslu-
fræði til kennsluréttinda og meistaranám.
Markmið rekstrardeildar er að búa nem-
endur undir að gegna stjórnunar- og ábyrgð-
arstörfum í atvinnulífinu og veita þeim grunn til
frekara náms á fræðasviðum deildarinnar. Nám
í deildinni tekur þrjú ár og lýkur með B.Sc.
gráðu. Í rekstrardeild eru fimm brautir, ferða-
þjónustu-, fjármála-, markaðs-, stjórnunar- og
upplýsingabraut. Áhersla er lögð á tengsl við
atvinnulífið, flest lokaverkefni nemenda verið
unnin í samstarfi við fyrirtæki eða stofnanir.
Í upplýsingatæknideild er boðið upp á nám
í tölvunarfræðum. Í náminu er megináhersla
lögð á forritun, kerfishönnun, gagnagrunna,
stýrikerfi og raunhæf verkefni. Kennsla fer að
mestu fram á ensku sem gerir HA kleift að
bjóða erlendum nemendum að nema við deild-
ina, eykur hæfni íslenskra nemenda og und-
irbýr þá betur undir störf eða framhaldsnám
erlendis. Nemendur HA eru tæplega 900 á
vorönn 2002. Fjarnám er vaxandi þáttur í
námsframboði háskólans. Heimasíða: www.-
unak.is.
Háskólinn á Akureyrili i
LANDBÚNAÐARHÁSKÓLINN áHvanneyri hefur að undanförnu aukiðvið starfssvið sitt og býður upp á nám í
hefðbundnum búvísindum og einnig á sviði nátt-
úruvísinda og umhverfismála.
Ein námsbrautin er umhverfisskipulag,
þar sem reynir m.a. nokkuð á teikn-
ingu og tölvuhönnun enda miðast
námið við að gefa góða undirstöðu til
áframhaldandi náms í landslags-
arkítektúr eða öðrum skipulags-
greinum. Staðsetning á vinnuað-
stöðu nemenda á þessari braut hefur
vakið nokkra athygli enda um nokk-
uð sérstakt fyrirkomulag að ræða
þar sem vinnustofan er í endurnýjuðu húsnæði
á loftinu í stóru gömlu fjósi sem reist var á
staðnum 1929 og á næstu hæð fyrir neðan jórtra
kýr búsins á Hvanneyri. Nemendur og kenn-
arar skólans eru mjög ánægðir með aðstöðuna
sem er heimilisleg og hlýleg, enda er þar stund-
um unnið að verkefnum langt fram á nótt. Að-
staðan er tilbreyting frá hinu hefðbundna skóla-
umhverfi.
Á Hvanneyri hefur formlega verið háskóli
síðan 1999 en þó hefur verið þar nám á há-
skólastigi allt frá árinu 1947. Þar er nú boðið
upp á þrjár námsbrautir á háskólastigi, búvís-
indi, landnýtingu og umhverfisskipulag. Námið
á öllum námsbrautunum þremur tekur að lág-
marki þrjú ár til 90 eininga B.S. prófs.
Landnýtingarbraut LBH hefur nokkra
sérstöðu. Þar er lögð áhersla á nýtingu og
verndun lands auk skógræktar og landgræðslu
miðað við íslenskar aðstæður. Hér á landi eru
ekki viðhafðar sömu aðferðir í landgræðslu og
skógrækt og víðast hvar erlendis sökum sér-
stakrar náttúru landsins. Þarna er margt haft
til hliðsjónar, s.s. veðurfar, dreifð búseta og
stutt sumur. Einnig hefur beitarnýting á við-
kvæmu landi leitt til hnignunar landgæða og
það tengist landgræðslu. Þess vegna er áhersla
lögð á nýtingu úthaga svo og annarra nátt-
úruauðlinda.
Á búvísindabraut er fjallað um húsdýrin í
víðum skilningi þess orðs. Mikil áhersla er lögð
á nautgriparækt, sauðfjárrækt og hrossarækt.
Allar undirstöður búrekstrar eru
teknar fyrir og einnig nýjungar í
jarðrækt, fóðrun og kornrækt. Nám-
ið miðast við þarfir þeirra, sem starfa
vilja við búskap, ráðgjöf eða rann-
sóknir í búfræðum og er einnig góð
undirstaða undir frekara búvís-
indanám. Þess má geta að langflestir
ráðunautar landsins á sviði landbún-
aðar hafa verið menntaðir á Hvanneyri.
Ýmsir áhugaverðir kostir eru í boði til
framhaldsnáms að loknu námi á Hvanneyri,
bæði við landbúnaðarháskólann svo og við aðra
háskóla hérlendis og erlendis. Skólinn hefur
ræktað fagleg tengsl við ýmsa háskóla erlendis
og gert við þá samstarfssamninga.
Skólinn er vel búinn tækjum og bókasafn,
rannsóknastofur og tilraunabú eru innan seil-
ingar. Ýmsar stofnanir á náttúru- og landbún-
aðarsviði hafa aðsetur á Hvanneyri og kemur
starfsfólk þeirra að kennslu við LBH.
Nemendur við Landbúnaðarháskólann eru
nú um 100 talsins, þar af stunda um 25 nem-
endur fjarnám við skólann. Auk háskólanáms
og fjarnáms er þar rekin bændadeild svo og öfl-
ug endurmenntunardeild fyrir starfandi bænd-
ur. Á Hvanneyri hefur með árunum myndast
þekkingarþorp í kringum starfsemi skólans og
þar búa nú um 200 manns. Nemendur njóta ým-
iss hagræðis af að búa og starfa á staðnum og
góð nánd er á milli nemenda og starfsfólks. Boð-
ið er upp á heimavist, og nemendagarða með
einstaklingsherbergjum og fjölskylduíbúðum,
tengdum við tölvunet skólans.
Heimasíða: www.hvanneyri.is.
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyrili i
LISTAHÁSKÓLI ÍSLANDS sækist eftirhæfileikamiklum og hugmyndaríkumnemendum með góða almenna undir-
stöðumenntun og grunnþekkingu á viðkomandi
sviði. Almenn inntökuskilyrði eru að umsækj-
endur hafi lokið stúdentsprófi eða sambærilegu
námi. Inntökunefndir velja nemendur úr hópi
umsækjenda með hliðsjón af sérstökum skil-
yrðum sem hver deild skólans setur sér.
Einkunnarorð skólans eru sköpun og miðlun.
Hlutverk hans er að sinna æðri menntun á sviði
listgreina. Skólinn starfar í fjórum deildum:
leiklistardeild, tónlist-
ardeild, myndlist-
ardeild, og hönnunar-
og arkitektúrdeild.
Grunnþáttur starfsem-
innar er menntun til fyrstu háskólagráðu. Auk
þess er boðið upp á kennaranám fyrir listafólk. Í
skólanum eru nú alls um 270 nemendur.
Nám í leiklistardeild er 120 eininga nám til
B.F.A. gráðu. Námstími er fjögur ár. Náminu
lýkur með þremur uppfærslum í nemendaleik-
húsi og B.A. ritgerð. Áhersla er lögð á að þroska
sjálfstæði nemandans með það að markmiði að
skerpa sýn hans á eigin framvindu og vinnu-
brögð sem listamanns. Við deildina eru m.a.
kennd eftirfarandi tæknifög: raddbeiting, hljóð-
mótun, líkamsbeiting og söngur. Þá fer fram
kennsla í ýmsum fræðigreinum, s.s. í leiklist-
arsögu, heimspeki og í almennri listasögu.
Nám í tónlistardeild er þriggja ára, 90 ein-
inga nám til BA- eða B.Mus. gráðu. Nemendur
geta valið um þrjár brautir eftir aðalgrein:
hljóðfæraleik/söng, með megináherslu á túlkun
tónlistar, tónlistarfræði, með áherslu á almennt
tónlistarnám og tónlistarrannsóknir, eða tón-
smíðar/nýmiðla, þar sem mest er lagt upp úr
hvers konar tónsköpun. Aðalgrein og stoð-
greinar hennar nema um helmingi einingafjöld-
ans en hinn helmingurinn samanstendur af val-
greinum og sameiginlegum fræðigreinakjarna.
Þá er innan tónlistardeildar starfrækt sérstök
námsleið, diplómanám, fyrir unga hæfileikaríka
nemendur, sem komnir eru á háskólastig á sitt
hljóðfæri og í tónlistarfræðum, en eru ennþá í
almennu námi á framhaldsskólastigi.
Nám í myndlistardeild er þriggja ára, 90
eininga nám til B.A. gráðu og skiptist á milli list-
sköpunar og fræðigreina. Námið miðar að því
að nemendur tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð,
auki þekkingu sína og skilning á listum og rækti
sjálfa sig sem listamenn. Gefinn er kostur á fjöl-
breyttu námi þar sem lögð er áhersla á tækni,
aðferðir, listsköpun og gagnrýni. Námið fer að
stórum hluta fram á vinnustofum, með þátttöku
í sérverkefnum og samstarfi við stofnanir og er-
lenda listaháskóla.
Listfræðikennsla fer
fram í málstofum og
fyrirlestrum. Náminu
lýkur með sérstöku
B.A. verkefni sem felur í sér ritgerð og mynd-
verk sem sýnt er á útskriftarsýningu.
Í hönnunar- og arkitektúrdeild starfa nem-
endur og kennarar hlið við hlið og skoða tísku,
tíðaranda, tæknilausnir, efni, listir og markað.
Námið í deildinni er þriggja ára, 90 eininga
grunnnám til B.A. gráðu. Nemendur geta valið
um þrjár námsbrautir: arkitektúr, grafíska
hönnun, eða vöruhönnun. Grafísk hönnun skipt-
ist í prentmiðla og margmiðlun, og vöruhönnun
í þrívíða hönnun og fata- og textílhönnun. Nem-
endur hafa aðgang að verkstæðum skólans.
Skilyrði er að nemendur hafi lokið fullgildu
námi í listgrein sinni áður en þeir hefja kenn-
aranám til kennsluréttinda, t.d. að hafa lokapróf
úr listaskóla á háskólastigi eða hafa lokið B.A./
B.S. gráðu úr viðurkenndum háskóla. Mark-
miðið er að undirbúa listamenn undir kennslu í
sínum sérgreinum. Næsta ár verður boðið upp á
nám fyrir myndlistarmenn og hönnuði og fyrir
leiklistarfólk. Um er að ræða 30 eininga nám
sem taka má á einu eða tveimur árum. Náminu
lýkur með diplóma sem gefur réttindi til þess að
sækja um leyfi til menntamálaráðuneytis til að
nota starfsheitið kennari. Námið er skipulagt og
rekið af Listaháskóla Íslands í samvinnu við
Kennaraháskóla Íslands.
Netfang: lhi@lhi.is, veffang: www.lhi.is.
Listaháskóli Íslandsi li Í l
TÆKNISKÓLI ÍSLANDS, sem oft ernefndur háskóli atvinnulífins, er faghá-skóli á sviði tækni, reksturs og heilbrigð-
isgreina og hóf starfsemi árið 1964. Aðdragand-
ann að stofnun hans má rekja allt aftur til ársins
1960, er Gylfi Þ. Gíslason var mennta-
málaráðherra. Fyrir ríkisstjórn Íslands
liggur frumvarp til laga um nýjan Tæknihá-
skóla Íslands og bíður samþykkis hennar.
„Það er einlæg ósk allra sem við skólann
nema og starfa í dag að frumvarpið verði
samþykkt nú á vorþingi. Það mun skipta
sköpum fyrir allt skólastarfið þegar loks verður
hægt að starfa eftir þeim lagaramma sem gildir
um allt háskólastarf á Íslandi. Of oft hefur þess
misskilnings gætt að Tækniskólinn starfi ekki á
háskólastigi en nýtt nafn mun taka þar af allan
vafa. „Treystum við nýjum menntamálaráð-
herra, Tómasi Inga Olrich, til að taka strax upp
þráðinn þar sem Björn Bjarnason skildi við
hann og láta það verða eitt af sínum fyrstu verk-
um að koma á fót Tækniháskóla Íslands,“ segir
Svandís Ingimundardóttir, náms- og starfs-
ráðgjafi.
Á þeim tæpum 40 árum sem liðin eru frá
stofnun Tækniskóla Íslands hefur skólinn tekið
stórfelldum breytingum og þróast ört samhliða
sífellt tæknivæddara samfélagi. Námsframboð
eykst ár frá ári og nemendum fjölgar jafnt og
þétt og eru nálega 700 talsins í dag. TÍ útskrifar
bygginga-, iðnaðar-, orku-, rafmagns-, vél-
tækni- tölvu-og upplýsingafræðinga með B.Sc.
gráðu eftir 3½ árs nám. Frá heilbrigðisdeild
skólans er hægt að ljúka 4ra ára B.Sc. námi í
geislafræði (áður röntgentækni) og meina-
tækni. Frá rekstrardeild er hægt að ljúka námi
í alþjóðamarkaðsfræði og vörustjórnun til B.Sc.
gráðu eftir 3ja ára nám. Þá geta nemendur TÍ
einnig lokið diploma í iðnrekstrarfræði eftir 2ja
ára nám og í bygginga-, raf- og véliðnfræði eftir
1½ –2ja ára nám. Loks er að nefna frum-
greinadeild TÍ, sem reynst hefur mörgum eldri
nemendum eina færa leiðin í íslensku mennta-
kerfi til að hefja nám á nýjan leik. Þar er boðið
aðfararnám fyrir háskólastigið en jafnframt
geta stúdentar af öðrum brautum en nátt-
úrufræðibraut komið þar við og bætt við sig
stærðfræði og raungreinum. Verið er að
endurskoða inntökuskilyrði inn í deildina
til samræmis við hugmyndir mennta-
málaráðuneytis um fjölbreyttari og styttri
leiðir að stúdentsprófi. Eins hefur það við-
horf alltaf ríkt innan vébanda TÍ að meta
skuli starfsreynslu, verkþekkingu og verknám
umsækjenda ekki síður en bóknám þeirra og
munu ný inntökuskilyrði miða enn frekar að því.
Þörf atvinnulífsins fyrir tæknimenntað
starfsfólk hefur sjaldan eða aldrei verið jafn-
mikil og í dag. Tækniskóli Íslands hefur tekið
höndum saman með atvinnulífinu og kemur til
móts við þessa miklu eftirspurn með því að laða
til sín fleiri umsækjendur. T.d. með auknu
námsframboði, með markvissum námskynn-
ingum fyrir nemendur í framhalds- og grunn-
skólum og virku samstarfi við fulltrúa íslensks
atvinnulífs. Eftirspurn eftir námi við skólann
hefur aukist að undanförnu og má sjá afar já-
kvæða breytingu á hlutfalli kynjanna í tækni-
fræði. Tæknifræðingar dagsins í dag eru flestir
karlkyns en tæknifræðingar framtíðarinnar
verða vonandi jöfnum höndum karlar og konur
ef dregnar eru ályktanir af fjölgun kven-
umsækjenda í tæknifræði. Konum fjölgar um-
talsvert í iðnaðartæknifræði og tölvu- og upp-
lýsingatæknifræði, sem hefur vinninginn, en sú
námsbraut hóf göngu sína haustið 1999 eftir
mikinn þrýsting frá forsvarsmönnum atvinnu-
lífins. Þessi þróun einungis upphafið að enn
frekari fjölgun tæknimenntaðs fólks á Íslandi,
konum jafnt sem körlum, því ný og krefjandi
störf bíða í atvinnulífinu.
Heimasíða: www.ti.is.
Tækniskóli Íslandsi li Í l